Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2013, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2013, Blaðsíða 30
30 23.–25. ágúst 2013 Helgarblað m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g „Allir eru fórnarlömb“ Paradies: Liebe Leikstjóri: Ulrich Seidl Elskið þessa risa S íðast þegar ég kom hingað var ég með svart hár,“ segir hinn hvíthærði David Byrne þegar hann stígur á svið í Há- skólabíói í fyrsta sinn í 19 ár. „Hún líka, en það er af öðrum ástæð- um.“ Með honum á sviðinu er hin guðdómlega Annie Clark, sem geng- ur undir sviðsnafninu St. Vincent. Annie sást síðast hér um slóðir þegar hún hitaði upp fyrir Sufjan Stevens í Fríkirkjunni árið 2006 en nafn sitt dregur hún af spítalanum þar sem skáldið Dylan Thomas dó. Sá hefur haft áhrif á fleiri tónlistarmenn, því Róbert nokkur Zimmermann gerði fornafn hans að eftirnafni sínu sem hann notast enn við. Ekki hægt að standa kyrr og spila Byrne og Clark eru þó langt í frá ein á sviðinu, því hljómsveitin tel- ur allt í allt 12 manns og spila flest- ir á blásturshljóðfæri. Á umslagi ný- útkominnar plötu, Love This Giant, er öðrum sem mikið notuðu blásara þakkaður innblásturinn, svo sem Duke Ellington, James Brown og Jó- hanni Jóhannssyni. Tónleikarnir hefjast á fyrsta lagi plötunnar, smá- skífulaginu Who. Og héðan og út rík- ir stanslaus gleði. Byrne hefur lýst því yfir að á tím- um þar sem allt verður stöðugt vél- rænna leggi fólk æ meiri áherslu á performans. Til að fylgja hug- myndinni eftir hefur hann ráðið danshöfundinn Annie-B Parsons til að semja spor fyrir sig og bandið. Það að standa kyrr og spila er svo sixtís. Efnið sem tengir allt saman Hljómsveitin stígur sín spor og St. Vincent trítlar fram og til baka eins og ballerína í spiladós og lítur út eins og yngri (og mun rokkaðri) Madonna. Byrne sjálfur er hér alls engin prímadonna. Þvert á móti er hann eins og hressi frændinn sem dansar í veislunni og fær að syngja lag við og við, en skyggir ekki á með- spilara sína þegar þeir eiga leik. Jafnvel þegar röðin er komin að Talking Heads-slagaranum Wild, Wild Life fá allir að vera með, og hljómsveitin gengur í congaröð framhjá míkrófóninum og syngur eina línu á mann. Í laginu Outside of Space and Time flakka menn fram og til baka eins og frumeindir, en lagið er tileinkað Higgs Boson-eindinni, sem er víst efnið sem tengir allt saman. Byrne segir það hafa fengið sínar 15 mínútur af frægð þegar það var uppgötvað fyrr á árinu af CERN- tilraunastofunni í Sviss. Þó eind þessi sé of flókin fyrir blaðamenn að skilja virðist hún vera poppstjörnum hug- leikin, því Nick Cave orti einnig lag til hennar á nýlegri plötu sinni. Talandi dæmi Það er fyrst í uppklappinu þegar Byrne syngur Burning Down the House eins og hann gerði síðast á þessu sviði árið 1994 og síðan Road to Nowhere, að maður er minntur á að hér er ekki aðeins framsækinn listamaður á ferð, heldur einnig lif- andi goðsögn í rokkheimum. Byrne er fæddur í Skotlandi en alinn upp í Baltimore í Bandaríkjunum þar sem hann var rekinn úr skólakórnum fyr- ir að þykja laglaus og innhverfur, en hann segist hafa verið á mörkum þess að teljast með Asperger-heil- kenni. Byrne vakti fyrst athygli eftir að hann flutti til New York árið 1975 og stofnaði hljómsveitina Talking Heads sem hóf að troða upp á Mekka pönksenunnar þar í borg, klúbbnum CBGS‘s. Mestar urðu vinsældirnar á fyrri hluta 9. áratugarins, þegar þau unnu með Brian Eno og gáfu út lög á borð við Take Me to the River og Once in a Lifetime. Myndbönd þeirra þóttu áhugaverð og voru mik- ið spiluð á MTV, og einkenni Dav- id Byrne voru rykkkenndar hreyf- ingar og alltof stór jakkafötin sem hann klæddist í tónleikamyndinni Stop Making Sense. Líklega voru fáir sem fönguðu neysluhyggju tímabils- n Vel heppnaðir tónleikar David Byrne og St. Vincent í Háskólabíói n David Byrne engin prímadonna Tónleikar Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com David Byrne og St. Vincent. Háskólabíó, 18. ágúst „ Í eina kvöldstund er Háskólabíói breytt í svalasta klúbbinn í New York og það er hrein unun að fylgjast með. David Byrne og St. Vincent Háskólabíói breytt í svalan New York-klúbb. MynD: MagnúS H. Hasarhetja sekkur til botns B reski leikarinn Jason Statham er einn af harðhausum Hollywood. Myndirnar hans eru einfaldar hasarmynd- ir þar sem bardagahæfileikar hans og útlit fá að njóta sín. Þekktastar eru líklegast seríurnar Transport- er og Crank en það var leikstjórinn Guy Ritchie sem uppgötvaði Jason Statham fyrir rúmum áratug þegar hann fékk Statham til að leika smá- glæpamann í Lock Stock and Two Smoking Barrels við hlið Vinnie Jones. Jason Statham er frægur fyrir klæðast flottum jakkafötum og berja mann og annan. Hann er nútíma hasarhetja – prinsippmaður sem lætur hnefana tala og hefur á síðustu árum leikið í stórum Hollywood- myndum á borð við Fast and Furi- ous og The Expendables. Upp á síðkastið hefur Jason Statham hins vegar látið reyna á leikhæfileikana, bæði í myndinni Blitz og nú síðast í kvikmyndinni Hummingbird, sem nú er sýnd í kvikmyndahúsum hér á landi. Hummingbird segir sögu Joey Jo- nes, fyrrverandi hermanns úr Afganistan stríðinu sem hefur breyst í róna og mælir götur Lund- únaborgar. Í raun er söguþráð- ur myndarinnar svo ævintýralega heimskulegur að erfitt er að ná utan um alla þær sögur sem leikstjórinn Stephen Knight reynir að segja. Myndin reynir að vera einhvers konar samfélagsádeila þar sem líf útigangsmanna er í forgrunni. En líka hefndardrama, því besta vin- kona Joey Jones er drepin og hann rífur sig upp úr volæðinu til að finna hina seku. Þetta er líka ástarsaga – því Joey Jones verður ástfangin af nunnu sem vinnur í skýli fyrir heim- ilislausa í borginni. Þetta er saga um trú og trúleysi – því nunnan hefur tapað trúnni. Uppgjör við alkóhól- isma – því Joey Jones drekkur til að svæfa drápsmaskínuna sem herinn bjó til úr honum. Þetta er saga um kynferðislega misnotkun í Póllandi, mansal kínversku mafíunnar, fátækt einstæðra mæðra í Lundúnum og svo framvegis og svo framvegis. Það er í raun afrek hve hand- ritsteymið og leikstjórinn kemur mörgum sögum fyrir í þessari einu mynd. Jason Statham reynir hvað hann getur að feta sig í þessu hand- ritsfeni en sekkur til botns. Best er myndin þegar Joey Jones lætur hnefana tala. Verst þegar hann opnar munninn og byrjar að tala. Melódrama nær ekki að lýsa vand- ræðalegheitunum í ástarsenunum milli hermannsins og nunnunn- ar. Hummingbird er ein versta mynd síðustu ára. Nálgist með varúð. Eyðið peningunum í eitthvað annað. n Bíómynd Símon Birgisson simonb@dv.is Hummingbird IMDb 6,2 Metacritic 14 Leikstjóri: Steven Knight Handritshöfundur: Steven Knight aðalleikarar: Jason Statham, Agata Buzek, Vicky McClure 100 mínútur Hummingbird Jason Statham í dramatísku uppgjöri við sjálfan sig. „Vísitölu sumarhasar“ Pacific Rim Leikstjóri: Guillermo del Toro.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.