Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2013, Blaðsíða 50
WWW.MENNINGARNOTT.IS
Stígur á
Jónas!
Fréttabörn Jónasar
n Jónas Kristjánsson, fyrrverandi
ritstjóri DV, er þekktur fyrir harð-
orðar en fjörugar bloggfærslur
um menn og málefni. Svokölluð
„fréttabörn“ eru honum afar hug-
leikin, en svo kallar hann unga
fjölmiðlamenn sem eru að stíga
sín fyrstu skref. Stígur Helgason,
fjölmiðlamaður á þrítugsaldri,
fylgist grannt með Jónasi og vakti
nýlega athygli á því í netheimum
að ritstjórinn gamli hafði tvívegis
birt nær sömu greinina um frétta-
börn. Hafði hann einvörðungu
skipt um titil og gert smávægilegar
orðalagsbreytingar.
Skipt út fyrir kött
n Jóhanna María Sigmundardóttir er
nýflutt að heiman til að geta betur
sinnt skyldum sínum sem ný-
kjörinn þingmaður Framsóknar-
flokks. Áður en hún settist á þing
bjó hún hjá foreldrum sínum á
bóndabýlinu Látrum. Foreldrar
hennar hafa nú skipt henni út
fyrir kött að hennar sögn. „Ég er
ekki einu sinni almennilega flutt
að heiman og foreldrar mínir eru
strax búnir að fá sér kött í minn
stað,“ segir Jóhanna María á Face-
book-síðu sinni. Kötturinn hefur
fengið nafnið Perla og segir Jó-
hanna María
komið fram við
Perlu eins og
prinsessu.
Loksins kominn
á Facebook
n Sindri Sindrason, einn umsjónar-
manna Íslands í dag, er nú loks-
ins kominn á Facebook við mik-
inn fögnuð vina sinna. Kollegar
Sindra á Stöð 2 virðast sérstak-
lega spenntir að fá hann á sam-
skiptamiðilinn. „Til hamingju
með að vera sex árum of seinn.
En gaman að sjá þig kæri vinur,“
skrifar Breki Logason, samstarfs-
félagi hans. Helga Arnardóttir er
líka glöð að sjá félaga sinn: „Elsk-
an mín en hvað er gaman að sjá
þig á facebook. Þetta er stór stund
minn kæri !!“ Hugrún Halldórs-
dóttir, sem nýlega gekk til liðs við
Ísland í dag-teymið, er
sérlega spennt að fá
Sindra á Facebook:
„Veeeeeeeeeeelkom-
inn á Facebook!!!!
Jiii ég er svo spennt,
þetta er stór
dagur í lífi
okkar allra!
Skálum ræki-
lega í kaffi-
tímanum!“
G
uðni Ágústsson, fyrrverandi
landbúnaðarráðherra, hefur
dregið lærdóm af mistökum
sínum og kveðst nú kunna að
meðhöndla pítsukassa með réttum
hætti. Hann vakti athygli viðstaddra á
Domino´s við Skúlagötu á dögunum
þegar hann tók við pítsu sem hann
hafði pantað og gekk heim á leið með
pítsuna undir annarri hendinni, líkt
og hann héldi á bók. Guðni rekur upp
roknahlátur þegar blaðamaður DV
spyr um málið.
„Ég var ærlega tekinn á beinið
þegar heim kom. Margrét átti ekki orð
yfir að ég skyldi fara með pítsuna eins
og ég væri með bók undir hendinni,“
segir Guðni um viðbrögð Margrétar
Hauksdóttur, konu sinnar, við heim-
komu hans. „Margrét orðaði þetta
nákvæmlega svona: Hvað er að sjá
þig maður? Þú ferð með pítsuna eins
og hún sé bók!“
Guðni segir pítsuna hafa farið illa á
heimleiðinni. „Pítsan lá þarna í einni
hrúgu í kassanum og ég fékk skömm
í hattinn,“ segir Guðni en bætir við að
pítsan hafi verið bragðgóð þrátt fyrir
hnjaskið. „Já, við borðuðum pítsuna
með bestu lyst, hún var góð á bragðið.“
Hann segir þau hjónin panta pítsu
endrum og eins. „Ég ákvað að bjóða
Margréti upp á pítsu og labbaði þarna
út í Domino´s. Ég sýndi mikið frum-
kvæði en ég fór ekki vel með mat-
inn,“ segir Guðni sem þykir góð pítsa
gulli betri. „Frekar hefði ég nú viljað
sækja mér lambalærissneiðar í raspi.
En pítsur eru góðar með osti og öðru
fíneríi. Ég vil hafa bæði kjöt og ost á
pítsunni minni, það þykir mér best. Ég
vil hafa mat á henni, pítsan á að vera
bragðmikil og kraftmikil.“
Guðni kveðst hafa lært af mis-
tökum sínum. Héðan af muni hann
handleika pítsur í kassa á aðra vegu.
„Já, já, nú fer ég öðruvísi með pítsurn-
ar héðan í frá.“ n olafurk@dv.is
„Þú ferð með pítsuna eins og hún sé bók!“
n Guðni tekinn á beinið n Dregur lærdóm af mistökunum
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 23.–25. ágúSt 2013 94. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr.
Skömm í hattinn „Ég var ærlega tekinn
á beinið þegar heim kom,“ segir Guðni í
samtali við DV um pítsumálið.