Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2013, Blaðsíða 8
8 Fréttir 23.–25. ágúst 2013 Helgarblað
Milljarðaþrot fyrr verandi eiganda Tals
n Félag fjarskiptakóngs skilur eftir sig 2,7 milljarða skuldir
F
élag athafnamannsins Jóhanns
Óla Guðmundssonar, Fjalla-
skarð ehf., skildi ekkert eftir sig
nema 2,7 milljarða króna skuld-
ir þegar það var úrskurðað gjaldþrota
í apríl síðastliðnum. Engar eignir
fundust í þrotabúinu og ekkert fékkst
upp í 2,7 milljarða króna kröfur í það
að því er fram kemur í Lögbirtinga-
blaðinu í dag.
Jóhann Óli átti, í gegnum Fjalla-
skarð, á sínum tíma tæplega helm-
ingshlut í fjarskiptafyrirtækinu Tali.
Hann var ásamt öðrum á góðri leið
með að byggja upp fjarskiptaveldi
sem náði allt að 20 prósenta markaðs-
hlutdeild á fjarskiptamarkaði á árun-
um fyrir hrun.
Árið 2007 keypti Jóhann, í gegnum
félag sitt Wireless Broadband
Systems, fyrirtækið Hive og sam-
einaði fjarskiptafélögunum Atlassíma
og eMax. Hive var áberandi í innreið
sinni á markaðinn á árunum fyrir
hrun. Svo fór að Teymi hf. keypti 51
prósents hlut í Hive og sameinaði fjar-
skiptafyrirtækinu SKO. Úr þeirri sam-
einingu varð til Tal sem síðar var fært
undir eignarhald IP-fjarskipta ehf.
sem var félag í eigu Teymis, Fjalla-
skarðs, NBI og Hermanns Jónassonar.
Upp úr sauð milli Jóhanns Óla og full-
trúa Teymis í stjórn Tals en deilur þar
urðu efni greinaskrifa í fjölmiðlum.
Samkvæmt síðasta ársreikningi
Fjallaskarðs, fyrir árið 2009, var Jó-
hann Óli skráður eigandi félagsins en
Landsbankinn tók það yfir haustið
2009. Þar áður hafði bankinn einnig
tekið yfir Teymi og eignaðist þar með
um 82 prósenta eignarhlut í Tali. Svo
fór síðan að í júní 2010 keypti Auður I
fagfjárfestasjóður allt hlutafé IP-fjar-
skipta ehf. n
mikael@dv.is
Enn í starfi eftir
stórfelld skattsvik
n Sveik margar milljónir undan skatti í gegnum Öryggismiðstöð Vesturlands
J
á, ég er ennþá verktaki og
launamaður hjá Öryggismið-
stöðinni,“ segir Guðni H. Har-
aldsson sem var í mars síð-
astliðinn fundinn sekur í
Héraðsdómi Vesturlands um stór-
felld bókhalds- og skattalagabrot.
Guðni var dæmdur í 10 mánaða skil-
orðsbundið fangelsi og var honum
gert að greiða 45 milljónir króna í
sekt.
Guðni er fyrrverandi stjórnar-
formaður og framkvæmdastjóri
Öryggismiðstöðvar Vesturlands.
Fyrirtækið var verktaki hjá Öryggis-
miðstöð Íslands og hafði með-
al annars umsjón með öryggiskerfi
fyrir aldraða og sjúklinga á Akranesi.
Eftir að Öryggismiðstöð Vesturlands
fór í þrot árið 2008 hefur Guðni
haldið áfram verktakastörfum fyr-
ir Öryggismiðstöðina á eigin vegum.
„Ekki ennþá, nei,“ segir Guðni að-
spurður hvort dómur Héraðsdóms
Vesturlands frá því í mars hafi haft
áhrif á störf hans fyrir Öryggismið-
stöðina.
Vildu halda þjónustu áfram
„Jú, það er rétt, hann er enn verk-
taki hjá okkur. Hann er að gera þetta
bara í sínu nafni núna, ekki und-
ir sérstöku fyrirtæki, og sinnir fyrir
okkur afmörkuðum verkefnum á
Akranesi,“ segir Ómar Örn Jóns-
son, framkvæmdastjóri Öryggis-
miðstöðvarinnar, í samtali við DV.
Hann tekur þó fram að Guðni sé ekki
og hafi aldrei verið starfsmaður Ör-
yggismiðstöðvarinnar.
Hann segir ákvörðun hafa ver-
ið tekna um að halda samstarfi Ör-
yggismiðstöðvarinnar við Guðna
áfram, að minnsta kosti fyrst um
sinn. „Menn vildu halda áfram þeirri
þjónustu sem var haldið úti þarna,
þannig hann hefur verið að sinna
þessu áfram. Hvað verður svo í fram-
haldinu veit maður ekki, en hann er
allavega starfandi verktaki á svæð-
inu.“
Játaði brotin skýlaust
Haustið 2012 höfðaði sérstakur sak-
sóknari mál á hendur Guðna vegna
„meiriháttar brota gegn skattalögum
og lögum um bókhald“ og var hann
sakfelldur í mars á þessu ári. Játaði
hann öll brot sín skýlaust og kaus að
áfrýja dómnum ekki.
Í dómi Héraðsdóms Vesturlands
kemur fram að Guðni hafi sem fram-
kvæmdastjóri Öryggismiðstöðvar
Vesturlands ekki staðið skil á virðis-
aukaskatti upp á rúmar 13 milljónir
og vanrækt skil á skattskýrslum fyrir-
tækisins. Þá hafi hann persónulega
skilað efnislega röngu skattfram-
tali. Brotin voru framin á tímabilinu
2006–2008 en rannsókn skattrann-
sóknarstjóra hófst sumarið 2009.
45 milljóna sekt
Við ákvörðun refsingar Guðna var
tekið tillit til þess að hann hefði
gengist greiðlega við brotum sínum
auk þess að hann hafði hreint
sakavottorð. Einnig var litið til hins
langa tíma sem meðferð málsins tók.
Hlaut hann 10 mánaða skilorðs-
bundinn fangelsisdóm auk þess
sem honum var gert að greiða sekt
upp á 45 milljónir króna. Ef sektin
yrði ekki greidd innan fjögurra
vikna yrði honum gert að afplána
eins árs fangelsisvist. Sektin var ekki
greidd á tilsettum tíma en Guðna
hefur verið veittur frestur.
Þó Guðna hafi ekki verið gert
að hætta störfum sínum fyrir Ör-
yggismiðstöðina vegna brotanna
tekur hann undir það sjónarmið
að staða hans geti talist óheppi-
leg. „Við erum bara að leysa þessi
mál, ég, lögfræðingurinn minn og
Öryggismiðstöðin,“ segir Guðni og
bætir við að hann hafi sjálfur hugs-
að sér til hreyfings eftir að dómur
féll í málinu. n
Milljónasvik Guðni Har-
aldsson var fundinn sekur
um stórfelld skattsvik í
gegnum Öryggismiðstöð
Vesturlands. Hann er enn
verktaki Öryggismið-
stöðvar Íslands.
Ólafur Kjaran Árnason
blaðamaður skrifar olafurk@dv.is
„ Jú, það er rétt,
hann er enn verk-
taki hjá okkur.
Siggi hakkari
laus allra mála
Sælgætisframleiðandinn Nói Sírí-
us hefur staðfest í yfirlýsingu til
fjölmiðla að tilraun hafi verið
gerð til að kúga fé af fyrirtækinu.
Forsvarsmenn fyrirtækisins segja
að tilraunin hafi verið „viðvanings-
leg“ og að aldrei hafi nein hætta
verið á ferð þó gefið hafi verið í
skyn í hótunum að reynt yrði að
valda Nóa Síríus tjóni ef ekki yrði
greidd tiltekin upphæð.
Stjórnendur fyrirtækisins leit-
uðu umsvifalaust til lögreglunn-
ar sem tókst að hafa hendur í hári
mannanna. „Lögreglan á hrós
skilið fyrir að bregðast skjótt við og
málið er nú í eðlilegum farvegi hjá
ríkissaksóknara. En fyrst og síðast
er þetta mannlegur harmleikur
þeirra sem í hlut eiga,“ segir í yfir-
lýsingunni en fjárkúgunartilraun-
irnar voru gerðar í lok janúar og
byrjun febrúar í fyrra.
Sigurður Ingi Þórðarson, einnig
þekktur sem Siggi hakkari, var
einn þeirra sem höfðu stöðu grun-
aðra í fjárkúgunarmálinu. Hann
birti á Twitter-síðu sinni á mið-
vikudag bréf frá embætti ríkissak-
sóknara þar sem fram kemur að
Sigurður Ingi verði ekki ákærð-
ur fyrir að reyna að kúga fé út úr
Nóa Síríus. „Telst það sem fram er
komið ekki líklegt eða nægjanlegt
til sakfellingar.“
Sigurður skrifar með myndinni
að þetta sé annað málið á hendur
honum sem embættið hafi látið
niður falla í vikunni. Vísir greindi frá
því á fimmtudag að tveir aðrir menn
væru grunaðir í Nóa Síríus-málinu.
Ofbeldisverk
fordæmd
„Íslensk stjórnvöld harma mann-
fall það sem orðið hefur undan-
farnar vikur í Egyptalandi og
hvetja valdhafa til að sýna stillingu
í aðgerðum gegn mótmælendum.
Ísland fordæmir öll ofbeldisverk.“
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem
utanríkisráðuneytið sendi frá sér á
fimmtudag.
Gunnar Bragi Sveinsson utan-
ríkisráðherra ritaði Nabil Fahmy,
utanríkisráðherra Egyptalands,
bréf þar sem hann lýsir áhyggjum
sínum vegna ástandsins í Egypta-
landi. Gunnar Bragi segir í bréfi
sínu að virða beri lýðræðisvilja
borgara Egyptalands. Lýðræðis-
þróun hafi ekki gengið eftir eins
og vonir stóðu til, líkt og aðgerðir
egypska hersins í júlí beri vott um.
Utanríkisráðherra leggur áherslu
á að nýir valdhafar standi við fyrir-
heit um að stefna hratt og örugg-
lega að því að við völdum taki lög-
mæt lýðræðisstjórn.
Þá hvetur utanríkisráðherra
stjórnvöld í Egyptalandi til að
tryggja að allir lýðræðislegir flokk-
ar fái aðkomu að hinu pólitíska
ferli. Stuðla verði að sáttum og
samlyndi í samfélaginu, ella sé
hætta á frekari átökum sem aðeins
muni skaða hagsmuni íbúa lands-
ins og heimshlutans alls.
Eins og fram hefur komið
gerðu öryggissveitir árás á mót-
mælabúðir stuðningsmanna
Mohammed Morsi, forseta
Egyptalands, í síðustu viku þar
sem hundruð manns biðu bana.
Fjarskiptaveldi fór á hliðina Fjallaskarð
sem áður átti meðal annars stóran hlut í Tali
skilur eftir sig 2,7 milljarða króna gjaldþrot.