Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2013, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2013, Blaðsíða 20
20 Sport 23.–25. ágúst 2013 Helgarblað Mourinho mætir á Old Trafford E nska úrvalsdeildin fór vel af stað um liðna helgi og gul og rauð spjöld og haug- ur af mörkum litu dagsins ljós. Fjörið ætti ekki að verða mikið minna um helgina þegar önnur umferðin fer fram enda fullt af spennandi leikjum á dagskránni. Mourinho á Old Trafford Stórleikur umferðarinnar verður á mánudagskvöld þegar Manchester United tekur á móti Chelsea. Bæði lið fóru vel af stað í fyrstu um- ferðinni; United vann afar sannfær- andi 4–1 útisigur á Swansea á með- an Chelsea lagði nýliða Hull að velli, 2–0, á heimavelli. Chelsesa lagði svo Aston Villa á miðvikudag, 2-1. Þessi lið mættust síðast í úrvalsdeildinni þann 5. maí síðastliðinn og þá hafði Chelsea betur, 1–0, í tilþrifalitlum leik á Old Trafford. Flestir spá því að Chelsea muni vinna deildina en United verði skammt undan. Hvað sem því líður er ljóst að allt getur gerst á Old Trafford á mánu- dagskvöld enda virka bæði lið í fínu formi þessa dagana. Hrakfarir Arsenal Augu margra munu eflaust beinast að Arsenal eftir hrakfarir liðsins á heimavelli gegn Aston Villa í fyrstu umferðinni. Arsenal mætir Fulham í nágrannaslag á Craven Cottage í hádegisleiknum á laugardag. Liðið vann sannfærandi sigur á Fener- bache á miðvikudagskvöld í for- keppni Meistaradeildarinnar en spurning hvernig ferðalagið fór með Wenger og félaga. Fulham- liðið vann góðan útisigur gegn Sunderland í fyrstu umferðinni og er með lið sem vel getur strítt Arsenal. Liverpool á Villa Park Einn af athyglisverðari leikjum helgarinnar fer fram síðdegis á laugardag þegar Aston Villa tek- ur á móti Liverpool. Eins og kom- ið hefur fram kom Aston Villa veru- lega á óvart í fyrstu umferðinni með frábærum 3–1 sigri á Arsenal. Síðast þegar þessi lið mættust á Villa Park, í mars síðastliðnum, hafði Liver- pool betur, 2–1 en Villa vann á An- field, 3–1. Liverpool vann góðan heimasigur á Stoke, 1–0, í fyrstu umferðinni um helgina þar sem liðið fékk fullt af færum sem fóru forgörðum. Spili Villa líkt og liðið gerði gegn Arsenal skyldi enginn útiloka sigur gegn Liverpool. Nýliðar deildarinnar; Hull, Crystal Palace og Cardiff verða að sjálfsögðu í eldlínunni og bíður erf- iðasta verkefnið liði Cardiff sem tek- ur á móti Manchester City á sunnu- dag. Hull tekur á móti Norwich á laugardag og Crystal Palace heim- sækir Stoke á laugardag. n Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Stórlaxar Það er orðið langt síðan David Moyes og José Mourinho mættust á knattspyrnuvellinum. Þeir munu hins vegar mætast á mánudag í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar. Laugardagur Fulham - Arsenal „Ég hef trú á því að Arsenal komi til baka og landi 2–1 sigri. Þeir töpuðu illa um helgina og þurfa sigur.“ Hull - Norwich „Þetta er strembinn leikur. Ég hef ekki séð Hull-liðið en mér finnst líklegt að þessi leikur endi með jafntefli, 1–1.“ Southampton - Sunderland „Ég spái 2–0 Southampton í vil. Þeir hafa komið skemmtilega á óvart og það er gaman að horfa á þá.“ Newcastle - West Ham „Maður veit ekki hvar Newcastle-liðið stendur enda steinlá það fyrir frábæru City-liði á mánudag. Ég held samt að Newcastle vinni þennan leik nokkuð örugglega, 3–1.“ Stoke - Crystal Palace „Ég hef trú á að nýliðarnir taki þetta, 1–0. Stoke er svo leiðinlegt lið.“ Everton - WBA „Ég spái Everton sigri þarna, 2–0. Önnur lið eru farin að bera meiri virðingu fyrir þeim núna eftir velgengnina í fyrra og þetta verður erfitt tímabil fyrir þá.“ Aston Villa - Liverpool „Ég er svo mikill United-maður að ég verð að spá Villa sigri. Þeir eru reyndar með hörkulið og vinna þetta 2–1.“ Sunnudagur Cardiff - Manchester City „City vinnur sannfærandi 4–0 sigur. Ég er hræddur um að City fari langt með að vinna þessa deild.“ Tottenham - Swansea „Ég held að Tottenham vinni þennan leik, 3–1. Það er alltaf gaman að horfa á Tottenham og sérstaklega eftir að Gylfi Sigurðsson kom þangað. Það er vonandi að hann fari að verða fastamaður í liðinu.“ Mánudagur Manchester United - Chelsea „Þetta verður skuggalegur leikur. Ég spái því að United vinni þennan leik, 2–1, og Rooney kemur inn á sem varamaður og skorar sigurmarkið. Þannig mun hann kæfa þann orðróm að hann sé á leið til Chelsea.“ Rooney-sagan endar DV fékk Teit Örlygsson, þjálfara karlaliðs Stjörnunnar í körfuknattleik, til að spá í leiki helgarinnar. Teitur er gallharður stuðningsmaður Manchester United og hann spáir mikilli dramatík á Old Trafford á mánudagskvöld. Teitur Örlygsson spáir í spilin fyrir leiki helgarinnar í enska boltanum Mynd dV-HeiðA Vissir þú … … að edin dzeko átti 8 skot að marki Newcastle á mánudag. Það eru fleiri skot en sjö lið náðu í fyrstu umferðinni um helgina. … að Samir nasri hefur skorað eða lagt upp 6 mörk í síðustu 9 deildarleikjum. … að í síðustu þremur heimsóknum sínum til Manchester hefur newcastle fengið á sig 4 mörk. Andstæðingarnir voru að sjálfsögðu City og United. … að newcastle fékk síðast á sig 3 mörk eða meira í opnunar- leik efstu deildar á Englandi árið 1988. Þá tapaði liðið 4–0 fyrir Everton. … að 24 af 36 (67%) mörkum Sergio Aguero hafa komið á Etihad-vellinum, heimavelli Manchester City. … að City hefur skorað í 51 heimaleik í röð í úrvalsdeildinni, sem er met. … að frá byrjun síðustu leiktíðar hefur enginn leikmaður lagt upp fleiri mörk en Wayne Rooney. … að aðeins eitt félag hefur verið á toppnum eftir fyrstu umferðina en fallið svo um vorið – Bolton tímabilið 2011/12. … að tvisvar í sögu úrvalsdeildarinnar hafa allir þrír nýliðar deildarinnar náð að forðast fall, 2001/02 og 2011/12. n Önnur umferðin í ensku úrvalsdeildinni fer fram um helgina n Stórleikur á mánudag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.