Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2013, Síða 27
Fólk 27Miðvikudagur 4. september 2013
98 ára landaði sex punda laxi
É
g er í raun og veru mjög ham
ingjusamur, í alvöru sko,“ segir
Þormóður, bróðir Hugleiks Dags
sonar, sem er í stóru hlutverki í
nýrri teiknimyndaröð á RÚV, Hulli.
Þættirnir fjalla um líf hliðarsjálfs
listamannsins Hugleiks, Hulla sem býr
í teiknaðri Reykjavík og hangir með
teiknuðum vinum sínum og bróð
ur sínum sem kallast Þorri í þáttun
um. Í fyrsta þætti þáttaraðarinnar sem
var sýndur í síðustu viku var grimmt
grín gert að Þorra. Í einni senu þáttar
ins liggur Þorri undir rúmi stelpunn
ar sem hann er skotinn í á meðan hún
nýtur ásta með öðrum manni og tekur
sopa úr flösku með eigin hlandi.
Lágmæltur og fyrirferðarlítill
Þormóður, hefur þetta komið fyrir þig?
„Þetta hefur ekki komið fyrir mig, en
hann Þorri í þáttunum á mjög erfitt líf.
Hann er mjög ýkt útgáfa af mér. Allir
hafa hins vegar lent í því að vera skotn
ir í stelpu sem vill síðan bara vera vinur
manns.“
Í þáttunum er stöðugt gert grín
að Þorra sem segir frá ýmsu mark
verðu í lífi sínu án þess að nokkur
hlusti. Meðal annars því að hann sé
nýkominn frá Afríku þar sem hann
vann við að hjálpa munaðarlausum
börnum. Er þetta rétt? „Nei, ég hef
aldrei komið til Afríku. Ég hef komið
til Spánar og var næstum því búinn
að fara til Afríku,“ segir hann í léttum
dúr. „Ég er hins vegar mjög lágmæltur
og það er verið að gera grín að því. Það
heyrist ekkert mikið í mér.“
Var nördagelgja
Öðru máli gegnir um bróður hans,
Hugleik. „Hann er háværari, bæði í líf
inu og í listinni. Hann hefur mjög hátt
og það fer mikið fyrir honum.“
Hugleikur er þremur árum eldri en
Þormóður. Hvernig var að alast upp
með honum? Eru þeir vanir að gera
svo grimmt grín að hvor öðrum?
„Já, við vorum góðir saman fram
an af og lékum okkur saman. Það var
bara fínt áður en hann fór á gelgjuna.
Hann varð svona nördagelgja, litaði á
sér hárið gult, rautt og blátt og hvað
eina. Hann hefur reyndar voðalega
svipuð áhugamál í dag,“ segir Þormóð
ur góðlátlega.
Í viðtali við Vísi sagðist Hugleikur
vera fíflið í þáttunum meðan bróðir
hans væri „veika hjartað“. Er hlutverk
um þannig skipt með þeim í hinu dag
lega lífi?
„Tja, það er svolítið erfitt að svara
þessu. En sko … já.“
Lífið verður erfiðara
Handrit þáttanna skrifaði Þormóður
með Hugleiki ásamt Önnu Svövu
Knútsdóttur. Hvernig mun líf Þorra
þróast? Er mögulegt að hlutskipti hans
verði verra?
„Já, það er mögulegt. Líf hans verð
ur mun erfiðara,“ segir Þormóður frá.
„Þessar raunir hans gáfu aðeins for
smekkinn að því sem koma skal. n
Hefur ekki drukkið eigið hland
n Þormóður Dagsson um hlutverk sitt í nýrri teiknimyndaseríu
n Elsti laxveiðimaður landsins?
G
uðný Þorbjörnsdóttir er að öll
um líkindum elsti laxveiði
maður landsins en Guðný, sem
verður 98 ára þann 12. septem
ber næstkomandi, brá sér austur á
firði um helgina þar sem hún setti í sex
punda lax. Laxinn veiddi hún í Stöðv
ar á á Stöðvarfirði og er Guðný afar
ánægð með veiðina.
„Ég var satt að segja nokkuð lengi
að landa honum. Hann var greinilega
nýgenginn og því fjörugur og erfitt að
koma honum í land, en það tókst að
lokum,“ sagði Guðný í samtali við DV.
„Ég hef dvalið hér á Stöð í Stöðvar
firði ásamt Hansínu, yngstu dóttur
minni, afkomendum og tengda
syni um nokkurn tíma. Ég er búin
að fara á sjóstöng með Steingrími
syni mínum og veiða þorsk og ýsu
þannig að ég kem með björg í bú þegar
ég fer heim til Reykjavíkur á næstunni.“
Guðný býr ein í íbúð í Reykjavík og
hefur heilsu og vilja til að hugsa um
sig sjálf.
„Ég er alsæl með að hafa fengið
einn lax og farið á sjóstöng,“ segir Guð
ný en hún keypti jörðina fyrir 55 árum
ásamt eiginmanni sínum, Jóhann
esi Ásbjörnssyni. Enda þótt þau hafi
brugðið búi nokkru fyrir síðustu alda
mót heldur Guðný ætíð sinni tryggð
við Stöðvarfjörð og er þar enn með
lögheimili.
Spurð hver sé galdurinn á bak við
að ná svo háum aldri og vera við góða
heilsu svarar hún: „Reglusemi, góð
börn og jákvæðni.“ n
Sölvi Tryggvason:
„ADHD skal
það vera“
Fjölmiðlamaðurinn, Sölvi
Tryggvason, segist vona að
hann sé fremur með athyglis
brest en elliglöp en á dögunum
týndi hann bílnum og stuttu síð
ar kippti hann bíllyklinum úr á
miðri ferð svo bíllinn drap á sér.
„Á leiðinni heim í kvöld fékk
ég loksins ADHD greiningu.
Hún fólst í sjálfsmati eftir að ég
hafði fyrst týnt bílnum mínum og
gengið í 5 mínútur til að muna
hvar ég lagði. Fáeinum andartök
um eftir gleðilegan bílfund tók
ég svo upp á því að kippa bíllykl
inum að mér og drepa á bílnum
á miðri umferðargötu á fullri
ferð. Það hljómar of illa að ég sé
kominn með elliglöp, þannig að
ADHD skal það vera!“
Vangaveltur
um stunur
Katrín Jakobsdóttir segist hafa
fengið athugasemd frá öldruðum
nágranna sínum vegna þess
hversu oft hún andvarpar. „Ég
andvarpa oft. Ef ég væri karakt
er í Andrésblaði myndi ég stöðugt
segja pust stön og jafnvel gisp. Um
daginn var ég að hlaupa upp stig
ann heima og þá sagði nágranni
minn: Ég andvarpa af því að ég er
85 ára. Af hverju andvarpar þú?
Ég er enn ekki komin með svarið,“
segir Katrín á Facebook í vanga
veltum um stunur sínar.
Guðný Þorbjörnsdóttir Guðný segir
reglusemi, góð börn og jákvæðni lykilinn að
góðri heilsu og háum aldri.
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
Er hamingjusamur „Þetta
hefur ekki komið fyrir mig,“ segir
Þormóður Dagsson um senu í nýrri
teiknimyndaseríu sem sýnd var á
RÚV á fimmtudag.
Þorri Hliðarsjálf
Þormóðs er „veika
hjartað“ á meðan
hliðarsjálf Hugleiks
er fífl.
Sigmundur
snýr aftur
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
hefur verið afar óvirkur á Face
book upp á síðkastið og hafði ekki
skrifað færslu á samskiptasíðuna
í háa herrans tíð. Forsætisráð
herrann sneri hins vegar aftur á
þriðjudag með færslu um viðtal
sitt við Al Jazeerasjónvarpsstöð
ina, sem hann hengdi við færsl
una.
Í aðdraganda síðustu alþing
iskosninga var Sigmundur afar
virkur á Facebook og vakti athygli
fyrir hnyttnar færslur og viturleg
ummæli. Var hans því sárt saknað
af íslenska Facebooksamfélaginu,
en meðlimir þess geta nú andað
léttar þar eð Sigmundur lofar bót
og betrun. „Ég hef verið of lengi
fjarverandi af Facebook. En nú er
ég kominn aftur.“