Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Side 2
2 Fréttir 22.–24. nóvember 2013 Helgarblað
Æ
visaga Hermanns
Gunnarssonar, Hemma
Gunn, hefur vakið
mikla athygli en bókin
kom út síðasta mánu-
dag. Eftirmáli hennar hefur þó ekki
síður vakið umtal en í honum sakar
Orri Páll Ormarsson, ritari bókar-
innar, Hemma um að hafa sagt sér
ósatt um drykkju hans í Taílandi auk
þess sem hann líkir heimili Hemma
við geymslu.
„Sveik loforðið“
„Hemmi unni Taílandi, landi og
þjóð. Um það efast ekki nokkur
maður. Þangað fór hann til að njóta
lífsins og slaka á, alltént voru það
skýringarnar sem hann gaf vinum
sínum og vandamönnum. Veruleik-
inn var annar. Taílandsferðir hans
snerust fyrst og síðast um eitt –
neyslu áfengis. Í Pattaya gat Hemmi
Gunn drukkið í ró og næði,“ skrifar
Orri Páll og lýsir síðan hefðbundn-
um degi hjá Hemma í Taílandi. Síðar
skrifar Orri Páll:
„Einn af þeim sem Hemmi
sagði ósatt um drykkjuna er skrá-
setjandi þessarar bókar, eins og sjá
má á lokakaflanum hér að framan.
Sveik þar með loforðið sem gefið
var í upphafi samstarfsins. Það voru
vonbrigði. Þá vaknar vitaskuld sú
spurning hvort hann hafi sagt ósatt
um fleira. Auðvitað er engin leið að
vita það með fullri vissu en ég hef
eigi að síður enga ástæðu til að ætla
það.“
Eins hefur farið fyrir brjóstið á
sumum að Orri Páll skuli í eftir-
málanum líkja heimili Hemma við
geymslu.
„Börn Hemma gengu frá heim-
ili hans í Árbænum, griðastaðnum
þangað sem fáir eða engir fengu
að koma. Þar blasti við dapurleg
sjón. Einsemdin lá í loftinu. Íbúðin
minnti um margt meira á geymslu
en heimili og var í hróplegu ósam-
ræmi við snyrtimennið Hemma
Gunn. En þannig kaus hann að búa.“
„Ósmekklegt að lýsa heimili
hans eins og kompu“
„Þeir voru nógu djúpir dalirnir þótt
ekki sé verið að bæta á með svona
höggi fyrir neðan beltisstað. Ég
skil ekki tilganginn með eftirmála
þessarar bókar,“ segir nákominn
ættingi Hemma Gunn um þessar
ásakanir í samtali við DV.
„Þá er ósmekklegt að lýsa
heimili hans eins og kompu. Þarna
er ódrengilega vegið að virðingu
Hermanns. Það þjónar engum til-
gangi að flagga þessum neikvæðu
hlutum í hans lífi. Allra síst að hon-
um látnum,“ segir ættinginn.
„Ömurleg hegðun“
Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norð-
dahl er einn þeirra sem gagnrýnt
hafa eftirmála Orra Páls.
„Hafi ég skilið þetta rétt hleypir
Hemmi honum inn á gafl hjá sér og
gerir að trúnaðarmanni sínum á til-
teknum forsendum, nefnilega þeim
að hann geti delerað en ráði því á
endanum hvað fari í bókina,“ skrifar
Eiríkur á Facebook-síðu sína.
„Og þegar Hemmi deyr virðist
Orri einfaldlega endurskrifa samn-
inginn og breyta bókinni í afhjúpun
– hann blottar Hemma gegn hans
vilja eftir að hafa notið trausts hans.
Og það er bara ömurleg hegðun og
jafnt þótt kallinn sé dauður.“
Gert í samráði við aðstandendur
Rætt var við Orra Pál í Kastljósi í síð-
ustu viku en þar sagði hann eftirmál-
ann hafa verið ritaðan í samráði við
nánustu vini Hemma sem og börn
hans. Þau hafi ákveðið í samein-
ingu að segja alla söguna, þrátt fyrir
að ekki liggi ljóst fyrir hvort Hemmi
hefði endilega samþykkt það.
„Þegar upp var staðið þá var bara
ein leið á endanum; að segja söguna
eins og hún var. Annars hefði mátt
bara sópa þessari bók út af borðinu,“
sagði Orri Páll um málið. Hann seg-
ir Hemma hafa háð sína baráttu
við alkóhólismann fyrir framan alla
þjóðina og verið í feluleik allt til síð-
asta dags en að honum og nánustu
aðstandendum Hemma hafi fund-
ist mikilvægt að kaflinn sem hann
sagði ekki sjálfur yrðir sagður. n
„Ódrengi-
lega vegið
að virðingu
Hermanns“
Hörn Heiðarsdóttir
blaðamaður skrifar horn@dv.is
Hemmi Gunn Orri
Páll segir Hemma
hafa svikið loforð um
að segja sannleikann.
Mynd SiGtryGGur Ari
n Eftirmáli Orra Páls umdeildur n Sakar Hemma um lygar„Þegar upp var staðið þá var
bara ein leið á endanum; að
segja söguna eins og hún var.
Orri Páll Orri segist hafa unnið eftirmál-
ann í samráði við nánustu aðstandendur
Hemma. Mynd MOrGunblAðið
Gerður að þræl
á Hrauninu
3 Hælisleit-andinn
Kwaku Bapie
frá Gana var
laminn af sam-
fanga sínum á
Litla-Hrauni
í júlí í fyrra.
Annar fangi
stóð í dyra-
gættinni og
fylgdist með
barsmíðunum. Af skýrslum úr fang-
elsinu má ráða að hann hafi verið
gerður að einhvers konar þræl í
fangelsinu og látinn sjá um þrif og
uppvask fyrir samfanga. Í miðviku-
dagsblaði DV var rætt við Bapie:
„Ég þreif allt og gerði allt sem þeir
sögðu mér að gera.“
Þénar hálfa
milljón á dag
2 Jón Sig-urðsson,
forstjóri stoð-
tækjafram-
leiðandans
Össurar, var
launahæsti
forstjóri Ís-
lands í fyrra
með rúmlega 185,5 milljónir króna í
árslaun. Þetta gera mánaðarlaun upp
á rúmlega 15 milljónir króna. Þetta
kemur fram í ársreikningi Össurar
frá því í fyrra og greindi DV frá inni-
haldi hans á mánudag. Sé launum
Jóns deilt á daga mánaðarins þá sést
að hann er með 500 þúsund krónur
á dag eða sem nemur 62.500 krónum
á klukkustund miðað við átta stunda
vinnudag.
Skíðaskáli í
skattaparadís
1 Hannes Smárason
og Magnús Ár-
mann eiga skíða-
skála í Courchevel í
frönsku Ölpunum
sem kostar tæp-
lega tvo milljarða
króna. Þetta kom
fram í DV á mið-
vikudag. Eignarhaldið á skíðaskál-
anum er í gegnum eignarhaldsfélög
í skattaskjólum, meðal annars Lúx-
emborg, en hann er ekki skráður á þá
persónulega. Báðir eru þeir Hannes og
Magnús með lögheimili í Lúxemborg
þótt þeir búi annars staðar. Hannes og
Magnús hafa átt skíðaskálann frá ár-
inu 2007. Aldrei hefur verið fjallað um
eignarhald þeirra á skálanum.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
20. 11. 2013
20. 11. 2013
18. 11. 2013
SkíðaSkáli í
SkattaSkjóli
HanneS SmáraSon
og magnúS ármann
miðvikudagur
og fimmtudagur
20.–21. nóvember 2013
132. tölublað
103. árgangur
leiðb. verð 429 kr.
gerður
að þræl á
Hrauninu
n Misþyrmt af öðrum föngum
Glæsihús á tvo milljarða
Innisundlaug
Úttekt
Flóttamaðurinn Kwaku
6
Ofsagróði
Samherja
Afríkuútgerð seld á 16 milljarða 2–3
„klámið
er lygi“
Stefán Máni
n Óupplýst hvað gerðist n „Fjörug og skemmtileg“
Fjölmargir harma
fráfall Evu Maríu
Dýrt að
dæla röngu
eldsneyti
n Hleypur á tugum þúsunda 14
4
23
„Ég er enginn
eignamaður
Krefjast
svara um
huldu-
apparat
„Hroki“ ríkislögreglustjóra
15
Vonbrigði í Zagreb
n Íslenska liðið náði sér aldrei á strik n Einkunnir leikmanna
3
8–9
n Á dýrasta stað í frönsku Ölpunum n Eignarhaldið falið
6 Fréttir
20. nóvember 2013 Miðvikudagur
H
ælisleitandinn Kwaku Bapie
frá Gana var laminn af sam-
fanga sínum á Litla-Hrauni í
júlí í fyrra. Annar fangi stóð í
dyragættinni og fylgdist með barsmíðunum. Af skýrslum úr fang-
elsinu má ráða að hann hafi verið gerður að einhvers konar þræl í fang-
elsinu og látinn sjá um þrif og upp-
vask fyrir samfanga: „Er svo að skilja að X og Y, skipi honum að sjá um þrif á deildinni og sjá um uppvask.“ DV ræddi við Kwaku sem segist hafa þrifið allt sem honum var sagt að þrífa: „Ég þreif allt og gerði allt sem þeir sögðu mér að gera.“
Í kjölfar líkamsárásarinnar var Kwaku færður til vakthafandi læknis sem gerði að áverkum hans, en þeir voru ekki taldir alvarlegir. Fangels-
isyfirvöld tóku í kjölfarið skýrslur af árásarmanninum en í henni kemur fram að hann hafi spurt eftirfarandi spurningar: „Hva, var svertinginn að væla?“ Þá lýsti Kwaku árásinni fyrir skýrsluritara Litla-Hrauns meðal annars þannig að árásarmaðurinn hefði sagt: „I wanna fuck you!“ áður en hann réðst á hann. Fangelsisyfir-
völd sáu hins vegar ekki ástæðu til þess að tilkynna málið til lögreglu.
Katrín Oddsdóttir, lögmaður Kwaku, er afar gagnrýninn á fangels-
isyfirvöld: „Það er fráleitt að ríkið hafi ekki brugðist við með því að veita hon-
um þá réttarvernd sem hann á rétt á sem fórnarlamb líkamsárásar.“ Miðað við gögn málsins virðist Kwaku ekki hafa verið kynnt réttarstaða sín við komuna í fangelsið né veittar upplýs-
ingar um hvert hann gæti leitað. Þessu
vísar Margrét Frímannsdóttir fangels-
isstjóri hins vegar á bug: „Það er alltaf gert.“
Myndbandsupptökur til
Margrét segir skýrslur innanhúss ekki hafa bent til þess að umræddir menn hafi ráðist á Kwaku: „Þeir játa ekki í innanhússkýrslum og það er ekk-
ert sem við höfðum á þeim tíma í höndunum sem studdi þann fram-
burð að þeir hefðu ráðist á hann.“ Mál-
ið var engu að síður talið nógu alvar-
legt til þess að Kwaku var færður í annað fangelsi eftir spítaladvölina. Þá var talin ástæða til þess að kalla árásar-
mennina til skýrslutöku en engin frek-
ari rannsókn virðist hafa farið fram og árásarmönnunum virðist ekki hafa verið refsað fyrir agabrot. Þetta lítur Katrín alvarlegum augum.
„Það eiga að vera til myndbands-
upptökur af því þegar þeir fara inn í herbergið hans, þannig að það var full ástæða til þess að láta rannsaka mál-
ið frekar,“ segir Katrín í samtali við DV. Það var ekki fyrr en hún skarst í leik-
inn sem lögmaður Kwaku að árásin var kærð til lögreglu. Katrín telur hins vegar að lögum samkvæmt hafi fang-
elsisyfirvöldum borið að tilkynna árásina. Hún segir það alvarlegt að það hafi ekki verið gert. Fangelsisstjóri er því ósammála og segir ekkert athuga-
vert við málið. Kwaku hafi verið gefinn kostur á að tilkynna málið til lögreglu en neitað.
Árásarmaðurinn dæmdur
„Þarna er manneskja sem getur hvergi hönd yfir höfuð sér borið. Hann á enga aðstandendur hér og ekkert fé-
lag eða neins konar samtök eru til að verja hann,“ segir Katrín. „Honum er hent í fangelsi og þar er hann laminn
og kerfið bregst á engan hátt við. Það er ekki fyrr en ég sendi einhverja sér-
staka kvörtun og kæru sem málið fer fyrir dóm og þá játar þessi maður bara skýlaust að hafa gert þetta.“
Árásarmaður Kwaku var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir árásina á Kwaku þann 14. nóvember síð-
astliðinn. Var honum gert að greiða fimmtíu þúsund króna miskabætur en engin frekari refsing lá við brotinu. Í dómnum kemur fram að hann hafi slegið Kwaku í andlit og líkama þar sem hann lá veikur í rúmi í klefa sín-
um, með þeim afleiðingum að hann hlaut eymsli á hægri kinn, hægra megin á hálsi og yfir hægri rifbeinum.
Brot á alþjóðasamningi
Kwaku var dæmdur fyrir skjalafals við komuna til landsins. Það samræm-
ist ekki 31. grein Flóttamannasamn-
ings Sameinuðu þjóðanna, sem Ísland fullgilti árið 1956, sem segir að engum skuli gerð refsing fyrir að koma ólög-
lega til landa séu þeir á leið úr bráðri hættu.
Pia Prytz Phiri, framkvæmdastjóri umdæmisskrifstofu Flóttamanna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna í Norður- Evrópu, sagði í viðtali við DV á dögunum að Ísland væri ítrekað að brjóta á mannréttindum flóttamanna með því að dæma þá í fangelsi fyrir skjalafals. „Það er alveg skýrt að það á ekki að refsa flóttamönnum fyrir ólög-
lega innkomu til landsins. Þessi vinnu-
brögð eru ekki í samræmi við alþjóða-
lög og þau eru ekki í samræmi við 31. grein Flóttamannasamningsins,“ sagði Pia.
„Átti aldrei að vera þarna“
Katrín telur að með því að fangelsa Kwaku hafi íslenska ríkið brotið gegn
Flóttamannasamningnum. Kwaku hafi ekki þekkt neinn hér á landi og því algjörlega upp á íslenska ríkið kominn. Með háttseminni hafi ríkið mögulega bakað sér skaðabótaskyldu gagnvart Kwaku, fyrir þá meðferð sem hann varð fyrir á Litla-Hrauni. „Þetta sýnir bara alvarleika þess að það sé verið að fangelsa svona viðkvæman hóp sem hælisleitendur eru algjörlega án sakar,“ segir Katrín.
Hún segir að hér sé um að ræða berskjaldaðan hóp sem sé unnvörp-
um varpað í fangelsi fyrir að reyna að bjarga lífi sínu með því að ferðast á fölsuðum skilríkjum. „Þetta er full-
komið dæmi um það sem getur gerst þegar það er verið að fara svona með fólk. Hann átti aldrei að vera þarna þessi maður, og þegar hann lenti í þessu þá er fráleitt að ríkið hafi ekki brugðist við.“
Skyldi fara varlega
Blaðamaður og ljósmyndari DV hittu Kwaku þar sem hann heldur til í íbúð í Reykjavík. Eitt það fyrsta sem hann sýnir okkur er handklæði og peysa sem samfangi hans gaf honum þegar hann kom í fangelsið: „Ég mun alltaf geyma þetta,“ segir hann og tekur fram að hann hafi verið allslaus við kom-
una í fangelsið og því hafi handklæð-
ið verið sannkölluð guðs gjöf. Þegar hann er spurður út í vistina sjálfa minnist hann hennar með hryllingi.
„Ég hafði aldrei verið í fangelsi áður,“ segir hann og bætir við að hann hafi verið mjög hræddur við kom-
una í þetta fangelsi í þessu ókunnuga landi. Eitt það fyrsta sem hann heyrði í fangelsinu var að þar skyldi hann fara varlega: „Það var þarna eldri maður sem talaði við mig og sagði mér að á þessum stað skyldi ég fara varlega.“
Kwaku segist hafa þrifið það sem hon-
um var sagt að þrífa en þess á milli reynt að halda sig mestmegnis inni í herberginu sínu á meðan á vistinni stóð.
Hann hafi því verið verulega ótta-
sleginn þegar samfangar hans komu inn í herbergi hans og sögðu meðal annars: „I wanna fuck you!“ Hann segist hafa hniprað sig saman og reynt að verjast þannig höggunum.
Hryllingur á Ítalíu
Kwaku flúði frá Gana til Ítalíu árið 2008. Á Ítalíu bjó hann í alræmd-
um flóttamannabúðum í Lamped-
usa. Vann hann fyrir sér með því að tína appelsínur á búgarði nokkrum fyrir fimmtán evrur á dag. Ástandið á Ítalíu fór stigversnandi á þessum tíma og árið 2011 var ráðist á Kwaku og fé-
laga hans í flóttamannabúðunum með þeim afleiðingum að tveir þeirra voru skotnir til bana. Morðin orsök-
uðu gríðarleg mótmæli og óeirðir og Kwaku óttaðist enn á ný um líf sitt. Hann ákvað því að flýja á nýjan leik, nú til Íslands.
Þar sem umsókn Kwaku um hæli hefur þegar verið tekin fyrir á Ítalíu eru allar líkur á því að honum verði vísað þangað aftur á grundvelli Dyfl-
innarreglugerðarinnar, sem kveður á um heimild til þess að vísa hælisleit-
endum aftur til þess lands í Evrópu sem þeir komu fyrst til.
Samkvæmt 40. grein laga um fulln-
ustu refsinga ber Fangelsismálastofn-
un að hafa samband við fulltrúa inn-
lendra eða alþjóðlegra stofnana sem gæta hagsmuna ríkisfangslausra einstaklinga eða flóttamanna. Katrín segir ekkert í gögnum málsins benda til þess að slíkt hafi verið gert í tilviki Kwaku. n
„Hva,
var
svertinginn
að væla?
Flóttamaður gerður
að þræl á Hrauninu
n Innikróaður í herbergi sínu og laminn n Fangelsisyfirvöld kærðu málið ekki
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Látinn þrýfa
Hælisleitandinn
Kwaku Bapie frá
Gana var laminn
af samfanga sín-
um á Litla-Hrauni
í júlí í fyrra. Hann
var látinn þrífa og
vaska upp fyrir
samfanga sína.
Mynd Sigtryggur Ari
Fær 15 milljónir á mánuði
Hreiðar Má Sigurðsson og Bjarna
Ármannsson. Auk þess var Friðrik
Jóhannsson, forstjóri Straums,
með 412 milljónir króna í árslaun,
Lárus Welding hjá Glitni með 300
milljónir króna og Sigurjón Árna-
son með 160 milljónir króna.
Fjórir þeirra voru sem sagt með
hærri laun en Jón Sigurðsson hjá
Össuri var með í fyrra.
Eftir að bankarnir hrundu
árið 2008 hafa aðrir forstjórar en
stjórnendur þeirra komið í stað
þeirra sem launahæstu launþegar
landsins. Laun forstjóra eru hins
vegar að hækka hér á landi og
hafa gert það síðastliðin ár.
Launin hækkuðu um 20 prósent
Í skýrslu um úttekt á launaþró-
un stjórnenda hjá ríkinu sem
gefin var út af fjármála- og efna-
hagsráðuneytinu í lok ágúst síð-
astliðinn kom fram að launa-
skrið hefði verið hjá forstjórum
einkarekinna fyrirtækja á Íslandi
frá hruninu 2008. Komust höf-
undar skýrslunnar að því að laun
þessara stjórnenda hefðu hækkað
um 20 prósent frá íslenska efna-
hagshruninu árið 2008 á meðan
laun forstjóra ríkis fyrirtækja
hefðu ekki hækkað svo mikið.
Þegar litið er til dæmis á laun
Jóns Sigurðssonar hjá Össuri þá
sést að þau hafa hækkað dug-
lega frá hruninu 2008. Þrátt fyrir
launaskrið forstjóra einkafyrir-
tækja þá eiga þeir ennþá langt í
land með að ná þeim launakjör-
um sem almennt séð giltu á Ís-
landi fyrir hrun. Sjálfsagt munu
laun íslenskra forstjóra aldrei ná
þeim hæðum
Útgerðin komin aftur inn
Í viðtali við DV árið 2008, rétt
eftir bankahrunið, fangaði
Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri grænna, ágæt-
lega þær breytingar sem orðið
höfðu á hugmyndum manna um
laun frá því í góðærinu sem ríkti
á Íslandi frá einkavæðingu bank-
anna og fram að hruninu.
Vegna þess hversu launaháir
bankamennirnir voru þá töldu
tekjuháir einstaklingar, til dæmis
sjómenn eða sérfræðimenntaðir
læknar, laun sín ekki vera merki-
leg. Enda voru þau það ekki í sam-
anburðinum við ofurlaun banka-
mannanna sem gátu hlaupið á
tugum milljóna króna á mánuði.
„Besta samlíkingin er sennilega
sú að þegar togaraskipstjórinn
kom að landi með verðmætan
farm sem var rétt um 200 milljón-
ir í aflaverðmæti var hann spurð-
ur hvort það væri ekki gaman að
koma með svona mikið að landi.
Hann svaraði því til að þetta væri
ekki nema þriðjungur af launum
tekjuhæstu bankamannanna.“
Taldi Steingrímur árið 2008 að
sjálfsagt væri tími ofurlauna á Ís-
landi liðinn. „Ég held að tími of-
urlauna sé liðinn hér á landi.“
Bankarnir víðs fjarri
Eins og er þá er ekkert sem bend-
ir til annars en að þetta sé satt.
Bankamenn á Íslandi eru nú óra-
vegu frá því að vera með þau laun
sem þeir voru með fyrir hrun og
eru bankastjórarnir íslensku nú
með þetta 3 til 4 milljónir króna
á mánuði. Sú laun eru ekki óeðli-
lega há miðað við forstjóra hjá
stórfyrirtækjum.
Hæstlaunuðu mennirnir og
konurnar – þó ekki séu þær áber-
andi á listanum yfir launahæstu
forstjórana – eru því með forstjóra-
laun í dag sem eru víðs fjarri þeim
launum sem þetta fólk var með á
árunum fyrir hrunið 2008. n
milljónir króna mánaðarlaun á
árinu og svo kom forstjóri græn-
metis- og ávaxtaheildsölunnar
Banana, Kjartan Már Friðsteins-
son, var hann með 6 milljónir á
mánuði.
Svo voru þær Rannveig Rist,
forstjóri Álversins í Straumsvík, og
forstjóri Actavis, Guðbjörg Edda
Eggertsdóttir, með 5,8 og 5,7 millj-
ónir á mánuði. Þær voru einu
konurnar sem komust á lista yfir
tíu launahæstu forstjóra landsins.
Næstir voru þeir Valur Ragnars-
son hjá Medis og Hilmar Veigar
Pétursson hjá CCP með 5,5 og
5,3 milljónir. Loks komu þeir Jak-
ob Óskar Sigurðsson, forstjóri
Promens, og Gylfi Sigfússon hjá
Eimskipum með 4,8 og 4,5 millj-
ónir króna á mánuði.
Fimm með 2,2 milljarða
Athyglisvert er að bera þessar
tekjur íslenskra forstjóra saman
við tekjur fimm launahæstu
bankastjóranna árið 2007. Flestir
voru þeir með miklu hærri laun
en flestir á listanum yfir launa-
hæstu forstjórana árið 2012. Sam-
tals voru þessir fimm bankastjórar
með samtals 2,2 milljarða króna í
árslaun.
Áður hefur verið minnst á
Fréttir 9
Mánudagur 18. nóvember 2013
8 Fréttir
18. nóvember 2013 Mánudagur
NÝTT FRÁ DICK CEPEK
Trail Country er fínmynstrað
alhliða jeppadekk sem er
rásfast og þægilegt í akstri
innanbæjar, en býr einnig yfir
frábærum aksturseiginleikum
á vegum úti.
Trail Country er frábært
alhliða heilsársdekk fyrir flestar
gerðir jeppa og jepplinga.
Fun Country var
sérstaklega hannað með það
í huga að ná fram einstökum
askturseiginleikum við erfiðar
aðstæður, auk þess að vera bæði
hljóðlátt og endingargott við
akstur innanbæjar.
Fun Country er ætlað nútíma
jeppum sem vilja komast lengra!
Dekkið er fáanlegt í stærðum
frá 32“ til 37“.
Trail
Country
Fun
Country
Mud
Country
NÝT
T!
NÝT
T!
Kletthálsi 3
110 Reykjavík
Sími 540 4900
arctictrucks.is
Mud
Country
2013-10 DC nýtt - Fréttablaðið Fólk 2dl x 18.indd 1
25.10.2013 11:03:48
J
ón Sigurðsson, forstjóri stoð-
tækjaframleiðandans Össur-
ar, var launahæsti forstjóri
Íslands í fyrra með rúmlega
185,5 milljónir króna í árs-
laun. Þetta gera mánaðarlaun
upp á rúmlega 15 milljónir króna.
Þetta kemur fram í ársreikningi
Össurar frá því í fyrra en þar eru
launin tilgreind í dollurum, 1,44
milljónir dala.
Þar að auki fékk Jón kaup-
rétt á 1.250 þúsund hlutum í
Össuri á árinu, samkvæmt nýju
kaupréttarfyrir komulagi sem
ákveðið var af stjórn fyrirtækisins
í fyrra. Verðmæti þeirra hlutabréfa
er tæplega 250 milljónir króna.
Þessi laun Jóns eru nokkurn
veginn jafn há í dollurum talið og
árið 2011.
Sé launum Jóns deilt á daga
mánaðarins þá sést að hann er
með 500 þúsund krónur á dag
eða sem nemur 62.500 krónum
á klukkustund miðað við átta
stunda vinnudag.
Jón tók við af Hreiðari
Jón hefur um árabil, allt frá hrun-
inu 2008, verið langtekjuhæsti
forstjóri landsins. Fyrir hrun var
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri
Kaupþings, yfir leitt tekjuhæstur.
Sem dæmi þá var Hreiðar Már
með 62 milljónir króna á mánuði
árið 2007 en næst þar á eftir kom
Bjarni Ármannsson, fyrrverandi
forstjóri Glitnis, með 43 milljónir
króna á mánuði.
Laun launahæstu forstjóra
landsins hafa því lækkað umtals-
vert á síðustu fimm árum og skýrist
það auðvitað af hruninu. Fyrir
hrun voru forstjórar bankanna
launahæstu launþegar landsins
en eftir hrun hefur þetta breyst:
Nú er forstjóri eins þekktasta og
öflugasta fyrirtækis landsins sá
launahæsti. Forstjórar íslensku
bankanna komast hins vegar ekki
lengur á lista yfir allra launahæstu
stjórnendur fyrirtækja á Íslandi.
Launahæsti forstjóri fjármálafyrir-
tækis á Íslandi í fyrra var Höskuld-
ur Ólafsson með rúmar 3,5 millj-
ónir króna á mánuði.
Laun Jóns Sigurðssonar hækk-
uðu reyndar um rúmlega milljón
króna á milli áranna 2010 og 2011
en fyrra árið námu þau tæplega 14
milljónum en fóru upp í rúmlega
15 milljónir króna seinna árið.
Hagamennirnir
Eftir því sem DV kemst næst er
Finnur Árnason, forstjóri smá-
sölurisans Haga, næstlaunahæsti
forstjóri landsins með um 8,4
milljónir króna á mánuði. Á eftir
honum kemur fráfarandi forstjóri
Marels, Hollendingurinn Theo
Van Hoen, en hann var með 7,9
milljónir króna á mánuði í fyrra.
Þar á eftir kemur svo Guðmundur
Marteinsson, framkvæmdastjóri
Bónuss með 7,6 milljónir á
mánuði.
Hagar eiga því tvo menn í
efstu fjórum sætunum á listanum
yfir launahæstu forstjóra lands-
ins en næstu tveir eru stjórnend-
ur tveggja öflugustu og stabílustu
tæknifyrirtækja landsins.
Iðnaður og bananar
Í næstu sætunum þar á eftir koma
Jón Guðmann Pétursson, sem er
forstjóri iðnfyrirtækisins Hamp-
iðjunnar, en hann var með 7,4
n Launaskrið hjá forstjórum einkarekinna fyrirtækja n Laun standa í stað hjá hinu opinbera n Jón með hálfa milljón á dagIngi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Ég
held
að tími
ofurlauna
sé liðinn
hér á landi5 Jón Guðmann Pétursson Forstjóri Hampiðjunnar: 7,4 milljónir
8 Guðbjörg E. Eggertsdóttir Forstjóri Actavis: 5,7 milljónir
6 Kjartan M. Friðsteinsson Forstjóri Banana: 6 milljónir
3 Theo Van Hoen Forstjóri Marels: 7,9 milljónir 4 Guðmundur Marteinsson Framkv.stj. Bónus: 7,6 milljónir
7 Rannveig Rist Forstjóri Landsvirkjunar: 5,8 milljónir
9 Valur Ragnarsson Forstjóri Medis: 5,5 milljónir
10 Hilmar Veigar Pétursson Forstjóri CCP: 5,3 milljónir
2 Finnur Árnason Forstjóri Haga: 8,4 milljónir
H éraðsdómur Reykjaness dæmdi á föstudag tvo menn, Úlfar Þór Birgisson Aspar og Björgvin G. Hallgrímsson, í
tveggja ára óskilorðsbundið fang-
elsi fyrir innflutning á tæplega 2,4
kílóum af amfetamíni. Samkvæmt
ákæru hefði verið hægt að framleiða
um 12,3 kíló af eiturlyfinu miðað við
5,6 prósenta styrkleika en efnin voru
flutt til landsins frá Berlín í Þýska-
landi.
Var Björgin ákærður fyrir að fá
Úlfar Þór til verksins, veita honum
leiðbeiningar um ferðatilhögun og
fyrirmæli um innflutning fíkniefn-
anna. Þá afhenti hann Úlfari um-
slag með farsíma og reiðufé og
greiddi fyrir farmiða hans til Berlín-
ar, samkvæmt því sem fram kemur
í ákæru. Þáttur Úlfars var að flytja
efnin til landsins, en þau fundust í
botni ferðatösku hans þegar hann
kom til landsins þann 26. janúar
síðastliðinn. Samkvæmt ákæru fór
hann frá Berlín til Hollands og mót-
tók fíkniefnin þar áður en hann sneri
aftur til Berlínar og kom heim til Ís-
lands. Úlfar var úrskurðaður í gæslu-
varðhald í kjölfarið og sat hann þar
allt til 5. apríl. Við yfirheyrslur hjá
lögreglu játaði hann að hafa flutt
efnin til landsins. Það hefði hann
ákveðið að gera til að koma sér út úr
kreppu og hann hafi verið í leit að
skjótfengnum gróða. n
Skjótfenginn gróði
Úlfar sagðist hafa viljað
losnað út úr kreppu og
því flutt efnin til landsins.
Mynd SIgtryggur ArI
Vildi græða fljótt
n tveir menn dæmdir fyrir amfetamínsmygl
Launahæstu forstjórarnir
Jó
n
Si
gu
rð
ss
on
Fi
nn
ur
Á
rn
as
on
th
eo
V
an
H
oe
n
g
uð
m
un
du
r
M
ar
te
in
ss
on
Jó
n
g
uð
m
an
n
P
ét
ur
ss
on
K
ja
rt
an
M
ár
Fr
ið
st
ei
ns
so
n
r
an
nv
ei
g
r
is
t
g
uð
bj
ör
g
E.
Eg
ge
rt
sd
ót
ti
r
V
al
ur
r
ag
na
rs
so
n
H
ilm
ar
V
ei
ga
r
P
ét
ur
ss
on
15 milljónir
5 milljónir
Eins og sést á meðfylgjandi mynd er
Jón Sigurðsson með langhæstu launin
af forstjórum á Íslandi. Aðrir eru varla
hálfdrættingar á við hann.
1 Jón Sigurðsson
Forstjóri Össurar: 15,5 milljónir
Ístak boðið
til sölu
Landsbankinn hefur boðið allt
hlutafé sitt í verktakafyrirtæk-
inu Ístaki til sölu. Bankinn eign-
aðist 99,9 prósenta hlut í fyrir-
tækinu þegar móðurfélag Ístaks,
danska verktakafyrirtækið Pihl &
Sön, var tekið til gjaldþrotaskipta
í lok ágúst. Markmið kaupanna
var að sögn bankans að skapa trú-
verðugleika gagnvart verkkaup-
um Pihl & Sön í Noregi og Græn-
landi, þar sem Ístak starfaði sem
undirverktaki móðurfélagsins,
og koma í veg fyrir að verksamn-
ingum yrði rift með ófyrirséðum
afleiðingum. Fjárfestar sem hyggj-
ast bjóða í félagið þurfa að gera
grein fyrir þekkingu og reynslu,
fjárhags legum styrkleika og stefnu
sinni varðandi framtíð Ístaks.
Áhugasömum fjárfestum er bent
á að setja sig í samband við Fyrir-
tækjaráðgjöf Landsbankans.
Ákærð fyrir
ölvunarakstur
Jónína Benediktsdóttir hefur verið
ákærð fyrir ölvunarakstur og átti
að mæta fyrir dóm á fimmtudag til
þingfestingar. Það er lögreglustjór-
inn á höfuðborgarsvæðinu sem
höfðar málið, en Jónínu er gefið
að sök að hafa ekið ölvuð þriðju-
daginn 18. júní síðastliðinn á bíla-
stæði við Reykjavíkurflugvöll.
Samkvæmt ákæru ók hún utan
í járngrind við enda bílastæðisins.
Lögreglan fullyrðir að vínandi í
blóði hennar hafi mælst 1,5 pró-
mill, en verði hún sakfelld eru
viðurlögin 140 þúsund króna sekt
og ökuleyfissvipting í eitt ár.
Með gámagrind , ekinn 115 þ.,
er sem nýr og ónotaður, loft-
púðafjöðrun, olíumiðstöð, einn
með öllu. Gámur getur fylgt með
sem er ónotaður og sjálf losandi.
Upplýsingar í
Síma 892 1116
Til sölu Man TGA 18-350 LL