Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Qupperneq 4
4 Fréttir 22.–24. nóvember 2013 Helgarblað
Suðurnesjavefur DV í loftið
n „Þörf á gagnrýnum miðli á þessu svæði, sem tekur á öllum málum“
É
g er spenntur að fjalla um
fréttir í heimabyggð. Það hefur
verið þörf á gagnrýnum miðli
á þessu svæði sem tekur á öll
um málum,“ segir Atli Már Gylfa
son, blaðamaður og umsjónarmað
ur yfir Suðurnesjavef DV, um nýja
héraðsfréttavefinn sem opnaður er á
DV.is í dag, föstudag. Vefurinn mun
þjóna Suðurnesjamönnum og er sá
fyrsti sem er starfræktur á vegum DV.
Áhersla verður lögð á áhugaverðar
fréttir og óháða rannsóknarblaða
mennsku.
Aðgangur að fréttum á
Suðurnesjavef DV verður ókeypis út
desember en eftir það verður hægt
að kaupa áskrift frá 990 krónum á
mánuði. Þeir sem fyrir eru áskrif
endur að DV fá líka fullan aðgang
að fréttum sem birtast á Suðurnesja
vefnum. DV getur boðið héraðsvef
áskrift á lágu verði, af þeirri ástæðu
að hægt er að koma efni til lesenda
án prent og dreifingarkostnaðar.
Með héraðsáskrift fylgir almenn vef
áskrift að öllum fréttum DV í kaup
bæti og einnig munu prentáskrifend
ur DV fá aðgang að héraðsfréttunum.
Ábendingar um fréttamál og
áhugavert efni má senda á netfang
Atla Más, atli@dv.is. Viðtökur við
héraðsfréttavef DV munu ráða því
hvort opnaðir verða óháðir frétta
vefir í fleiri landshlutum á næstunni.
Bjarki Már Viðarsson heldur utan
um auglýsingasölu á vefnum. Hann
er með netfangið bjarki@dv.is.
Um næstu mánaðamót verður
útgáfutíðni prentútgáfu DV einnig
breytt. Mánudags og miðvikudags
blöð DV verða sameinuð í stærra
vikublað sem kemur út á þriðju
dögum. Með sameiningunni verður
engin fækkun á útgefnum prentsíð
um hjá DV, þar sem sameinað blað
verður hátt í tvöfalt stærra en blöð
in voru hvort í sínu lagi. Þar að auki
verður helgarblað DV stækkað. n
Undirbúningur Myndin er frá undirbún-
ingsfundi vegna vefjarins. Mynd SigtryggUr Ari
Réðst á fyrr-
verandi sam-
býliskonu
Tuttugu og níu ára karlmaður hef
ur verið dæmdur í Héraðsdómi
Reykjaness í átta mánaða fangelsi
fyrir að valda fyrrverandi sambýlis
konu sinni skelfingu og andlegu
og líkamlegu tjóni. Auk þess var
hann dæmdur fyrir ítrekaðan ölv
unarakstur og sviptur ökuréttind
um ævilangt. Maðurinn ruddist inn
á heimili konunnar í Reykjanesbæ
í maí síðastliðnum og réðst á hana.
Þegar konan varð vör við mann
inn reyndi hún að hlaupa undan og
út úr húsinu. Maðurinn þreif þá í
hana og hélt fyrir munn hennar. Þá
ýtti hann henni inn í svefnherbergi
og hélt sæng fyrir vitum hennar
svo hún átti erfitt með andardrátt.
Árásarmaðurinn var mjög ölvaður
en konan lýsti því fyrir dómi að hún
væri mjög hrædd við hann, meðal
annars þurfti systir hennar að vera
heima hjá henni svo hún gæti farið
í sturtu, og var það vegna þess að
hún óttaðist fyrrverandi sambýlis
manninn.
Bjarni fær
annan að-
stoðarmann
Bjarni Benediktsson fjármálaráð
herra hefur bætt við sig einum
aðstoðarmanni. Hann hefur ráð
ið Benedikt Gíslason, sem á sama
tíma lætur af störfum sem fram
kvæmdastjóri hjá MP banka. Í til
kynningu um ráðninguna á vef
ráðuneytisins kemur fram að störf
Benedikts fyrir ráðherra muni
meðal annars felast í ráðgjöf um
framkvæmd áætlunar um afnám
gjaldeyrishafta. Benedikt hóf störf
í ráðuneytinu á fimmtudag. Hann
er átjándi aðstoðarmaður ríkis
stjórnarinnar og ráðherra henn
ar og sá sautjándi sem fær greidd
laun fyrir störf sín. Aðeins er
heimild til að bæta við einum að
stoðarmanni á launum til viðbótar
áður en sérstaka ákvörðun ríkis
stjórnarinnar þarf til að ráða fleiri.
Fékk fimm mánaða
aukalaun frá spítala
n Fékk greidda fimm mánuði umfram rétt sinn við starfslok
F
jórðungssjúkrahúsið á Akur
eyri gerði starfslokasamning
við yfirgeislafræðing á spít
alanum sem látinn var hætta
störfum þar árið 2006. DV
hafði fyrir þessu heimildir og bar
upp fyrirspurn við forstjóra spítal
ans, Bjarna Jónasson. Bjarna var
ekki kunnugt um starfslokasamn
inginn, enda var hann gerður sex
árum áður en hann tók við starfinu í
fyrra, en hann gat í kjölfar athugun
ar á málinu staðfest að starfsloka
samningur hefði verið gerður við
geislafræðinginn.
Aukalaun í fimm mánuði
Bjarni segir að starfsmaðurinn,
Laufey Baldursdóttir, hafi fengið
greidd laun í átta mánuði eftir að
hún lét af störfum árið 2006. Þrír
mánuðir voru lögbundinn upp
sagnarfrestur en fimm mánuðir
voru greiddir aukalega til hennar
og umfram rétt hennar. „Viðkom
andi hættir störfum 31. janúar 2006
en fær greidd laun þar til í lok sept
ember 2006. Inni í því er þriggja
mánaða uppsagnarfrestur.“
Því var um að ræða fimm
mánaða aukagreiðslu og þar með
greiðslur umfram rétt viðkom
andi til greiðslna. Bjarni segir að í
starfslokasamningnum, sem starfs
mannastjóri spítalans skrifaði und
ir, hafi fimm mánaða greiðslan ekki
verið skilgreind nánar, til að mynda
sem biðlaun. Bjarni segir að um hafi
verið að ræða „samkomulag um að
þessi einstaklingurinn léti af störf
um“. Því er um starfslokasamning
að ræða þar sem samningsbundin
aukagreiðsla er greidd af vinnuveit
andanum.
Tekið skal fram að Bjarni var
ekki forstjóri þegar samningurinn
var gerður heldur Halldór Jónsson.
Bjarni ber því ekki ábyrgð á samn
ingsgerðinni með neinum hætti.
Starfslokasamningar á
Landspítalanum
Í DV í síðustu viku var greint frá
því að þáverandi forstjóri Land
spítalans, Magnús Pétursson, hefði
fengið greitt aukalega og umfram
rétt sinn þegar hann lét af störfum
sem forstjóri Landspítalans á vor
mánuðum 2008. Magnús tók við
sem ríkissáttasemjari nokkrum
mánuðum síðar og fékk mismun
inn á forstjóralaununum og launum
ríkissáttasemjara í um eitt og hálft
ár. Þá var einnig greint frá starfs
lokasamningi sem gerður var við
starfsmannastjóra spítalans, Ernu
Gísladóttur, fyrr á árinu.
Umboðsmaður brást við
Í kjölfarið á þeirri umfjöllun brást
umboðsmaður Alþingis við og hefur
krafist þess að fá að sjá starfsloka
samninga Landspítalans. Ástæðan
fyrir áhuga Tryggva á samningun
um er einföld. Hann segir að bann
að sé að gera slíka samninga lögum
samkvæmt. Tryggvi sagði orðrétt
um málið í samtali við Mbl.is í síð
ustu viku: „Umboðsmaður Alþingis
á m.a. að gæta þess að það sé viðhaft
jafnræði með borgurunum. Þarna
kom í ljós að það voru engar reglur
um þessa hluti. Við spurðum fjár
málaráðuneytið: Hafi þið hug á að
setja einhverjar reglur sem tryggja
jafnræði fyrst að þetta virðist vera
reyndin, að það er verið að gera
þetta? Fjármálaráðuneytið svaraði
einfaldlega: Þetta er bara bannað,
nema að það sé sérstök lagaheimild
til þess. Hvað á umboðsmaður svo
að gera þegar birtist frásögn af því
í fjölmiðlum að það sé enn verið
að viðhafa þetta. Hann skrifar við
komandi stofnun og biður um þessa
samninga og skoðar síðan málið.
Það kann vel að vera að það verði
niðurstaðan að það þurfi að taka
þetta mál upp aftur.“ n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Kallar eftir samningunum
Tryggvi Gunnarsson, umboðs-
maður Alþingis sem sat í rann-
sóknarefndinni um bankahrunið,
hefur kallað eftir starfsloka-
samningum Landspítalans. Nú
hefur annar samningur bæst við.
Fimm mánuðir aukalega
Geislafræðingurinn fékk greidd
laun fimm mánuðum lengur en
hún átti rétt á. Mynd SigtryggUr Ari
„Viðkomandi hættir
störfum 31. janúar
2006 en fær greidd laun
þar til í lok september
2006.
Opið: Mán - Fim 11:00 - 18:00
Fös 10:00 - 18:30 & Lau 11:00 - 16:00
Hátíðarkörfur
Ostabúðarinnar
eftir þínu höfði
Við erum byrjuð að
taka á móti pöntunum
í síma 562 2772,
ostabudin@ostabudin.is
og á ostabudin.is