Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Síða 13
Dramatískur enDir á áratuga samstarfi n Kristján Loftsson og viðskiptafélagar greiddu um 2,6 milljarða fyrir hlutabréf Árna Vilhjálmssonar heitins og systur hans n Fengu bréfin á hagstæðu verði Íslandsbanka, sagði fyrr í mánuðin­ um að hann reiknaði með því að hlutabréfaverð í félaginu myndi hækka ef það yrði skráð á Aðal­ markað Kauphallar Íslands. „Verð­ myndun á First North er ekki mjög virk og þar eru viðskipti lítil og strjál. Skráð gengi á markaðinum þarf því ekki að endurspegla rétta mynd af því hvert verðmæti eigin fjár félags­ ins yrði væri það skráð á Aðalmark­ aðinum. Það að taka félagið af First North og setja það á Aðalmarkað­ inn mun því vafalítið hafa aukningu í för með sér þegar kemur að verð­ mæti eigin fjár félagsins.“ Verðmæti hlutabréfa í HB Granda, sem er stærsta sjávar­ útvegsfyrirtæki landsins, gæti því orðið meira en þeir 30,8 milljarðar króna sem það er talið vera núna. En ef gengið er út frá því verðmæti þá er hlutur Venusar í HB Granda tæplega 6 milljarða króna virði. Hlutabréfin sem fjölskylda Árna Vilhjálmssonar og systur hans seldu í HB Granda eru því tæplega 1,9 milljarða króna virði. En líkt og áður segir þá gætu þessi hlutabréf verið enn verðmætari í reynd eftir að hlutabréf í útgerðarfélaginu verða boðin út. Þau gætu því ver­ ið miklu meira virði en þetta. Af þessu sést hvað Kristján hefur gert góð kaup þegar hann keypti hluta­ bréf fjölskyldu Árna og Kristínar í Venusi. Kristján selur Hluthafar HB Granda ætla að selja um þriðjung hlutafjár í HB Granda á næsta ári og gæti sú sala skilað 9,8 milljörðum króna líkt og Vísir fjallaði um fyrir skömmu. Sölu­ verðið gæti svo orðið enn hærra líkt og áður segir. Af þessum þriðjungi hlutafjár hefur Arion banki boð­ að sölu á 20 til 25 prósenta hluta­ fjár í félaginu og Kristján hefur sölu á hlutafé sem er í eigu Vogunar og Venusar. Kristján gæti því selt eitthvað af þeim hlutabréfum sem hann eign­ aðist með kaupunum á hlutabréf­ um fjölskyldu Árna og Kristínar strax á næsta ári og innleyst nokkurn hagnað þar sem líklegt má telja að mikil eftirspurn verði eftir hlutabréfunum í þessu kvótamesta sjávarútvegsfyrirtæki Íslands hér á landi – Samherji er stærsta sjávar­ útvegsfyrirtæki landsins en hefur yfir að ráða næst mestum kvóta hér á landi á eftir HB Granda. Hampiðjan líka En hlutabréfaeign Venusar er ekki aðeins bundin við HB Granda því félagið á líka 37,9 prósenta hlut í Hampiðjunni sem er mjög sterkt og vel rekið fyrirtæki. Eiginfjárstaða Hampiðjunnar var jákvæð um tæp­ lega 8 milljarða króna í lok árs í fyrra og greiddi félagið metarð til hlut­ hafa sinna í ár vegna góðs rekstrar í fyrra. Þar af fékk Venus tæplega 57 milljónir króna í sinn hlut og fjöl­ skylda Árna og Kristín þriðjung þeirrar upphæðar. Hampiðjan er ekki skráð á Aðal­ markað Kauphallar Íslands heldur First North markaðinn líkt og HB Grandi. Fari svo að Hampiðjan verði skráð á markað gæti verðmæti félagsins aukist enn meira þar sem þróunin hér á landi frá hruni hef­ ur verið sú að verðmæti fyrirtækja hækkar nokkuð við skráningu í Kauphöllina. Fyrir því eru nokkrar ástæður en ein sú helsta er skortur á fjárfestingartækifærum hér á landi, meðal annars fyrir lífeyrissjóðina sem hafa fjárfest grimmt í hluta­ bréfum á markaði og ráða nú yfir 40 til 50 prósenta skráðra hlutabréfa á markaði hér á landi. Ekki er hægt að skjóta á verð­ mæti Hampiðjunnar fari félagið á Aðalmarkað Kauphallarinnar en ljóst er að verðmæti þess er margra milljarða króna virði. Venus á 37,9 prósenta hlutdeild í þeim milljörð­ um og fjölskylda Árna og Kristín Vilhjálmsdóttir áttu tæpan þriðj­ ung í þeim bréfum þar til nýlega. Verðmæti hlutabréfanna í Hamp­ iðjunni sem Kristján keypti af þeim hleypur því á hundruðum millj­ óna, jafnvel milljarði eða meira, fari svo að fyrirtækið verði sett á hluta­ bréfamarkað. Að auki ber að nefna að Hamp­ iðjan á einnig hlut í HB Granda upp á 9,43 prósent og er hann því tæp­ lega þriggja milljarða króna virði. Rúmur milljarður af því er í eigu Venusar og var hlutur fjölskyldu Árna og Kristínar því um 300 millj­ óna króna virði. Þar að auki á félag­ ið tæplega sjö prósenta hlut í Ný­ herja sem metinn er 240 milljónir í ársreikningi þess. Ein af viðskiptum ársins Af þessu yfirliti sést að Fiskveiða­ hlutafélagið Venus á afar góðar eignir og stendur beini og óbeini eignarhluturinn í HB Granda þar upp úr. Þó Kristján hafi ekki verið hvatamaður að viðskiptunum með hlutabréf Árna Vilhjálmssonar og systur hans í Venusi þá er ljóst að hann hefur gert góð kaup því bæði HB Grandi, Hampiðjan og einnig Nýherji eru sterk fyrirtæki sem gætu hækkað mjög í verði fari þau á hlutabréfamarkað líkt og búið er að ákveða með Granda. Kristján og viðskiptafélagar gætu því hæglega margfaldað sitt pund í viðskiptun­ um, greitt upp hlutabréfin í Venusi sem keypt voru og haldið þeim hagnaði sem eftir stendur og jafnvel haldið áfram hluta bréfanna sem keypt voru í gegnum Venus. Viðskipti Kristjáns eru því senni­ lega með þeim betri á þessu ári: Hann fékk mjög mikið fyrir frekar lítið og vildi upphaflega ekki að viðskiptin ættu sér stað. Seljendur hlutabréfanna í Venusi gætu á sama tíma hafa orðið af miklum fjárhæð­ um þar sem söluverðið á hlutabréf­ unum endurspeglar ekki raunveru­ legt verðmæti þeirra. Viðskiptin með hlutabréfin í Venusi eru því sannarlega drama­ tískur endir á áratugalöngu við­ skipta­ og vinasambandi þeirra Árna Vilhjálmssonar og Kristjáns Loftssonar. n Deildu um hvalveiðar Dóttir Árna Vilhjálmssonar, Birna, skrifaði grein í Fréttablaðið í sumar sem vakti talsverða athygli. Í henni kom fram sá grundvallarmunur sem var á skoðun- um sumra erfingja Árna og Kristjáns Loftssonar til hvalveiða. Í greininni sagði meðal annars: „Hvað það er sem drífur stjórn Hvals hf. áfram til hvalveiða í óþökk heims- byggðarinnar er með öllu óskiljanlegt. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa engan áhuga á að upplýsa um kostnaðinn við hvalveiðarnar eða hversu miklum fjármunum á yfirleitt að fórna til að koma hvalkjötinu ofan í Japani. Erum við ef til vill að fórna meiri hagsmunum fyrir minni? Gleymum ekki að þær þjóðir sem við eigum í mestum viðskiptum við leggjast gegn hvalveiðum í atvinnuskyni og viðskiptum með hvalaafurðir. Eins og staðan er í dag er aðeins einn maður sem hefur það í hendi sér hvort þessar langreyðar verða veiddar eða ekki. Mikið vildi ég óska að hann léti af þessari hvalveiðiþrjósku og fyndi kröftum sínum og fjármunum annan farveg. Braggabyggðin í Hvalfirði og gömlu hvalveiðiskipin bjóða nefnilega upp á ótal tækifæri.“ Hvalstöðin í Hvalfirði Stórhveli skorið í stöðinni. Mynd RóbERt REynisson Fréttir 13Helgarblað 22.–24. nóvember 2013 Reykjavík Skútuvogur 1 Sími 562 4011 Akureyri Draupnisgata 2 Sími 460 0800 PI PA R\ TB W A · S ÍA · 1 33 21 3 Gorenje ofn BO7120AX eða BO7310AX • Stál • Nýtanlegt rými 65 l • Orkunýtni A • 5 ára ábyrgð Keramik helluborð EC610AX • Snertitakkar • Sjálfvirkur suðubúnaður • Kantur úr ryðfríu stáli • 5 ára ábyrgð ronning.is | gorenje.is Gorenje ofn og helluborð aðeins 159.900 kr. Áður 229.900 kr. Þú sparar 70.000 kr. Nóvembertilboð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.