Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Side 14
14 Fréttir 22.–24. nóvember 2013 Helgarblað
H
annes Smárason notar
sama eignarhaldsfélag
til að taka við peningum
sem hann sendir til
Evrópu og til að halda
utan um eignarhald á skíðaskála í
Courchevel í frönsku Ölpunum sem
kostar um tvo milljarða króna. Þetta
sýna gögn um eignarhaldið á skál-
anum sem DV hefur undir höndum.
Í DV á miðvikudaginn var greint frá
eignarhaldi Hannesar Smárasonar
og Magnúsar Ármann á skíðaskál-
anum í gegnum eignarhaldsfélög
í skattaskjólum. Hannes sendi frá
yfir lýsingu á miðvikudagskvöldið
þar sem hann neitaði því að hann
ætti skálann.
Tvenns konar tenging
Eignarhaldsfélagið sem um ræðir
heitir Mexborough Holding S.A.
og er skráð í Sviss en félögin sem
tengjast eignarhaldi hússins eru
auk þess á Kýpur, Lúxemborg og
Panama. Í DV í lok október síðast-
liðinn var greint frá því að Hannes
notaði Mexborugh Holding til að
taka við fjármunum sem hann á í
Panama. Þá var Mexborough einnig
notað í lánaviðskiptum vegna fram-
kvæmda við skíðaskálann upp á
ríflega 120 þúsund evrur en húsið
kallast Chalet Maria. Þarna er því
um að ræða tvær aðskildar heimild-
ir, í aðskildum málum, þar sem nafn
Hannesar Smárasonar og Mex-
borough koma upp.
Mexborough er notað til að fjár-
magna skíðaskálann í gegnum
eignarhaldsfélag í Lúxemborg sem
heitir Le Grande Blanche S.A.R.L.
en það er fyrirtækið sem á skálann
og rekur hann.
Sagðist „þekkja“ skálann
Í yfirlýsingunni sem Hannes
sendi frá sér kom fram að hann og
Magnús „þekktu“ skálann og hefðu
komið að „rekstri“ hans en að slíkt
ætti ekki við lengur. „„Fréttin“ er
röng. Ég á ekkert í þessum skíða-
skála, hvorki beint né „í gegnum
eignarhaldsfélög í skattaskjólum“,
eins og sagt er. Sama gildir um
Magnús. Ég og Magnús þekkj-
um þessa eign og höfum komið að
rekstri hennar, en „fréttin“ snýst
ekki um það. Hvorugur okkar er eig-
andi, eins og áður segir, og ég kem
ekki að rekstri þessarar fasteignar í
dag,“ sagði Hannes í yfirlýsingunni.
Gögnin sem DV hefur undir
höndum sýna hins vegar fram
á annað þó eignarhald þeirra
Magnúsar og Hannesar á skálanum
sé langt frá því að vera milliliðalaust
eins og flókið eignarnetið sýnir.
Magnús á meira í skálanum
Gögnin sem DV hefur undir hönd-
um sýna fram á að á endanum á
Magnús Ármann meira í skíðaskál-
anum en Hannes Smárason. Magn-
ús á 73 prósent í honum en Hann-
es 27; bókfært virði eignarhlutar
Magnúsar er 9,9 milljónir evra en
bókfært virði eignarhluta Hannesar
er 3,3 milljónir evra. Samtals nemur
verðmæti eignarhluta þeirra rúm-
um tveimur milljörðum króna.
Af einhverjum ástæðum sendi
Magnús ekki frá sér yfirlýsingu á
miðvikudaginn líkt og Hannes. DV
hefur gert tilraunir til að ná í Magn-
ús í gegnum spænskan farsíma
hans, og einnig rætt við konu hans,
en það hefur ekki gengið. Þá hefur
blaðið einnig gert tilraunir til að
fá sjónarmið Magnúsar í málinu í
gegnum lögmann hans en það hef-
ur heldur ekki gengið.
Vinna með lögmanni í Lúx
Móðurfélag skálans, Le Grande
Blanche, er svo í eigu eignarhalds-
félags í Lúxemborg sem heit-
ir Semtan. Því félagi er stýrt af lög-
mannsstofu þar í landi sem kennd
er við lögmanninn Godfrey Higu-
et. Auk þess vinna þeir Hannes og
Magnús með fjármálafyrirtækinu
Arena Wealth Management en þar
vinna nokkrir Íslendingar sem áður
unnu hjá Landsbankanum í Lúx,
meðal annarra Þorsteinn Ólafsson
og Kjartan Guðmundsson.
Eignarhaldið á Semtan er
þannig að það er í eigu félagsins
Semtan Management Limited sem
skráð er í Níkósíu á Kýpur. Það fé-
lag er svo í eigu eignarhaldsfé-
laga á Panama sem heita Intergem
Holding og Monergate Holding.
Intergem er í eigu Hannesar og
Monergate er í eigu Magnúsar;
Intergem heldur á rúmlega fjórð-
ungshluta bréfanna í félögunum á
bak við skíðaskálann en Monerga-
te þremur fjórðu. Eignarhaldið á
skíðaskálanum teygir sig því til
fjögurra landa: Skálinn er í frönsku
n Flókið net eignarhaldsfélaga í þremur löndum heldur utan um skíðaskála þeirra Hannesar og Magnúsar
Einfölduð skýringarmynd
LA GRANDE
BLANCHE SARL
18 rue Robert Stumper
L-2557 Luxembourg
SEMTAN
SCA de droit Luxembourgeois
C/O Liberty center
55, avenue de la Liberté
Luxembourg
SEMTAN MANAGEMENT LIMITED
Nicosia, Cyprus, 12 Egypt Street, PC109
INTERGEM HOLDING S.A
Panama, east 53 rd Street, Marbellla,
Swiss bank building
MONEGATE HOLDING S.A
Panama, east 53 rd Street, Marbellla,
Swiss bank building
Magnús á meira Magnús á
tæplega 3/4 hluta í skíðaskálanum
samkvæmt gögnum sem DV hefur
undir höndum en Hannes 1/4. Mynd A33
Hannes Smárason Magnús Ármann
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Frakkland
Þýskaland
ÍtalíaCourchevelEignarhald
skíðaskálans
Endar í Panama
Ölpunum en eignarhaldið er fyrst í
Lúxemborg, svo á Kýpur og loks í
Panama. Eignarhaldsfélag í Sviss,
Mexborough, er svo notað til að
fjármagna framkvæmdir og annað
við húsið.
Hannes hafði því sannarlega rétt
fyrir sér þegar hann sagði að þeir
Magnús „þekktu“ skálann. Miðað
við þessar heimildir DV, sem eru
traustar, þekkja þeir skálann mjög
náið enda eiga þeir hann. n
Hannes neitaði
Hannes Smárason neit-
aði því á miðvikudaginn
að hann ætti skíðaskál-
ann í Courchevel.
„Ég og
Magnús
þekkjum þessa
eign og höfum
komið að rekstri
hennar
*tekið skal fram að eignarhald hússins er talsvert flóknara, en er hér einfaldað mjög til skýringar.