Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Side 15
Fréttir 15Helgarblað 22.–24. nóvember 2013
n Jón bölvaði þegar blaðamaður DV bar vitni n Segir lánaviðskiptin eðlileg
J
ón Þorsteinn Jónsson, fyrrver-
andi stjórnarformaður Byrs,
var seinn í Héraðsdóm Reykja-
víkur á þriðjudag þegar mál
sem hann höfðaði gegn Inga
Frey Vilhjálmssyni, blaðamanni
á DV, Reyni Traustasyni, ritstjóra
blaðsins, og útgáfufélagi DV. Ástæð-
an sem lögmaður hans gaf var mik-
il hálka á leiðinni frá Kvíabryggju á
Snæfellsnesi þar sem Jón Þorsteinn
situr í fangelsi vegna ótengdra brota.
Málið snýst um fréttaflutning DV af
fjármálum Jóns Þorsteins en full-
yrt var í blaðinu að hann hafi tekið
þátt í lánaviðskiptum þar sem farið
var á svig við gjaldeyrishöft. Jón Þor-
steinn krefst þess að fá þrjár millj-
ónir í miskabætur og að nokkur
ummæli verði dæmd ómerk. Fyrir
dómnum sagðist hann hafa verið að
lána kunningja sínum fyrir kaupum
á fasteignasölu í Los Angeles.
Neitar að hafa farið á
svig við gjaldeyrishöft
Jón Þorsteinn þvertók fyrir að hafa
átt nokkurn þátt í að fara á svig við
gjaldeyrishöft og fullyrti að þau
gögn sem DV vísaði til í fréttum sín-
um væru fullkomlega eðlilegir lána-
samningar. Fréttir DV sem stefnt er
vegna fjölluðu um lánveitingar frá
Jóni Þorsteini sjálfum til erlendra
eignarhaldsfélaga í eigu íslenskra að-
ila. Þrír slíkir samningar voru lagð-
ir fyrir dóminn og var Jón Þorsteinn
beðinn um að staðfesta að það væru
samningar sem hann hefði undir-
ritað. Það kom þó í ljós þegar líða
tók á vitnisburð hans fyrir dómnum
að einn samningurinn var alls ekki
undirritaður af Jóni þó að nafn hans
væri prentað á samninginn. Þá stað-
festi hann hins vegar að hafa gert
viðkomandi samning og að honum
hefði verið fylgt.
Fyrir dómnum kom fram að Jón
Þorsteinn taldi sig vera að lána kunn-
ingja sínum Guðmundi Erni Jóhanns-
syni, fyrrverandi framkvæmdastjóra
Landsbjargar, sem hefði komið að
máli við sig og beðið um skamm-
tímalán. Í lánasamningunum er hins
vegar um að ræða lán til félagsins
CCP System Ltd. á Bretlandi og var
Guðmundur í sjálfskuldarábyrgð á
láninu ásamt öðrum manni, Bóasi
Ragnari Bóassyni. Þriðji maðurinn,
Sigurður Kolbeinsson, tók svo við
lánsfénu í tveimur tilvikanna en Bóas
í því þriðja.
Vissi ekkert um félagið
sem hann lánaði
Skilmerkilega kom fram fyrir
dómnum að Jón Þorsteinn vissi
lítið sem ekkert um starfsemi fé-
lagsins CCP System sem hann lán-
aði þrjátíu milljónir króna að ósk
Guðmundar Arnar. Hann kann-
aði félagið ekki áður en lána-
samningarnir voru undirritaðir en
að eigin sögn kannaði hann að-
eins stöðu Guðmundar. „Eftir á að
hyggja hefði ég átt að kanna hann
betur,“ sagði Jón Þorsteinn fyrir
dómnum en lánið hefur ekki verið
greitt til baka og er í innheimtu hjá
lögmanni hans. Aðspurður hvað
hefði endurheimst af láninu sagði
hann það vera í kringum fimmtán
prósent.
Aðspurður hvort hann hafi
kannað áætlanir CCP System um
hvernig ætti að ná þeim gróða sem
þyrfti til að standa undir endur-
greiðslu lánanna ásamt vöxtum
sagði Jón Þorsteinn að hann hafi
talið að fjárfesta ætti í fasteignasölu
í Los Angeles í Bandaríkjunum.
Guðmundur Örn sagði síðar fyrir
dómnum að viðskipti með fast-
eignasölu hafi verið til umræðu en
líka gjaldeyrisviðskipti. Guðmund-
ur gat ekki útskýrt nánar í hverju
gjaldeyrisviðskiptin hafi falist og
bar því við að hann hafi sjálfur að-
eins verið milliliður og að hann
hafi fengið þóknun greidda til að
koma eigendum CCP System í við-
skiptasamband við Jón Þorstein.
Búinn að týna viðbótarsamningi
Í skýrslutökunum kom einnig fram
að gerður var viðaukasamningur við
fyrsta lánasamninginn sem Jón Þor-
steinn gerði við CCP System. Í þeim
samningi var kveðið á um viðbótar-
vaxtagreiðslur. Aðspurður sagðist Jón
Þorsteinn ekki muna hvað vextirnir
voru miklir í samningnum en taldi þá
vera meira en tíu prósent. Þessi samn-
ingur liggur hins vegar ekki fyrir í
gögnum málsins. Jón Þorsteinn sagð-
ist hljóta að eiga hann einhvers stað-
ar en umræddur samningur er ekki
hluti af því sem er í innheimtu hjá lög-
manni hans.
Dómarinn í málinu skaut
nokkrum spurningum að þeim sem
voru leiddir fyrir dóminn. Spurði
dómarinn Jón Þorstein hvort hon-
um hafi þótt samningarnir full ein-
faldir, eða óeðlilegir, í ljós fyrri starfa
hans sem stjórnarformaður í fjár-
málafyrirtæki. „Ég er ekki viðskipta-
fræðimenntaður,“ svaraði hann þá
og bætti við að hlutverk hans sem
stjórnarformaður í fjármálastofn-
un hafi verið að koma einu sinni í
mánuði og halda fundi.
Bölvaði við skýrslutöku á Inga
Jón Þorsteinn átti erfitt með að halda
aftur af athugasemdum sínum þegar
Ingi Freyr gaf skýrslu í gegnum síma í
dómnum. Ingi Freyr bar við 25. grein
fjölmiðlalaga við flestum spurningun-
um en sú grein snýst um vernd heim-
ildarmanna. Lögmaður Þorsteins,
Reynir Karlsson, þráspurði Inga um
heimildirnar sem fréttirnar byggðu á
og hvort hann vildi ekki leggja fram
frekari gögn í málinu. Sagðist hann
gjarnan vilja fá þessi gögn en að hann
efaðist að þau væru raunverulega til.
Jón Þorsteinn muldraði nokkrum
sinnum óblíð orð meðan á skýrslu-
tökunni stóð. „Djöfulsins vitleysa,“
sagði hann þegar Ingi Freyr vísaði
í 25. grein fjölmiðlalaganna. Hann
svaraði svo „já“ fyrir Inga Frey þegar
lögmaður hans spurði hvort hann
gæti mætt á skrifstofu DV og fengið
Inga Frey til að skrifa um óvini sína og
ata þá þannig aur. „Þú lýgur því,“ sagði
hann svo loks þegar Ingi Freyr sagðist
aldrei skrifa fréttir sem hann vissi að
væru rangar. n
Hélt að
kaupa ætti
fasteignasölu
í Los Angeles
„Ég er ekki
viðskipta-
fræðimenntaður
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Eðlilegt
Jón Þorsteinn
sagði lána-
samningana
vera eðlilega
og ekki tengj-
ast gjaldeyris-
braski.
Gaf skýrslu Jón Þorsteinn gaf sjálfur skýrslu fyrir dómnum.
„Eftir á að hyggja
hefði ég átt að
kanna hann betur.
n Flókið net eignarhaldsfélaga í þremur löndum heldur utan um skíðaskála þeirra Hannesar og Magnúsar
Eignarhald
skíðaskálans
Endar í Panama
Hefur ekki tjáð sig Magnús Ármann
hefur ekki tjáð sig um eignarhaldið á
skálanum eftir að DV greindi frá málinu á
miðvikudaginn.
„Ég á
ekkert
í þessum
skíðaskála
– Hannes Smárason
Flókið eignarhald
Hannes Smárason og
Magnús Ármann eiga
skíðaskálann saman
í gegn um nokkur
eignarhaldsfélög.