Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Side 16
16 Fréttir 22.–24. nóvember 2013 Helgarblað
„Gegnsæi ávallt betra
en leyndarhyggja“
n Umdeildar reglur um birtingu dómsúrlausna taka gildi um áramót
M
iklar breytingar verða gerð-
ar á því hvaða dómar birt-
ast á vef héraðsdómstóla
og hvernig þeir birtast.
Þessi breyting, sem er afar
umdeild, tekur gildi um áramótin.
Breytingin hefur þá þýðingu að veru-
lega er þrengt að upplýsingagjöf til al-
mennings að mati Blaðamannafélags
Íslands og hafa lögmenn margir efa-
semdir um tilhögunina.
Þurfa ekki að birta
Lögum samkvæmt er héraðsdómstól-
um ekki skylt að birta dóma og úr-
skurði opinberlega, þeim er það þó
heimilt. Það er ekki alltaf gert og hef-
ur hver dómari haft yfirumsjón með
því hvaða dómar birtast og hvað er
ekki sett á vefinn. Ætla má að hingað
til hafi flestir dómar ratað inn á síð-
una domstolar.is. Sú birting hófst árið
2006. Þess má einnig geta að Hæsti-
réttur hefur gert þetta frá árinu 1999,
þ.e. að birta dóma og úrskurði. Með
nýjum reglum verður ekki samræmi
milli dómstiganna, ekki frekar en er
nú. Til dæmis gæti dómur sem fellur
í héraði og birtist ekki á vef héraðs-
dómstólanna, birst á vef Hæstaréttar
í dómsúrskurðum, en í þeim birtast
alltaf dómar frá báðum stigum. Þar
gætu einnig birst nöfn sem voru af-
máð í héraði.
Frestuðu reglunum
Þorgeir Ingi Njálsson, dómstjóri í
Héraðsdómi Reykjaness, segir í sam-
tali við DV að greinargerðin sem
fylgir nýju reglunum sé nokkuð skýr.
Þorgeir fór fyrir hópnum sem samdi
nýjar reglur. Hann tekur fram að með
nýju reglunum sé það tekið úr hönd-
um dómara að velja hvaða dómar
birtist, hvernig og hvenær, og það
verður samræmt. Nú verði það skrif-
stofa dómstólanna sem taki þessar
ákvarðanir og það tryggt að samræmi
sé á milli birtinga.
Reglurnar áttu að taka gildi í
haust, en innleiðingu þeirra var
frestað eftir að Héraðsdómur Reykja-
víkur, stærsti héraðsdómstóll lands-
ins, taldi sér ekki vera fært að afmá öll
nöfn og persónugreinanleg einkenni
út úr dómum að svo stöddu. Til þess
þyrfti mannskap sem dómstóllinn
hefði ekki úr að spila. Um áramótin
verður dómstóllinn að leggja til þessa
vinnu.
Mikilvægir almannahagsmunir
„Það er mikilvægt að fólk geti vitað
hvernig túlka skuli lög og reglur en
til þess er nauðsynlegt að dómsúr-
lausnir séu birtar,“ segir Katrín Odds-
dóttir lögmaður. Hún gerði alvarlegar
athugasemdir við nýju reglugerðina
og hefur komið þeim áleiðis til lög-
manna. Katrín bendir á að birting
dóma sé hluti af þeirri meginreglu
sem verndar aðhald almennings með
dómskerfinu. Þá segir hún að með
breytingu á því hvaða dómar verða
birtir, til dæmis varðandi hjúskap-
arlög, (sjá hér með grein hvaða dóm-
ar verða ekki birtir) verði stöðvuð
birting dóma á heilu réttarsviði. Það
skipti almenning miklu máli.
Þá tekur hún það fram að með
breytingunni verði það í raun í hönd-
um eins manns, dómstjórans, að
ákveða hvað birtist og hvað birt-
ist ekki. „Ekki finnst mér heillavæn-
legt að heimila einum manni, þ.e.
dómstjóra, að ákveða hvort fara skuli
eftir þessum undantekningum eða
ekki,“ segir hún og bendir á að ekki
sé tilgreint á hvaða forsendum hann
á að framkvæma slíkt mat. Gæti það
allt eins verið geðþóttaákvörðun.
„Almennt er gegnsæi ávallt betra en
leyndarhyggja og því miður finnast
mér þessar reglur of hallar undir hið
síðarnefnda, en það gæti bitnað með
neikvæðum hætti á réttaröryggi al-
mennra borgara,“ segir Katrín.
Skiptar skoðanir
Þeir lögmenn sem DV hefur rætt við
hafa á þessu mjög skiptar skoðanir.
Flestir telja þeir mikilvægt að birta
dóma en eru þeir ekki á einu máli
um það hvort að nöfn eigi að vera
birt í öllum tilfellum. Þá segja þeir að
dómasafnið á vef dómstóla geri þeim
kleift að fylgjast með nýföllnum dóm-
um á auðveldan hátt. Einhverjir telja
að nafnbirtingin geti haft þau áhrif
að einstaklingur, sem er dæmdur fyr-
ir litlar sakir, þurfi að lifa með nafn-
birtingunni um ókomna tíð. Það geti
verið mun harðari refsing en sjálfur
dómurinn. Nú þegar eru í gildi regl-
ur um að nöfn birtist ekki í dómsúr-
lausnum í sakamálum þegar ákærði
hlýtur refsingu sem er sekt undir
áfrýjunarfjárhæð. Slíkt dæmi er þekkt
í nýlegu vændiskaupamáli, þar sem
nöfn þeirra sem ákærðir voru, birtust
ekki í dómsúrlausnum.
Áður hefur komið fram að Blaða-
mannafélag Íslands leggst alfarið
gegn breytingunni, enda væri hún til
þess fallinn að skerða rétt almennings
til upplýsinga. n
Dagskrá birtist
óbreytt
n Samkvæmt upplýsingum frá Þorgeiri
Inga Njálssyni, dómstjóra Héraðsdóms
Reykjaness, breytist ekkert er varðar
dagskrá dómstólanna. Hún er birt dag-
lega á vefnum domstolar.is. Þar verður
dagskráin áfram birt, en hafðar í heiðri
sömu reglur og áður sem byggðar eru á
réttarfarsreglum.
n Nöfn ákærðu í sakamálum verða
áfram sett inn á vefinn, þegar þeim hef-
ur verið birt ákæra, nema brýna nauðsyn
beri til að svo verði ekki.
n Nöfn verða ekki birt í málum þegar
það er talið skaða hagsmuni brotaþola
eða í málum sem varða börn, svo sem
forræðismál.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is
n Dómarar ákveða ekki lengur hvaða
dómar birtast á vefnum domstolar.is
heldur skrifstofur héraðsdómstóla.
n Birta á dóma að jafnaði tveimur dögum
frá uppkvaðningu dóms eða úrskurðar.
Þetta á meðal annars að gefa lögmönnum
svigrúm til að kynna skjólstæðingum
sínum niðurstöðu mála áður en dómurinn
birtist opinberlega.
n Sumir dómar verða birtir fyrr, sérstak-
lega ef um ræðir fréttnæm mál.
n Meginreglan verður sú að nafnleyndar
skuli að meginstefnu gætt við opinbera
birtingu dómsúrlausnar.
n Dómstjóri getur ákveðið að víkja frá
þessu og birta nöfn, ef hann telur
ástæðu til.
n Nafnleyndar skal gætt um aðra en
ákærða í sakamáli. Ef ákærði er sýknaður,
birting á nafni hans getur talist andstæð
hagsmunum brotaþola, eða ef um er að
ræða úrskurð sem gengur undir rekstri
máls (frávísun þess) skal nafnleyndar
einnig gætt.
n Sama gildir ef ákærði var ekki orðinn 18
ára þegar hann framdi brotið, sem hann er
sakfelldur fyrir.
n Nafnbirtingu má aflétta samkvæmt
beiðni þegar eitt ár er liðið frá birtingu dóms.
n Í einkamálum skal gæta nafnleyndar um
aðila og vitni.
n Afmá má úr úrskurðum og dómum atriði
sem talið er eðlilegt að fari leynt með tilliti
til almanna- og einkahagsmuna.
Ósátt Katrín gagnrýnir
þessa breytingu harðlega
og segir hana hljóma eins
og geðþóttaákvarðanir fái
að ráða. Mynd Sigtryggur Ari
„Nauðsynlegt
að dóms-
úrlausnir séu birtar
Þetta eru helstu breytingarnar
Þetta eru reglurnar
3.gr. takmarkanir á birtingu:
dómsúrlausn skal ekki birt
þegar um er að ræða
n a. Kröfu um gjaldþrotaskipti
n b. Kröfu um opinber skipti
n c. Beiðni um heimild til greiðslu-
stöðvunar
n d. Beiðni um heimild til að leita
nauðasamnings
n e. Mál samkvæmt lögræðislögum
nr. 71/1997
n f. Beiðni um dómskvaðningu mats-
manns
n g. Beiðni um úrskurð á grundvelli laga
um horfna menn nr. 44/1981
n h. Mál samkvæmt barnaverndarlögum
nr. 80/2002
n i. Mál samkvæmt barnalögum
nr. 76/2003
n j. Mál samkvæmt hjúskaparlögum nr.
31/1993
n k. Kröfu um heimild til beinnar aðfarar-
gerðar (innsetningar- og útburðarmál)
n l. Úrskurð sem gengur undir rekstri máls
og felur ekki í sér lokaniðurstöðu þess
n m. Einkamál þar sem ekki er haldið
uppi vörnum
n n. Kröfu um úrskurð samkvæmt
ákvæðum IX.-XV. kafla laga um meðferð
sakamála nr. 88/2008
n o. Kröfu um breytingu eða niðurfellingu
ráðstafana samkvæmt 62. gr almennra
hegningarlaga nr. 19/1940
n p. Sakamál þar sem refsing er sekt
undir áfrýjunarfjárhæð
n q. Sakamál þar sem einungis er ákært
fyrir brot gegn sérrefsilögum og aðalmeð-
ferð fer ekki fram í málinu.
Ákvörðun dómstjóra
Með breytingunum er það í
höndum skrifstofu dómstólanna
að fylgja reglunum eftir.