Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Síða 19
Fréttir 19Helgarblað 22.–24. nóvember 2013 Ramses á stjórnmálum í fjölmiðlum en hann tók meðal annars þátt í starfi Framsóknarflokksins á sínum tíma. Hann segist þó hafa yfirgefið þann flokk fyrir löngu og fært sig yfir í Vinstri græna, aðallega vegna stefnu þeirra í málefnum innflytjenda. Eitt af því sem honum finnst vont við þá stöðu sem hann er í núna er að hann hefur ekki kost á því að bjóða sig fram til kosninga. „Ég má kjósa mína full- trúa og ég gerði það í síðustu kosn- ingum en þegar kemur að því að hafa sjálfur áhrif á samfélag mitt, þá er ég ekki gjaldgengur. Þarna erum við aft- ur komin með dæmi um það að ég sé ekki í kerfinu, ég er annars flokks, en fyrir hverja er þetta kerfi eiginlega?“ spyr Ramses og Rosemary glottir út í annað: „Stjórnmál og aftur stjórnmál, hann getur sko talað um þau.“ „Börn Landspítalans“ Ramses og Rosemary sóttu nýlega um íslenskan ríkisborgararétt en það getur tekið átta til átján mánuði að afgreiða slíka umsókn. Þangað til verða þau áfram í ákveðnu limbói, en þau vonast vissulega eftir því að svarið við þeirri beiðni verði jákvætt. Til að fá innsýn inn í það hversu flókin staða flótta- fólks getur verið og frábrugðin stöðu okkar hinna er áhugavert að benda á að börnin þeirra, sem bæði fæddust hér á landi, voru lengi vel ekki skráð undir þeirra nöfnum. „Þau voru börn Landspítalans, þannig að lengi vel átt- um við tæknilega séð engin börn á Ís- landi,“ segir Rosemary. Ramses segist á þessum tíma hafa velt því fyrir sér hvað yrði um börnin ef dvalarleyfi þeirra hjóna hér á landi hefði ekki verið endurnýjað. Hann slær á létta strengi í ljósi þessara vangaveltna: „Yrðu þau þá kannski send aftur heim á Landspítalann?“ Á meðan hjónin eru ríkisfangslaus ferðast þau um á sérstökum ferðaskil- ríkjum sem eru gefin út af Útlendinga- stofnun. Skilríkin þykja ekki trúverð- ug á alþjóðlegum flugvöllum og þau lenda iðulega í því að vera stöðvuð af tollvörðum. „Við erum látin bíða á meðan þeir yfirfara pappírana fram og aftur. Við lentum til dæmis í þessu árið 2010 en þá vorum við með bæði börnin,“ segir Ramses, og Rosemary heldur áfram: „Rebekka var ekki nema átta mánaða gömul þarna og við vorum tekin úr röðinni á meðan verið var að grandskoða skilríkin okk- ar. Allir sem gengu hjá horfðu á okk- ur eins og við værum annars flokks fólk.“ Ramses bætir því við að hon- um hafi þrisvar sinnum verið meinað að halda ferðalagi sínu áfram og gert að snúa við. „Ég var bara sendur aft- ur heim, eftir að þeir höfðu haldið mér og hringt einhver símtöl, á meðan aðr- ir flugvallargestir horfðu á mig eins og ótíndan glæpamann, hryðjuverka- mann eða eitthvað þaðan af verra.“ Hjálpa munaðarleysingjum Ramses og Rosemary hafa verið að sýsla ýmislegt á síðustu árum sam- hliða annarri vinnu. Fastagestir í Kolaportinu hafa eflaust sumir hverj- ir orðið varir við þau hjón en þau hafa síðustu ár selt handunna muni frá Kenía á litlum sölubás þar. Ágóðinn af sölunni rennur í hjálparsamtökin „Flugvallarhlauparar björguðu lífi mínu“ n Paul Ramses og Rosemary Atieno hafa vanist því að vera utangátta n Fengu hæli af mannúðarástæðum en föst í „limbói“ Tears Children sem þau stofnuðu 2008 en samtökin leggja áherslu á að veita munaðarleysingjum, ósjálfbjarga börnum, ungmennum og konum á jaðri samfélagsins í Kenía menntun og aðra aðstoð til sjálfshjálpar. Á heima- síðu samtakanna kemur fram að þau styðja nú þegar við 315 munaðarleys- ingja, 77 ekkjur og ungmenni með mismunandi starfsemi. „Við styðjum við börn í Kenía sem misstu foreldra sína vegna AIDS. Við byrjuðum á þessu til þess að gefa til baka í okkar samfélag. Þetta er sá staður sem við komum frá og við trú- um því að menntun sé grunnurinn að öllu öðru,“ segir Ramses og Rosemary tekur við: „Allt það sem við seljum í Kolaportinu er handunnið af konum í Kenía, en ágóðinn rennur til þeirra og samtakanna í heild. Síðasta eina og hálfa árið höfum við til dæmis verið að nýta þetta fé í uppbyggingu leikskóla í Vestur-Kenía.“ Þess má geta að ein skólastofan í leikskólanum er nefnd í höfuðið á Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra Íslands. Þakklát Ingibjörgu Ég spyr þau nánar út í þessa nafn- gift. Þegar fréttir bárust af handtöku og brottvísun Ramses, sagði Ingi- björg Sólrún í fjölmiðlum að það væri harðneskjulegt af Útlendingastofn- un að tvístra fjölskyldunni með þess- um hætti. Þá beitti hún sér fyrir því sem ráðherra í ríkisstjórn að þessi ákvörðun Útlendingastofnunar yrði endurskoðuð. Aðdáun þeirra Ramses og Rosemary á Ingibjörgu leynir sér ekki þegar þau útskýra hvers vegna þau hafi nefnt eina kennslustofu skól- ans eftir henni. „Hún lét málið sig varða og sem móðir fann hún til með eiginkonu minni, hún skyldi að þetta 21 daga gamla barn þyrfti á föður sínum að halda,“ segir Ramses og Rosemary bætir við að þau hafi aldrei fengið tækifæri til þess að þakka Ingibjörgu fyrir þann skilning sem hún sýndi máli þeirra. Ramses heldur áfram: „Á Ítalíu var ekki komið fram við mig eins og manneskju, það eru til manneskjur og síðan er flokkur þar fyrir neðan og í þann flokk var ég settur. Þegar ég frétti af því að Ingibjörg hefði mótmælt ákvörðuninni fannst mér það mjög magnað. Hún sat í ríkisstjórninni og ætti því samkvæmt öllu að verja þetta kerfi, en hún sá eitthvað rangt við þetta, og þá fann ég svo sterkt fyrir því að einhver hafði samþykkt hver við erum.“ Færður í fangaklefa Þetta leiðir okkur að deginum sem Ramses var færður í varðhald: „Fídel var nýfæddur, ekki nema 21 dags gam- all þegar lögreglan hringdi í mig. Þeir báðu mig um að koma upp á lögreglu- stöðina á Hlemmi þar sem þeir þyrftu að færa mér ákveðin skilaboð.“ Þegar Ramses kom upp á stöð var honum tjáð að Útlendingastofnun hefði tekið ákvörðun um að senda hann aftur til Ítalíu. Síminn var tekinn af honum og hann færður inn í fangaklefa. „Ég spurði þá hvort ég gæti fengið að tala við konuna mína eða lögfræðinginn minn og þeir sögðu að ég gæti það en ég var ekki með neinn síma, þannig að hvernig átti ég að fara að því?“ Ljóst er að upprifjun á þessum örlagaríka degi tekur á og sárindin í röddinni leyna sér ekki þegar Ramses heldur áfram: „Þarna, þar sem ég stóð í klefanum, fór ég að velta því fyrir mér hvort íslensk yfirvöld væru ef til vill búin að gera samkomulag við stjórn- völd í Kenía. Kannski yrði ég sendur beinustu leið frá Ítalíu og til Kenía þar sem ég óttaðist um líf mitt. Ég spurði hvort ég gæti áfrýjað ákvörðuninni og mér var tjáð að það væri hægt, en ákvörðuninni yrði samt sem áður ekki haggað.“ Ramses fékk síðar um daginn að koma skilaboðum til Rosemary, en þau eru sammála um að þessum degi gleymi þau seint. Þeim leist hreint ekki á blikuna þegar ljóst var að Ramses yrði sendur úr landi daginn eftir. Ljónshjörtu flugvallarhlaupara Daginn eftir fór Ramses í fylgd með lögreglumönnum út á Keflavíkur- flugvöll þar sem búið var að undir- búa brottflutning hans til Ítalíu. Allt útlit var fyrir að brottvísun Útlendingastofnunar myndi ganga eftir þegjandi og hljóðalaust en þá tók málið hins vegar óvænta stefnu. Flug- vallarhlaupararnir svokölluðu, þeir Haukur Hilmarsson og Jason Thomas Slade, brutu sér leið inn á Keflavíkur- flugvöll og stöðvuðu tímabundið flug- vélina sem Ramses átti að fara með til Ítalíu. Atvikið vakti mikla athygli og sí- fellt fleiri fjölmiðlar fóru að fjalla um mál fjölskyldunnar. „Við ætluðum að reyna að bjarga lífi Paul Ramses. En því miður held ég að það hafi ekki tek- ist,“ sagði Haukur Hilmarsson, sem þá var 21 árs, í samtali við Vísi í kjölfar að- gerðarinnar. Ramses leynir ekki þakklæti sínu gagnvart þeim Jason og Hauki, en hann hefur aldrei tjáð sig um atvikið opinberlega. „Það var alveg hreint magnað hvað þessir strákar gerðu og þessi aðgerð þeirra snerti mig í hjartastað. Þeir tóku frumkvæði að því að klifra yfir girðinguna og trufla flugumferð til þess að vekja athygli á málinu. Þeir voru að berjast fyrir réttlæti og mér fannst þeir vera með ljónshjörtu, vegna þess að á þess- um tíma virtist enginn nenna að hlusta. Þannig að ég hef alltaf ver- ið þeim mjög þakklátur fyrir að hafa staðið fyrir það sem þeir töldu rétt. Flugvallarhlaupararnir björguðu lífi mínu.“ Hann segir aðgerð þeirra hafa vakið þá vakningu sem varð um málið í kjölfarið. Þá segir hann líka áhugavert að hugsa til þess að Hauk- ur og Jason hafi ekki þekkt hann neitt þegar þeir gripu til þessa ráðs, heldur hafi þeir einungis fylgt réttlætiskennd sinni. Stuðningur samkynhneigðra Strákarnir voru síðar dæmdir í fjár- sektir fyrir aðgerðina og bauðst Ramses til þess að bera vitni fyrir dómnum. „Ég vildi bera vitni, ég vildi útskýra hvers vegna þessi aðgerð þeirra hafi verið svo mikilvæg, en ég fékk aldrei tækifæri til þess.“ Upphaf- lega var Haukur dæmdur í tveggja mánaða fangelsi og Jason í 35 daga skilorðsbundið fangelsi. Hæstiréttur ógilti hins vegar dóminn og sendi aft- ur heim í hérað. Þar fékk sami sak- sóknari annað tækifæri til þess að fá þá sakfellda. Þar voru þeir sýknaðir af öllum atriðum upphaflegu ákærunn- ar en hins vegar sakfelldir á grund- velli ákæruliðar sem bættist við á síð- ustu stigum málflutnings, og voru dæmdir til þess að greiða 125 þúsund krónur hvor í sektir. „Þetta er enn eitt ömurlegt dæmi um dóm þar sem dæmt er svo kerfið haldi andlitinu, eftir að þungar ásak- anir hafa verið settar fram gegn venju- legu fólki og það svo látið velkjast um í kerfinu árum saman,“ sagði Haukur um málið í samtali við vefritið Smug- una. Ramses og Rosemary segjast einnig vera þakklát Herði Torfasyni tónlistarmanni en hann skipulagði fjölmenna mótmælafundi fyrir utan dómsmálaráðuneytið í kjölfar brott- vísunar Ramses. „Hörður og samfé- lag samkynhneigðra á Íslandi stóð þétt við bakið á okkur og sýndi okkur mikinn stuðning. Þegar ég kom aftur hingað heim fékk ég loks tækifæri til þess að hitta hann og þakka honum fyrir, þá sagði hann mér frá sinni sögu og hvernig honum hafði verið útskúf- að hér á landi vegna samkynhneigðar sinnar.“ Tregi í kerfinu Katrín Theódórsdóttir, lögmaður þeirra hjóna talaði um málið í fjöl- miðlum og sakaði yfirvöld um gróf mannréttindabrot gagnvart fjöl- skyldunni, meðal annars með því að aðskilja fjölskylduna með þess- um hætti. Þegar íslensk yfirvöld ákváðu svo loks að draga ákvörðun sína til baka viðurkenndu þau í raun að vinnubrögð Útlendingastofnunar hefðu ekki verið eðlileg. Þrátt fyrir það barst þeim hjónum aldrei afsökunar- beiðni í neinu formi. Hvað þá að þau hafi fengið einhverjar bætur vegna málsins. „Þeir gerðu í rauninni ekkert rangt,“ segir Ramses og heldur áfram: „Þeir voru bara að fylgja lögunum eins og dómsmálaráðherrann sagði. Þannig að þeir höfðu enga ástæðu til þess að biðjast afsökunar og þannig tókum við því alltaf.“ Í umræðu um hælisleitendur og flóttamenn á Alþingi á dögunum sagði Freyja Haraldsdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, að það fælist mik- il ábyrgð í því að tala um „hóp án lands“. Fleiri þingmenn tóku undir, þar á meðal Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, sem tók sérstaklega fram að verið væri að ræða um hóp fólks sem ekki ætti sæti við borðið. Umræða um þennan hóp fólks, sem fjölskyldan í Hafnar- firðinum tilheyrir, hefur orðið hávær- ari síðan mál Ramses kom fyrst upp. Aðspurð hvað megi betur fara í mála- flokknum segja þau ef til vill mikilvæg- ast að víðtæk samræða eigi sér stað í samfélaginu. „Það virðist vera ein- hver tregi hjá stofnunum ríkisins og allt í þessum málaflokki hreyfist mjög hægt,“ segir Ramses. Þá mættu þeir sem með valdið fara ræða við flótta- fólkið sjálft til þess að heyra hvað það hefur að segja. Þau segja þó ýmis- legt hafa færst til betri vegar á síðustu árum sem sé gott. Ekki hrædd lengur Framtíð fjölskyldunnar hér á landi er óráðin en þau vonast til þess að fá tækifæri til þess að lifa og starfa hér áfram. Ramses lætur sig dreyma um frama í stjórnmálum sem ekki verð- ur mögulegur nema hann öðlist hér ríkis borgararétt. Þá langar hann til þess að bæta íslenskukunnáttu sína, meðal annars svo hann geti kom- ið að fótboltaþjálfun yngri kynslóða. Rosemary segist vona að þeim muni áfram ganga vel með verkefnið í Kenía. „Svo langar mig líka til þess að læra betri íslensku þannig að ég geti átt í samskiptum við fólk án allra tungu- málaerfiðleika. Annars er ég hvað ánægðust með það hversu vel 99 pró- sent Íslendinga hafa tekið á móti okk- ur. Við höfum verið boðin vel komin.“ Þau eru sammála um það að líf- ið sé betra í dag en það var fyrir fimm árum þegar þau óttuðust íslensk yfir- völd og vissu aldrei hvað næsti dag- ur bæri í skauti sér. „Óttinn við lög- regluna og Útlendingastofnun er horfinn. Fyrir fimm árum hrukkum við í kút þegar við sáum lögreglubíla en nú þurfum við ekki að fela okkur lengur. Við heimsækjum starfsfólkið á Útlendingastofnun og tölum vinalega við það og brosum,“ segir Ramses og Rosemary bætir við: „Við getum loks- ins verið róleg og í rauninni er okkur mjög létt.“ n „Þeir voru að berjast fyrir rétt- læti og mér fannst þeir vera með ljónshjörtu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.