Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Side 22
22 Sport 22.–24. nóvember 2013 Helgarblað H ólmbert Aron Friðjónsson er nýjasti leikmaður skoska stórliðsins Celtic. Þessi tvítugi framherji sem grét vegna lélegrar frammistöðu sinnar fyrir tveimur árum skaust upp á stjörnuhimininn í sumar í blárri treyju Fram. Hann vann sér inn sæti í byrjunarliðinu snemma sum- ars og varð bikarmeistari í ágúst eft- ir æsispennandi úrslitaleik. Hann skoraði tíu mörk á Íslandsmótinu og fékk loksins að spreyta sig í fremstu víglínu. En hvernig lýsir Hólmbert sjálfum sér sem leikmanni? „Ég er hávaxinn,“ segir hann og lætur hugann reika. „Ég er örfættur með fína tækni og get haldið bolta vel,“ bætir hann við, hógværðin upp- máluð. Hólmbert hefur hins vegar verið sakaður um hrokafullt yfir- bragð og segist hann hafa heyrt þann orðróm. „Ég vil meina að ég sé góður strákur. Einlægur og mjúkur. Nei, ég myndi ekki segja að ég væri hroka- fullur,“ svarar hann. Það þarf ekki nema örstutta stund með kappanum til að sjá að þar fer hann ekki með neinar fleipur. Fimmtán ára í meistara- flokki Hólmbert ólst upp í Kópavogi og sleit barnsskónum með Handknattleiksfélagi Kópavogs sem er í daglegu tali kallað HK. Honum leið vel í Fagralundi og hóf að spila með meistaraflokki félagsins ungur að árum. „Ég spilaði minn fyrsta leik þegar ég var 15 ára. Það var reyndar í Lengjubik- arnum. Síðan byrjaði ég að spila á Íslandsmótinu 17 ára. Tómas Ingi, þáverandi þjálf- ari minn, gaf mér tækifærið og ég þroskaðist mikið á að spila svona ungur í 1. deildinni. Ég var í kjölfarið keyptur til Fram um mitt sumar 2011,“ segir Hólm- bert um uppvaxtar ár sín. Tómas Ingi Tómasson, aðstoðarþjálfari 21 árs landsliðsins, þjálfaði HK sumar- ið 2010 en var rekinn um mitt mót árið eftir. Hólmbert Tómasi Inga vel söguna. Það kom Hólmberti á óvart að vera keyptur til Fram, en hann hóf Íslandsmótið með HK í lélegu formi eftir erfitt undirbúningstímabil og hafði ekki náð því besta fram í leik sínum. Grét eftir meiðslin „Ég var búinn að vera meiddur í nár- anum í hálft ár og var ekkert búinn að vera með á undirbúningstímabil- inu,“ útskýrir Hólmbert. „Ég byrj- aði að æfa í apríl og byrjaði tímabil- ið í engu formi. Ég fór í æfingaferð til Spánar með HK og spilaði leik á móti spænsku liði sem við unnum 17–0. Ég fékk að koma inn á í hálf- leik til þess að koma mér í gang. Ég var gjörsamlega glataður í þeim leik og ég gekk grátandi á hótelið eft- ir hann. Ég var svo fúll. Ég var einn uppi á hótelherbergi og hugsaði með mér hvað ég væri orðinn lélegur í fótbolta. Sem betur fór kom Tómas Ingi inn á herbergi og huggaði mig!“ Hólmbert segir að það sé fyndið að segja frá þessu í dag, en sjálfstraustið hafi ekki alltaf verið í hámarki á ung- lingsárum. „Sjálfstraustið var minn Akkilesar hæll,“ viðurkennir hann. Erfið byrjun hjá Fram Eftir félagaskipti sín til Fram lék hann níu leiki á Íslandsmótinu, en átti erfitt með að festa sig í sessi. Leiðin var ekki greið að velgengni og hann þurfti að leggja mikið á sig til þess að ná hæstu hæðum. „Ég var mjög stressaður fyrsta tímabilið mitt í efstu deild,“ segir Hólmbert. „Ég fékk samt sem áður að spila þrjá, fjóra leiki í byrjunarliði. Á næsta tímabili var ég svolítið inn og út úr liðinu. Ég var alltaf á kantin- um og það er kannski ekki staður- inn fyrir mann með mína hæð. Mér finnst alveg gaman að spila á kantin- um, en það er ekki mín aðalstaða.“ En var skrefið upp í efstu deild á Íslandi of stórt fyrir hann á sínum tíma? „Nei, ég myndi ekki segja það,“ svarar Hólmbert eftir stutta umhugs- un. „Ég sé ekki eftir þessu stökki.“ Færður upp á topp Í fyrrasumar lék hann þrettán leiki á Íslandsmótinu með Fram. Hann var ýmist á varamannabekknum eða byrjunarliðinu og það virtist ætla að vera það sama uppi á teningnum í ár. Eftir nokkra leiki í byrjun tímabils fékk Hólmbert tækifæri í byrjun- arliðinu sem hann nýtti til fullnustu. „Ég náði að skora í mínum fyrsta byrj- unarliðsleik á þessu tímabili,“ segir Hólm- bert. „Þá fékk maður sjálfstraust. Þorvald- ur [Örlygsson] var síð- an látinn fara fljótlega og Ríkharður [Daðason] tók við. Hann henti mér í framherjastöðuna og lét mig þroskast þar. Á móti Keflavík, sem var fyrsti leikurinn minn frammi, skoraði ég eitt mark og lagði upp annað, en samt var ýmis legt sem mátti bæta í leik mínum. Ég var frekar óöruggur. Í leiknum á eftir skoraði ég þrennu og þá kviknaði í mér. Ég þroskaðist með hverjum leik frammi og Rikki gaf mér góð ráð.“ Fékk gæsahúð yfir þjóðsöngnum Fram lauk keppni á Íslandsmóti í 10. sæti, fimm stigum frá falli. Liðið kom hins vegar á óvart í bikarkeppninni og lék til úrslita gegn Stjörnunni í ágúst. Fram gerði sér lítið fyrir og sigraði eft- ir fjörugan leik. Eftir framlengdan leik var staðan 3–3, þar sem Hólmbert skoraði eitt mark, en Fram bar 3–1 sigur úr býtum í vítaspyrnukeppni. Hólmbert segir draum hafa orðið að veruleika þetta sumarsíðdegi. „Þegar þjóðsöngurinn var spil- aður horfði maður upp í stúku og ég fékk gæsahúð. Maður hugsaði „vá, hvað þetta er geðveikt“. Það var ótrú- lega mikil spenna og stress dagana fyrir leikinn. Maður náði þó að beina því í réttan farveg. Fyrstu tíu mín- úturnar var adrenalínið í hámarki,“ segir Hólmbert og brosir með sér. Greinilega sællar minningar. Fyrir kurteisissakir til Celtic Hólmbert lauk tímabilinu með 13 mörk í 26 leikjum. Tíu þeirra komu á Íslandsmótinu og var hann með markahærri mönnum deildarinnar. Í haust sýndu mörg lið þessum skæða framherja áhuga og fór hann til reynslu til hollenska úrvalsdeildar- félagsins Heracles. Honum gekk vel, skoraði í varaliðsleik og fátt virtist koma í veg fyrir að hann gengi end- anlega í raðir félagsins. Þá var Hólm- berti hins vegar boðið til æfinga hjá Celtic ásamt Viðari Erni Kjartans- syni, leikmanni Fylkis. „Ég heimsótti Celtic uppruna- lega fyrir kurteisissakir,“ segir Hólm- bert feimnislega. „Þeir vildu ólmir fá mig og ég ákvað að kíkja út í viku. Það gekk mjög vel, miklu betur en ég bjóst við og maður átti miklu meiri séns en maður hélt.“ Tók stærra skrefið Heracles hafði verið í viðræðum um kaup á Hólmberti áður en hann fór til Celtic. Eftir vikudvöl hjá skosku meisturunum hélt hann heim á leið til Íslands og bjóst við því að fara til Hollands. Enginn frá Celtic hafði rætt við hann. Það var þó vegna misskiln- ings – Celtic vildi ólmt klófesta kapp- ann. „Neil Lennon, þjálfari Celtic, hélt að við kæmum á æfingu á föstudags- morgninum,“ útskýrir Hólmbert með bros á vör, en þá höfðu þeir Viðar Örn æft vikulangt með þeim. „Við vorum þá farnir upp á flugvöll. Það var smá misskilningur. Því heyrði ég ekkert í þeim fyrr en eftir helgina. Þeir sögð- ust þá hafa mikinn áhuga og ætluðu að ræða þetta. Svo kom bara tilboð viku síðar!“ Lennon hafði haft orð á hæfileik- um Hólmberts á æfingum og sagði að hann væri „very impressed“. Eftir að Celtic hóf viðræður við Fram hafði hann skyndilega tvo möguleika. „Ég var með tvo góða kosti og báðir höfðu einnig veikleika. Ég ákvað að taka stærra skrefið,“ seg- ir Hólmbert. Lennon sagði á blaða- mannafundi á Bretlandseyjum að Hólmbert væri hugsaður sem leik- maður aðalliðsins á þessu tímabili. Heldur sér á jörðinni En hvað þýðir það að vera atvinnu- maður hjá stórliði eins og Celtic? Mun hann þeysast um götur Glas- gow á sportbílum og hreiðra um sig í rúmgóðu lúxuseinbýli? Hólmbert er hræddur um ekki. Að ná árangri í atvinnumennsku er tröppugangur og menn byrja ekki á toppnum. „Ég mun fá litla íbúð í miðbæ Glasgow sem ég leigi og einhvern lítinn bíl. Við byrjum þetta bara rólega. Það er fínt að halda sér á jörðinni,“ segir Hólmbert. Systir hans mun að öllum líkindum fylgja honum út, en þau eiga í „yndis- legu sambandi“ að sögn Hólmberts. Kappinn hefur verið að rugla saman reytum við unga stúlku úr Kópavogi og býst við að hún komi til með að heimsækja hann. „Þetta hafa verið strembnar vik- ur og ég er feginn að þetta sé komið á hreint. Ég vil vera úti sem lengst, bæta mig sem leikmaður og von- andi gera eitthvað stærra,“ svar- ar Hólmbert aðspurður um fram- tíðaráform sín. En hvað drífur hann áfram í boltanum? „Ætli það sé ekki metnaður- inn? Ég horfi alltaf fram veginn, tek aukaæfingar og vinn í hugarfar- inu. Að verða atvinnumaður snýst líka gríðarlega mikið um heppni,“ segir þessi geðþekki fótboltakappi. Nýjasta vonarstjarna Íslands er haldin í víking. n Sjálfstraustið var minn Akkilesarhæll n Tvítugur og semur við stórlið Glasgow Celtic til þriggja ára n Verður í treyju númer 19 Ingólfur Sigurðsson ingosig@dv.is Viðtal „Ég var gjörsam- lega glataður og gekk grátandi uppi á hótelherbergi. Fékk hrós frá Lennon Stjóri Celtic sagðist vera „very impressed“ með frammistöðu Hólmberts á reynslutímanum. Mynd SiGTryGGur Ari Í leik með Fram Hólmbert sló í gegn í sumar. Mynd úr EinkASAFni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.