Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Blaðsíða 24
24 Sport 22.–24. nóvember 2013 Helgarblað E iður Smári er maður fram- tíðarinnar […] Það verður skemmtilegt að fylgjast með honum.“ Þetta sagði Krist- inn Björnsson, þjálfari Vals- manna, í viðtali við Morgunblaðið þann 23. maí árið 1994. Þennan dag varð Eiður Smári Guðjohnsen yngsti leikmaður efstu deildar frá upphafi en hann var einungis 15 ára og 250 daga þegar hann lék með Val gegn Keflavík í umræddum leik. Nú, tuttugu árum síðar, er Eið- ur Smári að nálgast endastöð á glæstum ferli sínum, en hann til- kynnti sem kunnugt er eftir tapleik- inn gegn Króötum á þriðjudags- kvöld að hann hefði að líkindum leikið sinn síðasta landsleik. Eið hafði dreymt um að kveðja íslenska landsliðið á lokakeppni HM í Bras- ilíu og var það til finningaþrungin stund þegar Eiður beygði af í viðtali við RÚV eftir leikinn og tilkynnti að hann myndi að líkindum ekki klæð- ast bláu treyjunni aftur. Eftir stend- ur þó glæsilegur ferill Eiðs Smára, markahæsta leikmanns Íslands frá upphafi, og óumdeilanlega eins besta knattspyrnumanns sem Ís- land hefur alið. Knattspyrnuhæfileikar í vöggu- gjöf Eiður Smári er fæddur í Reykjavík 15. september 1978 og er því 35 ára. Hann er sonur Arnórs Guðjohnsen og Ólafar Einarsdóttur. Eiður hefur frá blautu barnsbeini verið viðloð- andi knattspyrnu enda varð faðir hans atvinnumaður hjá Lokeren í Belgíu sama ár og Eiður fæddist og því ólst Eiður að hluta til upp í Belgíu. Í umfjöllun Fótbolti.net árið 2004 kom fram að Eiður hefði byrjað að æfa með drengjaliðinu Brussegemi þegar hann var sex ára. Strax varð ljóst að Eiður hefði erft hæfileika föður síns og varð hann markahæstur í liðinu með 12 mörk í 4 leikjum haustið 1987. Eiður eyddi flestum sumrum á Íslandi þar sem hann lék með ÍR frá 6. flokki og upp í 4. flokk. Hann varð markakóngur Tommamótsins í Eyjum árið 1988 þar sem hann skoraði 27 mörk. ÍR tapaði úrslitaleiknum gegn Fylki, 4–1, en í Fylkisliðinu var fremstur meðal jafningja Gylfi Einarsson, sem síðar átti eftir að leika með landsliðinu. Besti maður mótsins var Arnar Þór Viðarsson, leikmaður FH og fyrrverandi landsliðsmaður. „Hann var tilfinninganæmur“ Sigurður Þórir Þorsteinsson þjálfaði Eið Smára hjá ÍR þegar hann var í 4. og 6. flokki. Sigurður segir að Eiður hafi verið mjög þægilegur í viðmóti og laus við allan hroka þótt hann bæri höfuð og herðar yfir jafnaldra sína og þá sem eldri voru. „Hann var mjög þroskaður og miklu stærri og sterkari en jafnaldrar hans. Þess vegna spilaði hann jafnan með eldri strákum,“ segir Sigurður. „Hann tók alltaf tilsögn og var tilbúinn til að gera það sem þurfti að gera. Það var mjög þægilegt að vinna með hann,“ segir Sigurður og bætir við að það hafi aldrei verið nein vandamál í kringum Eið Smára. „Ég er búinn að þjálfa í 30 ár og ég hefði pottþétt munað eftir því.“ Sigurður segir að Eiður hafi ekki verið tapsár en samt aldrei hikað við að sýna tilfinningar sínar. „Hann var tilfinninganæmur eins og sást á dögunum og það var skap í honum. Það voru samt aldrei læti í honum – alls ekki.“ Aðspurður hvort hann hafi reiknað með að Eiður næði jafn langt í fótboltanum og hann gerði segir Sigurður að hann hefði aldrei verið í vafa um það. Boðið til Barcelona Tveimur árum eftir að hann varð markahæstur í Eyjum, þegar Eið- ur var tólf ára, skildu Arnór og Ólöf og flutti hann heim til Íslands með- an faðir hans hélt áfram í atvinnu- mennsku í Belgíu. Hann stundaði nám í Snælandsskóla og hélt áfram að spila með ÍR. Í umfjöllun Fót- bolti.net kom fram að þegar Eið- ur var 13 ára hafi hann sagt í við- tali við skólablað Snælandsskóla að draumur hans væri að verða valinn íþróttamaður ársins – draumur sem rættist 2004 og aftur 2005. Þetta ár virðist Eiður hafa verið tilbúinn að taka næstu skref á ferli sínum. Hann var þrettán ára þegar hann var fyrst valinn í unglingalandsliðið og sama ár skipti hann yfir í Val. Sem fyrr segir var hann tekinn inn í meistara flokk félagsins árið 1994 og fyrsta sum- arið sitt í efstu deild skoraði hann 7 mörk í 17 leikjum. Í febrúar 1994 var honum boðið til æfinga til stórliðs Barcelona þar sem hann dvaldi í níu daga. „Þetta var miklu meiri harka en ég hafði kynnst. Strákarnir, sem ég æfði með […] gáfu ekkert eftir og Hæðir og lægðir Eiðs Smára n Tilfinninganæm persóna en þægilegur í viðmóti n Farið í gegnum súrt og sætt Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Nærmynd Ekki alltaf dans á rósum 1987 Eiður er 9 ára og skorar grimmt í Belgíu. Skoraði 12 mörk í 4 leikjum með drengja- liðinu Brusse- gemi. 1988 Verður markakóngur Tommamótsins í Eyjum með 27 mörk. Spilar með ÍR. 1991 Eiður spilar sinn fyrsta drengja- landsliðsleik og færir sig um set til Vals nokkru síðar. 1987 2013 1994 Spilar fyrsta leik sinn í meistara- flokki á Ís- landsmóti aðeins 15 ára og 250 daga. 1994 Semur við PSV um haustið og kemst inn í aðalliðið ári síðar. 1996 Spilar sinn fyrsta A-landsleik þegar hann kemur inn á fyrir föður sín í leik gegn Eistum. 1996 Meiðist illa í landsleik og er frá keppni næstu tvö árin. 1998 Fer í KR að láni frá PSV og leikur með þeim sum- arið 1998. 1998 Semur við Bolton en er ekki í sínu besta formi. 1999 Skorar fyrsta lands- liðsmark sitt gegn Andorra 4. september 1999–2000 Er einn besti leik- maður næstefstu deildar Englands og skorar 21 mark í 55 leikjum með Bolton. 2000 Semur við Chelsea og skorar 13 mörk í 36 leikjum á sínu fyrsta tímabili. 2001–2002 Klárar tímabilið hjá Chelsea með 23 mörk í 47 leikjum. 2003–2004 Verður Englands- meistari með Chelsea og skorar 13 mörk í 41 leik. 2006 Semur við Barcelona og er á hátindi fer- ils síns. Skorar 11 mörk í 41 leik. 2009 Fær þau skilaboð að ekki sé lengur óskað eftir kröftum hans hjá Barcelona og semur við Monaco. 2010 Er lánaður til Totten- ham og skorar 2 mörk í 14 leikjum. Á marga fína leiki. 2010 Semur við Stoke um haustið en gengur mjög illa að festa sig í sessi. Spilar einungis 5 leiki. 2011 Er lánaður til Fulham í janúar og á nokkra fína leiki með félaginu. 2011 Semur við AEK í Aþenu en fótbrotnar fljótlega. Yfirgefur félagið sumarið 2012. 2012 Semur við Cercle Brugge og skorar 6 mörk í 13 leikj- um. Leikur mik- ilvægt hlutverk í undankeppni HM með lands- liðinu. 2013 Semur við Club Brugge og á fína leiki með landsliðinu í undankeppn- inni. Tilkynnir að hann spili líklega ekki aftur fyrir landsliðið. Á hátindinum Eiður var á há- tindi ferils síns á árunum 2003 til 2006. Hér sést hann reyna bak- fallsspyrnu í leik gegn Liverpool í Meistara- deildinni þann 6. desember 2005. mynd reuters
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.