Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Qupperneq 26
Sandkorn E iður Smári Guðjohnsen er fremsti knattspyrnumaður Ís­ lands, fyrr og síðar að dómi þeirra sem best þekkja. Eftir landsleik Íslands og Króatíu vakti mesta athygli tilfinningaríkt við­ tal Ríkisútvarpsins við Eið þar sem hann lýsti því tárvotur að líklega hefði hann leikið sinn síðasta leik með landsliðinu. Skyndilega var sem augu manna opnuðust fyrir því hversu fyrir­ ferðarmikill og nauðsynlegur Eiður hefur verið í íslenska landsliðinu allt frá því hann hóf feril sinn. Leikurinn í Króatíu var líklega svanasöngur mesta knattspyrnumanns Íslands. Enginn Íslendingur hefur náð lengra og spil­ að með stærri liðum á heimsvísu. Þar nægir að nefna enska liðið Chelsea og spænska liðið Barcelona. Og enginn Íslendingur hefur verið íslenskri knattspyrnu mikilvægari. Íslensk þjóð hefur aldrei átt fleiri og betri knattspyrnumenn. Það sýnir árangur liðsins undanfarið. Um tíma var raunhæfur möguleiki á því að Ís­ lands kæmist á Heimsmeistaramótið í knattspyrnu í Brasilíu en tap í Króatíu gerði út um þann möguleika. Ástæða tapsins var að hluta sú að liðið er ungt og skorti sjálfstraust í glímunni við leikreynda Króata sem eru tugum sætum ofar á heimslistanum. Það var auðvitað súrt að tapa en fólk má samt ekki gleyma því að íslenska landsliðið hefur aldrei náð lengra. Leikmenn á borð við Gylfa Sigurðsson og Kolbein Sigþórsson eru skýr vísbending um að framtíðin er okkar. Nú er vorið í ís­ lenskri knattspyrnu. Ástæða þess að ungir menn hafa náð langt í knattspyrnu er ekki síst ár­ angri Eiðs Smára að þakka. Um allt land fylgdust drengir og stúlkur með sigurgöngu unga Íslendingsins sem komst í hóp þeirra stærstu í heimin­ um. Þetta varð þeim hvatning til þess að stefna hátt. Eiður hefur þannig staðið fremstur þeirra sem gefa ungu fólki sjálfstraust og von um að feta í fótspor hans. Þessi bylgja er nú að skila sér. Það er ekki sjálfgefið að ör­ þjóðin íslenska hafi eitthvað að segja í milljónaþjóðir sem hafa úr nægum peningum og mannafla að spila. En samt er það þannig. Við höfum tekið risastökk upp heimslistann og stór­ þjóðirnar vita að ekki er lengur gefið mál að þær sigri okkur. Jafnteflið við Króata í fyrri umspilsleiknum á Íslandi sannar það. Þjóðin verður að standa að baki landsliðinu áfram. Tapið í Króatíu skiptir engu máli þegar heildarmyndin er skoðuð. Það er engin skömm að því að falla með sæmd. Sú bylgja sem hef­ ur risið með Eiði Smára og öðrum af hans kynslóð á eftir að skila fleiri sigr­ um ef rétt er að málum staðið. Hann ruddi brautina til sigurs. Og þegar síð­ asti landsleikur Eiðs hefur verið flaut­ aður af er ekki annað eftir en að þakka honum ómetanlegt framlag. Hann hefur verið sú hvatning sem ungt fólk þarf til að ná árangri. Hann sparkaði okkur upp heimslistann. Takk, Eiður Smári. n Sérframboð rætt n Sú ákvörðun Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur að taka ekki sæti á lista Sjálfstæðis flokksins fyrir borgarstjórnar kosningarnar kom fæstum á óvart. Í innsta hring borgarfulltrúans er mikil reiði vegna stórsigurs karlanna sem verma þrjú efstu sætin. Innan þess hóps hefur verið rætt um sérfram­ boð en ekki er talið að Þor­ björg sjálf vilji taka þátt í því. Svellkaldur Svali n Skjár Einn, undir stjórn Friðriks Friðrikssonar, ætlar ekkert að gefa eftir í slagnum við fjölmiðlarisann 365 sem glímir við vanda vegna upp­ blásins efnahags sem rakinn er til rekstrarspeki Jóns Ás- geirs Jóhannessonar athafna­ manns. Skjárinn er þegar í harðri samkeppni við Stöð 2 og býður mun ódýrari áskrift að öflugri afþreyingu. Um áramótin verður síðan lagt upp með nýja útvarps­ stöð sem Svali, Sigvaldi Kaldalóns, stýrir svellkaldur í harðri baráttu við útvarps­ svið 365. Það má búast við fjöri á næsta ári. Afmá Má n Fullyrt er að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis­ ráðherra og hans nánasta lið vilji reka Má Guðmunds- son seðla­ bankastjóra fyrir að standa í vegi fyrir skulda­ niðurfell­ ingum sem Framsóknar­ flokkurinn lofaði. Aðgerðin myndi þá heita að afmá Má. Víst er að Davíð Oddssyni, fyrr­ verandi seðlabankastjóra, mun ekki leiðast að hefna sín með þeim hætti. Leiðin að Má er sú að sameina Fjár­ málaeftirlitið og Seðlabank­ ann, eins og Sjálfstæðisflokk­ urinn hefur boðað, og nota kerfisbreytinguna til að reka seðlabankastjórann. Taugaveiklun n Reiðikast Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráð­ herra í garð Seðlabankans, sem braust fram á vefritinu Eyjunni, er talið vera til dæm­ is um taugaveiklun hans nú þegar kosningaloforð hans um stórfellda almenna skuldaniðurfellingu er að gufa upp í hálfgerðum óþef. For­ sætisráðherrann hefur ítrekað sagt að útfærðar tillögur um alls konar fyrir alla skuldara komi fram í nóvember. Sjálf­ stæðismenn hafa aftur á móti varað við efnahagslegri koll­ steypu ef tillögurnar komi til framkvæmda og Seðlabank­ inn tekur undir. Þú hefur aldrei reynst fjölskyldu minni vel Viljum tala við stráka Margrét Baldursdóttir, eiginkona Magnúsar Ármann, við blaðamann. – DV Bjarni Fritzon um nýja bók sína. – DV Eiður og íslenska vorið„Hann sparkaði okkur upp heimslistann Kjörin eru skammarleg E inhver mesta kjarabót, sem unnt væri að færa eldri borg­ urum, er hækkun skattleysis­ markanna. Samkvæmt fjár­ lagafrumvarpinu hækka skattleysismörkin um 4,3% eða úr 129 þús. á mánuði í 135.330 kr. Það er alltof lítil hækkun. Skattleysismörkin þyrftu að hækka í a.m.k. 170 þús kr. á mánuði. Það er baráttumál eldri borgara. Ríkisstjórnin fór ódýrustu leiðina Breytingar á almannatryggingalög­ um, sem gerðar voru á sumarþinginu, kosta 1,7 milljarða kr. á næsta ári ( endurreistur grunnlífeyrir og hækkun frítekjumarks vegna atvinnutekna). Um næstu áramót renna út lög fyrri ríkisstjórnar um hækkað skerðingarhlutfall tekjutryggingar (úr 38,35% í 45 %). Skerðingarhlutfallið verður þá á ný 38,35%. Það kostar 2,6 milljarða næsta ár. Samkomulag sem gert var í tíð fyrri ríkisstjórnar milli lífeyrissjóð­ anna og ríkisstjórnarinnar vegna Tryggingastofnunar um ráðstafanir gegn víxlverkunum tryggingabóta ellilífeyrisþega TR og bóta aldraðra úr lífeyrissjóðum er framlengt og framlengist því hækkun á frítekju­ marki vegna greiðslna úr lífeyrissjóði. Kostar 650 millj. kr. næsta ár. Milljarða kjaraskerðing Sú leiðrétting á kjörum aldraðra og öryrkja, sem ákveðin var á sum­ arþinginu, ásamt breytingu á skerðingarhlutfalli tekjutryggingar, sem tekur gildi um áramót, kostar að­ eins lítið brot af þeirri kjaraskerðingu, sem aldraðir og öryrkjar hafa orðið fyrir sl. 4 ár. Kjaraskerðing aldraðra og öryrkja vegna laganna frá 1. júlí 2009 nemur á þessu ári 17,6 milljörðum kr. Þá er ótalin kjaraskerðingin vegna kjaragliðnunar sl. 4 ár. Hækka þarf lífeyri um 20% til þess að jafna metin vegna þessarar gliðnunar. Sú hækkun kostar aðra eins upphæð eða rúma 17 milljarða kr. og er þá ekkert leiðrétt til baka. Samtals nemur kjaraskerðingin því a.m.k. 34 milljörðum kr. Skila aðeins 1,7 milljörðum Fjárlagafrumvarpið er komið fram og þar sést hvað ríkisstjórnin ætlar að gera í málefnum aldraðra og öryrkja. Það er rýrt í roðinu. Það á ekki að efna nema lítinn hluta allra þeirra kosn­ ingaloforða, sem stjórnarflokkarnir gáfu öldruðum og öryrkjum. Ríkis­ stjórnin hefur ákveðið að skila líf­ eyrisþegum 1,7 milljörðum af öllum þeim milljörðum, sem stjórnvöld hafa haft af öldruðum og öryrkjum sl. 4 ár vegna laganna frá 2009. Það er nú allur rausnarskapurinn. En auk þess svíkur ríkisstjórnin stærsta kosningalof­ orðið við þessa hópa, þ.e. að leiðrétta kjaragliðnunina vegna sl. fjögurra ára. Framsókn og Sjálfstæðisflokkur lofuðu fyrir kosningar að framkvæma þessa leiðréttingu, kæmust þessir flokkar til valda. En ríkisstjórnin svíkur það lof­ orð nú án þess að blikna. Til skammar Einhleypur ellilífeyrisþegi hefur í dag aðeins 180 þús. kr. á mánuði eftir skatt, miðað við að hann hafi aðeins tekjur frá TR. Ef sá hinn sami gengur í hjónaband, fær hann aðeins 162.418 kr. eftir skatt. Þetta er alger hungurlús og engin leið að lifa mannsæmandi lífi af þessum smánarbótum. Ríkis­ stjórnin ætti að sjá sóma sinn í því að hækka þessar bætur myndarlega. Það gæti hún gert með því að efna kosn­ ingaloforðið um 20% hækkun lífeyris til þess að leiðrétta lífeyrinn vegna kjaragliðnunar sl. 4 ár. n Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjónarmaður helgarblaðs og innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 26 22.–24. nóvember 2013 Helgarblað Leiðari Reynir Traustason rt@dv.is Aðsent Björgvin Guðmundsson viðskiptafr. og formaður kjaranefndar Félags eldri borgara. „En ríkisstjórnin svíkur það loforð nú án þess að blikna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.