Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Qupperneq 28
28 Fólk 22.–24. nóvember 2013 Helgarblað „Ekki alveg búin að fatta hvað gerðist“ Þ að er kalt í veðri þegar ég stíg út úr leigubílnum og geng í átt að fangelsinu í Pankrác. Það er hér sem Aðalsteina Kjartansdóttir hefur verið í gæsluvarðhaldi í rúmt ár. Í fangelsi sem þykir með þeim verri í Evrópu, en það var notað af Gestapo-deild nasista í seinni heimsstyrjöldinni, meðal annars til að pynta fanga til sagna, fyrrverandi forseta landsins var haldið þar á sínum tíma og fyrir tveimur árum gerðu fangar uppreisn eftir misheppnaða flóttatilraun. Tékk- nesk fangelsi eru flest yfirfull og með hverju árinu sem líður fjölgar föngum á sama tíma og fangavörðum fækkar. Hér hefur mikill fjöldi fanga í klefum valdið meiri spennu en vanalega og orðið til þess að ofbeldi býst frekar út en ella. Fjögurra metra steyptur veggur umlykur gráleitar byggingar og í raun gefur ekkert til kynna að hér sé fang- elsi. Tveir lögreglumenn standa fyrir utan að reykja, þeir virðast sjá það strax að ég veit ekki hvert ég á að fara og beina mér í átt að réttu dyrunum. Klukkan er níu um morgun og það er kaffiilmur í biðstofunni. Á veggjunum er fullt af plaggötum með leiðbein- ingum á tékknesku um það hvern- ig heimsóknir eigi að fara fram, en annars er biðstofan frekar þurr. Tíu borðum og stólum er raðað upp í hvítu herbergi með steyptu gólfi. Fór í fínni föt Á næsta borði situr ungt par. Hálftími er síðan ég settist niður og stelpan hefur grátið hástöfum síðan. Ég rétti þeim vatnsflösku og þau segja mér að bróðir hennar hafi verið færður hing- að fyrir mánuði og að þetta sé þeirra fyrsta heimsókn. Eftir langa bið kallar einhver brenglað íslenskt nafn sem ég skil ekki en stend samt á fætur. Við sem sitjum í biðstofunni erum öll færð í öryggisleit. Í röðinni fyrir aftan mig reynir eldri kona að smygla inn farsíma svo heimsóknin tefst um tíu mínútur á meðan sex öryggisverðir leita á henni allri. Þegar því er lokið göngum við saman inn í næstu byggingu. Þar för- um við inn í stórt herbergi sem er hólfað niður, og í þessum litlu hólf- um eru fangar látnir sitja. Símar eru fyrir framan hvert hólf og lúgur sem hægt er að opna og loka. Þar sem allar lúgurnar voru opnar fer ég að leita að Aðalsteinu. Eftir að hafa snúið mér í nokkra hringi sé ég hana loksins. Þarna situr hún, í röndóttri peysu með tagl í hárinu. Pínulítil ljóshærð stelpa með spurnarsvip. Mér hafði ekki gefist færi á að láta hana vita að ég væri á leiðinni. „Ég var vakin klukkan sex í morgun eins og venju- lega og klæddi mig í þægileg hlý föt. Þegar vörðurinn sagði mér að ég fengi heimsókn í dag fór ég í aðeins fínni föt,“ útskýrir hún og brosir. Alltaf eitthvað að bralla Það var þann 7. nóvember 2012 sem Aðalsteina kom til Tékklands ásamt vinkonu sinni, Gunnhildi Svövu Guð- mundsdóttur. Í fórum þeirra fundust þrjú kíló af kókaíni sem var vandlega falið í fóðri ferðatöskunnar. Það fór ekki á milli mála að þeir sem pökkuðu efninu höfðu gert það áður. Allt benti til þess að smyglið væri þaulskipulagt og lögreglan talaði um stúlkurn- ar sem fórnarlömb reyndra glæpa- manna. Stúlkurnar hafa hins vegar ekkert gefið upp um þá sem stóðu að baki smyglinu og Aðalsteina vill ekki ræða það. Aðalsteina og Gunnhildur kynnt- ust þegar þær voru sex ára. Fljótlega skildu leiðir þeirra og þær hittust ekki aftur fyrr en á unglingsárunum. „Við vorum rosalegir prakkarar og alltaf að bralla eitthvað. Ég var sextán ára þegar ég fór að fela ýmislegt fyrir fjöl- skyldunni minni,“ segir Aðalsteina. Hún var nýorðin átján ára þegar hún hélt utan í ágúst árið 2012. Ferðina útskýrði hún með því að hún væri á leið til Svíþjóðar að hitta föður Gunnhildar. Ferðin dróst hins vegar á langinn og þá fór föð- ur hennar að gruna að ekki væri allt með felldu. Samkvæmt tékkneskum fjölmiðlum sem fylgdust með rétt- arhöldunum komust þær í samband við smyglarana í gegnum samskipta- miðla í júlí og var þeim boðin ein milljón fyrir að smygla eiturlyfjunum. Vandist lífinu í Perú Aðalsteina segist hafa ákveðið að taka þátt í smyglinu af því að hún var í alvarlegum fjárhagsvandræðum en útskýrir það ekki nánar. Lagt var upp með að ferðin tæki eina viku en þetta tafðist þar sem vinur þeirra, sem var með í för og átti að sjá um skipulag- ið, lenti í vandræðum með sambönd sín úti í Perú. Þegar allt var frágengið höfðu þær dvalið í Perú í tvo mánuði. „Við eignuðumst vini og vorum farnar að venjast lífinu þarna.“ Síðan tók ferðalagið við. Frá Sao Paulo í Brasilíu flugu þær til München í Þýskalandi og þaðan til Prag. Þýska tollgæslan fann fíkniefnin en hleypti þeim áfram í von um að hafa uppi á höfuðpaurunum. Af sömu ástæðu var þeim hleypt inn í landið við komuna til Tékklands en handteknar þegar þær ætluðu að yfirgefa flugvöllinn með bíl sem beið þeirra. Bílstjórinn hafði hins vegar fengið fyrirmæli um að aka þeim á næstu járnbrautarstöð en hafði ekki frekari aðkomu að mál- inu. Það er því enn óupplýst hver stóð að baki smyglinu. Tattú með nafni mömmu Ég sé að Aðalsteina er orðin óró- leg og stressuð. Það er henni þung- bært að rifja upp þessa ferð. Ég sé líka að miðinn, sem ég rétti henni með heimilisfangi mínu og símanúmeri svo hún gæti mig látið vita ef ég gæti orðið henni að einhverju liði, liggur samanvöðlaður í lófa hennar. Hún fiktar í honum á meðan hún talar. Ég rek augun einnig í aflitað húðflúr við hliðina á litla fingri og ákveð að skipta um umræðuefni í smástund. „Þetta er nafnið hennar mömmu,“ segir hún um húðflúrið. „Ég fékk það í Perú en svo rakst ég í eitthvað á meðan það var enn nýtt.“ Á sömu hendi er hún með ljós- blátt talnaband úr plasti sem vinkona hennar í fangelsinu gaf henni. Aðal- steina er líka með tvo gullkrossa um hálsinn, einn frá mömmu og hinn er frá vinkonu hennar. „Við fáum að fara í kapelluna á föstudögum. Ég er ekkert mjög trúuð, mér finnst bara gott að fara.“ Meðan á ferðinni stóð voru vin- konurnar mjög hræddar. „Gunn- hildur er mjög dugleg en ég er frekar ósjálfbjarga,“ segir hún með uppvöðl- aðan miðann í höndunum. Þegar þær komu til Prag var þeim hleypt í gegn- um tollinn með töskurnar án vand- ræða. „Í lyftunni á leiðinni út voru nokkrir tollverðir og þeir sýndu okk- ur eitthvað merki þegar við vorum að fara inn í bíl fyrir utan.“ Þær voru færðar í yfirheyrslu á flugvellinum á meðan leitað var í farangrinum. Yfir- heyrslan stóð yfir í tíu klukkustundir og þeim var útvegaður túlkur. Verra en í bíómyndunum Stúlkurnar voru í áfalli eftir handtök- una en nokkrum dögum seinna voru þær úrskurðaðar í sjö mánaða gæslu- varðhald. Þá hvatti dómari þær til að vera samvinnuþýðar svo hægt væri að ljúka málinu og kveða upp dóm inn- an þriggja mánaða en þær sögðust ekkert vita um fíkniefnin. „Fyrstu þrjá mánuðina hérna var ég bara mjög þunglynd. Ég held að ég sé ennþá ekki alveg búin að fatta hvað gerðist.“ Lífið í fangelsinu er ólíkt öllu því sem við eigum að venjast. Þar eru það reglurnar sem gilda. Aðalsteina fær að fara út í einn og hálfan tíma á dag með samföngum sínum. „ Útisvæðið er á milli húsanna. Það er eins og fiskabúr.“ Síðan fara þær fjórar saman í sturtu tvisvar í viku. Föngum er aðeins gefinn matur og drykkur, annars þurfa þær sjálfar að útvega nauðsynjavöru eins og klósettpappír og sápu. Föngum er bannað að liggja und- ir sæng á daginn, það er aðeins leyfi- legt eftir klukkan átta á kvöldin. Aðal steina viðurkenndi þó að hún laumist stundum undir teppi, því klefinn er frekar kaldur og lítið pláss sé til að hreyfa sig. Hún er allan daginn læst inni í litl- um klefa sem hún deilir með annarri stelpu. Þar fá þær mat í gegnum lúgu á hurðinni og heitt vatn. „ Gunnhildur er í öðru fangelsi en við fáum von- andi að vera saman bráðum. Stelpan sem ég er með í klefa vinnur fyrir fangelsið á daginn þannig að ég er mest ein. Stundum fæ ég að þrífa gólfin, en mér finnst það bara gam- an. Þetta er hræðilegt, verra en í bíó- myndunum.“ Í klefanum er koja, eitt rúm, vaskur, klósett með sturtuhengi fyrir og pínulítill gluggi. „Ég les fullt af bókum og skrifa rosamikið til mömmu. Ég reyndi að skrifa dagbók en þá fór ég bara að skrifa það sama aftur og aftur, af því það breytist ekk- ert hérna. Mamma er eins og dagbók- in mín,“ segir hún og brosir til mín. Harður dómur Ári eftir handtökuna hafði þeim ekki enn verið birt ákæra, en það var gert nokkrum dögum síðar. Það var svo rafmagnað andrúmsloft í dómsalnum þegar þær voru leiddar inn af vopn- uðum lögreglumönnum, sem sátu við hlið þeirra allan tímann. Aðstandend- ur Aðalsteinu voru mættir til þess að fylgjast með réttarhöldunum og voru viðstaddir dómsuppkvaðninguna. Saksóknari og verjendur stúlkn- anna fluttu sínar lokaræður, en réttar- höldin fóru fram á tékknesku. Þegar dómarinn tók til máls viðurkenndi hann að Aðalsteina og Gunnhildur hefðu verið burðardýr. Hann tók jafn- framt fram að efnið sem þær fluttu á milli landa hefði dugað í sextíu þús- und söluskammta og höfuðpaurarnir Fyrir rúmu ári síðan var Aðalsteina Kjartansdóttir handtekin fyrir að smygla kókaíni til Tékklands og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan. Hún var nýlega dæmd til sjö ára fangelsisvistar en dómurinn þykir ansi harður fyrir svo unga stúlku og hefur verið áfrýjað. Hún segist hafa tekið þátt í smyglinu vegna fjárhagsvand- ræða og að hún hafi lært sína lexíu. Fangelsið sé verra en í bíómyndunum og það skemmtilegasta sem hún fái að gera sé að þrífa. Í samtali við Maríu Elínardóttur segist hún ekkert þrá heitar en að komast heim. Það væri himnaríki líkast.„Það væri himna- ríki að komast heim til Íslands Mæðgurnar Móðir Aðalsteinu hefur haft af henni þungar áhyggjur og eftir að hún heimsótti hana fyrst í fangelsið gaf líkaminn sig og hún fékk hjartáfall. Sjálf segist hún hafa bugast undan álagi. Pankrác-fangelsið „Útisvæðið er á milli húsanna. Það er eins og fiskabúr,“ segir Aðalsteina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.