Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Síða 40
40 Menning 22.–24. nóvember 2013 Helgarblað
Róttæk sjónarhorn
n Listasafn Reykjavíkur sýnir ljósmyndaverk Aleksander Rodchenkos á Kjarvalsstöðum
S
ýningin Bylting í ljósmyndun
var opnuð á Kjarvalsstöðum
í byrjun október en hún er
opin til 12. janúar. Á sýn-
ingunni eru ljósmyndir,
klippimyndir og hönnun eftir Rúss-
ann Aleksander Rodchenko sem
var uppi á fyrri hluta 20. aldar. Fáir
hafa haft meiri áhrif á ljósmyndun
og grafíska hönnun en Rodchenko.
Hann hóf störf sem málari en fór síð-
an aðallega að vinna með ljósmynd-
ir. Starf hans sem ljósmyndari og
grafískur hönnuður eru í brennidepli
á sýningunni.
Umbrotatímar á meginlandinu
Eftir fyrri heimsstyrjöldina voru um-
brotaár í listaheimi Evrópu. Lista-
menn vildu rjúfa hefðina og hafna
viðteknum gildum um fagurfræði.
Dadaistar, súrrealistar og „fauvistar“
(hinir villtu) riðu á vaðið á megin-
landinu þar sem lykilorðið var „ný-
sköpun“. Í Rússlandi náði hin sam-
félagslega ólga suðupunkti með
Októberbyltingunni og var því glæ-
nýtt samfélag í sjónmáli. Rússneskir
listamenn, sem höfðu til þessa vana-
lega þurft að híma í skugganum, voru
skyndilega í brennidepli þar sem bol-
sévíka vantaði liststefnu sem endur-
speglaði pólitík þeirra og innihéldi
framúrstefnulegar hugmyndir. Lenín
setti meira að segja listamenn á list-
ann yfir „hetjur byltingarinnar“. Brátt
hafði ný rússnesk framúrstefnulist
rutt sér til rúms – konstrúktívism-
inn, þar sem ljóðskáldið Majakovskí
og vinur hans Rodchenko voru í
broddi fylkingar. Tilgangurinn var
að hagnýta listina fyrir félagsleg
markmið – hin sanna list væri þá
t.d. síga rettuauglýsing eftir Majakov-
skí og Rodchenko en ekki verk eftir
Cézanne, vegna þess að auglýsingin
væri fyrir alla. Á sýningunni má sjá
fjölmargar bóka- og tímaritskápur
ásamt auglýsingum eftir Rodchenko
og Majakovskí, en hann samdi oft
textann fyrir Rodchenko. Frægasta
auglýsingin er án efa kápa LEF-
tímaritsins, sem fjallaði um dada-
isma og konstrúktívisma. Þar má sjá
Lilyu Brik, músu Majakovskís, þar
sem hún ber hönd upp að munni og
hvetur rússneska bændur til lestrar.
Færði ljósmyndun á næsta stig
Eitt einkenni þessarar frægu myndar
eru magnaðar skálínur og geó-
metrísk form. Þetta var einfaldlega
kölluð „Rodchenko-aðferðin“, sem
einkennist af skálínuuppbyggingu
og fleiri stílbrögðum. Hægt er að
sjá þetta í flestum verkum hans,
sama hvort um er að ræða klippi-
myndir eða ljósmyndir. Þessi aðferð
spratt upp úr næstum manískri þrá
Rodchenkos til að brjóta blað og gera
nýja hluti með list sinni. „Þannig vor-
um við alin upp af gömlum myndum
í gegnum aldirnar, okkur var kennt
að sjá allt með augum ömmu okkar.
En við verðum að gjörbylta sýn fólks,
svo það geti séð frá öllum sjónar-
punktum, og í öllum tegundum af
birtu,“ ritaði hann. Rodchenko hafði
dálæti á því að taka myndir frá mis-
munandi sjónarhornum, í mismun-
andi ljósi og aðstæðum. Hann taldi
þessar aðferðir vera leið til að færa
ljósmyndun á næsta stig, sem hann
sannarlega gerði. Fram að hans tíma
hafði ljósmyndun aðallega verið leið
til að skrásetja það sem fyrir augu
ljósmyndarans bar, til að endur-
spegla raunveruleikann. Rodchenko
færði rómantískar og heimspekilegar
víddir inn í listformið, svo að mið-
illinn var nú orðinn tjáningarform á
sama hátt og málverkið.
Byltingin fer í hringi
Eins og eðlilegt getur talist er
myndefni Rodchenkos mjög
„ sovéskt“ en það kemur berlega í ljós í
sýningunni á Kjarvalsstöðum. Verka-
fólk, iðnvæðing og hið nýja samfélag
eru helstu þemu í verkum hans. Það
er á vissan hátt kaldhæðni örlaganna
að þessi sósíalísku samstarfsverkefni
Majakovskís og Rodchenkos í auglýs-
ingalist áttu eftir að umbylta auglýs-
ingum og hönnun í hinum vestræna
heimi. Vestrænar og þar með kapítal-
ískar auglýsingastofur fengu margar
hugmyndir sínar frá kollegum sínum
í austri. Byltingin fer í hringi.
Eftir dauða Leníns höfðu Sovét-
ríkin tekið örum breytingum sem
konstrúktívistarnir héldu ekki í við.
Majakovskí var vonsvikinn vegna
þess hvernig stefna Stalíns þróaðist.
Hann framdi sjálfsmorð árið 1930.
Rodchenko fylltist einnig efasemd-
um um ríkisstjórn móðurlandsins
og síðustu ár ævinnar var honum
meinað að vinna og sýna verk sín.
Þrátt fyrir þennan kaldranalega endi
á konstrúktívismanum eru áhrif hans
og Rodchenkos á nútímalist ótvíræð.
Það er því sönn ánægja að sjá yfir-
lit á verkum Rodchenkos í Reykjavík
og mælir undirritaður eindregið með
sýningunni fyrir alla list-, ljósmynda-
og jafnvel stjórnmálaunnendur. n
Myndlist
Þórður Ingi Jónsson
thordur@dv.is
Rodchenko Verk Alexanders Rodchenko, Stairs, 1930.
PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA OG GÆÐI GANGA FYRIR
VIÐ VEITUM VIÐSKIPTAVINUM OKKAR GÓÐ RÁÐ OG AÐSTOÐUM VIÐ VALIÐ
KJÖT- OG FISKBORÐ SHIP-O-HOJ ER ALLTAF DEKKHLAÐIÐ AF FERSKRI GÆÐAVÖRU
HEITUR MATUR Í HÁDEGINU
WWW.SHIPOHOJ.IS
HEITUR BAKKAMATUR ER Á BOÐSTÓLUM HJÁ SHIP-O-HOJ ALLA VIRKA DAGA Á MILLI KL. 11.30 & 14.00
HUMARSÚPA, ÚRVAL FISK- OG KJÖTRÉTTA – FRÁBÆR HEIMILISMATUR
HÓLAGÖTU 15 // REYKJANESBÆ 421-6070 // RNB@SHIPOHOJ.IS
S
K
IS
S
A
NÝTT HJÁ
SHIP-O-HOJ