Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Side 42
42 Lífsstíll 22.–24. nóvember 2013 Helgarblað Þarftu bollann? Kaffibolli kostar í kringum 400 krónur. Ef miðað er við að þú kaupir einn bolla á virkum dög- um þá borgarðu samtals átta þús- und krónur fyrir tuttugu bolla á mánuði. Það gera 96 þúsund krón- ur á ári. Það er ótrúlega notalegt að setjast niður með góðum vinum á kaffihúsi endrum og sinnum, en sleppir þú að borga fyrir kaffi og hellir upp á það þess í stað, áttu næstum því fyrir vikufríi á Spáni. Er ekki vert að hugsa um atriði eins og þetta í þann mund sem kvarta á vegna vegna bágrar fjárhagsstöðu? Brostu og helltu upp á kaffi. Merkjavara á spottprís Kínverska vefverslun- in Ali Express hefur notið mikilla vin- sælda upp á síðkastið. Viðskiptavinir hennar eru frá 220 þjóðum og þar á meðal eru Íslendingar. Fjárfestingahópur- inn Alibaba Group er eigandi vef- verslunarinnar, en hópurinn sér- hæfir sig í að hleypa vefverslunum af stokkunum. Á síðunni er hægt að fá ýmsa merkjavöru á spottprís. Þar á meðal er fást Nike-hlaupa- skór á fjögur þúsund krónur og kvenmannsúr frá virtu merki á fimm þúsund krónur. Verslun- in býður einnig upp á svokölluð „súper-tilboð“ á degi hverjum. Ann Demeulemeester hætt n Framsækinn hönnuður sem lét drauma sína rætast B elgíski fatahönnuðurinn Ann Demeulemeester til- kynnti í vikunni að hún væri hætt störfum hjá eig- in tískuhúsi eftir 19 ára gjöfult starf. Ann kaus að hand- skrifa bréf til fjölmiðla um starfs- lok sín. Bréfið var persónulegt og hreyfði við aðdáendum hennar. „Frá því ég var lítil stúlka dreymdi mig um að setja mark mitt á tísk- una. Ég vann hörðum höndum að því að raungera draum minn og nú finnst mér ég hafa lokið ferð minni. Ég fylgdi alltaf minni eig- in rödd. En nú rennur upp nýr tími í mínu eigin lífi og fyrir tískuhús- ið Ann Demeulemeester. Nú skil- ur leiðir. Tískumerkið er virt og þekkt og getur vaxið án mín,“ segir Ann. Skarpar línur og hugrekki Ann er stórt nafn í tískuiðnaði sem hefur sett mark á tíðarandann. Hún stofnaði merkið árið 1985 með eig- inmanni sínum, Patrick Robyn ljós- myndara. Hún varð þekkt sem einn af sex hæfileikaríkum hönnuðum frá Antwerpen. Þessir hönnuðir eru Walter Van Beirendonck, Dries Van Noten, Dirk Van Saene, Dirk Bikkembergs og Marina Yee. Enginn hefur verið kynntur sem arftaki Ann en haust- og vetrarlína hennar verður eftir sem áður sýnd á tískuvikunni í París á næsta ári. Hönnun Ann er stílhrein og dramatísk. Skarpar línur og hug- rekki einkenna stíl hennar. Á síð- ustu tískuviku þótti lína hennar ein- kennast af rómantík nítjándu aldar með framtíðarblæ. Svartir, hvítir og silfraðir litir. Hattar, slæður og borð- ar og mýkt í buxum. n kristjana@dv.is Ann Demeulemeester Ann átti sér stóra drauma og lét þá rætast. Handskrifað bréf Ann Fatahönnuðurinn kvaddi á hjartnæman hátt. Úr vor og sumarlínu Ann Á tískuvikunni í París sýndi Ann snilli sína. MynD PHoto: MArcuS tonDo/InDIgItAlteAM I gorunwAy „Frá því ég var lítil stúlka dreymdi mig um að setja mark mitt á tískuna Bakaðu bestu smákökuna! Taktu þátt í smákökusamkeppni DV og þú gætir unnið KitchenAid hrærivél frá Einari Farestveit. Hægt verður að skila inn kökum dagana 5.–11. desember fyrir kl. 12. Kökurnar skulu sendar á ritstjórnarskrifstofur DV að Tryggvagötu 11, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.