Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Qupperneq 56
FAGLEG
RÁÐGJÖF OG
FRÍ LEGU-
GREINING
Komdu í heimsókn, prófaðu
legugreininguna, og fáðu faglega ráðgjöf
um val á heilsu dýnum, án skuldbindinga!
20-
50%
AFS
LÁT
TU
R AF
ÖLL
UM
HE
ILS
UR
ÚM
UM
RúmGott · Smiðjuvegi 2 (við hliðina á Bónus) · Kópavogi · Sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 · www.rumgott.is
SÉRHÆFUM OKKUR Í SMÍÐI Á HEILSURÚMUM
50% AFSLÁTTUR
Jólatilboð á arineldstæðum
20-50% afsláttur af öllum heilsurúmum
Að vakna endurnærð/ur
eftir góðan svefn er ein
besta stund dagsins
Sérfræðingar í heilsurúmum
12 mánaða vaxtalaus VISA / EURO greiðsludrei ng*
* Einungis er greitt 3,5 % lántökugjald.
CLASSIC - rafstillanlegt
Einbreið heilsurúm á verði frá 190.049,-
Tvíbreið heilsurúm á verði frá 346.995,-
DRAUMEY
Einbreið heilsurúm á verði frá 70.224,-
Tvíbreið heilsurúm á verði frá 129.360,-
ROYAL - rafstillanlegt
Einbreið heilsurúm á verði frá 302.391,-
Tvíbreið heilsurúm á verði frá 566.991,-
Ítölsk hönnun - hágæða sófasett
Kyn
ning
arv
erð
SUSS!
Sköpun auður okkar
n „Hingað kemur enginn til að
kynnast þröngsýni og heimsku,
þær má finna víða,“ segir Karl
Ágúst Úlfsson leikari á Facebook-
síðu sinni. Hann segir aðeins
tvennt gera Ísland einstakt: nátt-
úruna og menninguna. „Fé-
græðgi og siðblinda eru alþjóðleg
og munu ekki auka hróður okkar
meðal þjóðanna – þegar upp er
staðið er auður okkar fólginn
í þessu tvennu: sköpunarverki
móður náttúru allt í
kringum okk-
ur og sköpun
mannsandans,“
segir Karl
Ágúst. Í kjölfar
þess segir hann
rétt að staldra
við þegar stjórn-
völd blása
til sóknar
gegn bæði
náttúru og
menningu.
V
ið erum ekki með þessu að
segja að þetta eigi ekki að vera
til heldur að þetta eigi ekki að
vera á hönd ríkisins að reka,“
segir Magnús Júlíusson, formaður
Sambands ungra sjálfstæðismanna,
um fjárlagatillögur SUS þar sem gert
er ráð fyrir algjörum niðurskurði á
nær allri menningarstarfsemi. Sem
dæmi um verkefni eða stofnanir
sem SUS vill að íslenska ríkið hætti
að styðja, styrkja eða reka má nefna:
Listasafn Íslands, Þjóðleikhúsið,
Hörpu, Sinfóníuhljómsveit Íslands
og RÚV. „Einkaaðilar eiga að sjá um
það,“ segir Magnús.
Ýmissa grasa kennir í fjárlaga-
tillögum sambandsins; vilja það
meðal annars leggja niður Lánasjóð
íslenskra námsmanna. Það vill ekki
að ríkið sjái um lánveitingar heldur
þau fyrirtæki sem starfi á lánamark-
aði. „Það er inntakið hvað varðar
þennan eina lið. Bankar myndu sjá
um starfsemi LÍN,“ segir Magnús
spurður um skoðun sína um hvort
leggja eigi LÍN niður.
Spurður um hvaða málaflokk
honum þyki mikilvægast að skera
niður hjá segir Magnús það vera
landbúnaðarkerfið. „Ég myndi vilja
sjá það alfarið ekki í höndum ríkis-
ins. Ég held að breyting í þessu kerfi
sé nauðsynleg, það þarf að losa þetta
úr kló ríkisins,“ segir hann. Magnús
tók nýverið við sem formaður sam-
bandsins og segir hann starfið hafa
gengið mjög vel. „Það eru náttúru-
lega allir að fara í próf en næsta mál
hjá okkur er árlegt jólahlaðborð, það
er bara þannig,“ segir Magnús að lok-
um. n hjalmar@dv.is
Vilja leggja niður LÍN
n „Það þarf að losa þetta úr kló ríkisins,“ segir formaður SUS
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 22.–24. nóvember 2013 133. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr.
Lofsyngur Björk
n „björk er einfaldlega snillingur.
Það er bara þannig,“ segir Jón
Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, á
Facebook-síðu sinni. Gagnrýnir
Jón þann „ósið“ íslenskra fjöl-
miðla að kalla gömlu vinkonu
sína söngkonu en ekki tónskáld.
„Ef Björk héti Bjarki yrði þá alltaf
fjallað um hann sem „söngvar-
ann“ Bjarka? Það efast ég um.
Bjarki væri einfaldlega titlaður
tónlistarmaðurinn Bjarki
því það væri það sem
hann væri. Eins og
Björk,“ segir Jón um
Björk Guðmunds-
dóttur sem hann
segir vera lang-
merkilegasta tón-
listarmann
sem Ísland
hefur alið.
Sætari en Birgitta
n birgitta Jónsdóttir, þingkona
Pírata og fyrrverandi liðsmaður
uppljóstrunarsamtakanna
WikiLeaks, segist ánægð með
Hollywood-myndina Fifth Estate,
sem fjallar um samtökin. Hún sá
forsýningu myndarinnar í vik-
unni ásamt yngri syni sínum. Í
samtali við Morgunútvarpið á
Rás 2 sagðist hún ánægð með
leikkonuna Carice van Houten,
sem túlkaði Birgittu í myndinni.
Birgitta sagði hins vegar ekki
hættu á að þeim
væri ruglað
saman. „Nei,
hún er nátt-
úrulega
miklu sætari
en ég,“ sagði
Birgitta
og hló.
Formaður Magnús var kjörinn formaður
Sambands ungra sjálfstæðismanna til
tveggja ára í september. Hann er meistara-
nemi í verkfræði.