Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1972, Side 30

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1972, Side 30
28* Búnaðarskýrslur 1964—1967 hans til starfsstéttar af því, frá hvaða starfsgrein eða hvers eðlis hæsta tekjufjárhæðin er. Merking þessi á framtöl tekur aðeins til einstak- linga — þar með til einstaklinga, sem eru aðilar að félagsbúi — en hún tekur ekki til almennra sameignarfélaga, hlutafélaga o. s. frv. Flokkurinn „Iandbúnaður“ í atvinnuvegaflokkun Hagstofunnar, sem hér er um að ræða, tekur að sjálfsögðu ekki aðeins til almenns bú- rekstrar, heldur einnig til alifuglabúa, svínabúa, loðdýrabúa, garðyrkju- búa, gróðurhúsa, kornræktabúa o. fl., sjá dálka 1—7 í töflu 3 á bls. 6. Þessi efniviður til skýrslugerðar, sem skattyfirvöld láta í té, hefur legið fyrir frá og með tekjuárinu 1962, og hafa niðurstöður verið birtar i Hagtíðindum. Hér er um að ræða árlegar töflur, er sýna meðal- tekjur hverrar starfsstéttar samkvæmt þeim flokkunarreglum, sem um þetta gilda. Meðaltekjur bænda (þar með bústjóra og annarra við land- búnað) koma þar fram í heild og að nokkru leyti eftir byggðarstigi (fjór-skipt flokkun), en ekki eftir sýslum. Því hafa, frá og með tekju- árinu 1965, verið gerðar sérstakar skýrslur um meðaltekjur bænda eftir sýslum, og eru þær birtar í töflum 19 og 20 (bls. 52—53) fyrir hvert áranna 1965—67. Þar koma fram meðaltekjur kvæntra bænda annars vegar og ókvæntra hins vegar. Um meðaltekjur bænda 1965—67 samkvæmt töflum 19 og 20 er það að segja að öðru leyti, 1) að þær taka ekki til bænda í landi kaup- staða, 2) að þær taka til aðila að félagsbúi 1965, en ekki 1966 og 1967, 3) að þær taka aðeins til bænda, sem eru á aldursbilinu 25—66 ára á viðkomandi tekjuári. Hið síðast talda stafar af því, að þessar meðal- tekjutölur hafa verið notaðar til samanburðar við niðurstöður úrtaksat- hugana á tekjum kvæntra launþega á aldursbjlinu 25—66 ára. — Meðaltekjutölur í töflum 19 og 20 eiga að vera sambærilegar frá ári til árs, að öðru leyti en þvi að 1965 voru ekki hafðir með framteljendur, merktir sem bændur, en með minni bústofn en 80 ærgildi eða jafn- gildi þess í öðrum búgreinum. Þetta breytir ekki miklu, en er þó sennilega orsök þess, að samkvæmt töflunni fjölgar ókvæntum bænd- um á þessu aldursbili frá 1965 til 1966. Það hefði ekki orðið, ef taflan hefði verið eins unnin bæði árin, sbr. að ókvæntum bændum fækkar frá 1966 til 1967. — Rétt er að taka það fram, að bændur, sem eru einyrkjar (sjá hér á eftir), eru í töflum 19 og 20 jafnt og bændur, sem eru vinnuveitendur. í töflu 21 eru meðaltekjur einstaklinga, er flokkaðir voru til land- búnaðar með merkingu skattyfirvalda hvert tekjuár 1962—1967. Upp- lýsingar þessarar töflu hafa verið birtar í Hagtíðindum ásamt með hliðstæðum upplýsingum um aðrar starfsstéttir. Flokkun eftir vinnu- stétt er hér hin sama og er í töflu 2 á bls. 4, sjá neðst á þeirri síðu: ..2— Búrekstur". — Tölur töflu 21 hafa takmarkað raunhæft gildi og verður því að nota þær með varfærni. Ástæðan er sú, að bak við hvert tekjumeðaltal eru sundurleitir hópar að því er varðar tekjuhæð, aldur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Hagskýrslur um landbúnað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um landbúnað
https://timarit.is/publication/1125

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.