Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2010, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 4. janúar 2010 FRÉTTIR
„Ég ætla að taka þátt í væntanlegri
byltingu. Það er byltingin sem á að
færa þjóðinni auðlindirnar á ný. Það
þarf að snúa við þeirri þróun að Ís-
land verði nýtt Afríku- eða Suður-
Ameríkuríki þar sem fólk hungrar af
því að peningunum og auðlindun-
um er ekki rétt skipt,“ segir séra Karl
V. Matthíasson, fyrrverandi alþing-
ismaður Samfylkingarinnar, sem
starfar núna á sviði áfengis- og fíkni-
mála hjá Þjóðkirkjunni, með aðsetur
í Guðríðarkirkju í Grafarholti. Hann
hefur lengi gagnrýnt íslenska sjávar-
útvegskerfið, auðsöfnun í samfélag-
inu og spillingu.
„Á Íslandi eru 20 manns sem
reyna að festa í sessi ævarandi eign
sína og sinnar fjölskyldu á öllum
fiskum sem synda í kringum landið.
Þessu verður að bylta. Íslenska þjóð-
in á auðlindir lands og sjávar og á að
nota þær sjálfri sér til framdráttar og
til að hjálpa öðrum þjóðum með fyr-
irmynd og gjafmildi.“
Hlegið að kirkjunni
Á dögunum ræddi DV við séra Arn-
ald Bárðarson, prest í Glerárkirkju á
Akureyri, sem ákveðið hefur að flýja
land. Hann tekur við sóknarprests-
stöðu í Noregi eftir áramót. Arnald-
ur segist ekki ætla að búa á Íslandi
í bráð, nema hér verði siðvæðing.
Verstu samfélagsmeinin séu flokka-
drættirnir og spillingin sem jafnvel
fyrirfinnist hjá Þjóðkirkjunni.
Séra Karl tekur undir orð Arnald-
ar. Kirkjan þurfi nú á sjálfsskoðun
að halda rétt eins og allar stofnan-
ir landsins. „Kirkjan verður alltaf að
vera gagnrýnin á sjálfa sig. Þar sem
mannfólk er á ferð er alltaf hætta
á spillingu. Í góðærinu hefði átt að
heyrast meira í prestum gegn græð-
ginni og spillingunni.“
Karl segir að ekki hafi verið hlust-
að á kirkjuna. „Ef fólk hefði hlustað á
biskupinn þegar hann gekk fram fyr-
ir skjöldu gegn ofsanum í auðmönn-
um, græðginni og fátækt í landinu þá
hefðu málin kannski þróast öðruvísi.
En það var bara hlegið að kirkjunni.
Davíð Oddsson, þáverandi forsæt-
isráðherra, sagði að þetta væri bara
klisja hjá kirkjunni.“
Fyrsta boðorðið var brotið
Séra Karl segir að þjóðin þurfi á sið-
bót að halda. Á Íslandi hafi menn
brotið fyrsta boðorð Biblíunnar.
„Menn lenda í vandræðum þeg-
ar þeir brjóta fyrsta boðorðið: „Ég
er Drottinn Guð þinn, þú skalt ekki
aðra guði hafa.“ Ég er á þeirri skoð-
un að margir hafi gert það að höfuð-
markmiði að eignast og látið forsjálni
lönd og leið. Margir trúðu á Mamm-
on þvert á viðvaranir við slíku í hinni
helgu bók. Þjóðin þarf siðbót. Marg-
ir misstu gjörsamlega stjórn á sér í
neyslunni.“
Karl segir þó að nú horfi til betri
vegar. Margir hafi áttað sig á raun-
verulegum gildum lífsins. „Fólk átt-
ar sig á að þó gullið skíni sem aug-
að nemur er skin gleðinnar í hjarta
mannsins miklu bjartara og verð-
mætara. Fólkið fer að taka eftir börn-
um sínum og fjölskyldunni og því
sem raunverulega skiptir máli.“
Karl V. Matthíasson segir að
ekki skipti máli af hvaða sauðahúsi
mennirnir séu, þeir hafi allir aðgang
að fegurð jarðar. „Þú situr í stól og
horfir á sólina og fjöllin á svölunum
í blokkinni þinni. Þú sérð það sama
og auðkýfingurinn sem býr í rosalega
stóru og flottu einbýlishúsi. Hver er
munurinn?“
Varaði við hruninu
Að mati Karls er staða prestsins oft
snúin. „Það er stundum erfitt fyrir
presta að tala sterkt og hart, því þá
eru þeir vændir um að vera pólitískir.
Þeim er ekki leyft það, í staðinn eiga
þeir að vera settlegir úti í horni.“
Karl var kosinn á Alþingi árið 1999
fyrir Samfylkinguna. „Ég var einn af
þeim sem voru kallaðir afturhalds-
kommatittir þegar ég var á þingi og
talaði um sjávarútvegsmálin, sam-
þjöppun og græðgi. Ég sagði í ræðu-
stól Alþingis árið 2002 að þetta hlyti
að enda með því að bankarnir færu á
hausinn í umræðum um útlánagleði
bankanna. Það var hlegið að því og
endaði með því að ég datt út af þingi.“
Séra Karl undrast val kjósenda.
„Það hefur oft verið talað um van-
hæfa ríkisstjórn en stundum held ég
að þjóðin sé frekar vanhæf. Ár eftir
ár er Sjálfstæðisflokkurinn kosinn.
Og núna hefur hann mest fylgi. Samt
er þetta sá flokkur er berst mest fyrir
óbreyttu sjávarútvegskerfi.“
Spillingarríki
Ólíkt starfsbróður sínum, séra Arn-
aldi Bárðarsyni, ætlar Karl ekki að
flytja úr landi. Segist reyndar hafa
áhuga á að dvelja um skamma hríð
við nám í útlöndum. Hann vill hjálpa
til við uppbyggingu samfélagsins.
„Nýtt Ísland þýðir ekki bara að við
borgum einhverjar skuldir. Við þurf-
um á sjálfsskoðun að halda því hér
hefur verið mikil spilling. Vinur minn
hringdi um daginn og sagði: „Jæja,
Kalli, ég er fluttur af landi brott. Ekki
af fjárhagslegum ástæðum. Nei, ég er
fluttur af siðferðislegum ástæðum.“
Er Ísland bara eitt allsherjar spilling-
arríki? Það hvarflar stundum að mér.“
Karl segir að spillingin ráði för
í stóru sem smáu. „Þetta er í ráðn-
ingum hjá kirkjunni og alls staðar.
Skólastjóri er ráðinn í Reykjavík og
það er nánast bókað mál að hann
er sjálfstæðismaður. Þegar börn og
unglinga vantar vinnu spyrja foreldr-
arnir sig gjarnan hvern þau þekki
sem geti reddað vinnu.“
Fordyri helvítis
Séra Karl vinnur sem fyrr segir á sviði
áfengis- og fíknimála. Þar séu ekki
síður vandamál. „Blöðin og sjón-
varpsstöðvar hvetja fólk til að drekka
vín og bjór. Þetta er í mörgum tilvik-
um fordyri helvítis. Í starfi mínu reyni
ég að hjálpa fólki sem er í ömurlegri
fíkniefnaneyslu. Bakkus er hjáguð líkt
og Mammon og þeir hafa verið dýrk-
aðir hér á landi. Þetta tengist, menn
misstu stjórn á sér í neyslunni.“
Séra Karl segir að aldrei megi
gleyma kirkjunni. „Orð Guðs varir að
eilífu. Kristin kirkja mun alltaf standa.“
Séra Karl V. Matthíasson varaði við bankahruni í ræðu á Alþingi árið 2002. Hann segir að hlegið hafi verið
að sér fyrir það og hann hafi í framhaldinu dottið út af þingi. Séra Karl segir Íslendinga lengi hafa dýrkað
hjáguðina Bakkus og Mammon, sem kunni aldrei góðri lukku að stýra. Hann ætlar að taka þátt í að bylta
íslensku samfélagi sem er gjörspillt að hans mati.
PRESTUR BOÐAR BYLTINGU
„Menn lenda í vand-
ræðum þegar þeir
brjóta fyrsta boðorð-
ið: „Ég er Drottinn Guð
þinn, þú skalt ekki aðra
guði hafa.““
HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Hætta á að útlánastofnanir fari á hliðina
„Herra forseti. Það er allt of mikil útlánagleði í þessu landi. Hér keyra menn á
bílalánum, yfirdrætti og kreditkortum og það á fleygiferð. Ég tel, herra forseti,
að því miður sé um samfélagslegt mein að ræða og vil ég auðvitað alls ekki kalla
lánastofnanir einar til ábyrgðar. Auðvitað verða lántakendur líka að vera ábyrgir í
gerðum sínum og ég vona að annar andi en sá sem ríkt hefur hér á landi taki nú
senn við og að flest það fólk sem leiðst hefur í neyslulánagildruna sleppi þaðan
með litlum skaða.
Það er athyglisvert, herra forseti, að bankarnir skuli geta skilað milljarða
hagnaði og það stórlega vaxandi hagnaði á sama tíma og vöxtur vanskila er slíkur
sem raun ber vitni. Eru þessi vanskil kannski forsenda alls þessa hagnaðar? Ef svo
er hljótum við að velta fyrir okkur hvort ekki sé meira en lítið að í bankakerfinu.
Svo virðist sem alvarleg slagsíða sé komin á útlánastofnanirnar. Verði hún
öllu meiri er hætta á því að þær fari á hliðina. Sú hætta vex með hverjum þeim
lántakanda sem lendir í vanskilum, að ekki sé talað um þá sem verða gjaldþrota.
Það er betra að hagnaður bankanna, herra forseti, sé minni ár hvert og vari lengur
en að hið gagnstæða gerist.“
Ræða Karls V. Matthíassonar í fyrirspurnatíma á Alþingi 4. september 2002
Hlegið að ræðunni Séra
Karl segist hafa varað við
bankahruninu en hlegið hafi
verið að honum. Hann hafi svo
dottið út af þingi. MYND KRISTINN