Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Blaðsíða 30
Naglinn stakkst í gegnum renn-blautan sólann á íþróttaskón-um mínum og upp í ilina á mér. Ég var að vinna með vini mín- um fyrir austan fjall, á bæ í Flóanum rétt fyrir utan Selfoss, þar sem hann var að reisa nýbyggingu með steypt- um grunni. Við vorum að slá móta- timbrið frá húsgrunninum þegar ég steig á naglann. Regnið hafði bulið á okkur án afláts og skórnir mínir voru gegnsósa af vatni, naglinn skarst því enn auðveldar en ella í gegnum vott plastið á sólanum og sirka tvo sentí- metra upp í hægri fótinn á mér. Þetta gerðist haustið 2005 og tekið var að síga á seinni hluta dagsins. Ég fann ekki mikið fyrir naglan-um þegar hann fór inn í mig, bara örlítinn sting eins og ég hefði verið klipinn snögglega. Í ör- stutta stund staldraði ég við og íhug- aði hvað ég ætti að gera. Mér fannst eitthvað kveifar- legt við það að hætta að vinna út af þessu smá- ræði – fótbolta- þjálfarinn minn í barnæsku sagði alltaf við mig að hlutirnir væru bara vondir fyrst – og sótt- hreinsa sárið eftir naglann. Ég ákvað að bíta á jaxlinn, halda áfram að slá frá og segja vini mínum ekki frá óhappinu. Tímarnir liðu, við kláruð- um vinnudaginn og ég keyrði heim til Reykjavíkur. Á leiðinni heim tók lögreglan mig fyrir of hraðan akstur – hvert var ég eiginlega að flýta mér: Ekki heim til að sótthreinsa sárið. Þegar ég kom heim skoðaði ég ilina á mér. Stungusárið sást varla, ekkert blóð var í sokknum og engin ígerð virtist hafa hlaupið í fótinn. Ég andaði léttar. Óhappið fyrir austan fjall var mér ekki of-arlega í huga dag- ana á eftir. En um það bil tíu dögum síðar taldi ég mig finna fyrir einkenni- legum slætti í hægri fætin- um, eins og fóturinn hefði öðlast sjálfstætt líf eða að eitthvað grasseraði nú í honum. Ég byrjaði að ókyrrast og velta því fyrir mér hvort það væri kom- in ígerð í sárið eftir nagl- ann. Ég pantaði mér tíma hjá lækni daginn eftir. Um nóttina svaf ég lítið út af áhyggjum af ígerðinni. Ég fór til læknisins og hann skoðaði á mér fótinn: Engin ígerð var komin í hann og allt leit eðlilega út. Lækn- irinn minn pantaði samt fyrir mig óm- skoðun daginn eft- ir, svona til örygg- is. Aftur svaf ég lítið um nóttina fyrir óm- skoðunina þrátt fyr- ir skýra niðurstöðu læknisins. Ég sá fyrir mér hvað myndi gerast þegar ég myndi missa hægri fótinn, þegar þyrfti að aflima mig á næstu dögum til að bjarga lífi mínu. Kannski hafði ígerðin líka farið yfir í vinstri fótinn á mér. Ég gat ekki hætt að hugsa um aumingja pólska verkamanninn sem komið hafði til Íslands og misst báða fæt- urna vegna ígerðar eftir að hafa unn- ið sárfættur ofan í gámi - fréttir af manninum höfðu verið sagðar í fjöl- miðlum skömmu áður. Ég mundi sömuleiðis eftir þel- dökka rónanum í bandarísku ung- lingamyndinni Kids sem renndi sér um í almenningsgarði og sönglaði í sífellu: I have no legs, I have no legs. Kannski biði það mín líka í framtíð- inni að renna mér fótalaus á hjóla- bretti um miðbæ Reykjavíkur og sníkja pylsu og kók í Bæjarins bestu. Ómskoðunin var hins vegar líka afdráttarlaus: Engin ígerð var kom- in í fótinn. Ég hafði meira að segja verið hepinn því naglinn hafði ekki skemmt neitt inni í fætinum á mér. Naglinn hafði ekki farið inn í vöðva eða bein og engin ummerki sáust um hann önnur en tveggja sentímetra sár sem þó var byrjað að gróa. Ég tók gleði mína á ný, nánast faðmaði lækninn sem færði mér niðurstöðuna og gekk brosandi út í haustið með sól í hjarta. En slátturinn hvarf samt ekki úr fætin-um á mér. Ég fann fyrir honum þegar ég var heima um kvöldið. Sláttur- inn var þarna, það var eitt- hvað að mér í fætinum, þótt læknarnir hefðu ekki fund- ið það. Ég reyndi að róa mig niður, líta rökréttum, skyn- sömum augum á stöðuna – „Auðvitað var ekkert að mér“ – en allt kom fyrir ekki. Ég gat ekki komið þeirri hugsun úr höfðinu á mér að ég væri með ígerð í ilinni. Ég dreif mig því upp á slysadeild Landspítalans og hitti enn einn lækninn. Hann skoðaði á mér fótinn og fann ekkert að honum. Ég krafðist þess samt að fá að fara í röntgenmyndatöku til að taka af allan vafa. Lækn- irinn sagði mér að röntgen- myndir væru ekki nærri því eins nákvæmar og ómskoð- unin sem ég hafði verið í fyrr um daginn. Samt vildi ég fara í röntgen og var það látið eftir mér. Röntgenmyndatakan skilaði auðvitað sömu niðurstöðu og ómskoðunin: Það var ekkert að fætinum á mér. Kven- læknirinn sem tók myndina sagði mér þetta þar sem ég sat í stóln- um hjá henni eftir myndatökuna. Hún hjálpaði mér upp úr stólnum eftir að hafa sagt mér þetta en mér tókst að reka höfuðið af nokkrum krafti í röntgenmyndavélina sem var fyrir ofan stólinn. Læknirinn klapp- aði mér móðurlega á bakið og spurði hvort það væri ekki í lagi með mig. Ég jánkaði því en hún sagði glott- andi með glampa í augum: „Kannski tökum við bara myndir af hausnum á þér næst þegar þú kemur.“ Ég brosti vandræðalega á móti. Ég hafði vaðið í villu í tvo sólarhringa en slátturinn í fætinum var sem betur fer úr sög- unni. 30 | Umræða 13.–15. maí 2011 Helgarblað Helgarpistill Ingi F. Vilhjálmsson Fótalaus á hjólabretti É g man þegar Liverpool vann bæði deild og bikar vorið 1986. Ég sat svo sem ekki beinlínis límdur við sjónvarp þau árin til að fylgjast með fótbolta, og það var líka ansi stopult sem ég las um ensku knattspyrnuna í blöðun- um. En þó, alltaf fylgdist ég eitthvað með, og þetta vor vissi ég að það var svolítið sérstakt á seyði á bökkum Mersey-árinnar. Liverpool hafði þá verið yfir- burðalið á Englandi í áratug eða svo. Yfirburðir liðsins voru svo miklir að meira að segja yfirburðir Manchester United núna síðustu 10–15 ár blikna hálfpartinn í þeim samanburði. Liðið var eins og áskrifandi að Englands- meistaratitlinum og vann Evrópu- meistaratitilinn fjórum sinnum á sjö árum, 1977–1984. Real, Barcelona, allir í skugga Liverpool Lið eins og Real Madrid, Barcelona, að ekki sé minnst á ítölsku liðin, stóðu um þær mundir djúpt inni í skugga Liverpool. Og það sem meira var, sigrar Liverpool voru alveg óumdeilanlega verðskuldaðir. Liðið spilaði langsam- lega besta fótboltann á Englandi, um það var engum blöðum að fletta. Það var eiginlega það sem var skemmtilegast við að halda við Liverpool. Þetta var ekkert pot, eins og það er orðað á einum stað. Það var eiginlega tilviljun að ég fór að halda með Liverpool. Þegar ég var strákur hafði ég nákvæmlega engan áhuga á fótbolta, vissi varla að þessi íþrótt væri til – hvað þá meira. Þeg- ar ég var á að giska tíu ára, þá sann- frétti ég hins vegar að allir Íslending- ar ættu að halda með einhverju liði í ensku knattspyrnunni – það virtist vera einhvers konar skylda. Ég varð bersýnilega að velja mér lið til að halda með. Gallinn var hins vegar sá að ég hafði ekki minnstu hugmynd um hvaða lið tækju þátt í þessu dularfulla fyrirbrigði, ensku knattspyrnunni! En ekki vildi ég deyja ráðalaus. Úlfarnir báru af öðrum Og ég man enn þegar ég fór og náði mér í dagblað og fletti upp á íþrótta- fréttunum til að komast að því hvaða lið kæmu til greina. Ég hafði ekki hugmynd um hvaða lið væru góð og hver ekki, eða hvaða saga bjó að baki liðunum, svo ég varð að byggja eingöngu á nöfnum þeirra, það er að segja hljómi þeirra. Og reyndar var ég fljótur að velja mér lið, þegar til kom. Nafnið „Wolves“ bar svo af öðrum nöfnum að það kom ekkert annað til greina en halda með þeim. Einfald- lega af því nafnið þýddi „Úlfarnir“ sem mér fannst bæði töff og kraft- mikið. Ekki hafði ég hugmynd um að „Wolves“ er fyrst og fremst stytting á hinu raunverulega nafni fótbolta- liðsins, Wolverhampton Wanderers. Ég veit ekki hvort það hefði breytt neinu – svo mjög sem mér fannst nafn Úlfanna bera af. Þetta var líka eina nafnið sem þýddi eitthvað, að því er ég gat best séð, hitt voru bara einhver furðu- leg staðarnöfn, og svo kom yfirleitt „United“ eða „City“ eða „Town“ á eftir. Þannig að þá var það ákveðið. Úlfarnir skyldu vera mitt lið í ensku knattspyrnunni. Mér leið strax betur. Nú skar ég mig ekki eins mikið úr; ég var ekki lengur hálfgert frík sem ekki „átti“ neitt lið í enska boltanum. Sagði engum neitt Að vísu sagði ég engum frá því að ég væri kominn með uppáhaldslið í enska boltanum. Ég átti um þær mundir fáa vini á mínu eigin reki, og enga kunningja sem ég hefði lát- ið mér til hugar koma að tala við um fótbolta – enda hafði ég ekkert vit á þeirri íþrótt. En einhvern veginn var mér samt styrkur að þessu. Þegar ég heyrði strákana í mínum bekk vera að rabba saman um hvað væri besta lið- ið af þeim sem þá voru á toppnum – Everton, Arsenal, Leeds, Totten- ham, Chelsea eða Derby (já!!) – þá gat ég farið ferða minna óhrædd- ur, viss í minni sök um að Úlfarnir væru mitt lið, og ef einhver ógnaði mér með því að ég ætti ekkert uppá- haldslið í enska fótboltanum, þá gæti ég ósmeykur dregið Úlfana úr pússi mínu. Og Úlfarnir voru meira að segja alveg prýðilegt lið um þær mund- ir. Leiktíðina 1970–1971 urðu þeir í fjórða sæti í efstu deild. Næstu árin voru átakalítil í sam- skiptum mínum við fótboltann. Ég hafði engan áhuga á íþróttinni en hélt með Úlfunum ef í nauðirnar rak. Um og upp úr 1980 gerðist tvennt. Ég fór stöku sinnum að horfa á fót- bolta í sjónvarpinu og uppgötvaði að þetta gat verið alveg prýðilegt sjón- varpsefni. Það var reyndar aðallega brasilíska landsliðið sem ég sóttist eftir að horfa á, en þar sem það bar sjaldan fyrir augu, þá varð maður stundum að láta sér duga bara ensku knattspyrnuna. Allt hrundi á fáum árum Og þá var allt í einu til lítils að halda með Úlfunum. Á árunum upp úr 1980 hrundu þeir á fáum árum nið- ur í fjórðu deild, eftir að slæmir eig- endur höfðu ausið upp öllu hand- bæru fé félagsins og skilið það eftir í súpunni. Og upp úr fjórðu deild virtust Úlfarnir eiga erfitt með að vinna sig. Ég neyddist því til að finna mér annað lið til að halda með. Og þá var einmitt hin mikla gullöld Liverpool, og ekki hægt annað en halda með þessu ástríðufulla sigursæla og flotta fótboltaliði. Og vorið 1986 var altso engu líkt. Mestallan veturinn háðu nágranna- liðið í Liverpool-borg, Liverpool og Everton, grimma keppni um efsta sætið í efstu deild. Lengi vel virtist Everton hafa pálmann í höndunum, en rétt í lokin þá smaug Liverpool fram úr. Og þeir tryggðu sér sigurinn í efstu deildinni með sigri yfir Chelsea, þar sem besti maður Liverpool undanfar- in ár skoraði sigurmarkið. Það skemmtilega var að hann var ekki aðeins prímus mótor á miðjunni, heldur var hann líka þjálfari liðsins. Kenny Dalglish. Ég veit ekki enn … Viku seinna vann svo Liverpool enska bikarinn í úrslitaleik gegn – auðvitað Everton. Leikurinn end- aði 2–1. Fyrst skoraði sú prúða markamaskína Everton, Gary Lineker, en síðan svaraði Ian Rush (ennþá meiri markamaskína) fyrir Liverpool, og Craig Johnston af öll- um mönnum skoraði sigurmarkið. En þótt hann hefði ekki skorað í þeim leik, þá vissu allir að það mátti líka þakka Kenny Dalglish þennan sigur. Þetta skrifa ég af því nú er loks- ins búið að ganga frá því að Dalg- lish stýri Liverpool næstu þrjú árin. Og það er tilhlökkunarefni. Ég veit að vísu enn ekki af hverju allir verða að eiga sér uppáhaldslið í ensku knattspyrnunni. En ég veit að svoleiðis er það, og Liverpool er mitt lið. Fyrir utan Úlfana, vitaskuld. Trésmiðjan Illugi Jökulsson„Það var eiginlega tilviljun að ég fór að halda með Liverpool. Þegar ég var strákur hafði ég nákvæmlega engan áhuga á fótbolta, vissi varla að þessi íþrótt væri til – hvað þá meira KónguRInn S ýR AFTuR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.