Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Side 36
Finnland Paradise Oskar - Da Da Dam Axel Ehnström frá Helsinki hefur tekið upp sviðsnafnið Paradise Oskar. Hann sendi lagið sitt inn í finnsku keppnina upp á von og óvon og gerði ekki sér ekki miklar vonir. Það kom honum því á óvart þegar hann fékk meira en helming atkvæða í forkeppninni. Spá: Kemst ekki á blað Eistland Getter Jaani - Rockerfeller Street Getter er frægasta söngkona Eistlands um þessar mundir en frægðarsól hennar reis þegar hún tók þátt í Estonia Superstar. Þar var hún yngsti þátttakandinn og uppáhald dómara. Hún lék síðar eitt aðalhlutverkið í söngleiknum High School Musical. Spá: 5. sæti með 150 stig Frakkland Amaury Vassili - Sognu Amaury Vassili er spáð sigri í kepninni í ár en þessi 21 árs söngvari er yngsti atvinnutenór í heiminum. Fyrsta platan sem hann gaf út seldist í yfir 200.000 eintökum í Frakklandi. Sagt er að lagið Sognu staðfesti stórkost- lega sönghæfileika þessa unga tenórs. Spá: 1. sæti með 229 stig Georgía Eldrine - One More Day Eldrine er ekki persóna heldur nafnið á fimm manna rokkhljómsveit. Eftir breytingar á hljómsveitinni á síðustu stundu munu Sophio Toroshelidze, Mikheil Chelidze, Irakli Bibilashvili, David Changoshvili, Tamar Shekiladze og Beso Tsikhelashvili keppa fyrir hönd Georgíu í ár. Spá: 31. sæti með 1 stig Grikkland Loucas Yiorkas & Stereo Mike - Watch My Dance Loucas vann gríska X-Factor árið 2009 en Stereo Mike var tilnefndur til Europes Favorite Act á tónlistarverðlaunahátíð MTV árið 2008. Spá: 18. sæti með 14 stig Austurríki Nadine Beiler - The Secret is Love Nadine kom fyrst fram á sviði árið 2006 og var þá einungis 16 ára gömul. Þá tók hún þátt í keppninni ORF Starmania þar sem þessi litla stelpa með stóru röddina skaut hinum kepp- endunum ref fyrir rass og vann. Hún hafði hægt um sig vegna náms þar til í fyrra þegar hún tók þátt í undankeppni söngvakeppninnar. Spá: 15. sæti með 21 stig Aserbaídsjan Ell og Nikki - Running Scared Eldar og Nigar hefur lengi dreymt um að komast í Eurovision og segja keppnina bestu leiðina til að hefja söngferil sem hægt er að hugsa sér. Áhrifavaldar þeirra eru meðal annars Rihanna, Jennifer Lopez, Celine Dion, Robbie Williams og Lady Gaga. Spá: 6. sæti með 102 stig Bosnía og Hersegóvína Dino Merlin - Love in Rewind Dino Merlin er eitt frægasta söngvaskáld Bosníu og Hersegóvínu og er vel þekktur sem tónlistarmaður um allan Balkanskaga. Hann var fenginn til að semja fyrsta og eina þjóðsöng þessa nýstofnaða lands. Spá: xxx Bretland Blue - I Can Það þarf vart að kynna bresku flytjendurna í ár en það er hin heimsfræga popphljómsveit Blue. Lagið varð til rétt fyrir síðustu jól en strákarnir voru með heimsmeistaramótið í fótbolta í huga þegar það var samið. Það fjallar um möguleika og sigra og fellur því vel inn í hugmyndafræði söngvakeppninnar. Spá: 3. sæti með 204 stig Danmörk A Friend In London - New Tomorrow Hljómsveitin vann evrópsku lokakeppnina í Bodog Million Dollar Battle of the Bands árið 2008 en 40.000 hljómsveitir tóku þátt. Hún var stofnuð árið 2005 og hefur megin- markmið hennar ætíð verið að semja góð og grípandi lög. Spá: 8. sæti með 45 stig Frökkum spáð siGri 36 Eurovísir13.–15. maí 2011 Ísland Vinir Sjonna - Coming Home Við þekkjum öll Vini Sjonna. Þeir komust óvænt í gegnum fyrri forkeppnina, Ís- lendingum til mikillar gleði. Við höldum að sjálfsögðu öll með okkar mönnum á laugardaginn og sendum góða strauma til Þýskalands! Spá: 26. sæti með 4 stig Írland Jedward - Lipstick Írski dúettinn Jedward samanstendur af tvíburunum John og Edward. Þeir vöktu gríðarlega athygli í írska X-Factor og hafa síðan farið í tónleikaferðalag og stjórnað sínum eigin raunveruleikaþætti, OMG Jedward. Sagt er að annað hvort elski maður þá eða hati. Spá: 19. sæti með 10 stig Ítalía Raphael Gulazzi - Madness of Love Ítalía tekur þátt í keppninni eftir 14 ára hlé en það er hinn 30 ára Raphael sem keppir fyrir hönd Ítalíu. Raphael samdi bæði lag og texta. Enska útgáfa lagsins hljómar í myndinni Manual of Love en í henni leika meðal annars Robert DeNiro og Monica Bellucci. Spá: 16. sæti með 20 stig Litháen Evalina Sašenko - C‘est Ma Vie Evalina hefur sungið frá sex ára aldri en varð fræg í heimalandi sínu þegar hún kom fram á sjónvarpstónleikum klassískra söngvara. Hún segir að lagið höfði til allra, hvort sem þeir eru 6 ára eða 66 ára. „Það eru engar brellur, bara heiðarleiki, einlægni og ósviknir hæfileikar,“ segir hún. Spá: Kemst ekki á blað moldóva Zdob si Zdub - So Lucky Hljómsveitin hefur starfað saman síðan um miðjan tíunda áratuginn og hefur hitað upp fyrir sveitir á borð við Red Hot Chili Peppers, Korn og Rage Against The Machine. Hún hefur gefið út átta hljómplötur og spilað á tónleikum um alla Evrópu. Spá: Kemst ekki á blað n DV hefur tekið saman upplýsingar um keppendurna og hvaða gengi þeim var spáð Verð aðeins 890 kr. Verð aðeins 890 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.