Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Síða 44
44 | Viðtal 13.–15. maí 2011 Helgarblað
É
g er náttúrulega úr Hafnarfirði,“
segir Jóhanna Guðrún Jóns
dóttir söngkona afsakandi þeg
ar blaðamaður reynir að vísa
henni veginn á kaffihús í Borgartúninu
í gegnum síma. Hún er örlítið áttavillt
í fyrstu en fljótlega áttar hún sig á því
hvert hún eigi að fara. Skömmu síðar
kemur hún brosandi inn á kaffhúsið og
kastar ljósu síðu hárinu til um leið og
hún fær sér sæti. Það er nóg að gera hjá
Jóhönnu þessa dagana en hún gaf sér
þó smá tíma til að setjast niður með
blaðamanni.
Ætlaðist ekki til að vinna
Mjög neikvæð umræða fór af stað um
Jóhönnu eftir forkeppni Eurovision á
Íslandi sem fór fram í febrúar síðastlið
inum, en hún tók þátt í keppninni með
laginu Nótt. Umræðan var sérstak
lega hörð á spjallsíðunni Barnalandi
og vildu margir þar meina að Jóhanna
hefði tekið því illa að hafa ekki unnið.
„Það sem mér fannst leiðinlegast
við þetta var hvað fólk mistúlkaði við
brögð mín og í rauninni var margt af
þessu barnalega hugsað hjá fólki því ég
horfði á þetta brot aftur og aftur til að
sjá hvað málið væri eiginlega og mitt
borð var það eina sem var í mynd,“
segir Jóhanna Guðrún. Hún gerir stutt
hlé á máli sínu til að panta sér grænt te
hjá þjónustustúlkunni sem kemur að
vífandi.
„Fólk var að tala um að ég gæti ekk
ert ætlast til að vinna og ég gerði það
aldrei. Ég sagði allan tímann að þetta
yrði mjög erfið og hörð keppni. Það
eru náttúrulega allir leiðir yfir því að
vinna ekki. Maður fer með því hugar
fari að vinna og ef maður gerir það ekki
þá á maður ekkert að vera að taka þátt
því þá er enginn metnaður í atriðinu.“
Kærastanum blöskraði
umræðan
Jóhanna segir þetta neikvæða umtal
hafa fengið töluvert á sig. „Það komu
alveg tár og allt, því þetta er ekki ég,
ég er ekki þessi týpa. Ég er ekki mann
eskja sem læt svona. Mér fannst leiðin
legt að fólk túlkaði mig sem einhvern
fýlupúka sem er tap sár.“
Hún bendir þó á að þegar fólk sé í
þessum bransa þá megi það gera ráð
fyrir svona umtali. Það sé hluti af því að
vera þekkt andlit. „En þetta var mjög
erfitt fyrir mig, ég var alveg í einhverjar
vikur að ná mér upp eftir þetta.“
Kærasta Jóhönnu, Davíð Sigur
geirssyni, blöskraði umræðan á
Barnalandi svo mikið að hann ákvað
að svara henni með bréfi sem hann
birti á vefnum.
„Það var mjög umdeilt hvort hann
hefði átt að gera það yfir höfuð því það
eru margir á móti því að vera að svara
svona og segja að maður eigi frek
ar að halda bara sínu striki. En mér
þótti vænt um að hann skyldi taka upp
hanskann fyrir mig og útskýra hvernig
þetta var,“ segir Jóhanna og það skín í
gegn hve ástfangin hún er af kærasta
sínum og þakklát fyrir að eiga hann að.
Erfitt að segja til um gengi laga
Blaðamanni finnst ekki úr vegi að
spyrja hvernig hún telji að laginu
Nótt hefði gengið ef hún hefði unnið
keppnina heima og fengið að fara með
það út.
„Það er voðalega erfitt að segja til
um það. Það er eitt af því sem ég lærði
þegar ég fór út til Rússlands, það er
bara ekkert að marka fyrr en lagið er
flutt á sviðinu. Það var líka það sem
var svo flott með strákana, þetta virk
aði svo æðislega vel,“ segir Jóhanna og
vísar til Vina Sjonna sem taka nú þátt
fyrir Íslands hönd.
„Ég held að við höfum aldrei sent
atriði þar sem söngvarinn er eitthvað
að að klikka, hvernig sem atriðinu
gengur þá er flytjandinn góður,“ bætir
hún við og sýpur á græna teinu.
Átti töframóment
Jóhanna tók þátt í keppninni árið 2009,
sem var þá haldin í Moskvu í Rúss
landi, með lagið Is it true? Blaðamað
ur, sem viðurkennir að vera smá Euro
visonnörd, rifjar upp með Jóhönnu
hvernig Eurovisonveðbankar töldu að
laginu myndi ganga.
„Það var bara rosalega mismun
andi, sumum leist vel á það en það var
aldrei talið sigurefni. Stundum á líka
eitthvað eitt lag svona töframóment
sem bara virkar það kvöld og vinnur,“
segir Jóhanna sem átti svo sannarlega
sitt töframóment á sviðinu í Moskvu
fyrir tveimur árum síðan. Hún heillaði
Evrópu upp úr skónum með frammi
stöðu sinni og náði, eins og frægt er,
öðru sæti í keppninni.
Ímyndaði sér atriðið áður
en hún fór að sofa
Það er Jóhönnu í fersku minni þegar
hún stóð á sviðinu í Moskvu og flutti
lag sitt nánast óaðfinnanlega af mikilli
innlifun fyrir framan 75 þúsund áhorf
endur í salnum og milljónir á bak við
sjónvarpsskjáinn. En hvernig undirbýr
maður sig fyrir svona flutning?
„Við vorum búin að æfa atriðið á
hverjum einasta degi í einhverja mán
uði og ég undirbjó mig andlega líka.
Ég var alltaf með svona rútínu áður
en ég fór að sofa. Þá ímyndaði ég mér
þetta, alveg frá því að ég fór í skóna
og svo labbaði ég upp á svið og hugs
aði: „Ókei, þetta verður svona.“ Þann
ig þetta var allt bara mjög eðlilegt fyr
ir mér.“
Jóhanna er með áberandi löng
og falleg augnhár sem blaka eins og
blævængir þegar hún rifjar dreymin á
svip upp keppnina í Moskvu.
Hún segist ekki hafa verið vitund
stressuð, frekar óeðlilega róleg. „Ég
hef aldrei fundið svona áður. Allt í
einu fór ég bara að hugsa um fjöl
skylduna mína að horfa á mig heima
og þá kom brosið alveg í gegn,“ segir
hún.
„Æ, þetta var bara alveg yndislegt
og svo kom svo mikil jákvæð orka úr
salnum og það voru margir sem voru
farnir að fíla Ísland í aðalkeppninni
þannig að það voru margir fremst í
höllinni sem kölluðu áfram Ísland,“
segir hún. „Mér leið bara ofsalega eins
og ég væri velkomin á sviðinu,“ bætir
hún við.
Ellefu ára á samning
í Bandaríkjunum
Jóhanna var aðeins átta ára gömul
þegar hún var uppgötvuð, ef svo má að
orði komast. Þá tók hún þátt í söngva
keppni vegna barnaplötu sem María
Björk Sverrisdóttir var að vinna að. Jó
hanna varð í sjötta sæti í keppninni af
hundrað keppendum. Hún vakti þó
athygli Maríu sem vildi fá hana í söng
skólann hjá sér og þá var ekki aftur
snúið
„Mamma var að sjálfsögðu til í að
leyfa mér það af því að ég elskaði að
syngja og enginn fékk frið fyrir mér.
Út frá því byrjaði samstarfið.“ Það var
strax ljóst að Jóhanna var miklum
sönghæfileikum gædd og hún var að
eins ellefu ára gömul þegar hún var
komin á samning hjá Tommy Mott
ola, sem er mjög þekktur í tónlistar
bransanum. Henni var á tímabili spáð
heimsfrægð og dvaldi mikið í Banda
ríkjunum þar sem hún var að vinna að
tónlist. En samstarfið við Mottola gekk
því miður ekki upp.
„Hann sagði alltaf: „Hún þarf að
vera þannig að strákar vilji vera kær
astarnir hennar og stelpur líta upp til
hennar og hún er það ekki þegar hún
er tólf ára eða þrettán, fjórtán. Við
þurfum að bíða þangað til hún verður
átján ára.“ En við vorum ekki alveg inni
á þeirri línu.
Hann sagði: „Ég er með þig á samn
ingi og við þróum þig. Þú verður að
gera plötur á Íslandi og þú verður að
syngja úti um allt, en við gerum þig
ekki að svakastjörnu strax því þú ert
ekki orðin nógu gömul. Þú höndlar
það ekki andlega og líkamlega ertu
ekki tilbúin.“
Hann vildi hafa mig í söng og
danstímum og láta mig semja, en þetta
var bara svo ólíkt okkar hugmyndum
og þess vegna gekk þetta ekki alveg
upp með hann. Þá vorum við samt
búnar að vera í samstarfi með honum
heillengi.“
Jóhanna segist þó enn vera í sam
bandi við hann í dag og því sé ekkert
útilokað hvað gerist í framtíðinni. „Ég
er mjög heppin að hafa myndað þessi
tengsl úti þrátt fyrir að hafa verið svona
ung,“ bætir hún við.
Er í fyrsta skipti í hljómsveit
„Mér hefur boðist ýmislegt í gegnum
tíðina. En eins og núna þá er ég að
reyna að finna hvað mig langar til að
gera í tónlistinni. Þar sem ég hef ver
ið svo ung þá hefur svo mikið verið
ákveðið fyrir mig varðandi það hvernig
tónlist ég hef átt að syngja. Ég er að
reyna að finna það út sjálf hver ég vil
vera. Ég er samt í samstarfi við um
boðsmenn í Noregi og það er ýmislegt
í bígerð,“ segir Jóhanna. Hún vill þó
ekki fara nánar út í það að svo stöddu.
„Ég er líka að vinna að plötu fyrir
íslenskan markað. Svo er ég komin af
stað með nýja hljómsveit, sem er blús
óríenteruð. Við erum reyndar ennþá
að reyna að finna nafn á bandið, en við
erum farin að spila.“ Jóhanna segir þau
stefna á að spila á hátíðum erlendis og
eru þau þegar komin með umboðs
mann. Þá stefna þau jafnvel á plötu
gerð síðar meir.
„Ég hef aldrei verið í hljómsveit,
eins lengi og ég er búin að vera að
syngja, og ég er alveg að fíla það í tætl
ur. Það er líka gaman að vera með
kærastanum mínum í hljómsveit.“ Jó
hanna er þó ekki eingöngu að syngja á
fullu heldur kennir hún einnig einka
tíma í söng.
„Þannig ég er með fótinn báðum
megin við línuna,“ segir hún hlæjandi.
„Þetta er svona köllunin mín í lífinu,
að vera tónlistarmaður og ég verð það
alltaf.“ Hún segist þó reyna að passa sig
á því að vera ekki að vinna í of mörgum
verkefnum í einu. „Þá getur allt farið í
köku!“
Slitu ekki samstarfinu í illu
María Björk var umboðsmaður Jó
hönnu í ellefu ár en nú er samstarfi
þeirra lokið. En hvernig gekk sam
starfið á meðan á því stóð? „Auðvitað
var þetta eins og hjónaband, stundum
gekk vel og stundum illa. Það er bara
eins og gengur og gerist.“ Hún segir
þær alls ekki hafa slitið samstarfinu í
illu.
„Þetta var bara komið gott, eins og
fólk vex stundum í sundur. Við vorum
með ólíkar hugmyndir um það sem
ég vildi gera. Ég vildi fara að þróa mig
meira. Fólk er alltaf að reyna að gera
upp eitthvert skandal „break up“ en
þetta var það bara ekki. Við unnum
saman í langan tíma og svo bara hætt
um við því. Þetta er ekkert þannig að
ég segi ekki hæ við hana úti á götu, ég
get alveg tekið upp símann og hringt
í hana,“ segir Jóhanna, myndar símtól
með hendinni og leggur hana upp að
eyranu til að leggja áherslu á mál sitt.
Var í stúdíóinu á daginn
og lærði á kvöldin
Jóhanna segist alveg frá því að hún
man eftir sér hafa verið á einhverju
flandri út af söngnum en hún kvartar
að sjálfsögðu ekki yfir því.
„Ég er náttúrulega bara rosalega
heppin og þakklát fyrir að upplifa allt
sem ég hef fengið að upplifa.“ Stöðug
ferðalög höfðu þó töluverð áhrif á líf
hennar sem barn.
„Ég er ekki þessi týpa“
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir lenti í öðru sæti í
Euro vison árið 2009 með lagið Is it true? Hún tók aftur
þátt í forkeppninni á Íslandi í ár en vann ekki. Neikvætt
umtal sem skapaðist um hana eftir keppnina fékk
mjög á hana. Hún er þó vön í bransanum en hún hefur
sungið opinberlega síðan hún var átta ára. Sólrún
Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður settist niður með
henni og spjallaði um frægðina, svikin, gleðina og tárin.„Þetta var allt plat
þessi ferð og það
hefur örugglega verið búið
að plana að ræna mér í
mansal eða eitthvað.
„Svo er ég reynd-
ar snyrtivöru- og
„make up“-fíkill, finnst
geðveikt gaman að
greiða hárið á mér fyrir
gigg og mála mig.
Er að finna sig Jóhanna Guðrún er
þessi misserin að reyna að finna út hvað
hún vill gera í tónlistinni en í gegnum
tíðina hafa aðrir ákveðið það fyrir hana.