Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Side 72

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Side 72
Tryggvi er alltaf að leita að gulli! Flottheit í Hörpunni n Á miðvikudagskvöldið var efnt til stærðarinnar opnunarveislu í veitingahúsinu Kolabrautinni í tón- listarhúsinu Hörpu. Það eru tveir af þekktari vertum landsins, þeir Leifur Kolbeinsson sem kenndur er við La Primavera og Jóhannes Stefánsson kenndur við Múlakaffi sem eiga og reka staðinn. Það er alveg ljóst að ekkert var til sparað við opnun veit- ingastaðarins sem mun bjóða upp á íslenskt hráefni eldað samkvæmt matarvenjum frá Miðjarðarhafinu. Fjöldi góðra gesta var í opnunarveisl- unni. Má þar nefna Simma og Jóa, Steinunni Valdísi Óskarsdóttur og Vil- hjálm H. Vilhjálms- son lögmann, svo aðeins örfáir séu nefndir. Halldór J. og ríkið í eina sæng n Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, hefur verið í fréttum í vikunni í ljósi þess að riftunarmáli slitastjórnar Lands- bankans vegna 100 milljóna króna greiðslu á séreignarlífeyrissparnaði til hans rétt fyrir hrunið 2008 var vísað frá dómi. Bankastjórinn fyrrverandi býr í Kanada um þessar mundir þar sem hann starfar hjá þarlendu fjár- málafyrirtæki, Cash Store Financial. Athygli vekur að á heimasíðu fyrirtækisins er Halldór kynntur sem „fyrrverandi forstjóri í evrópskum banka“. Enn frekar vekur athygli að fyrirtæki Halldórs er einn aðal- styrktaraðili íslensks menningarátaks sem fram fer í Manitoba í Kanada um þessar mundir. Á heimasíðu átaksins er merki Cash Store Financial við hliðina á skjaldar- merki Íslands en ís- lenska ríkið styrkir verkefnið sömu- leiðis. Segja má að eina merkið sem vanti á síðuna til að fullkomna myndina sé merki Icesave- reikninga Lands- bankans. Ævintýralegur Tryggvi n Fréttir þess efnis að Jón Gunn- arsson og Tryggvi Þór Herbertsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, hafi gengið á milli auðmanna hér á landi til að reyna að fá þá til að fjárfesta í gullleit í Kólumbíu eftir hrunið 2008 hefur vakið talsverða athygli. Tvímenningarnir munu hafa unnið að málinu fyrir hönd erlends kaupsýslumanns. Fréttin er enn ein rósin í hnappagat Tryggva Þórs Herbertssonar sem á síðustu árum hefur ekki talið neitt mannlegt vera sér óviðkomandi. Hann hefur kennt í Háskóla Íslands, biðlað til Björgólfs Guðmundssonar eftir kostaðri prófess- orsstöðu, fengið kúlulán og tekið lán hjá eigin einkahlutafélagi, stýrt ævintýralegum fjárfestingarbanka, verið efnahagsráð- gjafi Geirs H. Haarde í efnahagshruninu á meðan hann var á launum og á bíl frá Askar Capital og að lokum setið á Alþingi Ís- lendinga. „Þetta var líka svona þegar ég tók við af Gísla, þá var fólk sem vildi bara fá Gíslann sinn aftur og allt þetta,“ segir sjónvarpsmaðurinn Sigmar Guðmundsson sem síðustu fimm ár hefur verið Eurovision-rödd ís- lensku þjóðarinnar og þótt ómiss- andi við það tilefni á ári hverju. Í ár er hann fjarri góðu gamni og við kefl- inu er tekin Hrafnhildur Halldórs- dóttir, samstarfskona Sigmars hjá RÚV. Hún hefur ekki farið varhluta af gagnrýni eftir undanúrslitin, sem Sigmar segir ómaklega, og augljóst að margir sakna Sigmars og kald- hæðinna brandaramola hans í kynn- ingum og eftir flutning laganna. „Jú, auðvitað þykir manni vænt um það, en mér finnst hins veg- ar Hrafnhildur standa sig feykilega vel,“ segir Sigmar og ver arftaka sinn í hlutverkinu. Hann bendir á að þetta sé hennar fyrsta keppni sem sé ein- hver sú erfiðasta sem hægt sé að lýsa þar sem á fyrra undanúrslita- kvöldinu hafi hljóðtruflanir og ann- að vesen sett strik í reikninginn. „En fólk verður að fá tækifæri til að venj- ast hlutverkinu. Þetta er smá kúnst að komast inn í þetta og mér fannst hún gera þetta vel í fyrstu keppninni og er að gera þetta enn betur núna [á seinna undanúrslitakvöldinu á fimmtudagskvöld].“ Sigmar hafði sinnt Eurovision- starfinu í fimm ár í röð en þar á und- an var Gísli Marteinn Baldursson í búrinu. „Á nokkurra ára fresti er skipt um þuli, það er gangur lífsins, það á enginn að vera eilífur í þessu,“ segir Sigmar og bendir á að sama hafi verið upp á teningnum þegar hann tók við af Gísla og einnig þeg- ar Gísli tók við af forvera sínum. „Svo eftir nokkur ár vill fólk pottþétt halda Hrafnhildi áfram.“ Almennt séð er Sigmar, sem er mikill áhugamaður um Eurovision, bjartsýnn á gengi Íslands á laug- ardagskvöld og spáir því að Vinir Sjonna endi í kringum tíunda sæti. „Það væri mjög góður árangur.“ mikael@dv.is Sigmar ver arftaka sinn í Eurovision-búrinu: „Líka svona þegar ég tók við“ Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HelgarblaÐ 13.–15. maí 2011 55. tbl. 101. árg. leiðb. verð 595 kr. Stendur sig vel Sigmar segir Hrafnhildi standa sig vel. Honum hafi nú ekki heldur verið tekið opnum örmum á sínum tíma. mynd RÓBeRT ReyniSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.