Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1958, Blaðsíða 47
Iðnaðarskýrslur 1953
45*
iðnaðardeild Áfengisverzlunariunar) eru drjúgur hluti vinnsluvirðisins í þeim grein-
um. í 4 greinum er hlutdeild vinnulaunanna í vinnsluvirðinu hins vegar yfir 80°/0,
þ. e. í skóviðgerðum, framleiðslu ýmissa fullunninna vefnaðarmuna, gleriðnaði og
málmsmíði annarri en flutningstækja- og rafmagnstækjagerð.
Að öðru leyti vísast til töflu XVII sjálfrar með sundurgreiningu vinnsluvirðis
og skiptingu eftir iðnaðargreinum.
9. Tryggðar vinnuvikur við byggingarstarfsemi, rafmagns- og gasframleiðslu.
Insured ivorhing weeks in construction, and in production of electricity and gas.
Á bls. 78 í iðnaðarskýrslum 1950 er yfirlit um tryggðar vinnuvikur við námu-
vinnslu, byggingarstarfsemi og rafmagns- og gasframleiðslu hvert áranna 1947—
1950, en iðnaðarskýrslusöfnunin 1950 tók að öðru leyti ekki til fyrirtækja í þessum
greinum. í 14. yfirliti í þessum inngangi eru sams konar tölur fyrir árin 1951—55.
Námuvinnslunni er þó sleppt, þar sem hún er nú talin til iðnaðar í grein 339. Þá
er nú ekki greint á milli Reykjavíkur og annarra landshluta, enda er slík aðgrein-
ing torveld, þar sem margir opinberir aðilar og stór fyrirtæki í byggingariðnaði
telja fram slysatryggðar vinnuvikur í Reykjavík, þótt mikill hluti starfseminnar
fari fram utan Reykjavíkur. Fjöldi tryggingarskyldra aðila er nú ekki heldur birtur,
enda hefur hann litla þýðingu.
Ymissa hluta vegna eru þessar tölur ekki nákvæmar, en þó eiga þær að gefa
sæmilega góða mynd af heildarþróuninni þessi ár. Hvorki skrifstofufólk né afgreiðslu-
fólk er talið með, og eigin vinna liúsbyggjenda, sem mun vera mikil á þessum árum.
kemur ekki fram, enda ekki um slysatryggt vinnuafl að ræða.
Hér verður látið nægja að vísa til Iðnaðarskýrslna 1950 um upptalningu á þeim
störfum, sem falla undir hverja grein I yfirliti 14. Þó skal þess getið, að tryggðar
vinnuvikur við framkvæmdir innlendra verktaka fyrir varnarliðið á Keflavíkur-
flugvelli og í öðrum varnarliðsstöðvum eru taldar með í yfirhtinu, en liins vegar
ekki tryggðar vinnuvikur við framkvæmdir unnar af erlendum verktökum varnar-
liðsins, sem mikið kvað að fram að árinu 1955. Tryggðar vinnuvikur við önnur
14. yfirlit. Tryggðar vinnuvikur verkafólks við byggingarstarfsemi, rafmagns- og
gasframlciðslu 1951—55, eftir greinum.
Aðalgr. nr. | Undirgr. nr. English translation of items below on p. 82. Heiti 1951 1952 1953 1954 1955
Flokkur 4. Byggingarstarfserai 188 846 180 644 194 128 218 802 273 721
41 410 Vega- og brúacerð 29 567 28 220 27 055 30 150 31 939
42 420 Hafnagerð og vitabyggingar 6 136 5 762 5 860 5 693 5 978
43 430 BYCeing raforkuvera og símalagning .. 26 385 29 832 27 832 26 684 20 376
44 440 Húsagerð og viðgerðir 109 608 102 210 117 060 136 112 198 456
45 450 önnur og ótilgreind byggingarstarfsemi 17 150 14 620 16 321 20 163 16 972
Flokkur 5. Starfræksla rafmagns- og gas-
veitna 7 612 7 762 7 777 8 097 7 940
51 511 Framleiðsla og dreifing raforku 7 191 7 406 7 482 7 841 7 732
51 512 Framleiðsla og dreifing gass 421 356 295 256 208