Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Blaðsíða 8
„Við viljum vita með óyggjandi hætti hvernig þeir náðu efninu,“ segir Arnþrúður Karlsdóttir, út- varpsstjóri Útvarps Sögu, sem seg- ir það liggja fyrir að fjölmiðlavakt- in hafi fénýtt sér efni stöðvarinnar í fullkomnu heimildarleysi og selt það til þriðja aðila. Þessu neitar framkvæmdastjóri Fjölmiðlavaktarinnar. Grunsemd- ir hafa vaknað meðal starfsmanna Útvarps Sögu að farið hafi verið í gegnum tölvur stöðvarinnar og velta forsvarsmenn hennar nú fyrir sér að leita réttar síns. Samningur eða ekki samningur? „Málið er einfalt. Við erum með dagskrá hér á Útvarpi Sögu allan sólarhringinn og Fjölmiðlavaktin selur efni frá fjölmiðlum. Þeir hafa stöku sinnum, sjaldan þó, pantað þætti hjá okkur þar sem þau eru ekki með neinn samning við okkur upp á vöktun,“ segir Arnþrúður Karls- dóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu. Forsvarsmenn stöðvarinnar segja Fjölmiðlavaktina hafa ítrekað stolið efni af stöðinni og selt áfram, þar á meðal til ráðuneytanna. „Ég er búin að fá það uppgefið hjá ráðuneytun- um að þau séu með samning við Fjölmiðlavaktina sem greitt er fyrir mánaðarlega. Við erum ekki með samning um vöktun og því viljum við fá uppgefið hvað það er sem þeir eru búnir að vera að selja.“ Rakel Sveinbjörnsdóttir, fram- kvæmdastjóri Fjölmiðlavaktar- innar, segir engan slíkan samning vera til staðar. „Það er reyndar ekki þannig að við séum með samn- ing við ráðuneytin,“ segir Rakel, og fullyrðir að leitað hafi verið undir hverri þúfu til að leiða það fram í dagsljósið sem Útvarp Saga heldur fram að eigi sér stað. „Við bara finn- um það ekki,“ segir Rakel en viður- kennir að upp hafi komið atvik þar sem efni var vaktað án leyfis og selt, það hafi hins vegar verið leiðrétt. Misskilningur ekki undanskot „Það sem gerðist er að í gegn- um árin hefur það verið þannig að ef viðskiptavinur hefur sérpantað efni frá Útvarpi Sögu hefur það ver- ið pantað hjá þeim. Það er síðan af- hent á diskum og við greiðum fyr- ir hverja pöntun í hvert sinn. Síðan gerist það fyrir þó nokkru að fyrir misskilning hér innanhúss að það eru einhverjar pantanir afgreidd- ar þannig að hlustað var á tiltek- inn þátt og það unnið á gamla mát- ann. Það var ekki gert til að komast framhjá einhverjum greiðslum. Það var ekki nógu skýrt hér innan- húss að Útvarp Sögu ætti að vinna á annan hátt. Þess vegna fór þetta fyrir slysni framhjá okkur,“ segir Rakel spurð um meintan þjófnað. Hún segir að þegar málið kom upp hafi verið farið í að taka saman lista yfir allt sem unnið hafði verið til að leiðrétta hvað bæri að greiða fyrir. Þessu vilja Arnþrúður og Útvarp Saga ekki una og segja upphæðina sem boðin var vera allt of lága, auk þess sem tveimur útgáfum þessara yfirlitslista sem fengist hefðu hafi ekki borið saman. „Það segir okk- ur einfaldlega að bókhaldið er ekki í lagi hjá þeim. Það er talið til verð- mæta á ljósvakamiðlum það efni sem er til. Þetta eru heilmikil verð- mæti og Fjölmiðlavaktin selur þau,“ segir Arnþrúður. Fénýta dagskrárgerðina „Við viljum vita með óyggjandi hætti hvernig þeir náðu efninu, því það er hegningarlagabrot að stela hugverki með þessum hætti. Það er í raun vera að fénýta sér okkar dagskrárgerð. Við erum ósátt við að þeir sýni ekki það efni sem farið hefur í ráðuneytin. Við viljum fá að vita hvernig þeir náðu efninu, því hafa þau ekki getað svarað nema að mjög litlu leyti með óásættanlegum skýringum. Þau vilja ekki segja hvað hefur farið í ráðuneytin á þessum fjórum árum. Við vorum með gríð- arlega mikla pólitíska umfjöllun í kringum síðustu tvennar kosningar og á að segja mér að það hafi ekki verið beðið um efni í kringum þess- ar kosningar?“ spyr Arnþrúður. Þessa kröfu segir Rakel ekki vera nógu skýra frá forsvarsmönnum útvarpsstöðvarinnar. „Við vitum ekki hvað þau eru að biðja um. Við höfum mælst til þess að þau leggi fram hvað það er sem þau eru að tala um. Við getum ekki gert upp eitthvað sem við vitum ekki hvað er,“ segir Rakel Sveinsdóttir og ít- rekar að allt liggi á borðinu af hálfu Fjölmiðlavaktarinnar í málinu. Málið í hnút Lögfræðingar beggja aðila hafa sest niður og rætt málin en að sögn Arnþrúðar er málið í hnút og hefur verið frá í byrjun ágúst. Mikill reiði er meðal starfsmanna Útvarps Sögu vegna málsins en grunsemdir hafa jafnvel vaknað í mesta æsingnum að farið hafi verið í gegnum tölvur stöðvarinnar til að ná í efni. „Það eru vissar grunsemdir uppi, en við viljum að lögreglan rannsaki hvernig þeir fóru að þessu, ef hitt reynist satt er það háalvarlegt mál,“ segir Arnþrúður að lokum. föstudagur 26. september 20088 Helgarblað DV Mikil reiði er meðal aðstandenda Útvarps Sögu sem saka Fjölmiðlavaktina um að fénýta sér dagskrárgerð stöðvarinnar. Þau vilja svör við hvaða efni hafi farið frá stöðinni og hvernig Fjölmiðlavaktin komst yfir það. Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlavaktarinnar, segir málið byggt á misskilningi en kröfur Útvarps Sögu vera óljósar. ÚTVARPSSTJÓRI VILL LEITA RÉTTAR SÍNS „Þetta eru heilmikil verðmæti og þau selja þau.“ SiguRðuR Mikael jónSSon blaðamaður skrifar: mikael@dv.is Rænt úr loftinu arnþrúður Karlsdóttir sakar fjölmiðlavaktina um að hafa stolið dagskrárgerð stöðvarinnar og selt hana áfram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.