Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Blaðsíða 18
föstudagur 26. september 200818 Helgarblað
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4
„Ég var svældur út úr sveitarfélag-
inu,“ segir hinn 49 ára Bolvíkingur,
Svanur Elíasson, sem kom aftur á sín-
ar æskuslóðir í Bolungarvík í október
í fyrra. Hann hafði búið þar í hálft ár
þegar hann missti íbúðina sína hjá
bænum. Hann segir aðila innan bæj-
arstjórnar hafa gert allt sem í þeirra
valdi stóð til þess að koma honum út
úr íbúðinni og sveitarfélaginu.
Svanur var dæmdur í fangelsi fyr-
ir manndráp árið 1986 og sat í fang-
elsi í sex ár. Hann hefur undanfarið
skrifað pistla á vefsíðuna bb.is sem
hafa vakið mikla athygli en þar hef-
ur hann meðal annars sagt að sum-
ir bæjarbúar hafi snúist gegn hon-
um vegna fortíðar hans. Svanur segir
niðurlæginguna hafa verið mikla. Í
dag býr hann í húsbíl sínum á höfuð-
borgarsvæðinu.
Borinn út
Svanur fékk úthlutað íbúð á leigu
hjá sveitarfélaginu þegar hann kom
til Bolungarvíkur í október í fyrra.
Langur tími hafði liðið frá því að
hann fluttist þaðan en hann ætlaði
sér að setjast þar að og njóta þess
að búa á æskuslóðunum. Hann seg-
ir að fljótlega hafi honum orðið ljóst
að ákveðin öfl í bænum vildu hann
burt. 23. nóvember fékk hann senda
aðvörun frá bæjarstjórn þess efnis að
hann ylli ónæði í húsinu. Svanur seg-
ir nágranna sína aldrei hafa kvart-
að en hann hafi í kjölfarið gengið á
milli íbúða til þess að biðjast afsök-
unar ef hann hefði valdið einhverju
JÓN BJARKI MAGNÚSSON
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
FLÆMDUR AF ÆSKUSLÓÐUM
Langar heim svanur elíasson vill fara
aftur til bolungarvíkur en hann er viss
um að hann yrði flæmdur í burtu.
Svanur Elíasson ætlaði sér að setjast að á
æskuslóðum sínum í Bolungarvík. Hann
segir marga bæjarbúa hafa snúist gegn
honum vegna glæps sem hann framdi fyrir
22 árum. Eftir sex mánuði í bæjarfélaginu
missti hann íbúðina hjá bænum og hafði
ekki efni á að leigja á almennum markaði.
Bærinn vildi bera hann út en tapaði mál-
inu fyrir dómstólum.