Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2008 25Fókus Hvað er að GERAST? Leikritið Viðtalið í uppsetningu Draumasmiðjunnar verður sýnt í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu í kvöld, föstudagskvöld, klukkan 20. Sýn- ingin er í tilefni Dags heyrnarlausra sem haldinn er hátíðlegur um allan heim þennan dag. Þetta er í fyrsta skipti sem döff-leikhússýning er flutt í Þjóðleikhúsinu en döff-leik- hús er leikhús heyrnarlausra sem byggir á menningu þeirra og máli. Verkið var frumsýnt í Hafnar- fjarðarleikhúsinu árið 2006. Það er flutt bæði á íslensku og á táknmáli og fjallar um mæðgur sem eru að fara í viðtal þar sem dóttirin er orð- in fræg leikkona í útlöndum. Dótt- irin er heyrnarlaus og móðirin tal- ar ekki táknmál og því má segja að þær mæðgur hafi í raun aldrei talað saman. Í viðtalið er boðaður túlk- ur en þegar blaðamaðurinn kemur ekki byrja þær mæðgur að spjalla saman með aðstoð túlksins. Leik- arar í sýningunni eru þær Soffía Jakobsdóttir, Elsa Guðbjörg Björns- dóttir, Árný Guðmundsdóttir, Tinna Hrafnsdóttir og Berglind Stefáns- dóttir. Bæði Elsa og Berglind eru heyrnarlausar (eða döff) og flytja sinn texta á táknmáli en Árný Guð- mundsdóttir túlkar bæði talaðan og táknaðan texta. Höfundar verks- ins eru Laila Margrét Arnþórsdóttir og Margrét Pétursdóttir sem einnig er leikstjóri. Aðeins er um að ræða þessa einu sýningu. Leikritið Viðtalið verður sýnt í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu í kvöld: FyRSTA DÖFF-SýninGin föstudagur n Fönkveisla á Vegamótum Það verður blússandi fönkveisla á Vegamótum í kvöld er Mr. Gorillafunk þeytir skífunum fyrir sjóðandi heitt dansgólfið. Við skulum samt vona að hann sé ekki loðinn. Fjörið hefst á miðnætti. n Dalton á Players Það verður heldur betur fjör á Players í kvöld þegar gleðisveitin Dalton stígur á svið. Þeir er þekktir fyrir frábæra sviðsframkomu og byrjar ballið klukkan 12.30. Ekki gleyma dansskónum. n Eldur og ís Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur stórtónleika í kvöld sem bera nafnið Eldur og ís. Þar sem áhorfendur fá að heyra verk sex íslenskra tónmeistara. Tónlistarunn- endur ættu ekki að láta þessa tónleika framhjá sér fara. n Töfrandi tónlist Dj Magic betur þekktur Gísi Galdur heldur upp stuðinu á Kaffibarnum í kvöld. Hann mun kalla fram seiðandi tóna langt fram eftir nóttu og byrjar stuðið rétt fyrir miðnætti. n Dj Yamaho og Dj Sexy Lazer Það verður eintóm gleði á Q-Bar í kvöld, en Dj yamaho og Dj Sexy Lazer betur þekktur sem Jón Atli kokka upp brilljant stemn- ingu. Ballið byrjar á miðnætti. laugardagur n Konupartí á Q-Bar Það verður glæsilegt konupartí á Q-bar í kvöld á milli 22 og miðnættis. Karlmenn komast ekki inn fyrir dyrnar. Síðan tekur Dj Glimmer við og er bókað mál að hann spilar glymrandi tónlist alla nóttina. n Retro Stefson á Kaffibarnum Hljómsveitin Retro Stefson efnir til heljarinnar tónleika á Kaffibarnum í kvöld og hefur hún leik klukkan 21.30. Síðan tekur Dj Alfons X við og klárar kvöldið. n Hip-hop og fönk á 22 Það verður brjáluð stemning á 22 um helgina. Dj Danni Deluxxx fær gesti til að hrista á sér rassinn á fyrstu hæð og á annarri hæð er það Dj Funky Flavor sem kitlar bragðlaukana. n Rokk og ról á Prikinu Ultra mega teknó bandið Stefán gerir allt brjálað á Prikinu í kvöld. Tónleikarnir hefjast klukkan 22. Síðan eru það Dj Addi intro og Benni B Ruff úr Forgotten Lores sem taka við. n Glutimus Maximus á Dátanum Fyrsta Domus Technika kvöldið verður haldið í kvöld á Dátanum á Akureyri. Það er enginn annar en Jack Schidt og President Bongo sem sjá um stemninguna þetta kvöldið og ganga þeir undir nafninu Glutimus Maximus. Einnig munu Sexy Lazer og Dj Casanova bregða fyrir. Allir að taka á því. ...GLERKaSTaLanuM eftir Jeannette Walls. Vekur mann til umhugsunar og skilur eftir sig þakklæti í hjartanu. m æ li r m eð ... ...aFDRiFuM HaFSKiPS eftir Stefán Gunnar Sveins- son. Skilmerkileg yfirsýn yfir Hafskipsmálið. ...SVaRTnæTTi eftir Michael Connelly ...PinEaPPLE ExPRESS Virkilega fyndin mynd. m æ li r eK Ki m eð ... ...MiRRoRS Er hrottaleg á köflum en heldur ekki út. einleikari eða í tríóum eða kamm- ergrúppum eða einhverju svoleiðis. Fiðlan er líka mikið notuð í popp- tónlistinni í dag svo það getur vel verið að ég endi í einhverri popp- hljómsveit.“ Krissý segist ekki eiga sér neina fyrirmynd í fiðluleik en á sér þó uppáhaldsfiðluleikara. „Hún er poppari sem spilar á rafmagnsfiðlu og heitir Vanessa Mae. Mér finnst hún mjög flott. Annars get ég ekki beint sagt að ég eigi mér neina fyrirmynd þótt ég líti auðvitað upp til kennaranna minna.“ Sjálf segist Krissý hlusta á alla tónlist, allt frá poppi yfir í klass- ík. „Ég hlusta mikið á FM957 og fíla eiginlega alla tónlist. Hins veg- ar er hljómsveitin Hjaltalín uppá- haldshljómsveitin mín. Ég þekki tvo krakka í sveitinni og það er svo gaman að sjá hvað þeim gengur vel. Svo finnst mér voðalega þægi- legt að hlusta á eitthvað klassískt þegar ég er uppi í rúmi að slaka á. Ég hlusta samt ekki jafnmik- ið á tónlist í dag og ég gerði þeg- ar ég var krakki. Í Zuzuki-náminu neyddist ég til dæmis til þess að hlusta á klassíska tónlist í tvo tíma á dag. Það var frekar þreytandi og eiginlega það leiðinlegasta við námið.“ Langaði að hætta þrettán ára Eins og gefur að skilja getur verið ansi strembið að vera ungl- ingur á fullu í tónlistarnámi og ná þannig ekki að sinna öllu því fé- lagslífi sem í boði er á unglingsár- unum. Því eru margir sem flosna upp úr tónlistarnámi á þeim árum og segir Krissý að það hafi komið upp sá tímapunktur að hún hafi viljað hætta fiðlunáminu. „Það eru rosalega margir sem hætta í fiðlunámi milli þrettán og fimmtán ára aldurs því það er svo mikið að gera að krakkar nenna því ekki. Það kom sá tímapunkt- ur þegar ég var þrettán ára að mig langaði til að hætta. En þegar ég byrjaði svo hér í tónlistarskólan- um og fékk nýja kennara og byrj- aði að æfa svona stór verk fékk ég viljann aftur. Þetta varð einhvern veginn aftur alveg rosalega gaman og er það ennþá,“ segir hún sátt í bragði. Krissý segir að enginn í fjöl- skyldunni sé í tónlist og hafi aldrei verið neinn þrýstingur á hana frá fjölskyldunni að halda áfram í tón- listarnáminu. „Fiðlan hefur allt- af verið algjörlega mitt mál og ég ræð því alveg hvað ég vil gera með námið. Ef ég vil hætta þá hætti ég, þetta er alveg minn vilji.“ alls ekkert stressuð Í fyrra tók Krissý þátt í kons- ertkeppni Tónlistarskólans og sér til mikillar undrunar sigraði hún í keppninni. „Keppnin er haldin á hverju ári og það eru alltaf mjög margir krakkar sem taka þátt. Ég var bara á öðru árinu mínu og varð mjög hissa þegar ég vann. Ég spil- aði fyrsta kaflann í fiðlukonsert í G-moll eftir Max Bruch. Keppn- in er alltaf haldin á haustin og sá sem sigrar fær svo að spila með HTR, hljómsveit Tónlistarskól- ans í Reykjavík, á vortónleikum. Hljómsveitin er eins og sinfóníu- sveit að stærð. Ég átti sem sagt að spila í vor en tónleikunum var frestað því allir voru í prófum á þeim tíma. Ég spila einleik á tónleikunum en hljómsveitin er í bakgrunni. Þetta er alveg rosalega gaman og hljóm- sveitin stendur sig ótrúlega vel,“ segir Krissý sem kveðst síður en svo stressuð fyrir tónleikana. „Nei, nei, ég er alls ekkert stressuð. Ég er alveg undirbúin og búin að æfa mig mjög mikið mið- að við vanalega fyrir þessa tón- leika því ég er búin að vita af þeim svo lengi. Ég er líka búin að vinna verkið miklu betur en þegar ég átti upphaflega að flytja það í vor svo það er bara orðið miklu betra því ég fékk þennan aukatíma.“ Tónleikarnir fara fram í Nes- kirkju laugardaginn fjórða októb- er og hefjast klukkan fimm. „Það eru allir velkomnir á tónleikana og það er frítt inn.“ krista@dv.is ...STEaK anD PLaY Fyrsta flokks sportbar en mætti taka til í eldhús- inu. Með ísbíl í fiðlutíma Hin fimmtán ára Krissý Thelma Guðmunds- dóttir hefur þrátt fyrir ungan aldur getið sér gott orð sem upprennandi fifðluleikari og lýkur áttunda stigi í fiðluleik frá Tónlistar- skóla Reykjavíkur í vor. Krissý sigraði í ár- legri konsertkeppni Tónlistarskólans á síðasta ári og kemur því fram með skóla- hljómsveitinni á tónleikum í Neskirkju laugardaginn 4. október þar sem má með sanni segja að hún verði stjarna sýn- ingarinnar. Tvítyngd sýning Textinn er fluttur bæði á íslensku og á táknmáli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.