Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Blaðsíða 37
Elín Hirst hefur starfað á fjölmiðl- um í tæpan aldarfjórðung. Fjörurnar títtnefndu sem hún hefur sopið eru því orðnar margar. Nýjasta fjaran ef svo má segja eru breytingarnar sem áttu sér stað á Ríkisútvarpinu á dög- unum þegar fréttastofur stofnunar- innar voru sameinaðar í eina. Elín hafði verið fréttastjóri Sjónvarpsins í sex ár en þegar tilkynnt var um sam- eininguna í síðustu viku kom í ljós að henni var ekki ætlað sama hlutverk og áður. Óðni Jónssyni, fréttastjó- ra Útvarpsins, var boðin staða frétta- stjóra hinnar sameinuðu fréttastofu sem hann þáði. Það er því eðlilegt að spyrja Elínu fyrst hvort hún líti svo á að henni hafi verið sagt upp. „Já, vegna þess að starfið var lagt niður þar sem það voru tvö störf en verður bara eitt. Þá var annaðhvort að hafa tvo fréttastjóra eða velja ann- an þeirra. Það er kannski ekki tal- ið sniðugt að hafa tvo fréttastjóra því það verður að vera einn skipstjóri í brúnni.“ Elín segir sameininguna annars horfa vel við sér. „Ég held að í þessu felist gríðarleg tækifæri fyrir RÚV til að bæta og auka fréttaþjónustuna. Ég veit til dæmis að menn ætla sér- staklega að setja meiri kraft í ruv.is. Netfjölmiðlun er auðvitað framtíð- in í fjölmiðlun. Ég fór á ráðstefnu í vor þar sem meðal annars var fjallað um hvernig fjölmiðlar ættu að haga sér. Þar kom fram að það þýði ekki að segja: „Við erum í þessu og ætl- um ekki að vera í öðru.“ Þú verður að haga þér eftir fólkinu, eftir neytand- anum. Og neytandinn er í síauknum mæli farinn að nota netið og þá verð- um við náttúrlega að laga okkur að því mynstri. Sjónvarp, útvarp og netið eru líka í raun farin að renna saman í eitt. Ég held því að í sameiningunni séu fólgin mikil sóknartækifæri.“ Kölluð á fund útvarpsstjóra Elín fékk að vita af sameiningunni mánudaginn 15. september, daginn áður en tilkynnt var um hana opin- berlega. En hún segist hafa vitað af því í nokkurn tíma að menn væru að hugsa þessi mál. „Svo fékk ég allt í einu að vita að búið væri að ákveða þetta og jafnframt að Óðinn Jóns- son myndi stýra hinni sameiginlegu fréttastofu.“ Þetta tilkynnti Páll Magn- ússon útvarpsstjóri Elínu á fundi þeirra þennan mánudag. Hvernig varð þér við? „Mér brá,“ segir Elín og gerir stutta málhvíld. „Ég hefði sjálf viljað leiða sameiningu fréttastofa RÚV. Ég er mjög metnaðarfull og með áralanga reynslu sem fréttastjóri og því hefði verið mjög skrítið ef ég hefði ekki orðið fyrir vonbrigðum.“ Elín spurði hvers vegna henni byðist ekki starfið og segir að Páll hafi komið með sín- ar skýringar á því. Hún vill hins veg- ar ekki fara út í þær í smáatriðum þar sem um tveggja manna tal var að ræða. „En þetta er bara töff heimur og þegar menn velja svona eru þeir ekki að því til að vera vondir við einhvern eða hefna sín á einhverjum. Þeir eru bara að gera það sem þeir trúa að sé best fyrir fyrirtækið. Ef ég er ekki sam- mála því, þá er það bara þannig. Þessi heimur er svona.“ Spurð hvort hún viti hvort ákvörð- unin um að bjóða Óðni starfið sé al- farið tekin af útvarpsstjóra segist Elín ekki vita það fyrir víst. Væntanlega þurfi hann þó að bera málið undir stjórn RÚV ohf. Hvaða stuðning ná- kvæmlega hún eða Óðinn höfðu hjá einstaka stjórnarmönnum er Elínu ekki kunnugt um. Útvarpsstjóri bauð Elínu að vera áfram við störf hjá RÚV, bæði við lest- ur kvöldfrétta og þáttagerð sem nánar verður vikið að á eftir, og þáði hún það að íhuguðu máli. Hefði viljað fá stöðuna Aðspurð hvort með sameingunni sé ekki verið að fórna fjölbreytileika í fréttaflutningi RÚV kveðst Elín ekki líta svo á. „Ég var einu sinni í nefnd á vegum Ríkisútvarpsins – þetta var fyrir svona tíu árum – þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að ekki væri sniðugt að sameina fréttastofurn- ar,“ segir hún og bætir við að þá hafi ruv.is ekki verið komið til sögunn- ar. „Þetta væru svo sterk vörumerki. Þetta væri svipað og að vera með kók og pepsí, sem báðir eru rosalega vin- sælir drykkir, og hvers vegna ætti þá að reyna að sameina þá. Þannig var þetta þá með fréttastofurnar en nú hefur þetta breyst. Það er kominn nýr miðill um leið og útvarpið hefur gefið eftir í fréttahlustun. Forsendurnar eru því breyttar. Það sem mér fannst rangt að gera fyrir tíu árum finnst mér rétt að gera í dag.“ Páll Magnússon tók við starfi út- varpsstjóra af Markúsi Erni Antons- syni árið 2005. Elín segir samskipti þeirra hafa verið mjög góð á þessum þremur árum og raunar allt frá því þau kynntust í fjölmiðlabransanum fyrir margt löngu. „Við Páll byrjuð- um að vinna saman á Stöð 2 árið 1988 þegar hann var fréttastjóri þar og réð mig inn sem fréttamann. Hann er frá- bær fréttastjóri og ofboðslega gaman að vinna með honum. Ég steig þarna mín fyrstu skref í sjónvarpi undir hans leiðsögn og tókst með okkur vinátta sem hefur eiginlega haldist alveg síð- an.“ Hvernig er andrúmsloftið á milli ykkar eftir atburðina á dögunum? „Ég finn ekki neinn mun,“ seg- ir Elín. Og hún kveðst ekki líta á það sem trúnaðarbrest þeirra á milli að Páll hafi tekið Óðin fram yfir. „Ég er ekki æviráðin sem fréttastjóri Sjón- varpsins. Ég er ekki að skafa utan af því að ég hefði viljað gera þetta og er því ósammála valinu, en hvað get ég gert? Maður má heldur ekki blanda saman faglegum hlutum og per- sónulegum samskiptum. Og ég kýs að vinna áfram á RÚV af því að mér finnst það einfaldlega góður fjölmiðill og mikið í hann spunnið faglega. Þar fyrir utan líður mér mjög vel þar. Nú kemst ég líka aftur niður á gólf að gera það sem mér finnst skemmti- legast, að búa til efnið, í stað þess að búa til vaktatöflur, sitja fundi, hugsa um fjármál og fleira. Ég sé því í þessu skemmtilegt tækifæri; ég er aftur orð- in fréttamaður. Ég breytti líka strax undirskriftinni í tölvupóstinum mín- um, úr fréttastjóri í fréttamaður. Það var ekkert mál,“ segir Elín og brosir. Rekin frá Stöð 2 Elín segist hafa unnið með öðru fólki sem sagt var upp í sínum yfir- mannastöðum en hélt samt áfram að vinna á RÚV. Gott dæmi sé Bogi Ágústsson. „Ég tek hann mér til fyr- irmyndar í því,“ segir hún og vís- ar þar til þess þegar starf yfirmanns fréttasviðs var lagt niður fyrir fáein- um misserum. Hann sagði að þetta væri hans fag, honum liði vel hérna og langaði miklu meira að vinna við fréttaöflun og viðtöl, eins og hann er að brillera í núna, en að sitja á fund- um allan liðlangan daginn, taka erfið- ar ákvarðanir og vera upp fyrir haus í starfsmannamálum. Kannski kemur eitthvað gott út úr þessum breyting- um fyrir mig eins og hann.“ Elín var rekin úr starfi fréttastjóra Stöðvar 2 árið 1996. „Þá var ég eigin- lega rekin á dyr af Jóni Ólafssyni, þá- verandi forstjóra. Hann sagði náttúr- lega ekki: „Þú skalt bara fara,“ en mér var gert ljóst að það væri ekki ósk- að eftir starfsframlagi af minni hálfu lengur. Uppsögnin tók því gildi strax og ég fékk greiddan þriggja mán- aða uppsagnarfrest. Ég upplifði það sem mikinn sársauka fyrst. En síðan leiddi það svo gott af sér. Ég gerði tvær heimildarmyndir, starfaði á DV í eitt ár og byrjaði svo á RÚV sem óbreytt- ur fréttamaður 1998. Mér gekk því rosalega vel að stíga niður af hásæt- inu. Núna er ég að gera það aftur og veit hvernig það er og veit að það get- ur haft afar góða hluti í för með sér.“ Þess má geta að Páll Magnússon var ráðinn í starf fréttastjóra í framhald- inu, en Elín segir hann þó hvergi hafa komið nærri uppsögn hennar þá. Elín tók sér einn sólarhring í að velta fyrir sér hvort hún ætti að þiggja boð útvarpsstjóra um að halda áfram á RÚV. „Ég ræddi þetta við manninn minn og hann studdi mig í minni ákvörðun. Synir mínir tveir sem báðir eru komnir yfir tvítugt voru líka með í ráðum og réðu mér heilt. Svo talaði ég einnig við foreldra mína. Það er allt- af mikið mál þegar svona breytingar verða og ég vildi því heyra sjónarmið þeirra sem bera mína hagsmuni fyrir brjósti.“ Þreytt á samsæriskenningum Þegar kunngjört var að Óðinn ætti að leiða nýju fréttastofuna litu sumir á ráðningu hans sem pólitískan leik þar sem menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hefði haft hönd í bagga með að gengið var framhjá El- ínu. Ástæðuna sögðu samsæriskenn- ingasmiðirnir vera vinskap Elínar og Davíðs Oddssonar, seðlabankastjóra og fyrrverandi forsætisráðherra, en hinir sömu halda því fram að grunnt sé á því góða á milli Davíðs og Þor- gerðar Katrínar. „Ég hafna algjörlega slíkum get- gátum. Ég er orðin mjög þreytt á að eftir tuttugu og fimm ár í fjölmiðlum sé meintum tengslum mínum við Sjálfstæðisflokkinn alltaf stillt upp,“ segir Elín en hún var í flokknum á sín- um yngri árum. Hún sagði sig hins vegar úr honum árið 1984 þar sem henni fannst engan veginn fara sam- an að starfa við blaðamennsku og vera skráð í stjórnmálaflokk. „En þetta er alltaf sett upp eins og ég sé fyrst og fremst á vegum Sjálf- stæðisflokksins en ekki á mínum eig- in vegum sem fagmaður. Ég vil ekki vera með einhvern oflátungshátt en ég er viss um að það er sama hvern þú talar við af þeim sem hafa unnið með mér í gegnum árin, enginn myndi segja að ég sé hlutdrægur fréttamað- ur eða fréttastjóri fyrir hönd Sjálf- stæðisflokksins eða einhverja per- sónu innan hans. Sá sem er hlaupatík fyrir hagsmuni einhvers flokks, sam- taka eða hvaðeina, hann myndi aldrei endast í blaðamennsku. Blaðamenn þurfa fyrst og fremst að vera Heiðar- legir með stóru h-i og miðla sannleik- anum sem best þeir geta. Þá meina ég að þú gefur ekki einu sinni eitt pró- sent í afslátt. Aldrei. Þetta er erfitt, en þú ert ekki góður í þessu nema þú sért að gera nákvæmlega þetta.“ Ekki lofræða um Davíð Eiginmaður Elínar, Friðrik Friðriks- son, hefur starfað mikið innan Sjálf- stæðisflokksins sem ætla má að sé olía á eld kenningasmiðanna. Grein sem hún skrifaði í afmælisrit til heiðurs Davíð Oddssyni, sem honum var gefið þegar hann varð fimmtugur árið 1998, hefur einnig verið nefnd í þessu sam- hengi. Elín bendir á að umrædd grein snúist ekki á neinn hátt um Davíð eða hans persónu og geti því vart verið lof- ræða um hann eins og einhvers stað- ar hefur verið haldið fram. Þvert á móti sé greinin fræðilegs eðlis og fjalli um réttindi og skyldur fjölmiðlafólks, meðal annars mikilvægi þess að fjöl- miðlar sýni stjórnmálamönnum að- hald og nauðsyn þess að fréttamenn fái aðgang að upplýsingum. „Ég er heldur ekki svo vitlaus að ég færi að skrifa lofgjörð um einhvern stjórnmálamann,“ segir Elín og hlær. „Hvernig ætti ég að geta farið á minn vinnustað eftir það og fjallað um eitt- hvað sem tengist manninum? Ég hef heldur aldrei verið beðin um að skrifa slíka grein.“ Á gólfinu með undirmönnunum Samstarfsfólk Elínar á fréttastof- unni tók því með ró og stillingu að hennar sögn þegar breytingarnar voru kynntar. „Andrúmsloftið á fréttastof- unni hefur verið gott allan þann tíma sem ég hef starfað þar. Það er afskap- lega skemmtilegur og góður starfsandi þar. Ég á eftir að sakna þeirra mikið en kem væntanlega til með að vinna á gólfinu með þeim. Ég vona að ég eigi eftir að eiga góðar stundir með þeim sem jafningi, eins og ég átti sem yfir- maður.“ Elín er núna komin í rúmlega tveggja mánaða launað leyfi sem fé- lögum í Blaðamannafélaginu býðst að taka á nokkurra ára fresti. Hún hyggst nýta tímann meðal annars til að vinna í heimildarmynd sem hún og Ragnar Santos hafa verið að vinna að í hjá- verkum frá því síðasta sumar. Myndin fjallar um ættingja Elín- ar sem búa á Íslendingaslóðunum í Kanada og forfeður þeirra. Langalang- amma og -afi Elínar fluttu búferlum ásamt þremur dætrum vestur um haf árið 1875, eins og fjölmargir Íslend- ingar á þessum tíma. Boltinn byrjaði að rúlla þegar Elín sá mynd af íslensk- um vesturförum á Vesturfarasetrinu á Hofsósi í fyrrasumar sem henni fannst hún kannast við. Við eftirgrennslan komst hún að því að þetta voru forfeð- ur hennar. Stefnt er að frumsýningu myndarinnar næstu jól. Fréttaskýringaþáttur að fæðast Þann 1. desember mætir Elín aftur til starfa uppi í Efstaleiti. Þá hefst hún handa við gerð á nýjum fréttaskýringa- þætti sem að líkindum verður vikulega á dagskrá í Sjónvarpinu, sá fyrsti vænt- anlega í janúar. „Þetta er þáttur sem vantar rosalega í íslenska fjölmiðla- flóru. Kastljós hefur sinnt fréttaskýr- ingum að nokkru leyti en núna ætlum við að fara út í að gera skýrt afmark- aðan fréttaskýringaþátt einu sinni í viku. Kompás er auðvitað líka til stað- ar en við verðum í aðeins öðrum dúr en þau.“ Ætlarðu þá ekki að fara að taka upp handrukkara að störfum með földum myndavélum? „Jú, jú, enda var sú umfjöllun al- gjört þjóðþrifamál. En ég mun „taka RÚV á þetta“, svo ég sletti,“ segir Elín og hlær. „Þú getur fjallað um hvað sem brennur á þjóðinni, svo framarlega sem þú fjallar um það eftir ákveðnum reglum sem þú setur þér. Þú verður að segja frá báðum hliðum, sýna ákveð- inn skilning, umburðarlyndi og nálg- ast málið án „agenda“. Svo verður bara að koma í ljós hvernig mér tekst til.“ kristjan@dv.is föstudagur 26. september 2008 37Helgarblað „Ég ræddi þetta við manninn minn og hann studdi mig í minni ákvörð- un. Synir mínir tveir sem báðir eru komnir yfir tvítugt voru líka með í ráðum og réðu mér heilt.“ „Ég er ekki æviráðin sem fréttastjóri Sjónvarpsins. Ég er ekki að skafa utan af því að ég hefði viljað gera þetta og er því ósammála valinu, en hvað get ég gert?“ „Ég hafna algjörlega slíkum getgát- um. Ég er orðin mjög þreytt á að eft- ir tuttugu og fimm ár í fjölmiðlum sé meintum tengslum mínum við Sjálf- stæðisflokkinn alltaf stillt upp.“ Sex ár elín tók við fréttastjórastöðunni árið 2002 en hafði þá unnið á rÚV í fjögur ár. MynD HEiða HElgaDóttiR Páll Magnússon útvarpsstjóri elín segir samskipti þeirra páls hafa verið mjög góð allt frá því þau kynntust fyrir margt löngu. Það hafi ekkert breyst í kjölfar breytinganna á formi fréttastofunnar á dögunum. MynD RaKEl óSK „Mér brá“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.