Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Síða 33
föstudagur 26. september 2008 35 É g varð í rauninni ástfangin af öllum hópnum.“ segir María Guðmundsdóttir hlæjandi um kvennahópinn sem hún fjallar um í mynd sinni All- ar mættar. Þar fylgist hún með hópi kvenna sem hafa verið saman í leikfimi tvisvar í viku, flestar í næstum 50 ár. Þetta er gullfalleg mynd um vináttuna sem skapast hefur hjá ólíkum konum, úr ólíkum stéttum, á ólíkum aldri en eiga samt svo margt sameiginlegt. En hvernig kom það til að ljósmynd- arinn María Guðmundsdóttir fór út í kvikmyndagerð? „Ég er farin að lifa í núinu og mað- ur á ekki að hafa áhyggjur af því sem gerist einhvern tímann í framtíðinni – ég er blessunarlega laus við að óttast breytingar. Hlutirnir koma bara í ljós og þegar eitthvað breytist sem í fljótu bragði virðist vera til hins verra getur komið út úr því eitthvað ennþá betra. Það breyttist margt hjá mér í desem- ber árið 2003 en þá greindist ég með brjóstakrabbamein. Á meðan á meðferðinni stóð hafði ég ekki orku til að halda áfram starfi mínu sem tískuljósmyndari. Ég gat ekki haldið utan um stór ljósmynda- verkefni, stjórnað tíu manna hópi fólks og búið til auglýsingar; orkan nægði mér ekki og einbeitingin minnkaði. Álagið er mikið í slíku starfi og kröfurn- ar gífurlegar. Í þeim bransa þýðir ekk- ert að bjóða viðskiptavininum upp á að maður sé ekki nema næstum því upp á sitt besta. Ég ákvað því að hægja á mér og leyfa veikindaferlinu að hafa sinn gang, bíða með tískuljósmyndirnar þar til krabbameinsmeðferðinni væri lokið og ég yrði heilbrigð á ný. Ég var ein af þeim heppnu, ég er búin að ná mér en orkan er ekki sú sama og hún var áður, það eyðist af því sem af er tekið. Atvikin höguðu því sem sagt þannig að þegar ég ákvað að leggja tískuljósmyndaranum fyrir fullt og fast var ég líka búin að kynnast konunum hennar Ástbjargar og heillast af þeim.“ Allar mættar „Það atvikaðist þannig að ég var að fylgja góðri vinkonu eftir með kameru og ætlaði mér að gera um hana stutta æviskeiðsmynd sem bíður nú betri tíma; mig langaði alltaf til að reyna mig í tökum og lífið hennar var spennandi. Í eitt skipti fór ég með henni í leikfimi- tíma og það var þá sem það gerðist. Ég gjörsamlega heillaðist af hinum samstillta og skemmtilega hópi sem hreyfði sig af mýkt og húmor og gleði. Þetta eru 65 til 85 ára gamlar kon- ur sem mæta vikulega í tíma hjá Ást- björgu Gunnarsdóttur leikfimikennara sem er 77 ára. En málið væri ekki svona fallegt ef þær hefðu ekki hist í tæp 50 ár; það er líka einmitt það sem kveikti ástríðu mína. Hvernig má það vera? spurði ég sjálfa mig og nú veit ég svarið og er reynslunni rikari. Málið er í raun í einfalt: Árið 1959 byrjaði Ástbjörg með leikfimi tvisvar í viku fyrir heimavinnandi húsmæður sem áttu börn og enn þann dag í dag hittast flestar þeirra og æfa saman. Það hefur auðvitað orðið einhver endur- nýjun í hópnum, sumar hafa horfið frá og aðrar komið í staðinn, en kjarninn er sá sami og hefur verið allan tímann. Leikfimin hefur líka breyst og dansinn aukið vægi sitt. Ástbjörg semur dans- ana, hún heyrir kannski lag sem heill- ar hana og semur dans eftir því; og þær dansa skaltu vita og ekki bara hérna heima held- ur líka víða erlendis. Þær búa sjálfar til sína eigin bún- inga fyrir sýn- ing- arnar, æfa grimmt undir stjórn síns mentors og svo stíga þær á pall og njóta þess að dansa. Þetta gera þær allt á eig- in kostnað og hafa aðeins einu sinni verið styrktar til utanfarar en þá var það Ástbjörg sjálf sem styrkti þær; hún hafði fengið arf eftir móður sína og þá fengu konurnar hennar að njóta hans. Hvað þær kalla sig? Jú, þær kalla sig einfaldlega það sem þær eru; leikfimi- hópur Ástbjargar Gunnarsdóttur. Ég ákvað að kalla myndina Allar mættar vegna þess að þær eru alltaf all- ar mættar nema eitthvað sérstakt komi til. Hún er mér líka ógleymanleg mynd- in af Ástbjörgu þar sem hún situr með kladdann sinn, les upp nöfnin þeirra og merkir við hverjar eru á staðnum og hverjar ekki. Þær liggja þarna á gólfinu í slökun og svara kalli hver og ein eins og þær stelpur sem þær eru og hún lýt- ur snöggt höfði, horfir svo yfir salinn og segir: „Allar mættar, eru ekki allar mættar?“ Í myndinni eru viðtöl við 12 kvenn- anna í hópnum og þeim fylgt eftir. Það tók okkur tvö ár að vinna myndina og það voru góð og vinnuglöð ár. Profilm framleiðir myndina en fyrirtækið er í eigu Jóhanns Sigfússonar og Önnu Dísar Ólafsdóttur: þau eru bæði fyrir- taks proffar og öndvegisfólk og ég vann einkar náið með þeim og öllu því ein- vala liði sem hjá Profilm skipar hvern bekk; ég held í raun að myndefn- ið sjálft, konurnar hennar Ástbjargar, hafi kallað á svona glimrandi og sterka samvinnu. Myndin er 40 mínútur að lengd og verður frumsýnd í dag, föstudaginn 26. september klukkan 18 í Regnbogan- um á Reykjavík International filmfesti- val eða Riff eins og það er kallað. Hún verður svo sýnd þar tvisvar í viðbót en þá fer hún, eins og stelpurnar, að ferð- ast á kvikmyndahátíðir; það er svona dálítið eins og hún elti sporin þeirra.“ Miklu sætari með árunum Við María horfum saman á nýju myndina og það er óhætt að segja að manni líður vel að horfa á hana. Sjón- arhornið er svo fallegt og greinilegt að næmt auga ljósmyndarans er að störf- um. Myndin sýnir líka vel þjóðfélags- breytingar því þar segir Ástbjörg frá því að konunum hafi upphaflega eingöngu verið boðið upp á kvöldtíma: Það þótti ekki möguleiki að bjóða konum upp á tíma fyrr en börnin voru sofnuð og þær búnar að ganga frá eftir matinn. Eigin- maðurinn passaði svo börnin á með- an, eins og sagt var. „Allar ljósmyndirnar mínar, fyr- ir utan tískuljósmyndirnar auðvitað, eru svarthvítar. Ég hef ást á leiknum við ljósið og skuggana og finn í honum óútskýranlega dýnamík sem mér finnst líka hæfa myndinni og þess vegna er hún svarthvít þótt sjá megi líka örlít- inn, bláleitan tón leika við hana í dans- atriðunum,“ segir María og við höldum áfram að horfa á Allar mættar. Einfarinn María Hefur einhver hópur svona þýðingu fyrir þig sjálfa? „Ég er einfari en kannski er það ein- mitt þess vegna sem ég sé hvað sam- takamátturinn getur veitt mikinn styrk; dálítið eins og að horfa utan frá á eitt- hvað sem maður þekkir ekki og finna til þeirrar nautnar sem það er að kynn- ast einhverju nýju og frjósömu. Aðstæður hafa bara hagað því þannig að ég varð einfari; hefði ég lif- að öðruvísi lífi hefði ég sjálfsagt orðið önnur en ég er, en ég sakna einskis og finnst gott að dvelja ein í mínum hug- arheimi. Sumum finnst það óheilbrigt en ég kæri mig kollótta, ég er einbirni og hef lært að hafa ofan af fyrir sjálfri mér og svo er ég alin upp í litlu plássi, Djúpavík, þar átti ég vini en við vor- um oft innilokuð vegna veðranna; það snjóaði og okkur fennti inni. En mér fannst það í lagi, ég gat alltaf dundað mér sjálf og kannski mótaðist einfar- inn þá, ég skal ekki segja en það er satt að lengi býr að fyrstu gerð. Það er töff fyrir fjölskyldu að eiga bara eitt barn og að sama skapi er það töff fyrir þetta eina barn að eiga bara foreldrana af því þegar þeir hverfa hverfur allt. En það er þroskandi, maður verður að standa sig einn og getur ekki treyst á neinn. Það kann að vera að það hafi líka haft áhrif hvað ég var lengi erlendis, lengi í miklu mannhafi og hraða vegna vinnunn- ar; ég var alltaf að hitta nýtt og nýtt fólk, fara á nýja og nýja staði. Varanleg og djúp tengsl gátu ekki myndast í svo órólegu og iðandi lífi og í frístundum, sem satt að segja voru nú ekki margar, naut ég þess að vera ein og ég gerði það þegar færi gafst; ég skrif- aði frekar í dagbók eða bréf til foreldra minna en þjóta út á flandrið í sjaldgæf- um frítíma. En einsemdin jókst með aldrinum og varð mikil eftir lát foreldra minna; skrítið en þegar ég segi þetta hljóm- ar það eins og ég hafi verið einmana en það var ég ekki. Einsemdin mín var einhvern veginn græðandi og fyll- andi og þegar ég var að taka myndirn- ar í bókina mína sem heitir A Land told me, en í henni eru svart/ hvítar lands- lagsmyndir, var ég ein í langan tíma án þess að sjá nokkurn mann, gjarnan 10 daga í senn og oft lengur og var strax þotin aftur, eins og óbyggðirnar lokk- uðu mig til sín. Og ég get ekki gleymt tilfinningunni þegar ég var uppi á mið- hálendi; mig langaði ekki í bæinn. Mér leið eins og það gæti verið algleymi að ganga inn í náttúruna, hverfa inn í hana og verða hún. Ég var sátt og mig langaði að samlagast landinu; þetta var yfirþyrmandi og sæl tilfinning. Ég hugsa að ég finni hana aftur þegar ég fer héðan.“ Feimnir karlmenn Þegar maður situr í kaffi hjá Maríu Guðmundsdóttur gleymir maður sér stundum við það að stara bara á hana, fegurð hennar er heimsþekkt en út- geislun hennar, persónutöfrar og hlýja umvefur mann. En skyldi þessi glæsi- leiki og fegurð fyrirsætunnar einhvern tímann hafa einangrað hana eða gert fólk feimið við að nálgast hana? „Fólk hefur yfirleitt verið yndislegt í minn garð. Ég veit að hérna í gamla daga þorðu karlmenn stundum ekki að nálgast mig, þeir sögðust hafa hugsað: „Hún hlýtur að vera umsvermuð all- an liðlangan daginn og getur ekki haft neinn áhuga á mér og ég þori ekki að hringja í hana.“ Mér fannst þetta bara fallegt þegar ég vissi af þessu seinna en hefði ég vitað það hefði ég alls ekki skil- ið það. En eins og ég segi hef ég bara mætt góðvild fólks og hafi annað verið uppi á teningnum hef ég kannski kosið að taka ekki eftir því enda pæli ég ekki í hlutum sem mér finnst ekki skipta neinu máli. Vinir mínir hafa haldið tryggð við mig frá því ég var strákastelpa í hand- boltanum, strákastelpa sem gekk um í buxum því hún var svo óánægð með granna leggina. Ég var í raun svo óhamingjusöm að ég valdi að vera í marki til að geta verið í síðbuxum. Í boltanum var ég kölluð Maja júníor til aðgreiningar frá nöfnu minni Maríu Guðmundsdóttur fyrirliða. Frá þess- um tíma á ég skemmtilegar minningar sem ég dvel oft við “ Stækkaði 27 ára „Ég pældi samt sem áður lítið í út- litinu að öðru leyti en ég var kannski komplexeruð yfir því hvað ég stækk- aði fljótt. Ég var orðin 175 sentímetr- ar aðeins 12 ára; það var sko stór tólf ára stelpa í þá daga. Ég var alltaf stærri en allir jafnaldrar mínir og ég var alls ekkert fyrir útlitið. Ég var strákastelpa og vildi vera það og mér fannst ég alls ekkert kvenleg. Kvenleg fegurð kallað- ist það þegar þetta var og gerir kannski enn að vera með ávalar mjaðmir og stór brjóst og ég var svo sannarlega ekkert í þá áttina. En útlit mitt leiddi mig samt í tískubransann. Með grönnum líkama og mikilli hæð er nefnilega hægt að leika sér með fötin. En svo gerðist það alveg óvænt að það tognaði enn meira úr mér. Já, ég varð 181 sentímetri. Ég lenti í bílslysi hér heima, klemmdist milli tveggja bíla og marðist illa og skrámað- ist. Vegna slyssins kom drep á innan- verðan ökkla og ég varð því að að leggj- ast inn á spítala í aðgerð. Þar kom í ljós að tveir hryggjarliðir höfðu sprungið. Ég lá inni í sex vikur á meðan allt var að gróa. Hæð mín og öll mál voru ná- kvæmlega skráð hjá föstum kúnnum í New York. Þegar ég mætti svo aft- ur í vinnuna tóku kúnnarnir að kvarta undan því að pilsfaldurinn á kjólun- um þeirra væri kominn upp yfir hné í staðinn fyrir að vera á sínum stað fyr- ir neðan hné. Þannig að fötin pössuðu ekki lengur og þá var mér skellt í mæl- ingu og í ljós kom að ég hafði hækkað um sex sentimetra. Skýringin lá í því að við erum öll með sveigju í bakinu en í kjölfar bílslyssins réttist úr hryggnum á mér; ég tapaði sveigjunni en græddi sentímetrana sex.“ Fyrst fer sjónin svo koma hrukkurnar Þú hefur verið mynduð oftar en flest- ir aðrir. Hvernig finnst þér að eldast? „Öll eigum við misjafna daga og það koma augnablik sem ég er óhress með að eldast en venjulega finnst mér það eðli málsins samkvæmt bæði eðlilegt og gott og svo eru það auðvitað for- réttindi. „Guð er svo góður. Fyrst dreg- ur hann aðeins úr sjóninni og bætir svo á mann hrukkum. Hann býr svo um hnútana, blessaður, að maður hafi ekki tækifæri til að fylgjast með hrörn- uninni,“ sagði góð vinkona mín. Nei, ég hef aldrei óttast aldurinn – en ég hef haft áhyggjur af heilsunni og með aldrinum hrakar henni óneitanlega. Ég sagði að mér þættu forréttindi að fá að eldast og mér finnst að þannig ætti það líka að vera að öllu leyti. Ég er þess vegna ekki sátt við hvern- ig komið er fram við aldraða og ör- yrkja á Íslandi. Ráðamenn bæta hik- laust sinn eigin hag en teysta sér svo ekki til að semja við kvennastéttir eða borga öryrkjum og ellilífeyrisþegum almennileg laun; líf margra er því eins og í þröngu búri eftir ævistarfið og það er einfaldlega rangt. Þegar menn ná kjöri til alþingis eða bæjarstjórna virð- ast þeir oft breytast í kýrnar sem sleppt er út á vorin; þeir hlaupa út um víðan völl og gleyma öllu í kringum sig. Og svo finnst mér stundum eins og tal- að sé niður til almennings. Kannski er það af því stjórnmálamennirnir eru í tilvistarklemmu því það er víst að sá sem stjórnast af hroka og yfirdrepsskap er bæði klemmdur og illa áttaður. Við höfum undanfarið búið við vel- megun, mörg hver að minnsta kosti, allt virtist svo auðvelt og margur kunni sér ekki hóf og sást ekki fyrir, lét glepjast af skruminu og heillaðist af græðginni. Í gamla daga keypti fólk fyrir það sem það átti, það safnaði sér fyrir hlutum og sumir áttu jafnvel sparifé. En í óráð- síu dagsins í dag eða gær er keypt áður en aflað er og afleiðingarnar geta orðið mjög alvarlegar, óöryggi, atvinnuleysi og ótti.“ María hefur áhyggjur af ástandinu en hún er ánægð með að geta boðið upp á jákvæða mynd um falleg sam- skipti og vináttu. Svo við víkjum talinu aftur að myndinni Allar mættar sem frumsýnd verður í dag. Uppspretta tækifæranna „Æskudýrkunin hefur alltaf ver- ið mikil en kannski aldrei jafnmikil og í tæknivædda samfélaginu þar sem stúlkur rétt af barnsaldri hlaupa til lýta- lækna til að breyta útliti sínu á einn eða annan mátann. Umræðan um æskuna og lífið og fjörið er endalaus og stund- um yfirþyrmandi og það segir mér ekk- ert annað en að óttinn og flóttinn hafa náð tökunum. Eðlileg umræða um elli og dauða fyrirfinnst varla hvað þá að sú hugsun hvarfli að fólki að því eldri sem þú verður því áhugaverðari; því meira hefurðu að gefa og fleiru að miðla. Kannski þarf maður að vera orðinn aldinn sjálfur til að sjá þetta, kannski gremst manni að konur sem komn- ar eru vel yfir miðjan aldur þykja varla gjaldgengar hvað þá að nokkur sé forvitinn um líf þeirra, áhugamál og reynslu. Konurnar í Allar mættar eru fullorðnar en þær eru og verða stelpur og það er einmitt galdurinn þótt hann sé ekki endilega í andliti fólgin.“ Er ekki oft talað um að konur verði ósýnilegar eftir fertugt? „Jú, kannski er það strax um fer- tugt sem úreldingin byrjar, ég skal ekki segja. Við heyrum í pólitíkusum og fjölmiðlafólki á öllum aldri en konur í öðrum stéttum sjást síður, karlar fá að taka þátt lengur enda gerir aldurinn þá virðulega en konurnar óþægilegar. En mér finnst konur oft samsama sig þessu bulli og væla að óþörfu. Þær segja: „Tækifærin eru nú ekki eins og þau voru þegar maður var yngri.“ Ég held að hugsunin sé röng og henni verður að breyta. Hugmyndir eru upp- spretta tækifæra og við eigum að elta þær. Við verðum auðvitað bara æðis- gengnar með aldrinum og flottar með alla reynsluna og við eigum að vera ófeimnar við að láta það sjást. Ástbjörg, sem heldur utan um leikfimihópinn í myndinni, er 77 ára eins og ég hef nefnt áður og hún hefur svo mikla ástríðu í starfinu sínu að það er unun að sjá það; hún fylgist með öllu sem að leikfiminni snýr og er sífellt að koma með nýjung- ar; hún nýtir sér alla möguleika til að fá sem mest út úr lífinu bæði fyrir sjálfa sig og stelpurnar og hún er gangandi dæmi um sterka og flotta eldri konu sem lifir lífinu glöð. Svona eru þær reyndar allar í hópnum.“ Hvert er markmið þitt með mynd- inni? „Ja, ætli það sé ekki helst að sýna það sem ég var að segja hérna áðan um aldurinn, þroskann og reynsluna og um leið að sýna hvað hreyfingin er áríðandi fyrir heilsuna og hugarfarið. Mig langaði sem sagt að búa til mynd um fullorðnar konur á ferð og flugi, heilbrigðar, hlæjandi og elskulegar þar sem vinátta og samheldnin ríkir. Auðvitað vona ég að myndin veki þá hugsun að það geti verið gaman og gott að eldast og bendi líka lauflétt á þá staðreynd að fullorðnar konur eru með í samfélaginu og þær eiga ekki bara að sjást, þær eiga líka skilið að þær séu virtar viðlits. Mér fannst löngu kominn tími til að sjá mynd um konur á þess- um aldri; við förum allar þangað ef við erum heppnar.“ En ert þú þá ekki í leikfimihópi sjálf og dugleg að hreyfa þig? „Ég hreyfi mig mest í huganum, er mikið í ferðalögum og út um allar triss- ur þar. Ég fór í bakaðgerð fyrir tveimur árum og er með bakverki og dofa nið- ur í tær og þegar ég er slæm get ég ekki gengið. Þetta er gjaldið sem ég borga núna fyrir sentímetrana sem ég græddi forðum. Yfirleitt er ganga talin góð hreyfing fyrir bakið en ég nýt mín ekki á göngu lengur, því miður. En þegar ég kemst út í náttúruna líður mér vel og mér finnst gaman að ganga á haustkvöld- um og horfa á stjörnurnar. En ég teygi mig auðvitað og fer í nudd, annaðhvort væri nú. Ég finn hvernig það losar um bakið að hanga fram á við og teygja og teygja; ég lærði það nú líka af stelpun- um.“ Tískuheimurinn í dag Var líkamsrækt stór hluti af starfi þínu sem fyrirsæta hér áður fyrr? „Nei, ég var alltaf löng og mjó og grönn og ég var ekkert í leikfimi í kring- um módelstörfin. En það var alltaf þeytingur á mér eins og ég sagði þér, ég var hlaupandi af einum stað á ann- an. Ég hef sennilega hreyft mig miklu meira en ég gerði mér grein fyrir; ég sé það bara núna þegar ég segi þetta. Tískuheimur dagsins í dag er mjög ólíkur þeim sem ég þekkti; kröfurnar eru gífurlegar og það er í þeim miklu meiri harðneskja og samkeppnin er miklu grimmari. Sumar stúlkurnar leggja svo mikið á sig til að vera grann- ar að þær verða anórexíu og neyslu að bráð; slíkur heimur er hættulegur og ég er ekkert stolt af honum eins og hann er í dag. Pressan er ofboðsleg og stúlk- urnar eru jafnvel plataðar í dansinn með loforðum um gull og græna skóga en svo þegar til kemur eru efndirnar engar. Það lenda heilu vélarnar af ung- um módelum í París og Mílanó á vorin vegna lyga og gylliboða en það er enga vinnu að fá.“ Gamall draumur að rætast Ákvaðst þú snemma að fara hinum megin við ljósmyndavélina og fara svo út í kvikmyndatöku? „Nei, vissulega er gott að læra und- irstöðuna í öllum fögum en það hefur æxlast þannig hjá mér að ég er hvorki skólagengin sem ljósmyndari né töku- maður. En ég hef lært mikið af því að vinna með stórkostlegum ljósmyndurum í gegnum tíðina og það sama hefur svo gerst varðandi kvikmyndatökuna. Svona hefur heppnin elt draumana sem ég hef átt og ég hef ekki lagst upp í rúm til að gleyma heldur litið á þá sem áskorun og tækifæri. Reynslan kenndi mér í báðum deildum og svo varð ég mér úti um þá tæknikunnáttu sem ég þurfti og þeir sem hafa unnið með mér á báðum sviðum vita að það er sko skóli allan sólarhringinn. Ég gerði þetta sem sagt „my way“ eins og Sinatra og ég sé ekki eftir því.“ Listsköpun Maríu hefur hreyft við mörgum. Og nýlega fékk hún bréf frá Ástralíu. ,,Það er gaman þegar maður gerir eitthvað sem „inspirerar“ aðra. Ástr- ölsk kona varð svo hrifin af svart/hvítu ljósmyndabókinni A land told me að hún skrifaði mér og sagði að bókin veitti henni sem tónskáldi innblást- ur svo að hún samdi lög út frá áhrif- um frá myndunum. Þau eru að koma út á geisladiski á næstunni og mynd- ir úr bókinni verða á umslaginu. Það er ánægjulegt þegar maður hreyfir við fólki og það gleður mig í hvert skipti sem ég geri það.“ En nú fer að styttast í frumsýningu á Allar mættar. Langar þig að gera fleiri myndir? ,,Veistu hvað, ég er bara rétt að byrja og ég er með margt spennandi á prjónunum og enn fleira í kollin- um. Kvikmyndatakan hefur tekið við af ljósmynduninni eins og er og á nú hug minn allan. Það heftir mig ekkert nema síðasta kallið og ég vona að það sé langt í það.“ Æðisgengnar með aldrinum maría varpar ljósi á kosti þess að eldast. „Það lenda heilu vélarnar af ungum módelum í París og Mílanó á vorin vegna lyga og gylliboða“ Helgarblað Stórglæsileg Hefur lifað tímana tvenna. Brautryðjandi ein allra frægasta fyrirsæta sem Íslendingar hafa átt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.