Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Blaðsíða 15
N3 FLYTUR FYRIR ÞIG búslóða- og vöruflutningar auk kælibíls N3 www.n3.is Ásmundur l S: 898 7424 Dóri (kælibíll) l S: 661 8133 -hvað er að frétta? Hvað er að frétta? – kíktu á dv.is FRÉTTIR FÓLK FRÓÐLEIKUR SKEMMTUN föstudagur 26. september 2008 15Nærmynd var hátt skrifaður á meðal yfirmanna þar. Það gilti bæði með lögregluna og yfirmenn varnarmála hjá þeim,“ seg- ir Grétar. „Stóra málið var að taka við flug- stöðinni sem var lítil á þeim tíma og breyta henni í landamæravörsludeild með öllu sem því fylgdi, Schengen- samstarfinu og öðru. Honum tókst að umbreyta þessu liði og breyta vöktum, skipulagi og verklagi. And- rúmsloftið var erfitt en honum tókst að gera það á þann veg að allir líta upp til hans,“ segir Grétar. Tempruð kappsemi Um persónu Jóhanns segir Grét- ar að hann sé góður félagi, traustur bakhjarl og einn besti mannkostur sem hann þekki. Spurður um lesti Jóhanns segir hann: „Yfirleitt eru ein- hverjir lestir fólgnir í stærstu kostum manna. Hann er kappsamur og þarf stundum að hægja á sér. Hann hefur samt það góða dómgreind að hann veit þegar hann fer of hratt af stað. Þá ráðfærir hann sig við marga menn og er fljótur að taka ábendingum. Gall- ar hans liggja því helst í kappsemi hans, sem hann kann hins vegar að tempra. Hann er meðvitaður um sínar takmarkanir og galla og það er styrkleiki hans að auki,“ segir Grétar. Hann segir að mikil ánægja hafi ríkt í utanríkisráðuneytinu með Jó- hann sem sýslumann, þegar sýslu- menn heyrðu undir ráðuneytið. „Hann virðir vel allar gefnar boðleið- ir og því var auðvelt að starfa með honum,“ segir Grétar. Minni tekjur Rekstrarvandi embættisins hef- ur verið áberandi í umræðunni um löggæslu á Suðurnesjum undanfarin misseri. Það stafar fyrst og fremst af minni tekjum. Þegar varnarliðið yf- irgaf Keflavíkurflugvöll varð embætti Jóhanns af 40 milljóna króna árlegum tekjum. Aukafjárveiting fæst hugsan- lega ekki fyrr en nú í haust. Þá hafa svokallaðar umsvifatekjur vegna far- þega sem fara um Leifsstöð ekki fylgt vísitölu undanfarin ár. Ef þetta gjald yrði leiðrétt fengjust tekjur sem færu langt með að tryggja rekstrargrund- völl embættisins í óbreyttri mynd. Breytingin fyrir þá sem ferðast til og frá landinu næmi um hundrað krón- um á hvern farþega. Í Kastljósi í fyrrakvöld upplýsti Jó- hann að hann hefði í mars fengið vil- yrði ráðuneytisins til að ráða tíu Suð- urnesjamenn sem myndu útskrifast úr Lögregluskólanum í vor. Nokkru síðar hafi hann hitt fjárlaganefnd sem hafi komið af fjöllum þegar Jó- hann fór að tala um ráðningu þess- ara tíu manna. Nefndin hafi því beð- ið um að fá erindið sent hið snarasta. Tveimur mánuðum síðar sagði Jó- hann að honum hafi borist bréf þar sem embættinu var tilkynnt að það fengi hugsanlega 40 milljóna fjár- veitingu vegna tapaðra tekna út af brotthvarfi varnarliðsins. Ekki einu orði hafi verið vikið að þessum tíu nýútskrifuðu lögreglumönnum sem embættið hafi mátt ráða tveimur mánuðum áður. Að endingu hafi verið gerð krafa um að embættið héldi sig innan fjárheimilda. Sviptur stjórnarsetu Jóhann sat í þrjú ár í stjórn Landa- mærastofnunar Evrópu, FRONTEX. Fundi sótti hann annan til þriðja hvern mánuð auk þess sem sjö eða átta undirmenn Jóhanns komu að undirbúningi og sátu í hinum ýmsu undirnefndum. Heimildir DV herma að fyrir um tveimur mánuðum hafi Jóhann fengið bréf frá dómsmála- ráðuneytinu. Þar kom fram að hann væri sviptur umboði til stjórnarsetu í stofnuninni. Sviptingin tók gildi frá og með móttöku bréfsins en hermt er að Jóhanni hafi komið þetta fullkom- lega í opna skjöldu. Hann hafi leit- að eftir skýringu á þessari aðgerð en sagt er að fátt hafi verið um svör. Ekki má annað sjá en að dóms- málaráðherra hafi verið ánægð- ur með störf Jóhanns í FRONTEX. Í því samhengi má benda á frétt á vef dómsmálaráðuneytisins frá 12. mars á þessu ári. Þar segir frá fundi Björns Bjarnasonar með ráðherrum Schengen-ríkjanna í Brdo í Slóveníu. Fundurinn snerist um landamæra- vörslu á ytri landamærum Scheng- en-ríkjanna, þróun hennar og ný úr- ræði. „Ráðherrarnir ræddu einnig störf landamærastofnunar Evrópu, FRONTEX, og töldu reynslu af starfi hennar, síðan hún kom til sögunnar árið 2005, mjög góða og að þróa ætti starf hennar áfram,“ sagði í fréttinni. Íslenska dómsmálaráðuenytið hafði auk þess ítrekað lýst yfir ánægju með störf Jóhanns og undirmanna hans. Ófyrirgefanleg staða Ellisif Tinna Víðisdóttir var að- stoðarlögreglu- og tollstjóri á Suður- nesjum þar til hún tók við starfi for- stjóra Varnarmálastofnunar 1. júní á þessu ári. Tinna segist eiga Jóhanni mikið að þakka. „Ég væri ekki í minni stöðu núna, sem forstjóri Varnar- málastofnunar, ef ég hefði ekki feng- ið að alast upp sem stjórnandi hjá honum. Ég held að lög- og tollgæsla á Suðurnesjum eigi þessum manni allt að þakka. Það að hann skuli vera í þeirri stöðu sem hann er í dag, er bara ófyrirgefanlegt. Hann hefur einstaka stjórnunarhæfileika,“ seg- ir Tinna og bætir við: „Einn af hans stærstu kostum er að hann gefur næstráðendum svigrúm til að þrosk- ast sem stjórnendur. Hann er mikill mannþekkjari og leyfði okkur sem vorum undir honum að þroskast og dafna,“ segir hún. Það er enginn hörgull á lýsingar- orðum þegar Tinna er beðin að lýsa Jóhanni. „ Hann er einlægur, heið- arlegur og metnaðarfullur. Honum er ákaflega umhugað um sína starfs- menn og ég hef aldrei haft yfirmann sem hefur lagt sig jafnmikið fram fyr- ir starfsfólk sitt eins og hann. Hann er mikill listamaður á sínu sviði. Eins og alvöru listamaður er hann með skap en beitir því aldrei nema hann hafi ríka ástæðu til þess. Það gerir hann helst þegar embættið er órétti beitt eða einhver starfsmaður mis- notar góðvild hans. Þá getur hann orðið reiður en það hefur örugglega enginn verið skammaður af Jóhanni sem ekki hafði unnið fyrir því,“ segir hún að lokum. Grátklökkur í pontu Jóhann tilkynnti um afsögn sína á tilfinningaþrungnum starfsmanna- fundi embættisins síðdegis á mið- vikudag. Eftir að Jóhann hafði á fundin- um rakið samskipti sín við dóms- málaráðuneytið stigu þeir Eyjólfur Kristjánsson, staðgengill Jóhanns, Guðni Geir Jónsson, fjármálastjóri embættisins, og Ásgeir J. Ásgeirsson, starfsmannastjóri þess, í pontu og tilkynntu að þeir myndu sýna stuðn- ing við Jóhann með því að víkja einnig. Það var tilfinningaþrungin stund þegar Jóhann lauk máli á fundin- um. Á annað hundrað starfsmenn embættisins sem mættir voru risu úr sætum og hylltu hann með dynjandi lófataki. Af viðbrögðum Jóhanns mátti ráða að honum þætti þessi ákvörðun afar þungbær. Þegar þeir Eyjólfur, Guðni Geir og Ásgeir höfðu sagt hug sinn steig Jóhann grátklökk- ur í pontu og óskaði samstarfsfélög- um sínum í lög- og tollgæslunni alls hins besta. Hann sagðist enga von eiga heitari en að embættinu muni farnast vel á komandi árum. Það má ljóst vera að mikil eftirsjá verður af Jóhanni og þeim mönnum sem ganga út með honum. Skarðið sem brotthvarf hans úr embætti skil- ur eftir sig verður vandfyllt. Dyrunum lokað Jóhann gekk á fund með lög- og tollgæslumönnum þar sem hann tilkynnti um uppsögn sína. Skarð fyrir skildi Jóhann hefur gengið vasklega fram á suðurnesjum og arftaki hans mun starfa í skugganum sem hann skilur eftir sig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.