Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Blaðsíða 10
Öryggisverðir í forsetabústaðn-
um, Beit Hanassi, urðu forviða tí-
unda þessa mánaðar þegar aðlaðandi
kvenmaður í fylgd forseta Íslands, Ól-
afs Ragnars Grímssonar, heilsaði með
orðunum „Shalom“ og „Boker Tov“,
sem eru hebresk kveðjuorð; halló og
góðan daginn. Orðin voru sögð án
nokkurs erlends hreims og nærstadd-
ir sem ekki höfðu verið upplýstir klór-
uðu sér í höfðinu, en í ljósi alls við-
móts hennar komust þeir þó að þeirri
niðurstöðu að ekki væri um að ræða
starfsmann í forsetabústaðnum.
Og mikið rétt, því þarna var á ferð-
inni Dorrit Moussaieff forsetafrú, sem
eðli málsins samkvæmt var í fylgd
með eiginmanni sínum. Frá þessu
segir í ísraelska dagblaðinu Jerusal-
em Post.
Frá Ísraels til Íslands
Í Jerusalem Post er stiklað á stóru
í lífi Dorritar, og meðal annars kem-
ur fram að hún sé borin og barnfædd
í Jerúsalem og hafi alist þar upp í
Bukharan-hverfinu fram undir ungl-
ingsárin.
Blaðamaður Jerusalem Post hegg-
ur eftir því að þó Dorrit sé forsetafrú
Íslands fari fjarri því að hún sé ný-
græðingur þegar horft er til aðalsins
og hún hafi blandað geði við margt af
mikilvægasta fólki í heimi.
„Rætur fjölskyldu hennar spanna
margar kynslóðir skartgripasala og
faðir hennar, Shlomo, er einn fræg-
asti safnari gyðinglegra listmuna í
heimi,“ segir meðal annars um upp-
runa Dorritar og föður.
Shlomo Moussaieff flutti ásamt
Alizu, eiginkonu sinni, og þremur
dætrum til Lundúna árið 1963. Þá var
Dorrit þrettán ára. „Þar sem hún hafði
alist upp í skartgripaheiminum, sem í
gegnum tíðina hefur verið uppspretta
tekna allra ættkvísla fjölskyldunnar,
var eðlilegt að Dorrit fyndi sinn eig-
in styrk í skartgripum og í fjölda ára
höndlaði hún með eðalsteina,“ segir í
Jerusalem Post.
Einnig er sagt frá því að Dorrit hafi
komið nálægt því að endurinnrétta
gamlar breskar byggingar auk þess
sem hún hafi útvegað muni til kynn-
ingar í tímaritum, þá helst tímaritum
sem tengjast listum.
Tvöföld tenging við Ísrael
Ung að árum gekk hún í hjóna-
band með Neil Zarak, hönnuði af
gyðingaættum, en hjónabandið var
skammlíft „... og þrír áratugir liðu
áður en hún fann einhvern annan
sem hún var reiðubúin að eyða því
sem eftir lifði ævinnar með“.
Örlögin höguðu því þannig að
um var að ræða ekkil, sem var einn-
ig forseti Íslands. En Dorrit er ekki
eina tenging forseta Íslands við Ísra-
el: „Þau voru gefin saman árið 2003
á sextugasta afmælisdegi hans, eft-
ir þriggja ára trúlofun. Hann er þó
tengdur Ísrael að öðru leyti, því hann
fæddist 14. maí, sem samkvæmt
gregoríska dagatalinu markaði upp-
haf Ísraels.“
Eðlilega á Dorrit fjölda vina og
ættingja í Ísrael, þeirra á meðal syst-
ur sem býr í Tel Aviv, og fer þangað
endrum og sinnum til að endurnýja
kynnin og leita tíðinda.
Í eitt slíkt skipti mátti litlu muna
að upp kæmi diplómatísk flækja.
Stöðvuð á Ben Gurion-vellinum
Þrátt fyrir að vera ísraelskur ríkis-
borgari hefur Dorrit varið stærstum
hluta ævi sinnar á Englandi og hefur
ferðast um heiminn á bresku vegabréfi
og hafði árið 2006 ekki íhugað að verða
sér úti um ísraelskt vegabréf, segir í
greininni í Jerusalem Post. Því gerðist
það, í maí 2006, að hún var stöðvuð
af öryggisvörðum á Ben Gurion-flug-
vellinum í Ísrael og henni meinað að
koma inn í landið á bresku vegabréfi.
Embættismenn á flugvellinum tjáðu
henni að samkvæmt lögum í Ísrael
væri henni skylt sem ísraelskum borg-
ara að koma inn í landið með ísraelskt
vegabréf.
„Upphófust frekar gremjuleg sam-
skipti á milli Moussaieff og skriffinn-
anna og með einhverjum hætti kom-
ust fjölmiðlar á snoðir um málið. En
atvikið gerði hana þó ekki fráhverfa því
að koma aftur,“ segir blaðamaður Jer-
usalem Post.
Sækja forseta Ísraels heim
Í lok umfjöllunar Jerusalem Post
segir frá fundi íslensku forsetahjón-
anna og forseta Ísraels, Shimons Peres.
Þrátt fyrir að íslensku forsetahjónin
hafi verið á eigin vegum í Ísrael fyrr
í þessum mánuði notuðu þau tæki-
færið til að sækja forseta Ísraels heim:
„Jafnvel á persónulegum ferðalögum
vilja forsetar og forsætisráðherrar hitta
starfsbræður sína og Shimon Peres tók
á móti þeim með ánægju.“
Shimon Peres spurði forseta Íslands
um ástandið heima fyrir og Ólafur svar-
aði að bragði: „Það fer eftir því hvort þú
trúir því sem þú lest,“ og vitnaði í fyr-
irsagnir á borð við „Ísland að bráðna“
og „Ísland í ljósum logum“. Þegar Ólaf-
ur Ragnar sá nokkrar þeirra frétta sem
fjölluðu um Ísland sagði hann að full
ástæða væri til að taka öðrum fréttum
með fyrirvara.
föstudagur 26. september 200810 Helgarblað DV
Hollur og góður heimilismatur í hádeginu:
Réttur dagsins
Súpa og brauð
Salatbar
Pizza
Keyrum einnig út matarbakka til fyrirtækja í hádeginu.
Tökum að okkur veislur fyrir öll tilefni (stórar sem smáar)
Pinnaveislur
Brúðkaupsveislur
Jólahlaðborð
Þorrahlaðborð
Árgangsmót..ofl
Fortuna - Mánabraut 20 - Sími 431-3737
fortuna@simnet.is
„Upphófust frekar gremjuleg samskipti á milli
Moussaieff og skriffinnanna og með einhverjum
hætti komust fjölmiðlar á snoðir um málið. En
atvikið gerði hana þó ekki fráhverfa því að koma
aftur,“ segir blaðamaður Jerusalem Post.
Tenging
Íslands
og Ísraels
Það er fleira en Dorrit Moussaieff
sem tengir Ólaf Ragnar Gríms-
son, forseta Íslands, og Ísrael
böndum, til dæmis fæðingar-
dagur forsetans. Forsetahjónin
fóru til Ísraels í einkaerindum
fyrr í mánuðinum og menn í
forsetabústað Shimons
Peres rak í rogastans þegar
Dorrit heilsaði á reiprenn-
andi hebresku. Atvikið varð
tilefni umfjöllunar um ís-
lensku forsetafrúna í dagblað-
inu Jerusalem Post.
Sýndu Dorrit mikinn
áhuga Jerusalem post
fjallaði af áhuga um dorrit
og eiginmann hennar.