Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Side 21
FRAMTÍÐ KRÓNUNNAR AÐ VEÐI
föstudagur 26. september 2008 21Fréttir
Krónan nú og fyrr
allir helstu gjaldmiðlar viðskiptalanda Íslands eru orðnir mun
dýrari en þeir voru í ársbyrjun.
93
kr
ón
ur
62
kr
ón
ur
13
6 k
ró
nu
r
92
kr
ón
ur
17
2 k
ró
nu
r
12
4 k
ró
nu
r
n Ársbyrjun 2008
n 25. september 2008
BANDARÍKJADALUR EVRA STERLINGSPUND
D
V
g
ra
fÍ
K
Jó
n
In
g
I
það sé alveg á hreinu að bankarnir
eru ekki að fella krónuna.“
Hann segir bankana þegar hafa
verið búna að taka stöðuna áður en
krónan féll. „Við hjá Kaupþingi vor-
um búnir að taka stöðuna fyrir ára-
mót,“ segir Ásgeir. Hann bendir hins
vegar á Seðlabankann. „Hann er
ekki að liðka til eins og margir
aðrir bankar gera,“ segir hann
og vísar til skorts á gjaldeyri á
markaðnum.
Bjarni segir alveg ljóst að
bankarnir hafi af því hag að
krónan sé veik þessa dagana,
allavega til skamms tíma.
„Þetta ástand gerir afkomu
þeirra mælda í íslenskum
krónum betri en ella,“ segir
Bjarni en vill ekkert gefa út
á hvort hann telji bankana
hafa óeðlileg áhrif á krón-
una. „Ég hef engar forsend-
ur til að meta það. Hins veg-
ar er ljóst að staða krónunnar
núna er mörgum mjög erfið
í ljósi mikillar skuldsetning-
ar okkar í erlendri mynt. Erfið
staða atvinnulífsins getur komið
illa niður á bönkunum.“
Stefnulaus stjórnvöld
Ásgeir segir ekki rétt að kenna
krónunni um allt sem miður fer.
„Hún endurspeglar bara það sem er
að gerast í kringum hana. Við erum
nú að koma niður eftir mikla þenslu
og þróun hennar endurspeglar einn-
ig fjármálakrísu í útlöndum. En það
væri vissulega þægilegra ef við hefð-
um ekki þennan óstöðugleika.“
Bjarni telur hluta vandans mega
rekja til stefnuleysis stjórnvalda.
„Það er mín skoðun að stjórnvöld
vinni ekki eftir neinum efnahags-
legum markmiðum. Við þurfum
leiðarvísi um hvernig við ætlum
að komast í gegnum þetta. Yf-
irlýsingar þess efnis eru ekki til
staðar og við erum ekki að sjá
trúverðugar aðgerðir til að kljást
við þá stöðu sem nú er uppi,“
segir Bjarni.
Þegar litið er til veikingar
krónunnar er mikilvægt að hafa
gengisvísitöluna í huga. Í gær
var vísitalan 179,82 og þegar
hún hækkar um tvö prósent, svo
dæmi sé tekið, er það mun meiri
hækkun en þegar vísitalan er um
100 stig og hækkar um sömu pró-
sentutölu. Áhrifin á gengi annarra
gjaldmiðla gagnvart krónunni eru
ekki þau sömu og er hækkun evru í
krónutölu mun meiri í seinna til-
fellinu.
Plastmódel
í miklu úrvali
Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is