Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Blaðsíða 28
föstudagur 26. september 200828 Helgarblað DV
Til er land þar sem konurnar
lifa lengur en aðrir jarðarbúar. Í því
landi er lægsta hlutfall offitu meðal
þróaðra ríkja. Þar líta fertugar kon-
ur út fyrir að vera tvítugar. Þetta er
land þar sem konurnar njóta góm-
sætustu fæðu í heimi, en samt eru
aðeins þrjú pósent þeirra of feit.
Þriðjungi fleiri franskar konur eru
feitar og tíu sinnum fleiri stallsyst-
ur þeirra í Bandaríkjunum. Í þessu
landi eru konurnar mjög upptekn-
ar af því að njóta lífsins jafnframt
því að borða hollan mat. Þetta er
hátæknivætt land og næststærsta
iðnveldi í heimi. Landið heitir Jap-
an. Og þar er eitthvað ótrúlegt á
seyði!
Þetta eru upphafsorð bókarinn-
ar Leyndarmál japanskra kvenna
eftir Naomi Moriyama og William
Doyle í þýðingu Þóru Sigurðardótt-
ur. Í bókinni fjalla höfundar um
af hverju fólkið í Japan lifir lengur
en annars staðar í veröldinni og af
hverju konurnar þar séu grennri og
unglegri. Þau segja það ekki bara
japönskum erfðaeiginleikum að
þakka heldur líka mataræðinu og
telja það sannað að Vesturlanda-
búar sem tileinka sér japanskt mat-
aræði verði hraustari og grennri.
Í bókinni segir Naomi frá matar-
menningu þjóðar sinnar og hvernig
þau hjónin aðlöguðu japanskt mat-
aræði vestrænum lifnaðarháttum
sínum. Bókin er auk þess sneisa-
full af girnilegum, meinhollum og
einföldum uppskriftum og fróð-
leiksmolum um japanskt hráefni
og matargerð.
Naomi Moriyama ólst upp í Tók-
ýó en flutti til Bandaríkjanna þar
sem hún fór í háskólanám og bætti
á sig 12 kílóum! Nokkrum árum
síðar fór hún með amerískum eig-
inmanni sínum til Tókýó og dvaldi
þar í mánuð. Fyrr en varði hrundu
kílóin af þeim báðum án þess að
þau gerðu nokkuð til þess.
Þóra Sigurðardóttir, þýðandi
bókarinnar sem einnig er höfundur
bókanna Djöflatertan og Ef þú bara
vissir ásamt Mörtu Maríu Jónsdótt-
ur, segist algjörlega hafa dottið ofan
í hrísgrjónapottinn á meðan á þýð-
ingunni stóð. „Ég heillaðist algjör-
lega af matarmenningu Japana eft-
ir að ég las bókina. Maturinn þeirra
er einstakur.“ Þóra segir ástríðu
japanskra kvenna í matargerð mjög
aðdáunarverða. „Konurnar í Japan
eru aldrei búnar að ákveða hvað
þær ætla að elda áður en þær halda
út í búð. Þær velja eingöngu fersk-
asta hráefnið. Þar af leiðandi er
eldamennskan líka svolítið árstíða-
bundin. Einnig leika þær sér að því
að hafa allt í stíl þegar maturinn er
borinn fram,“ segir Þóra
Það vakti athygli Þóru að þó svo
að japanskar konur séu grannar
eru þær með mat á heilanum. „Þú
mátt og átt að vera með mat á heil-
anum. Ekki neita þér um það sem
þú vilt – borðaðu bara minna af því
og hafðu á hreinu hvaða valkosti
þú hefur og vertu meðvitaður,“ seg-
ir Þóra að lokum.
kolbrun@dv.is
Konan
Klæðum af
oKKur Kuldann
Haustið er komið, á því leikur enginn vafi.
Þar af leiðandi er kominn tími til að taka fram
úlpuna, húfuna, trefilinn og vettlingana. Það
er alveg hægt að vera smart þó svo maður
sé vel klæddur. Kryddaðu aðeins upp á fata-
skápinn með því að kaupa þér fallega húfu
og vettlinga í stíl við þykku úlpuna þína og
þú ert klár í slaginn fyrir kalda haustmorgna.umsjón: KOLbrÚn pÁLÍna HeLgadóttIr kolbrun@dv.is
Komin er út bókin
Japanskar konur,
hraustar og grann-
ar hjá bókafor-
laginu Sölku. Bókin
ljóstrar upp leynd-
armálum japanskra
kvenna og af hverju
þær eru með lægstu
fituprósentu í
heimi. Í bókinni má
finna úrval hollra
uppskrifta sem og
góð lífsstílsráð.
Leyndarmál
japanskra
kvenna
datt ofan í hrísgrjónapottinn
Þóra sigurðardóttir, þýðandi
bókarinnar, segist hafa dottið
ofan í hrísgrjónapottinn og
heillast af japönskum mat á
meðan á þýðingunni stóð.
Kona
viKunnar
Sigurlín Margrét Sigurðar-
dóttir, framkvæmdastjóri og
eigandi Táknmáls ehf., tákn-
málsfréttaþula og frumkvöðull.
Hvað borðar þú í morgunmat?
„Kaffibolla, 3 til 4 hrökkbrauðs-
sneiðar með viðbiti og einstaklega
mikið af gúrku sem er sneidd
niður með ostaskeranum. um
tíuleytið fæ ég mér ávöxt.“
Hvar líður þér best?
„Á rösklegri göngu í rigningu og
roki, helst við vatn eða við fjöru.
Vellíðan við heimkomuna gerir
það að verkum að maður lætur
veðrið ekki aftra sér frá göngu í
svona veðri.“
Hvernig heldur þú þér í formi?
„með göngutúrum og núna þessa
dagana líka í turninum í Kópavogi
með glænýja þjálfunaráætlun. svo
auðvitað að borða rétta matinn
sem ég má borða og drekka nóg
af vatni.“
Hvaða snyrtivörur notar
þú dagsdaglega?
„Hydrafresh-rakagelið frá L´oreal
og L’oreal-maskara. af förðunar-
vörum er mac í svolitlu uppáhaldi
og á ég góðan grunn af vörum
þaðan. dagsdaglega nota ég svo
beat-ilmvatnið frá burberry en
spari er það L´instant de guerlain
sem vinkonur mínar gáfu mér.“
Hvar kaupir þú helst föt?
„Ég á góð föt frá gK, Hm og fleiri
góðum búðum.“
Hvað gerir þú þegar þú
vilt dekra við sjálfa þig?
„maður lifandi.“
Hvert er þitt helsta
fegrunarráð?
„Hugsaðu jákvætt um sjálfa þig,
umhverfi þitt og aðra í kringum
þig. drekka vatn og fá góðan 8
tíma svefn.“
Lumar þú á einu góðu ráði
fyrir okkur hinar?
„nýlega fann ég frábæra lausn
varðandi það hvernig geyma eigi
förðunarvörur á haganlegan hátt í
baðherberginu. mín lausn kostaði
1.490 krónur. Ég keypti mér í Ikea
hnífaparaskúffustatíf og setti inn í
skúffuna í baðherberginu, þannig
að öllu er vel komið fyrir - blýantar
- burstar - maskarar - varalitir -
púðurmeik og svo framvegis.“
Brot úr bókinni:
l Við fæðingu eiga japanskar konur von á
að lifa lengur en konur í 192 öðrum lönd-
um eða 77,7 ár við góða heilsu.
l Japanskir karlmenn geta búist við bestu
heilsu allra karlmanna í heiminum.
l Heilbrigðislíkur Japana eru betri en
allra annarra þjóða í heiminum og þeir
lifa heilum þremur árum lengur en bæði
Frakkar og Þjóðverjar, fjórum árum leng-
ur en Bretar og nærri sex árum lengur en
Bandaríkjamenn sem eru í tuttugasta og
þriðja sæti.
Zen-hugleiðingarnar fimm
sem Japanir notast við áður
en þeir matast.
1. Ég hugleiði alla þá vinnu sem þurfti
til að færa þennan mat á borðið,
leyfið mér að sjá hvaðan maturinn er
kominn.
2. Ég íhuga minn eigin ófullkomleika
og hvort ég verðskuldi þessa
matargjöf.
3. megi hugur minn vera laus við
mismunun og græðgi.
4. Ég neyti þessarar fæðu til að halda
líkamanum hraustum.
5. Ég þigg þennan mat svo ég geti
haldið áfram á andlegri vegferð
minni til upplýsts hugar.
Nýja Sendibílastöðin
568 5000