Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Qupperneq 35
Helgarblað
Köngulóin í jukkunni
Þegar Rakel er spurð hvort hún eigi sér
einhverja eftirlætisflökkusögu nefnir hún
strax söguna um „köngulóna í jukkunni“.
Þessi saga hefur verið býsna lífseig og sjálf-
sagt hafa margir heyrt hana í ýmsum myndum
en í stuttu máli er hún eitthvað á þessa leið: Kona
fór í Blómaval og keypti sér forláta jukku
sem hún stillti upp í stofunni heima hjá sér
enda blómið hin mesta prýði.
Konan vökvaði blómið reglulega,
eins og vera ber, og heyrði iðulega
torkennileg hljóð, hálfgert hvæs,
þegar vatnið skall á plöntunni. Kon-
an lét þó hljóðin sem vind um eyru þjóta í
nokkur skipti en hvæsið frá plöntunni varð
að lokum slík ráðgáta að hún fór að rannsaka
blómið betur. Heldur brá frúnni í brún þegar hún
horfðist þá í augu við kafloðna og risavaxna tarantúlu
sem kunni athyglinni og vatnsúðanum fremur illa. Allt
fór þetta þó á besta veg og sérfræðingur, sem sá um að
fjar- lægja ófétið, var kallaður til. Margir létu sér
þessa skelfilegu reynslu að kenningu verða
og fóru að öllu með gát þegar jukkur voru
keyptar, minnugir þess að óvelkomnar átt-
fætlur gætu fylgt með í kaupunum.
„Ég man svo vel eftir því
þegar ég heyrði þessa sögu
í fyrsta sinn. Ég er sjálf svo
hrædd við köngulær að
ég þreyttist ekki á að
segja fólki frá þessu,“
segir Rakel sem er flest-
um fróðari um flökkusögur á Ís-
landi.
Kötturinn í örbylgjuofninum
og Koss dauðans
ógeðslegar, fyndnar og oft svo vand-
ræðalegar að við viljum trúa því að
þær séu sannar.“ Trúverðugleikann fá
sögurnar svo ekki síst vegna þess að
frumheimildin virðist jafnan standa
sögumanni nærri og ekki fer
fólk að ljúga slíkum ósköp-
um að sínum nánustu.
„Þetta er oftast frænka
einhvers, eða einhver
náskyldur, sem hefur
lent í þessu og það
elur á alls kyns til-
finningum. Sög-
urnar lifa síð-
an góðu lífi í
meðförum
manna og
alltaf er
verið að
bæta
ein-
hverju við til að byggja undir trúverð-
ugleikann.“
Rakel segir fjölmiðla hafa
gegnt stóru hlutverki í
útbreiðslu
flökkusagna og að þær rati oft í alvöru
fréttir sem heilagur sannleikur. Í því
sambandi þarf ekki að fjölyrða um
áhrifamátt netsins þar sem flökku-
sögur grassera og berast sem eldur
um sinu út um allan heim. Þá varð-
veitast sögurnar, taka breytingum og
berast ekki ósvipað bröndurum
á milli fólks og þrátt fyrir mátt
fjölmiðlanna á síðustu ára-
tugum virðist hin munnlega
geymd enn vera traustasti og
öflugasti farvegur flökkusagn-
anna.
Hundurinn Lúkas
Flökkusögurnar sækja
áhrifamátt sinn síðan ekki
síst til hinna óljósu marka
á milli skáldskapar og
raunveruleika. Stund-
um geta sögurnar átt
sér hliðarsögur sem
eiga sér
stoð í
raun-
veru-
leik-
anum
en fara
að hegða
sér sem
flökkusögur.
Eða öfugt. Hundur-
inn Lúkas, sem átti að
hafa geispað golunni
í íþróttatösku sem of-
beldisfauti notaði fyrir
fótbolta, er ágætt dæmi
um það hvernig óljós
kjaftasaga öðlast sjálf-
stætt líf og verður að
stórfrétt. Netið stuðl-
aði að trylltri útbreiðslu
„flökkusögunnar“ um
myrta smáhundinn sem
öðlaðist slíkan slagkraft
að múgurinn róaðist ekki
fyrr en saklaus maður
hafði nánast verið brennd-
ur á báli í netheimum
fyrir glæpinn sem
aldrei var
framinn.
En
sagan
var góð
og því
ekki ann-
að hægt en að trúa henni. Flökkusög-
urnar eru nefnilega svolítið eins og
hundurinn Lúkas. Þær spretta upp
úr engu, neita að deyja og skjóta upp
kollinum á ólíklegustu stöðum.
Vatnshrúturinn ehf
Ný pípulagnaþjónusta á skaganum
Nýlagnir & breytingar
Öll almenn pípulagnaþjónusta
Upplýsingar gefur Benni í síma 899 3464
Tækifæri
Vantar þig fulla vinnu ?
Eða hlutastarf með námi,
eða annari vinnu ?
Eða ertu heimavinnandi,
og vantar auka tekjur ?
www.vinnaheima.is
Bláir fiskar
Markaður
Ægisbraut 9, eh., 300 Akranesi
Skranbúð & antik
notað eða nýtt
Opið föstud., laugard. og sunnud.
kl. 12:00 - 18:00
Allir velkomnir
visa - visa létt master