Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Blaðsíða 38
föstudagur 26. september 200838 Helgarblað DV
Ertu drama-
drottning?
taktu prófið: Hafa vinir þínir og vandamenn fengið sig fullsadda af dramatíkinni í þér? Taktu
dramaprófið og finndu út hversu mikil dramadrottning þú raunverulega ert.
A. Þú veltir þér upp úr hverju einasta smáatriði
þannig að þú getur ekki sofnað.
B. Þú segir henni að hún sé að ímynda sér þetta.
C. Þú huggar hana en kemur því smekklega að að þú
hafir ekki áhuga á að blanda þér í málið.
Vinkonu þína grunar að kærasti
hennar haldi framhjá og hún
hringir í þig:
Hvaða frasa nota vinkonur
þínar oftast á þig?
A. Róa sig!
B. Ertu klikkuð?
C. Kippir þú þér ekki upp við neitt,
eða...?
Þú hittir gaur, ferð á eitt deit. Þið
skemmtið ykkur vel. Daginn eftir ...
A. ... ferðu í vinnuna og pælir ekkert í gærkvöldinu.
B. ... rifjar þú upp skemmtilegar stundir frá gærkvöld-
inu.
C. ... segirðu vinkonum þínum frá öllu sem gerðist og
spyrð þær hvenær þær haldi að hann hringi.
4 5 6Þú varst búin að ákveða að fara út að borða með vinkonu þinn en hún
mætir ekki og segir síðan sorrí.
A. Þér finnst óþægilegt að minnast á það og gerir lítið
veður út af því.
B. Þú ert brjáluð og lætur eins og hún sé ekki til í heila
viku.
C. Þú ert pirruð út í hana og lætur hana vita hvernig þér
líður og þá er það búið.
Þegar eitthvað bjátar á...
A. ... talar þú um það við aðra, en þú ert ekkert að
kvarta, segir bara hvernig þér líður.
B. ... andar þú djúpt að þér og frá aftur og reynir að
velta þér ekki upp úr hlutunum.
C. ... fá allir að heyra hvað er í gangi hjá þér.
Þú kynnist strák og honum fylgir
smá „pakki“.
A. Pakki! Nei, takk! Ég þarf ekki á því að halda.
B. Ú, ekki alveg það sem ég var að leita að, en ég er
tilbúin að gefa þessu sjens.
C. Frábært! Ég tek því sem áskorun.
87 9Þú tekur eftir nýjum, undarlegum fæðingarbletti á bringunni.
A. Þú fylgist með honum og ferð til læknis ef hann
breytist.
B. Þú færð algjört sjokk, ert sannfærð um að þetta sé
krabbamein og spyrð alla sem þú hittir hvað þetta
gæti verið.
C. Þér bregður dálítið þar sem bletturinn er á bring-
unni og minnir sjálfa þig á að panta tíma hjá lækni
bráðlega.
Yngri systir þín er að fara að gifta
sig. Hún hringir fyrst í þig með
góðu fréttirnar.
A. „Geggjað! Hvenær er brúðkaupið?“
B. „Ég er svo ánægð fyrir þína hönd. Hvenær förum við
að kaupa kjólinn?“
C. „Er þetta ekki að gerast aðeins of fljótt? Ertu viss um
að þú sért tilbúin?“
Þú ert í víðum kjól og kunningi
þinn spyr hvort þú eigir von á þér.
A. Þú verður alveg brjáluð og byrjar að fasta til að
reyna að léttast um 15 kíló.
B. Lætur þetta ekki á þig fá. Þú ert ánægð með líkama
þinn.
C. Svarar neitandi og segir við hann að þetta sé ekki
rétta spurningin til að spyrja konu.
1 2 3
18-27
Þú ert drottning dramatíkurinnar. Þú ert oftast
nær miðpunktur allra samræðna og gerir mikið
veður út af minnstu hlutum. Vinir þínir eru alltaf
að biðja þig að slappa aðeins af og bara njóta
lífsins.
9-17
Þú dettur stundum í dramatíkina, en á mjög
skemmtilegan hátt. Vinir þínir hlæja að þér og
hafa einungis gaman af því.
0-8
Þú er mjög yfirveguð og jarðbundin. Ferð sjaldan
fram úr sjálfri þér og veitir vinum ávallt mikinn
stuðning. Það er ekkert dramatískt við það.
1. A 3 stig B 1 stig C 2 stig
2. A 3 stig B 2 stig C 1 stig
3. A 1 stig B 2 stig C 3 stig
4. A 1 stig B 3 stig C 2 stig
5. A 2 stig B 1 stig C 3 stig
6. A 3 stig B 2 stig C 1 stig
7. A 1 stig B 3 stig C 2 stig
8. A 1 stig B 2 stig C 3 stig
9. A 3 stig B 1 stig C 2 stig
útreikningur og niðurstöður: