Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Page 40
föstudagur 26. september 200840 Sport
Sport Íslandsmótið ræðst Á laugardaginn fer fram lokaumferðin í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Þá ræðst hvaða lið verður Ís-landsmeistari, Keflavík eða fH. Keflavík tekur á móti fram á heimavelli og dugar alltaf sigur til þess að vinna titilinn í fyrsta skiptið í 35 ár. tapi Keflavík og fH vinnur fylki verður fH meistari í fjórða skiptið á fimm árum. Jafntefli dugar fH einnig vinni það fylki með meira en tveimur mörkum. aðrir leikir í umferðinni eru: Valur-Kr, Þróttur-grindavík, Ía-fjölnir og HK-breiðablik. fram, Kr og Valur eiga öll möguleika á 3. sætinu og þar með öruggu sæti í evrópukeppni félagsliða.
Í síðustu keppni á á Ítalíu gerðist
sögulegur hlutur. Þjóðverjinn Seb-
astian Vettel varð þá yngsti ökumað-
urinn til að sigra í keppni í Formúl-
unni þegar hann kom fyrstur í mark
á rennblautri Monza-brautinni.
Keppnin á sunnudaginn, sem haldin
verður á Marina Bay-svæðinu í Sing-
apúr, verður einnig söguleg. Í fyrsta
skiptið er keppt í flóðljósum að næt-
urlagi.
Flóðlýstar keppnir eru ekki al-
gengar en hafa verið notaðar í
keppnum sem taka lengri tíma. Le
Mans-kappaksturinn í Frakklandi
nýtir sér þessa tækni en þar er keyrt
í sólarhring án þess að stoppa. Eng-
inn ökumaður hefur fengið að keyra
brautina fyrr en í dag. Tvær æfing-
ar eru í dag, föstudag, tímatakan á
morgun og sjálf keppnin á sunnu-
daginn eins og vaninn er.
ótrúleg braut
Flóðlýsingin er engu lík og fjórföld
sú er má sjá á stóru íþróttaleikvöng-
unum. Eitt þúsund og fimm hundr-
uð kastarar með 2.000 vatta perum
lýsa upp brautina sem er götubraut
innan borgarmarka. Sebastian Bord-
ais, ökumaður Torro Rosso, er fjór-
faldur Ameríkumeistari í kappakstri.
Hann varð fyrstur manna til að rölta
í gegnum brautina, ríflega fimm kíló-
metra göngutúr það og Bourdais líst
vel á en hefur smá áhyggjur.
„Þetta er nánast eins og dagsbirta,
þessi ljós eru svo svakaleg. Ljósin
virka alveg fullkomlega og það er að-
dáunarvert það sem aðstandendur
keppninnar hafa gert hérna. Ég hef
þó smá áhyggjur af 10. beygju. Þar
eru háir kantar sem eiga að varna því
að menn taki fram úr en í raun gera
þeir ekkert nema skemma bílana.
Þá er aðreinin inn á viðgerðasvæðið
mjög varasöm,“ segir Bourdais.
Fullkomnir ökuhermar
Þó ekkert liðanna hafi fengið að
keyra brautina hafa þau æft sig stíft
í ökuhermum. Liðin hafa mælt út
brautina og keyrt stanslaust síðustu
daga. Öll liðin hafa svona herma en
munur er á gæðum þeirra. „McLar-
en, Ferrari, Red Bull, Williams og
Renault eru öll með mjög fullkomna
ökuherma. Ég talaði við Pedro de la
Rosa sem er þróunarökumaður hjá
McLaren. Hann segir að það vanti
stigakeppni ökumanna
1. Lewis Hamilton, mcLaren 78
2. felipe massa, ferrari 77
3. robert Kubica, bmW 64
4. Kimi räikkönen, ferrari 57
5. Nick Heidfeld, bmW 53
6. Heikki Kovalainen, mcLaren 51
7. fernando alonso, renault 28
8. Jarno trulli, toyota 26
9. sebastian Vettel, toro rosso 23
10. mark Webber, red bull 20
11. timo glock, toyota 15
stigakeppni bÍlasmiða
1. ferrari 134
2. mcLaren 129
3. bmW 117
4. toyota 41
5. renault 41
6. toro rosso 27
7. red bull 26
8. Williams 17
9. Honda 14
10. force India 0
11. super aguri 0
Fjórða síðasta keppnin í Formúlu 1 fer fram í Singapúr á sunnudaginn. Mótið er sögu-
legt fyrir þær sakir að í fyrsta skiptið er ekið að næturlagi í flóðljósum. Ökumenn fá
tvær æfingar í flóðljósunum en var neitað um að keyra að degi til. Einu stigi munar á
efstu tveimur mönnunum og gætu línur farið að skýrast eftir þessa keppni. gunnlaugur
rögnvaldsson, Formúlu-sérfræðingur Stöðvar 2 Sports, býst við skemmtilegri keppni.
tómas Þór ÞórðarsOn
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
öll augu á þeim stutta sebastian
Vettel varð um síðustu helgi yngsti
sigurvegari í formúlu 1 frá upphafi.
Hvað gerir hann í singapúr?
Formúlan verður
ljósið í myrkinu
svona 20% upp á að þetta sé eins
og að keyra í keppninni sjálfri, þeir
fái svo mikla tilfinningu fyrir braut-
inni,“ segir Gunnlaugur Rögnvalds-
son, umsjónarmaður Formúlunnar
á Stöð 2 Sport og andlit íþróttarinnar
hér á landi.
spáð þrumum og eldingum
Keppnin á sunnudaginn gæti orð-
ið enn áhugaverðari ef litið er til veð-
urspárinnar. Spáin er einföld. Þrum-
ur og eldingar. Því gæti fylgt mikil
bleyta sem myndi gera ökumönnum
enn erfiðara fyrir að aka á braut sem
þeir ekki þekkja. „Bourdais bjó í Flór-
ída og hann er vanur þannig veðri.
Hann segir að verði þrumur og rign-
ing að næturlagi dugi ekkert minna
en bátur til að ná árangri svo mikil er
rigningin,“ segir Gunnlaugur.
afskrifar ekki kubica
Aðeins munar einu stigi á efstu
tveimur mönnunum í stigakeppn-
inni, Hamilton og Massa, en tel-
ur Gunnlaugur að stórar breytingar
verði á töflunni eftir kappaksturinn
á sunnudaginn? „Það er erfitt að
spá í þessa keppni. Alonso fékk á sig
þennan dóm þannig að hann kemur
brjálaður til leiks. Verði mikil rigning
gætu Ferrari-menn átt í vandræð-
um með dekkin og svo hef ég ekk-
ert afskrifað Robert Kubica sem er
fjórði í stigakeppninni. Ég held að
þessir fjórir efstu gætu verið líklegir
á sunnudaginn og eftir það gætu lín-
ur farið að skýrast í mótinu. Svo er
auðvitað frábært að fá unga strákinn
Vettel inn í þetta. Verði mikil rign-
ing tel ég hann eiga góða möguleika
líka,“ segir Gunnlaugur.
Hamilton líkur schumacher?
Lewis Hamilton fékk á sig 25 sek-
úndna víti sem kostaði hann sigur á
Spa-brautinni í Belgíu fyrir að stytta
sér leið. Þrír ökumenn, þeir Fern-
ando Alonso, Mark Webber og Timo
Glock, voru svo brjálaðir út í Ham-
ilton fyrir aksturslag hans á Monza-
brautinni í síðustu keppni. Þeir segja
hann þvinga menn nánast út af
brautinni og Webber sagði hann hafa
klippt á framdekkið hjá honum til að
þjóta fram úr honum.
Timo Glock var hvað reiðastur og
sagði: „Ég veit ekki hvað maðurinn
var að hugsa. Ég var alveg upp við
hann en hann gaf mér ekkert pláss.
Stundum keyrir hann bara eins og
hann sé aleinn á brautinni. Næst
þegar við erum hlið við hlið á braut-
inni mun ég haga mér nákvæmlega
eins.“
Spurður um þessi orð ökuþór-
anna svaraði Gunnlaugur um hæl:
„Eru þeir ekki bara að tala um Mich-
ael Schumacher? Hamilton fer bara
eins langt og hann kemst og það er
kannski það sem þarf.“
Útsending á þessum sögulega
kappakstri hefst klukkan 11.30 á
sunnudaginn á Stöð 2 Sport.
© GRAPHIC NEWS
Heimild: FIA
Fyrsta Formúlu keppnin sem fram fer að næturlagi verður
haldin á nýrri braut í Singapúr. Brautin er staðsett á hinu
heimsfræga Marina Bay-hver og er keyrð rangsælis innan
borgarmarka.
Esplanade
Brúin
Esplanade
Singapúrhjólið
Beygja
Við-
gerð-
arhlé
Flotpallur
Áhorfenda-
stæði
Hafnar-
torgið
Sólarorku-
borgin
Árþúsunds-
turninn
Tombólu
Hótelið
Stríðs-
minja
garðurnn
Anderson
Brúin
Fullerton
Hótelið
Padang
Borgara-
hverð
St Andrew’s
Dómkirkjan
Tombólu borgin
MARINA
BAY
Singapúr
Marina Bay
10km
1
2
3
4
56
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20 21
22
23
24
Rásmark
Dagsetning: September 28
Tími: 20:00 staðartíma, 12:00 ÍSL
Lengd brautar: 5,067 km
Heildarlengd: 309,087 km
Fjöldi hringja: 61
HVERNIG BRAUTIN ER LÝST UPP
Ljósin sem verða sett upp við brautina fyrir kappaksturinn
eru órum sinnum öugri en á meðal íþróttaleikvangi.
lampar, 4 metrar á milli hvers.
Ljóskastarar: hver lamp er 2000 vött, samanlagt 1,500
ytja rafmagn, samskiptakapla og ljósleiðara.
sérstaklega stillt til að fá jöfn birtuskilyrði.
Bili einhver einn rafall tekur sá næsti við.
Burðargrindir úr áli: eru kringum alla brautina,
Háspennumöstur: 8-12m stór. Hæð hvers masturs
Orka: 12 tvöfaldir raar á öruggum svæðum.