Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Page 41
föstudagur 26. september 2008 41Sport
Grétar á Old traffOrd Okkar strákar á englandi verða
í eldlínunni eins og vanalega þegar helgin gengur í garð.
grétar rafn steinsson fer með sínum félögum í bolton á
sjálfan Old trafford-leikvanginn í manchester og mætir eng-
landsmeistrunum. grétar lék þar einnig með bolton í fyrra
en tapaði, 2-0, með tveimur mörkum Cristianos ronaldo. fái
Hermann Hreiðarsson tækifæri í hriplekri vörn portsmouth
mun hann leika á heimavelli gegn tottenham. Hvorugt lið-
anna hefur farið vel af stað en tottenham þó öllu verr enda
ekki náð að vinna einn sigur á tímabilinu í deildinni.
„Það fyrsta sem ég geri þegar leikja-
planið birtist er að skoða hvenær
við leikum gegn Man.Utd og Ev-
erton,“ sagði Jamie Carragher, hinn
innfæddi leikmaður Liverpool á
dögunum.
Það eru margir rómaðir granna-
slagir í enska boltanum en óvíða er
eins mikill titringur og eftirvænt-
ing og í Liverpool-borg þar sem allt
snýst um fótbolta. Leikir Everton
og Liverpool í gegnum tíðina hafa
verið harðir og einkennst af mik-
illi baráttu. Í meðalleik sjá liðin
álíka mörg spjöld á lofti og skauta-
hlauparar í einkunnagjöf. Ómögu-
legt hefur verið að spá fyrir um úr-
slit leikjanna eftir stöðu liðanna í
deildinni. Hún skiptir engu máli í
þessum viðureignum.
rígurinn eykst
Rígur félaganna hefur síður en
svo minnkað með árunum. Ef eitt-
hvað er hefur hann aukist. Leik-
ir liðanna undanfarin ár hafa líka
borið þess merki. Í september 2006
tók Everton á móti þeim rauðu og
vann stærsta sigur sinn á Liver-
pool í 32 ár. Mikill viðbúnaður var
í borginni þar sem stuðningsmenn
Everton fóru mikinn enda höfðu
þeir þurft að sætta sig við tap í 12 af
síðustu 13 leikjum liðanna. Karam-
ellurnar (The Toffies) fengu upp-
reisn æru og Liverpool-borg varð
blá á litinn.
Þessi minni lið
Spennan var því rafmögnuð
þegar liðin mættust í næsta leik á
Anfield. Markalaust jafntefli varð
niðurstaðan eftir að heimamenn
höfðu verið með boltann mestall-
an tímann. Leikurinn sjálfur var
ekki eftirminnilegur og Everton
fagnaði hefndarmissi Liverpool.
Eftirleikurinn var öllu fjörlegri. Í
viðtali við fjölmiðla eftir leikinn
sagði Rafael Benitez, stjóri Liver-
pool, að hætta væri á svona nið-
urstöðu þegar keppt væri við þessi
minni lið (e. smaller teams ) sem
legðust bara í vörn. Liðsmenn Ev-
erton tóku þessu illa, eins og gefur
að skilja, og mikið rifrildi í fjölmiðl-
um hófst. Rígurinn blómstraði sem
aldrei fyrr.
farsi á Goodison
Liðin mættust næst í söguleg-
um leik í október 2007 á Goodison
Park þar sem óteljandi umdeild
atvik áttu sér stað. Sjálfsmark, tvær
vítaspyrnur og tvö rauð spjöld
voru aðeins hluti af réttum dags-
ins. Fyrir leik höfðu fréttir borist af
hugsanlegu brotthvarfi Everton úr
borginni og létu stuðningsmenn
liðanna skoðanir sínar óspart í ljós
á leiknum. Liverpool sigraði 1-2 og
viðbúnaður lögreglu eftir leikinn
var gríðarlegur enda hitastigið um
og yfir suðumarki.
torres bjargar
Í síðasta leik liðanna í mars síð-
astliðnum mætti Everton í miklum
hefndarhug á Anfield. Talsvert fjöl-
miðlafár var fyrir leikinn þar sem
yfirlýsingar leikmanna og stjór-
anna Moyes og Benitez gengu á
víxl. Skemmst er frá því að segja að
leikmenn slógust úti um allan völl
og tæklingar upp í nára sáust með
reglulegu millibili. Hvorugt liðið gaf
nokkuð eftir og áhorfendur gengu
af göflunum. Niðurstaðan varð sú
að aðeins eitt mark spænska gulld-
rengsins skildi liðin að. Úrslitin
1-0 og íþróttafréttamenn notuðu
enn og aftur fleygustu línu síðasta
tímabils: „Hvar væri Liverpool án
Fernandos Torres?“
Hvað gerist nú?
Þessir fornu fjandvinir mætast
nú í hádeginu á laugardaginn á
heimavelli Everton. Bæði lið, sam-
kvæmt hefðbundnum yfirlýsing-
um, stefna á sigur og ekkert annað.
Liðin hafa sýnt góða og slæma leiki
í byrjun tímabilsins en í svona leik
er það dagsformið og stemningin
sem munu skipta sköpum. Sterk-
ustu leikmönnum liðanna verð-
ur stillt upp og blásið í herlúðra.
Hver svo sem gæði leiksins verða
er hægt að lofa borgarastyrjöld á
Goodison Park. Flautað verður til
leiks klukkan 11.45.
SíðuStu Sex
leikir liðanna
28. desember 2005 á goodison park
EvErtOn 1 - 3 livErpOOl
phil Neville - peter Crouch, steven
gerrard, djibril Cissé
25. mars 2006 á anfield road
livErpOOl 3 - 1 EvErtOn
phil Neville (sm.), Luis garcia, Harry
Kewell - tim Cahill
9. september 2006 á goodison park
EvErtOn 3 - 0 livErpOOl
andy Johnson 2, tim Cahill
3. febrúar 2007 á anfield road
livErpOOl 0 - 0 EvErtOn
20. október 2007 á goodison park
EvErtOn 1 - 2 livErpOOl
sami Hyypia (sm.) - dirk Kuyt 2 (bæði
úr vítum)
30. mars 2008 á anfield road
livErpOOl 1 - 0 EvErtOn
svEinn waaGE
blaðamaður skrifar: swaage@dv.is
Baráttan um
BítlaBorgina
Everton tekur á móti grönnum sínum Liverpool á laugardag-
inn. Miðað við síðustu leiki liðanna, umdeild atvik og dramatík
ber að flokka viðureignir félaganna undir borgarastyrjöld frek-
ar en nágrannaslag.
arOn fErðast til BlackpOOl aron einar gunn-
arsson verður væntanlega í byrjunarliði Coventry sem
heimsækir blackpool í Championship-deildinni um
helgina. Þá eiga hin Íslendingaliðin tvö heimaleiki.
Jóhannes Karl guðjónsson og félagar í burnley fá
preston í heimsókn sem situr í 3. sæti deildarinnar.
burnley er í því 13. Þá taka Ívar Ingimarsson og brynj-
ar björn gunnarsson á móti swansea sem hefur farið
vel af stað í deildinni og er öllum að óvörum í 12. sæti.
reading er þó öllu ofar, í sjötta sæti deildarinnar.
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Patti lagersala
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
í 4 mis
munand
i áklæðu
m
Bjóðum
1 5 tungu
sófa
verð áður 139.000
kr.69.000,-
á aðeins
yfir 200 gerðir af sófum
VERÐHRUN
Tek að mér að þvo og bóna bíla (djúp- og blettahreinsun)
Bjargvætturinn
torres fagnar sigurmark-
inu í síðasta borgarslag.