Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2008, Síða 12
FIMMTUdagUr 11. dESEMBEr 200812 Fréttir
Í bígerð er að opna sérstakt safn
um einræðisherrann og harðstjór-
ann Saddam Hussein, sem stjórn-
aði með harðri hendi í Írak frá 1979
til 2003. Ráðgert er að safnið verði
opnað í Bagdad, höfuðborg lands-
ins, á næsta ári.
Hugmyndasmiðurinn að baki
safninu er Arif Abdul Razak al-Sha-
heem dómari, en hann var ein-
mitt dómari réttarins sem dæmdi
Hussein til dauða í nóvember 2006.
Dauðadómnum var framfylgt í lok
desember sama ár.
Safnið mun verða eins kon-
ar skrásetning þeirra glæpa sem
framdir voru af stjórn Saddams
og er ætlað að senda skýr skilaboð
um að jafnvel verstu harðstjórar fái
ekki flúið réttlætið. Arif Abdul Raz-
ak al-Shaheem vill að tuttugu og
sex milljónir skjala sem innihalda
sönnunargögn verði aðgengileg
á safninu, þeirra á meðal vitnis-
burðir og yfirlýsingar verjenda frá
réttarhöldunum yfir Saddam og
skósveinum hans. „Ég mun senda
skilaboð til allra einræðisherra í
heimi hér um að tími einræðis sé
liðinn,“ sagði Arif Abdul Razak al-
Shaheem um safnið.
Hryllingssafn Saddams
Á meðal sýningargripa verður járn-
búr, mótað eins og mannslíkami,
sem notað var til að pynta íþrótta-
menn sem ekki stóðu undir vænt-
ingum. Einnig verður hægt að berja
augum, á þessu hryllingssafni Sadd-
ams, blóðugar snörur og árásar-
áætlanir sem miðuðu að útrýmingu
Kúrda, en tilvist þeirra var eitt af því
sem Saddam hugnaðist ekki.
Á safninu verða til sýnis raun-
veruleg skjöl um árásirnar á varn-
armálaráðuneyti Kúrda og „hvern-
ig ráðgert var að þurrka út þorpin“,
sagði Shaheem. Á meðal þeirra
skjala er kort sem notað var í svo
nefndri al-Anfal-herferð, en í henni
beittu Saddam Hussein og frændi
hans, Ali Hassan al-Majid, Efna-
vopna-Ali, efnavopnum til að drepa
þúsundir Kúrda í norðurhluta Írak.
Á því má sjá rauðgular örvar sem
sýna hreyfingar herja Saddams og
rauða punkta sem sýndu staðsetn-
ingu uppreisnarsveita Kúrda sem
nú hafa tekið við hlutverki öryggis-
sveita í Kúrdistan.
Pyntingar í húsnæði
ólympíunefndar
Járnbúrið sem verður til sýn-
is fannst á skrifstofum íröksku ól-
ympíunefndarinnar og er eitt af
því hryllilegasta á safninu. Ólymp-
íunefndin var undir stjórn sonar
Saddams, Uday, en hann var síst
skárri pappír en faðir hans.
Búrið var notað til að pynta
íþróttamenn sem ekki stóðu undir
þeim væntingum sem gerðar voru
til þeirra. Hnefaleikari einn, sem
tapaði bardaga, var afklæddur og
lokaður inni í búrinu sem síðan var
híft upp. Í þrjátíu daga mátti hann
þola brennandi sólina, innilok-
aður í búrinu, ófær um að beygja
fótleggina og með brunasár vegna
heits járnsins.
Eftir að hnefaleikamanninum
hafði verið gefið eitthvað að eta
sveifluðu verðirnir búrinu þannig
að fórnarlambið seldi upp.
Síðasti felustaðurinn
Til að byrja með verður safnið til
húsa í litlum sal sem er rúmlega
220 fermetrar að flatarmáli. Sal-
urinn er í vöruskemmu, og nú er
unnið að því að koma öllum skjöl-
um stjórnar Saddams í tölvutækt
form.
Hugmynd er uppi um að smíða
tröppur niður í salinn og hafa inn-
ganginn þannig að sólin komi upp
að baki honum. Á táknrænan hátt
mun sólin rísa og skína á nokkuð
sem heyrir sögunni til.
Auk pyntinga- og morðtóla
verða sýndir hlutir sem Saddam
Hussein hafði í fórum sínum þeg-
ar bandarískir hermenn fundu
hann árið 2003.
Eftirlíking í fullri stærð af hol-
unni sem Saddam fannst í um
miðjan desember 2003 verður
sett upp í einu horni salarins. Þeir
hlutir sem hann var þá með verða
til sýnis á safninu; skjalataska,
spegill, landlínusími og tvær
bækur, kóraninn og skáldsaga.
Stólar sakborninga
Ætlunin er að að þrír stólar sak-
borningastúku réttarsalarins, þar
sem réttað var yfir Saddam Huss-
ein, Efnavopna-Ali og Tarik Aziz,
aðstoðarforsætisráðherra Sadd-
ams, verði endurgerðir og sýndir.
Sönnunargögn um harðstjórn
Saddams munu verða aðgengi-
leg í tölvum og ekkert á að verða
undanskilið. Þar mun geta að líta
smáatriði skipunar Saddams um
að taka af lífi sjíamúslima sem risu
upp gegn honum í kjölfar Flóa-
stríðsins 1991 og fyrirmælin um
dráp 148 sjíamúslima í bænum
Dujali, en dauðadómur Saddams
grundvallaðist á þeim verknaði.
Lokatakmark Arif Abdul Raz-
ak al-Shaheem dómara er að færa
safnið inn í húsnæði dómstóls-
ins. Þar voru áður til húsa höfuð-
stöðvar Baath-flokks Saddams, og
stendur það ekki fjarri bandaríska
sendiráðinu innan græna svæðis-
ins svonefnda.
Shaheem er bjartsýnn á að inn-
an árs verði störfum dómstóls-
ins lokið, en þrettán mál bíða enn
umfjöllunar, og þá verði hægt að
leysa réttinn frá störfum.
Kolbeinn þorSteinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Járnbúr Uday, sonur
Sddams, refsaði
íþróttamönnum
grimmilega.
Ýmis tæki og tól Voru
nauðsynleg hjá íröksku
ólympíunefndinni.
Hryllingssafn saddams
Saddam Hussein er búinn að vera fjarri góðu gamni í fjölda ára, en arfleifð hans
hefur lifað. Nú hyggst dómari við réttinn sem dæmdi Saddam koma upp safni um
stjórnartíð hans. Þar verða til sýnis sönnunargögn um ódæði einræðisherrans og
skósveina hans og ýmis tól og tæki sem notuð voru við pyntingar og aftökur.