Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2008, Blaðsíða 25
FIMMTUdagUr 11. dESEMBEr 2008 25Sport
Lampard viLL þakka stuðninginn Frank Lampard vill þakka stuðningsmönnum
Chelsea fyrir stuðninginn í gegnum árin með því að ná Englandmeistaratitlinum aftur á Stan-
ford Bridge. „Ástæðan fyrir því að stuðningsmennirnir eru mér svo kærir er vegna þess hversu
vel þeir tóku á móti mér þrátt fyrir að vera fyrrverandi leikmaður erkifjendanna í West Ham og
vera auk þess uppalinn hjá félaginu. Fyrsta árið var mér erfitt og ég lék ekki vel en stuðnings-
mennirnir tóku við mér, gáfu mér tækifæri og á öðru árinu fann ég fullan stuðning þeirra. Mér
líður eins og Chelsea-manni og liðið hefur tekið yfir mitt líf,“ sagði Lampart fullur þakklætis
redknapp viLL
tvo frá West
Ham
Harry redknapp, stóri Tottenham,
ætlar á heimaslóðir í janúargluggan-
um og hyggst bjóða 16 milljónir
punda í varnarjaxlinn Matthew
Upson og markmanninn robert
green hjá West Ham. redknapp
gerði góða ferð á Upton Park á
mánudaginn þegar lið hans lagði
West Ham 2-0. Hatty telur að green
sé upplagður til að taka við af
Heurelho gomes sem ekki hefur
verið sannfærandi í haust og þar
sem Ledley King og Jonathan Wood-
gate eru meira eða minna meiddir
gæti enski landsliðsmaðurinn
Upson reynst Tottenham mikilvæg-
ur seinni hluta tímabilsins.
gaLLiani neitar
áHuga á agger
adriano galliani, varaforseti aC
Milan, hefur neitað þeim sterka
orðrómi að ítalska liðið hafi áhuga á
danska varnarmanninum daniel
agger, leikmanni Liverpool. agger
hefur áður lýst því yfir að hann væri
alsæll á anfield og rafa Benitez segir
hann mikilvægan í framtíðarplönum
félagsins. Haft var eftir galliani í
dönskum fjölmiðlum að fyrrverandi
Bröndby-leikmaðurinn agger, sem
verður 24 ára í dag, væri einn af 3-4
fjórum nöfnum sem væru á óskalista
Milan. galliani neitar aftur á móti að
hafa talað við dönsku pressuna um
daniel agger og segir rangt haft eftir
sér.
UMSJón: TóMaS þór þórðarSon, tomas@dv.is / SvEInn WaagE, swaage@dv.is
meistaradeiLdin
e riðiLL
ceLtic - viLLareaL 2-0
man. united - aab 2-2
Lokastaðan
Lið L u J t m st
1. Man. Utd 6 2 4 0 9:3 10
2. villarreal 6 2 3 1 9:7 9
3. aaB 6 1 3 2 9:14 6
4. Celtic 6 1 2 3 4:7 5
f riðiLL
Lyon - bayern müncHen 2-3
steaua búkarest - fiorentina 0-1
staðan
Lið L u J t m st
1. Bayern 6 4 2 0 12:4 14
2. Lyon 6 3 2 1 14:10 11
3. Fiorentina 6 1 3 2 5:8 6
4. Steaua B 6 0 1 5 3:12 1
g riðiLL
dynamo kiev - fenerbaHce 1-0
porto - arsenaL 2-0
staðan
Lið L u J t m st
1. Porto 6 4 0 2 9:8 12
2. arsenal 6 3 2 1 11:5 11
3. dynamo Kiev 6 2 2 2 4:4 8
4. Fenerbache 6 0 2 4 4:11 2
H riðiLL
Juventus - bate 0-0
reaL madrid - Zenit 3-0
staðan
Lið L u J t m st
1. real Madrid 6 4 0 2 9:5 12
2. Juventus 6 3 3 0 7:3 12
3. Zenit 6 1 2 3 4:7 5
4. Bate Borisov 6 0 3 3 3:8 3
Síðustu leikirnir í riðlakeppni Meistaradeildarinnar fóru fram í gær. Sir Alex Ferguson
var mikið í mun að Man.Utd næði efsta sæti riðilsins en Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
fór illa að ráði sínu í Portúgal
Manchester United hvíldi fjölda leik-
manna í kvöld þegar liðið á móti
dönsku meisturunum AaB á Old
Trafford. Cristiano Ronaldo og Mich-
ael Carrick voru ekki leikfærir og Wa-
yne Rooney og Rio Ferdinand voru
þeir einu úr byrjunarliði United frá
síðustu helgi. Giggs, Nani, Anderson
ásamt hinum sjóðheita Carlos Tev-
ez byrjuðu inn á. Ekkert nema sigur
kom til greina hjá sir Alex Ferguson
sem sagði að reynsla United af því að
lenda í öðru sæti í riðlakeppninni ekki
góða. Allan Kuhn, stjóri Álaborgar,
fór á kostum á blaðamannafundi fyr-
ir leikinn og sagði meðal annars sína
menn í enska boltanum, Liverpool
muni vinna Englandmeistaratitilinn.
Manchester United og Villarreal voru
jöfn að stigum og efst í riðlinum og
ef United myndi klára sinn leik þyrfti
Villarreal að sigra Celtic með miklum
markamun til að hrifsa toppsætið.
Danir yfir í hálfleik
Reikna mátti með leik kattarins að
músinni og strax á 3. mínútu leit
út fyrir að svo yrði þegar hinn fun-
heiti Carlos Tevez kom heimamönn-
um yfir eftir glæsilega stoðsendingu
frá Giggs. Stuttu seinna fékk hann
dauðafæri sem Robbie Keane hefði
meira að segja skorað úr. Yfirburð-
ir United strax miklir og áhorfendur
komnir í stellingar fyrir markaleik að
hætti hússins. Og þau komu en ekki
frá United. Á 31. mínútu fengu Dan-
irnir aukaspyrnu og Jakobsen skallaði
boltann snyrtilega framhjá Kuszczak
í markinu. Staðan1-1. Takturinn hjá
heimamönnum riðlaðist við þetta
og rétt fyrir hálfleik gengu Danirn-
ir á lagið og skoruðu aftur með góð-
um skalla eftir fyrirgjöf. Vond blanda
af vanmati og kæruleysi var að koma
United um koll. Staðan 1-2 á Old
Trafford í hálfleik.
Rooney bjargar stigi
Reikna má með að kjarnyrt skoska
Fergusons hafi fengið að hljóma dug-
lega í búningsklefanum því heima-
menn mættu glaðvakandi til seinni
hálfleiks og tóku öll völd á vellin-
um. Rétt eftir að Tevez hafði klúðr-
að öðru dauðafæri tók Wayne Roon-
ey til sinna ráða og skoraði gott mark
eftir sendingu frá Anderson. Stað-
an jöfn 2-2. Eftir að Tevez og Nani
höfðu fengið sín færi til að klára leik-
inn flautaði dómarinn til leiksloka og
Allan Kuhn hneigði sig fyrir áhorf-
endum. Góð úrslit fyrir hann, sæti í
UEFA cup en snautleg frammistaða
hjá United sem dugði þó til að sigra í
riðlinum þar sem Villarreal tapaði 2-
0 í Skotlandi fyrir Celtic.
B-lið hjá Wenger
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri
Arsenal, virtist ekki telja eins mikil-
vægt að ná fyrsta sæti riðilsins. Hann
gerði sjö breytingar á sínu liði fyr-
ir viðureignina gegn Porto sem fór
fram í Portúgal. Leikur liðanna var
hreinn úrslitaleikur um efsta sætið.
Arsenal var með 11 stig, Porto með
9 og nægði enska liðinu því jafntefli.
Porto stillti upp sínu sterkasta liði á
meðan Wenger hafði ekki menn eins
og Fabregas og Addebayor einu sinni
í hópnum. Gallas kom aftur inn í lið-
ið.
Varnarleysi Arsenal
Arsenal byrjaði nokkuð vel, sótti á
mark gestanna og átti ágæt skot á
markið. Heimamenn áttu líka sín
færi og á 29. mínútu komst Porto
nálægt því að skora þegar fyrirliðinn
Gallas var steinsofandi í vörninni en
Almunia bjargaði vel og varði skot
heimamanna. Almunia kom aftur á
móti engum vörnum við þegar Al-
ves skallaði dauðafrír af markteig og
staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn.
Vörnin hjá Arsenal á köflum úti á
þekju. Gallas, Diaby auk Eboue
engan veginn sannfærandi í fyrri
hálfleik.
Númeri of litlir
Ekki tók betra við í seinni hálfleik hjá
Arsenal sem virtist ekki hafa sjálfs-
traustið í þennan leik og ekki batn-
aði það á 54. mínútu þegar Lisandro
braust í gegnum hauslausa vörn Ars-
enal og skoraði með góðu skoti. Stað-
an orðin 2-0, Porto miklu betri og lík-
legri að bæta við mörkum en Arsenal
að minnka muninn. Það má vera að
kjúklingar Wengers nái að stríða með-
alklúbbum í Englandi en þeir eiga ekk-
ert erindi í besta félag Portúgal. Fleiri
urðu mörkin ekki og mega Arsenal
vera sáttir við aðeins tveggja marka tap
eftir hörmulega frammistöðu. Annað
sætið í riðlinum staðreynd.
Bayern og Juve efst
Í H-riðli byrjaði Juande Ramos, nýr
þjálfari Real Madrid, vel með liði
sínu sem sigraði Zenit 3-0 þar sem
Raúl bætti markamet Meistaradeild-
arinnar og skoraði tvö mörk og Robb-
en eitt. Raúl hefur nú skorað 66 mörk
í 124 leikjum. Markalaust jafntefli hjá
Juventus og Bate dugði Juve til að
halda toppsæti riðilsins.
Uppgjör toppliðanna í F-riðli
stóð undir væntingum þegar Bayern
München lagði Lyon 3-2 í Frakklandi
eftir að gestirnir höfðu komist í 0-3
með tveimur mörkum frá Klose og
einu frá Ribery. Govou og Benzema
minnkuðu muninn.
SVeiNN WAAge
blaðamaður skrifar: swaage@dv.is
Vanmat og Vitleysa
hjá ensku liðunum
Bjargaði stigi
Wayne rooney jafnaði fyrir
United á móti Álaborg.