Fréttablaðið - 26.01.2016, Síða 4

Fréttablaðið - 26.01.2016, Síða 4
Heilbrigðismál Fyrir tíu árum stofn- aði Joan Freeman samtökin Pieta House á Írlandi. Það gerði hún eftir að systir hennar féll fyrir eigin hendi. Freeman sá að engin úrræði voru fyrir fólk í sjálfsvígshugleiðingum á Írlandi og að vandinn væri tabú í samfélaginu. Í Pieta House starfa sálfræðingar sem bjóða þeim, sem hafa reynt sjálfs- víg eða hugleiða það, meðferð. Einn- ig stendur stofnunin fyrir vitundar- vakningu, kennslu og rannsóknum um sjálfsvíg. Stofnunin er rekin með frjálsum fjárframlögum og söfnunum. Freeman hélt erindi um stofnun og markmið samtakanna á Íslandi í gær. Ástæðan er sú að Hugarafl og Lifa, sam- tök aðstandenda eftir sjálfsvíg, hafa stofnað samtökin Pieta Ísland. Mark- miðið er að setja á stofn sambærilega stofnun og á Írlandi. „Næsta skref er að fara í fjáröflun. Við viljum helst opna í dag en fyrst þarf að fá fjármagn,“ segir Auður Axelsdóttir, forstöðumaður Hugarafls. „Við viljum taka upp aðferðir og hug- myndafræði Pieta á Írlandi enda hefur árangurinn verið mjög góður.“ Auður segir mikla þörf fyrir bætt úrræði vegna sjálfsvíga á Íslandi. Pieta muni bjóða meðferð í heimilislegu umhverfi án þess að vandinn sé sjúk- lingavæddur. „Ég hef unnið í geðgeir- anum í rúm tuttugu ár og við erum ekki að gera nógu vel í þessum mála- flokki. Það er bara staðreynd.“ Með Pieta verður tekið betur utan um málaflokkinn í heild. Fyrir utan sál- fræðimeðferðir standa samtökin fyrir herferðum og halda utan um rann- sóknir. Áhersla er á að ekki sé hægt að búast við að manneskja í mikilli neyð leiti sér sjálf hjálpar. Virkja þurfi sam- félagið; vinnufélaga, vini, skólafólk og aðila innan íþróttahreyfinga til að læra að þekkja einkennin. „Þá er hægt að bregðast við fljótt, til dæmis með því að panta tíma hjá okkur. Fjölskyldan ber þetta oft ein en fjölskyldan verður líka oft samdauna vandanum og gerir sér ekki grein fyrir hættumerkjunum,“ segir Auður. erlabjorg@frettabladid.is NÁNAR Á UU.IS MADONNA ÍTALÍU Næstu brottfarir 13., 20. & 27. feb. ÖR FÁ SÆ TI LA US Dómsmál Íslenskur karlmaður játaði í gær að hafa orðið manni á sextugs- aldri að bana í október síðastliðnum. Játningin kom fram við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Atvikið átti sér stað á búsetukjarna fyrir geðfatlaða við Miklubraut í Reykjavík. Manninum er gert að sök að hafa veist að hinum látna og stungið hann 47 sinnum vítt og breitt um líkamann. Hnífurinn fór meðal annars í gegnum hjarta og lifur. Maðurinn hefur verið metinn ósakhæfur. Ríkissaksóknari hefur farið fram á annað mat á sakhæfi mannsins. – snæ Játaði morð á Miklubraut Betri loðnuvertíð skýrir aukninguna að mestu. Mynd/ksh sjávarútvegur Fiskimjölsverk- smiðjurnar þrjár sem Síldarvinnslan á og rekur í Neskaupstað, á Seyðis- firði og í Helguvík tóku á síðasta ári á móti rúmlega 263 þúsund tonnum af hráefni. Í sömu röð unnu verk- smiðjurnar úr 145.911 tonnum; 73.928 tonnum og 43.656 tonnum. Á árinu 2014 tók verksmiðjan í Nes- kaupstað á móti 110.215 tonnum af hráefni, verksmiðjan á Seyðisfirði 24.283 tonnum og verksmiðjan í Helguvík 27.273 tonnum. Á árinu 2014 var móttekið hrá- efni þeirra því tæplega 162 þúsund tonn. Helsta ástæða aukningarinnar er sú að loðnuveiðin var mun meiri árið 2015 en 2014. Framleiðsla verksmiðjanna þriggja á mjöli og lýsi nam 52.294 tonnum af mjöli og 14.619 tonnum af lýsi. – shá Unnu úr 263.000 tonnum af fiski Safna fyrir sjálfsvígsmiðstöð Stefnt er að stofnun meðferðarúrræðis fyrir fólk í sjálfsvígshugleiðingum að fyrirmynd samtaka á Írlandi. Kona sem hefur reynt sjálfsvíg segir spítalavist og lyf ekki leysa vandann. Bjóða þurfi upp á meira samtal. sjálfsvígstíðni á Íslandi er með þeirri hærri í heiminum. Árið 2014 frömdu 49 manns sjálfsvíg. nordicPhotos/Getty Næsta skref er að fara í fjáröflun. Við viljum helst opna í dag en fyrst þarf að fá fjármagn. Auður Axelsdóttir, forstöðumaður Hugarafls Sigrún Halla Tryggvadóttir var lögð fyrst inn eftir sjálfsvígstilraun þegar hún var 22 ára gömul. Hún fagnar stofnun Pieta á Íslandi enda hafi hún fundið á eigin skinni að úrræðaleysi í íslensku heilbrigðiskerfi sé algjört. Alls fór hún fjórum sinnum inn á geðdeild og var aldrei lengur en fjóra daga inni. „Af því að ég leit út fyrir að hafa allt á hreinu á yfirborðinu þá var sagt að ég gæti alveg farið heim, því ég væri svo skynsöm. Þá var ég send heim með lyf. Svo sat ég heima og beið þess að lyfin létu mér batna. Auðvitað batnaði mér ekki þannig,“ segir Sigrún. Vandi Sigrúnar var ekki tekinn nægi- lega alvarlega og í raun gerði hún sér ekki sjálf grein fyrir alvarleikanum. „Ég var fullviss um að ég væri bara aumingi. En í raun er fólk sem reynir sjálfsvíg bara venjulegt fólk að ganga í gegnum tilfinningalega krísu. Spítalar eru fyrir sjúklinga – þar eru læknar í hvítum sloppum á kontórnum og svo við sjúklingarnir. Það sem Pieta mun bjóða upp á er mun aðgengilegra, fólk er ekki gert að sjúklingum og fær meðferð við vand- anum.“ Send heim með lyf 200-300 reyna sjálfsvíg eða að skaða sjálfa sig í hverjum mánuði á Íslandi. Heilbrigðismál Meðalaldur sér- greinalækna sem starfa samkvæmt rammasamningi við Sjúkratrygg- ingar Íslands er 57,5 ár. Elsti sér- greinalæknirinn er 78 ára gamall en sá yngsti er 36 ára. Fimmtungur allra lækna með rammasamning við Sjúkratryggingar hefur náð 67 ára aldri. Fram kemur hjá Sjúkratryggingum að 347 læknar séu með ramma- samning við stofnunina um ýmsa heilbrigðistengda þjónustu. Af þeim eru 70 yfir 67 ára aldri. Dæmi eru um að læknar hefji störf í einkageiranum eftir að þeir hafa náð ellilífeyrisaldri hjá hinu opinbera. 38 barnalæknar eru með rammasamning við ríkið og eru þeir fjölmennasta stétt lækna með sérsamning. Arna Guðmundsdóttir, formaður Læknafélags Reykjavíkur, segir þenn- an háa aldur umhugsunarverðan. „Um áramótin var lokað fyrir nýliðun í stétt sérgreinalækna með rammasamningi við Sjúkratrygg- ingar. Þessar tölur staðfesta að sú ákvörðun er ekki til hagsbóta fyrir heilbrigðiskerfið,“ segir Arna. „Við þurfum að fá inn nýja þekkingu með yngri læknum sem koma til starfa eftir sérnám erlendis.“ Af 347 sérgreinalæknum sem eru með rammasamning við ríkið eru um 140 þeirra eingöngu starfandi sem sjálfstæðir sérgreinalæknar en um 200 þeirra eru einnig í vinnu annars staðar, langflestir þeirra við Landspítalann eða aðrar heilbrigðis- stofnanir á vegum hins opinbera. Fréttablaðið greindi frá því í síð- ustu viku að útgjöld Sjúkratrygginga til sérgreinalækna í einkaþjónustu hefðu þrefaldast síðan 1997. – sa Fimmtungur starfandi sérgreinalækna orðinn 67 ára eða eldri Pieta House var stofnað fyrir tíu árum 70 komu í meðferð til Pieta House fyrsta starfsárið. 6.000 komu í meðferð í fyrra. 430.000 mættu í gönguna í fyrra. 400 mættu í fyrstu vitundar-vakningar- göngu Pieta House. Ég var fullviss um að ég væri bara aumingi. Sigrún Halla Tryggvadóttir lanDbúnaður Nýr plöntusjúk- dómur hefur greinst á Íslandi. Skaðvaldurinn er baktería sem barst til landsins með innflutningi á rósagræðlingum. Bakterían herjar á ýmsar plöntutegundir og getur valdið miklum afföllum í m.a. kart- öflu- og tómatarækt. Í kjölfar greiningarinnar greip Matvælastofnun til varúðarráðstaf- ana, í samráði við ræktanda og Ráð- gjafarmiðstöð landbúnaðarins, til að hefta útbreiðslu smits og standa vonir til þess að tekist hafi að upp- ræta sjúkdóminn. Í frétt Matvælastofnunar segir að undir lok síðasta árs hafi komið upp sjúkdómur í rósaplöntum í gróður- húsi á Suðurlandi. Við nánari rann- sókn greindist bakteríutegundin Ralstonia í rósunum og er það í fyrsta sinn sem bakterían greinist á Íslandi. Hún barst til landsins með innflutningi á rósagræðlingum frá Hollandi síðasta sumar. Í Hollandi varð fyrst vart við sjúkdóminn í september – þegar voru gerðar ráð- stafanir þar og eru ekki taldar líkur á að sjúkdómurinn hafi borist hingað með fleiri sendingum. Þessi bakteríutegund er skil- greind sem skaðvaldur hér á landi. Kartafla er helsti hýsill bakteríunn- ar en hún getur einnig sýkt aðrar plöntur. Sýkingin lýsir sér þannig að leiðslukerfi plöntunnar stíflast af bakteríunum og laufblöð byrja að visna neðst á sýktum plöntum og færist sýkingin svo ofar með þeim afleiðingum að plantan veslast upp. Matvælastofnun greip til varúðar- ráðstafana og lagði fram áætlun, í samráði við ræktanda og Ráðgjafar- miðstöð landbúnaðarins, til að uppræta sjúkar plöntur og hindra frekari dreifingu. – shá Áður óþekktur skaðvaldur í rósum helsti hýsillinn er kartöflur en tómataplöntur eru einnig viðkvæmar. fréttaBlaðið/rósa Við þurfum að fá inn nýja þekkingu með yngri læknum. Arna Guðmunds- dóttir, formaður Læknafélags Reykjavíkur 2 6 . j a n ú a r 2 0 1 6 Þ r i ð j u D a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 2 5 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :3 0 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 4 3 -E 2 D 8 1 8 4 3 -E 1 9 C 1 8 4 3 -E 0 6 0 1 8 4 3 -D F 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 2 5 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.