Fréttablaðið - 26.01.2016, Síða 22

Fréttablaðið - 26.01.2016, Síða 22
Knattspyrnumaðurinn og þjálfar- inn litríki, Ólafur Þórðarson frá Akranesi, hefur nánast allan starfs- feril sinn unnið hjá fjölskyldufyrir- tækinu Bifreiðastöð Þórðar Þ. Þórð- arsonar sem er með höfuðstöðvar í heimabæ hans, Akranesi. Fyrirtækið, sem yfirleitt geng- ur undir nafninu ÞÞÞ, sinnir fjöl- breyttum verkefnum á sviði flutn- inga og uppskipunar auk fjölda annarra verkefna og segist Ólafur hafa nánast byrjað að starfa þar frá því hann hóf að labba. „Ég spilaði í Noregi sem atvinnumaður í fót- bolta árin 1989-1992 en hafði starf- að við fjölskyldufyrirtækið áður en ég fór út og svo eftir að ég kom heim nokkrum árum síðar. Og hér er ég enn. Það lá nú alltaf bein- ast við að ég hæfi störf hér enda nánast neyddur til þess að vinna hér sem krakki!“ Starfið er ansi fjölbreytt að sögn Ólafs. „Hér ræðst maður bara í öll þau verk- efni sem falla til. Við flytj- um allt milli him- ins og jarð- ar um land allt. Ég vinn mikið á stórum krana- bíl, við flytjum töluvert mikið af bátum norður í land og á Vestfirð- ina. Einnig keyrum við flutninga- bíla milli Akraness og Reykjavík- ur, vinnum við losun með lyfturum og fleira. Verkefnin er mörg og fjöl- breytt hér.“ Starfið hefur breyst Starf hans hefur breyst frá því hann var ungur maður og spil- aði fótbolta. Hann segir ekki allt- af hafa verið auðvelt að sameina þetta tvennt. „Þetta var nú kannski ekki draumastarfið á meðan ég spilaði fótbolta á þessum árum en hafðist svo sem. Starfið var öðruvísi á þessum árum og miklu erfiðari vinna lík- amlega. Í dag er þetta að mestu breytt og nú eru flestir bílar losaðir og lest- aðir með lyfturum og öðrum hjálpartækjum.“ En starfið hafði líka sína kosti fyrir fótboltamanninn og seinna þjálfarann. „Þar sem maður er oft einn á ferðinni gafst mikill tími til að hugsa um fótboltann og það gerði maður raunar allan daginn. Hugur- inn var miklu meira við fótbolt- ann en nokkru sinni starfið sem vöruflutningabílstjóri. Seinna meir þegar ég hóf að þjálfa gafst góður tími til að fara í gegnum hlutina, til að hugsa um hvað maður ætlaði sér að gera og hvernig útfærslan yrði.“ Dæmigerður vinnudagur er langur hjá Ólafi. „Ég er mættur á stöðina kl. 7 á morgnana en reyni að klára öll verk fyrir kl. 16.30. Þá tóku við æfingar og seinna meir þjálfun. Dagarnir geta því orðið nokkuð langir hjá mér.“ Ágætis þjálfun Þrátt fyrir langa daga er oft gaman í vinnunni að sögn Ólafs. „Verkefn- in eru fjölbreytt og maður hittir margt fólk út um allt land. Ég er þó búinn að vera svo lengi í þessum bransa að ég gæti alveg hugsað mér að skipta um starfsvettvang. Enn hef ég þó ekki látið verða af því en maður er þó alltaf að spá og spek- úlera í hinum og þessum hlutum.“ Það eru ekki margir íþróttamenn sem vinna slík störf í dag þótt vafa- laust finnist þeir einhverjir. „Svona líkamleg vinna er ágætis þjálfun fyrir íþróttafólk. Mér finnst raun- ar synd hvað margir ungir íþrótta- menn í dag eru líkamlega slappir á sínum yngri árum.“ Sem fyrrverandi knattspyrnu- maður og núverandi þjálfari er Ólafur eðlilega spenntur fyrir EM í fótbolta næsta sumar og spáir ís- lenska liðinu ágætu gengi. „Ég kemst því miður ekki á mótið sjálft en fylgist vel með því hér heima. Ég hef fulla trú á að liðið komist upp úr riðlinum enda hafa strákarnir sýnt frábæra frammistöðu í und- ankeppninni. Lokaleikurinn gegn Austurríki gæti jafnvel orðið úr- slitaleikur fyrir okkar menn og þá væri nú ekki leiðinlegt að sjá hann í Frakklandi.“ starri@365.is „Svona líkamleg vinna er ágætis þjálfun fyrir íþróttafólk. Mér finnst raunar synd hvað margir ungir íþróttamenn í dag eru líkamlega slappir á sínum yngri árum,“ segir Ólafur Þórðarson. MYND/ÞÞÞ Gafst oft tími til að hugsa um fótbolta Ólafur Þórðarson, fyrrverandi knattspyrnumaður, hefur unnið nær alla ævi sína hjá fjölskyldufyrirtækinu ÞÞÞ á Akranesi. Verkefnin eru fjölbreytt og ráðist er í öll þau verkefni sem til falla. Starf hans hefur breyst frá því hann var ungur maður og spilaði fótbolta. Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is Það er stór stund þegar þú tekur við nýju atvinnutæki sem styttir vinnudaginn og eykur afköstin. Og okkur finnst að ánægjan eigi að endast í mörg ár. Þess vegna er það aðalatriðið hjá Ergo að mæta þínum þörfum með faglegri ráðgjöf og framúrskarandi þjónustu þegar kemur að fjármögnun atvinnutækja. Við fjármögnum flest milli himins og jarðar Vörubílar oG ViNNuVélar Kynningarblað 26. janúar 20166 2 5 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :3 0 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 4 4 -0 0 7 8 1 8 4 3 -F F 3 C 1 8 4 3 -F E 0 0 1 8 4 3 -F C C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 2 5 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.