Fréttablaðið - 26.01.2016, Page 24
Við bjóðum upp á
allar hleðslu-
lausnir fyrir Trojan
rafgeymana.
Kjartan S. Guðjónsson
Mikill fjöldi
starfsmanna kom
að verkefninu, bæði
innlendra og erlendra.
Jörgen Hrafnkelsson
Jörgen Hrafnkelsson starfaði við Kára-
hnjúkavirkjun.
Flest tækin sem nýtt voru við framkvæmdina fóru úr landi eftir að henni lauk.
Mikill fjöldi stórvirkra vinnuvéla var á staðnum.
Framkvæmdirnar við Kárahnjúka-
virkjun eru iðulega nefndar stærsta
framkvæmd Íslandssögunnar. Þær
hófust árið 2002 en virkjunin var
formlega gangsett í nóvember árið
2007. Mikill fjöldi starfsmanna kom
að verkefninu, bæði innlendra og
erlendra, og mikill fjöldi vinnu-
véla og vörubíla var nýttur í verk-
ið meðan á því stóð.
Jörgen Hrafnkelsson var einn
þeirra fjölmörgu Íslendinga sem
komu að verkinu en þá starfaði
hann sem byggingatæknifræðingur
hjá Arnarfelli. Fyrirtækið var eitt
af þeim fyrstu sem komu að eigin-
legri framkvæmd virkjunarinnar
en Jörgen sá þar um alla tæknilega
framkvæmd, svo sem mælingar,
tilboðsgerð og uppgjör á verkum.
„Ég starfaði hjá Arnarfelli 1998
til 2006 og þetta var eftirminni-
legur tími. Ef þannig stóð á leysti
ég af á hinum ýmsu vinnuvélum
enda með ólæknandi trukka- og
tækjadellu á þessum tíma. Í upp-
hafi þegar Kárahnjúkavirkjun var
í undirbúningi og heildarmyndin
kom smátt og smátt í ljós stuðuðu
hinar tröllauknu magntölur mann í
fyrstu; yfir 70 km af göngum, yfir
14 milljón rúmmetrar af efni í stífl-
ur, ótrúlegt magn af steypu o.s.frv.“
Spennandi tæki
Mikill fjöldi stórvirkra vinnuvéla
var á staðnum á þessu tímabili.
Jörgen segir að það sem helst hafi
verið nýtt varðandi gerð virkjunar-
innar var að vinna við jarðganga-
gerð, fyrst við hjáveitugöngin í
Jökulsá með ítalska fyrirtækinu
Impregilo, og seinna verksamn-
ingarnir í Ufsarveitu, en þar grófu
þeir nokkra kílómetra á eigin for-
sendum. „Á þeim tímapunkti komu
inn framandi tæki á borð við Tam-
rock T9 og T11 jarðgangaborana,
loftræsiblásara, að sumu leyti ný
sprengitækni og margt fleira. Auð-
vitað var töluverður spenningur að
sjá og upplifa TBM jarðgangabor-
ana, hvernig þeir unnu og hvern-
ig þeim gekk að vinna á hinu ís-
lenska bergi. Eins var upplifun
að sjá alla þessa gríðar legu efnis-
flutninga með færiböndum sem ég
held að hafi ekki átt sér fordæmi
hérlendis.“
Eðlilega höfðu Jörgen og fé-
lagar hans aldrei tekið þátt í við-
líka framkvæmd áður. „Þetta var
náttúrlega gríðarlega stórt og
krefjandi verkefni, unnið í um 600
metrum yfir sjávarmáli, langt inni
í landi alla mánuði ársins. Slíkar
aðstæður krefjast mikillar skipu-
lagningar, það þarf að setja upp
lager með öllu sem þarf að nota,
varahlutum, byggingarefni, vist-
um o.fl. Menn gátu búist við a.m.k.
viku sambandsleysi við byggð, með
mörg hundruð manns í vinnubúð-
um. Það krefst virkilegrar skipu-
Sannarlega eftirminnilegur tími
Starfsmenn sem komu að gerð Kárahnjúkavirkjunar á sínum tíma gleyma þeirri framkvæmd seint. Verkefnið var risastórt og fjarri
mannabyggðum. Stórtækar vinnuvélar voru notaðar þar í bland við smærri og vöktu sumar þeirra mikla eftirtekt starfsmanna.
lagningar.“
Tæki úr landi
Eftirminnilegasta nýjungin sem
sem Jörgen og félagar tóku í notk-
un var ekki vinnuvél en þó ná-
tengt, nefnilega þrívíddarskanni.
„Með þessu tæki var hægt að yfir-
borðsmæla fleti með mun meiri ná-
kvæmni en áður hafði verið gert
hérlendis. Skannann notuðum við
m.a. til að mæla inn yfirborð jarð-
ganga en með þessari tækni var
hægt að bera saman mun betur
raungröft á móts við hönnunar-
snið.“
Flest tækin sem nýtt voru við
framkvæmdina fóru úr landi eftir
að henni lauk. „Það er helst að þessi
hefðbundnu jarðvinnutæki eins
og gröfur, ýtur og námu trukkar
sem nýtast við alla almenna jarð-
vinnu hafi orðið eftir. Síðan má
ekki gleyma því að vinnuvél er
eitt, því afburða stjórnandi er ekki
síður mikilvægur. Vinnuvélin gerir
ekkert ein og sér. Í kjölfar fram-
kvæmdanna fóru mjög margir
tækjamenn í önnur störf eða utan
og má því segja að í kjölfar hruns-
ins og lægðar í jarðvinnuverk-
töku vanti nú að hluta nýja kynslóð
góðra tækjastjórnenda.“
Trojan rafgeymarnir hafa verið
seldir hér á landi um rúmlega tíu
ára skeið við afar góðar undir-
tektir fyrirtækja í ólíkum at-
vinnugreinum. Um er að ræða
bandaríska gæðaframleiðslu og
eru rafgeymarnir þekktir fyrir að
vera traustir, öruggir og afar end-
ingargóðir. Ekki skemmir heldur
gott verð fyrir að sögn Kjartans
S. Guðjónssonar, sölu- og þjón-
usturáðgjafa hjá Olís, en fyrir-
tækið hóf að flytja rafgeymana
sjálft inn árið 2013. „Framleið-
endur Trojan rafgeymanna hafa
frá árinu 1928 verið í fararbroddi
á heimsvísu í framleiðslu á djúp
afhleðslu sýrugeymum (e. deep
cycle flooded) og bestu tækni
í framleiðslu AGM og Gel raf-
geyma. Þetta er því heimsþekkt
vörumerki og afar traust enda er
fyrirtækið búið að vera ansi lengi
í þessari framleiðslu.“
Betri kjör
Eftir að Olís varð form-
legur dreifingarað-
ili fyrir rafgeym-
ana árið 2013 hefur
fyrirtækið getað
boðið viðskiptavin-
um sínum upp á enn
betri kjör en áður að
sögn Kjartans. „Síð-
ustu þrjú árin höfum við flutt
sjálf inn þessa vönduðu geyma og
í mun meira magni en áður. Fyrir
vikið njóta viðskiptavinir okkar
þess svo sannarlega þegar kemur
að bæði verði og þjónustu.“
Afkastagetan aukin
Að sögn Kjartans stóla stór og
smá fyrirtæki um allan heim
á Trojan rafgeyma til að skila
framúrskarandi afli fyrir golf-
bíla, gólfþvottavélar, vinnulyft-
ur, skipa-, báta- og hús-
bí la eða annars
konar notk-
un. „Þar má m.a. þakka áratuga
reynslu, þrotlausum rannsóknum
þar sem tæknimenn fyrirtækis-
ins vinna stöðugt að því að full-
komna framleiðsluna enda hefur
afkastageta Trojan rafgeymanna
verið aukin enn frekar með nýj-
ustu tækni.“
Úrvals starfsmenn
Í dag hefur Olís 24 útibú um allt
land. „Við bjóðum upp á allar
hleðslulausnir fyrir Trojan raf-
geymana auk þess að sjá um
allt viðhald og þjónustu í sam-
bandi við þá. Fyrirtækið hefur á
að skipa úrvals starfsmönnum í
útibúum sínum sem þekkja vel til
Trojan rafgeyma.“
Allar nánari upplýsingar má
finna á www.olis.is, í sölu- og
þjónustuveri í síma 515-1100, í
næsta útibúi eða hjá kjartans@
olis.is.
Hrein orka í allra þágu
Um tíu ára skeið hefur Olís boðið íslenskum fyrirtækjum upp á rafgeyma frá
Trojan með góðum árangri og sem skilað hefur sér í betra verði og þjónustu.
Að sögn Kjartans stóla stór og smá fyrirtæki um allan heim á Trojan rafgeyma.
VörubílAr og VinnuVélAr Kynningarblað
26. janúar 20168
2
5
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:3
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
4
4
-1
4
3
8
1
8
4
4
-1
2
F
C
1
8
4
4
-1
1
C
0
1
8
4
4
-1
0
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K