Fréttablaðið - 26.01.2016, Síða 30
Draumabíllinn er sennilegast bara nýja útgáf
an af bílnum sem ég keyri í dag, Benz Actros.
Litla kaffistofan er uppáhalds vegasjoppa Olla. „Þar er skyldustopp.“
„Í dag er ég bílstjóri og verkstjóri
hjá Vaðvík ehf. Þar hef ég starfað
síðustu sex ár og líkar afskaplega
vel. Svo hef ég aðeins komið ná-
lægt gröfu- og kranavinnu undan-
farin ellefu ár en tengdaforeldr-
ar mínir reka jarðverktakafyrir-
tækið Ketilbjörn á Syðri-Reykjum
í Biskupstungum. En það er meira
svona bara þegar maður kemur í
heimsókn í sveitina um helgar og
í sumarfríinu. Þannig að það er
óhætt að segja að vinnan og jafn-
vel frístundirnar snúist mikið um
tæki og tól.“
Hver er besti vörubíllinn sem þú
hefur keyrt?
„Sá besti sem ég hef unnið á er
bíllinn sem ég er á núna, 2007 ár-
gerð af Mercedes Benz Actros, 6
hjóla dráttarbíll. Ég hef unnið á
þessum bíl í um fimm ár og hann er
bara ákaflega góður enn þá, þrátt
fyrir að vera ekinn um 660 þúsund
kílómetra. Bíllinn er vel búinn og
allt til alls fyrir ökumann. Hann er
með stærsta ökumannshúsinu sem
Benz framleiddi á þessum tíma og
í honum eru meðal annars tvær
kojur, ísskápur, Alpine-hljóðkerfi
og þráðlaust internet svo fátt eitt
sé nefnt. Við höfum ferðast vítt og
breitt um landið saman þessi ár og
hann hefur ekki enn brugðist mér.“
Hver er draumabíllinn?
„Draumabíllinn er sennilegast
bara nýja útgáfan af bílnum sem
ég keyri í dag, Benz Actros, og ekki
væri verra ef það væri 630 hestafla
bíll með Gigaspace-húsi.“
Hvaða leið keyrirðu oftast?
„Ég hef mikið keyrt á milli
Selfoss og Reykjavíkur síðustu
ár. Tvær til þrjár ferðir á dag og
kann vel við það. Þetta er ekkert
of langt, og vinnudagurinn langt
frá því að vera einhæfur. Árið
2013 tók ég saman að gamni
mínu hversu margar ferðir ég
hafði farið yfir Hellisheiði það
árið, og þær voru hvorki meira
né minna en 858, ferðirnar yfir
heiðina það árið, þannig að þetta
eru sennilega eitthvað í kringum
4.000 ferðir þarna yfir þessi sex
ár sem ég hef starfað hjá Vað-
vík.“
Hvaða leið er síst að keyra?
Það er klárlega akstur innanbæj-
ar í Reykjavík, það er eitthvað sem
maður er löngu kominn með leiða
á. Enda eru þetta ekkert skemmti-
legustu tækin til að vera sífellt
að stoppa á og taka af stað á ljós-
um í traffíkinni í bænum. En það
getur nú stundum verið gaman
þegar maður þarf að troðast ein-
hvers staðar á ólíklegustu staði
með vörur, þar sem er kannski
ekkert endilega reiknað með að
svona stór tæki geti athafnað sig.
Þá fær maður tækifæri til að sanna
sig pínulítið, og þá aðallega fyrir
sjálfum sér.
Hvað er best að hlusta á í bíln-
um?
„Ég er nú nánast alæta á tónlist,
og hef lagt dálítið upp úr því í gegn-
um árin að vera með góðar græjur í
þeim bílum sem ég vinn á… En gott
rokk, bæði gamalt og nýtt, verður
nú sennilega oftast fyrir valinu.
Og eitthvað hressilegt sem maður
getur sungið hástöfum með.“
Hver er besta vegasjoppan?
„Það er Litla kaffistofan í Svína-
hrauni. Þar er skyldustopp til að
taka olíu á bílinn og næra sig. Enda
er hann Stefán sem rekur Kaffi-
stofuna þvílíkur höfðingi heim að
sækja, sem og allt hans fólk sem
tekur alltaf brosandi á móti manni.“
Hvað er best að hafa í nesti á
ferðinni?
„Þeir sem þekkja mig, myndu
sennilega segja kók og súkkulaði.
Og ég væri nú sennilega að segja
ósatt ef ég segðist ekki kannast við
það.“
Hvað er best við að vera vörubíl-
stjóri?
Það er útsýnið út um skrifstofu-
gluggann minn sem er aldrei eins,
jafnvel þótt maður keyri sömu
leiðina dag eftir dag, þá eru engir
dagar eins. Það eru nýjar áskoranir
á hverjum degi og ég hitti og kynn-
ist fullt af fólki víða um land. Og
svo er ég á launum við að ferðast
um þetta fallega land sem við búum
á, allt árið um kring.“ starri@365.is
Útsýnið út um gluggann er aldrei eins
Ólafur Þór Þórðarson, eða Olli Dodda eins og hann er kallaður, hefur verið í vörubílabransanum í fjórtán ár. Hann situr fyrir svörum.
Nýjar mini/midi gröfur koma endurhannaðar frá grunni, eru til dæmis með vökva
skekkjanlegum tönnum, mun rýmra húsi, nýjum dísilvélum úr samstarfi JCB og
Khöler í Austurríki.
Hjólaskóflur frá JCB sem eru 10 tonn eða stærri koma nú gjörbreyttar með stórglæsilegu húsi og frábæru vinnuumhverfi fyrir
stjórnandann.
Vélfang kynnir nýjan skotbómulyftara til leiks á þessu ári. Hér er um að ræða smáan en knáan lyftara sem er bara rúmlega 1,8
metrar á hæð og breidd og fer auðveldlega inn í gáma og getur lyft 2,5 tonnum í 6 metra hæð. Hann nær 40 kílómetra öku
hraða og er með fjaðrandi lyftigálga.
„Það sem eigendur og rekstrar-
aðilar munu verða mest varir
við í ár er að nú verða allir véla-
framleiðendur að uppfylla kröf-
ur um Euro Tier lV Final meng-
unarstaðla,“ segir Sigurjón P.
Stefánsson, sölustjóri JCB. Hann
segir útfærslur framleiðenda vera
mismunandi til að ná þessu mark-
miði. „Til dæmis verður AdBlue
ekki í JCB vélum sem eru undir
55 kW að afli en verður að vera
í vélum fyrir ofan 56 kW. JCB
fer þá leið að vera laus við DPF
útblásturskúta eða svokallaða
brunakúta, sem hafa mjög tak-
markaðan líftíma og eru dýrir í
endurnýjun. Þá er af þeim óhag-
ræði vegna aukinnar eldsneytis-
eyðslu og óþægindi af brunaferli
þeirra,“ segir Sigurjón en þess í
stað notar JCB í sínar vélar SCR
hvarfakúta. „Þannig hafa þeir náð
að gera vélar sínar enn sparneytn-
ari en var í fyrri kynslóð sem var
þó sparneytin.“
Öflug þjónusta
„Vélfang hefur jafnt og þétt
byggt upp tengslanet við eigend-
ur og rekstraraðila JCB véla um
allt land og átt góðu samstarfi að
fagna við nýja og eldri eigendur
þessara véla,“ segir Sigurjón og
bendir á að Vélfang reki öfluga
varahluta-, viðgerðar- og söluþjón-
ustu í Reykjavík og á Akureyri.
Fjölbreyttur búnaður
Vinnuvéladeild Vélfangs selur fjöl-
breyttan búnað og tæki fyrir vinnu-
vélar til ýmissa nota. Til dæmis
brotfleyga frá MSB, tilt og tilt-
rotora frá Engcon, HKS og Steelwr-
ist. „Einnig eru við með allt sem
þarf til að hreinsa snjó og hálku-
verja eins og snjóplóga, snjóskóflur
með hliðar vængjum, saltdreifara og
fleira frá Trejon Optimal í Svíþjóð,“
segir Sigurjón. Hann tekur einnig
fram að Vélfang hafi flutt inn tölu-
vert af nýlegum og vel með förnum
JCB vinnuvélum á hagstæðu verði.“
Ýmsar nýjungar hjá Vélfangi
Vélfang er umboðsaðili fyrir JCB á Íslandi en merkið er rótgróið hér á landi og hefur þjónað mörgum verktökum vel í gegnum tíðina. Góð sala var í
JCB vinnuvélum á síðasta ári og nú í upphafi árs eru fjölmargar seldar vélar væntanlegar til landsins, af öllum gerðum og stærðum. Ýmsar nýjungar
og nýjar útfærslur á vélum munu birtast á þessu ári. Þær eru enn sparneytnari en fyrri kynslóð sem var þó sparneytin.
Vélfang hefur jafnt og þétt byggt upp
tengsla net við eigendur og rekstraraðila JCB
véla um allt land og átt góðu samstarfi að fagna við
nýja og eldri eigendur þessara véla.
VöruBÍLAr Og ViNNuVéLAr Kynningarblað
26. janúar 201614
2
5
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:3
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
4
3
-E
7
C
8
1
8
4
3
-E
6
8
C
1
8
4
3
-E
5
5
0
1
8
4
3
-E
4
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K