Fréttablaðið - 26.01.2016, Síða 64

Fréttablaðið - 26.01.2016, Síða 64
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Bakþankar Erlu Bjargar Gunnarsdóttur Ég horfði á upprifjun á þátttöku Íslands í Júróvisjón árin 2006-2009 um helgina. Þetta er ekki í fjarlægðri fortíð en mér fannst það samt. Undraðist tísku og strauma. Fannst allt svo framandi og oft kjána- legt. Ragnhildur Steinunn samt alltaf gordjöss. Og ég var nett föst í yfirlætinu þegar hann birtist svo á skjánum. Eiríkur Hauksson. Ég hef alltaf verið mjög viðkvæm fyrir Eika. Árið 1986 langaði mig nefnilega að vera eins og Madonna eða Whitney Houston. En nei. Eiríkur Hauksson var sprúðlandi ICY úti um allt og það var eins og við manninn mælt: Ég var alveg eins og hann! Eins og við Eiríkur Hauks- son værum einu rauðhærðu mann- eskjurnar á jarðkringlunni. „Er þetta pabbi þinn, Erla?“ spurðu krakkafíflin í skólanum. Afi og amma voru samt verst. Um leið og sást glitta í faxið á manninum þá byrjaði afi að flissa. Og ég gargaði og grenjaði í koddann. Þetta var ekki draumur átta ára stúlku. Og nú – löngu síðar – sat ég og horfði einbeitt á þennan elskulega, miðaldra mann syngja rokklag í leðurfrakka. Og það gerðist eitthvað. Í fyrsta lagi þá erum við bara hellings lík! Og í öðru lagi þá finnst mér það æði. Ég meina, hversu töff er mað- urinn? Og af hverju í andskotanum litaði hann hárið í myndbandinu? Það sléttist úr þrjátíu ára gömlum krumpum – og við Eiki urðum sátt. Um leið kunni ég að meta þennan spegil sem ég ólst upp við. Á gelgj- unni með Nínu. Of töff fyrir Sjúbídú. Hauslaus í All Out of Luck. Tauga- veikluð móðir að útskýra hegðun Silvíu Nætur. Þá tók ég létta yfirferð á söguna á ný. Sá tilganginn með spandexinu í sögulegu ljósi. Rifrildi um íburð keppninnar segir okkur hvar við erum stödd í útrásinni. Berskjaldaða þjóðarsálina er að finna í hverjum tóni og komplexar æskunnar eru kveðnir í kútinn. Ætli keppnin okkar sé orðin fullorðin? Júró-uppeldi Forsala hefst á morgun kl. 10 Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka 2 5 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :3 0 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 4 3 -C A 2 8 1 8 4 3 -C 8 E C 1 8 4 3 -C 7 B 0 1 8 4 3 -C 6 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 6 4 s _ 2 5 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.