Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 01.01.1908, Síða 128
Yfirlit
yfir mannfjöldaskýrslur presta, og skýrslur um gipta, fædda og dána 1906.
I. Mannfjöldinn:
1. Eptir skýrslum prestanna 1905 var mannfjöldinn þ. 01. desb. 79,462 m.
árið 1906 var tala í'æddra.................................... 2424
og tala dáinna.............................................. 1270 1,154 —
Alls... 80,616 m.
en mannfjöldaskýrslurnar 1906 telja hjer í árslokin................... 80,789 —
mismunurinn er 173, sem prestarnir finna fieiri en til áttu að vera. Annaðhvort er
að fleiri menn haía flutt sig til landsins, en burtu hafa farið, eða að prestarnir hafa
fundið fleira af því fólki, sem áður hefur dulist fyrir þeim, en þeir fundu árið 1905.
Báðar þessar ástæður geta ráðið nokkru hvor fyrir sig, en líklegast er að 1906 hafi
nokkuð fleiri ilutst inn, en út liafa ílutst.
1901 þegar fóllcstalan síðast fór fram, vantaði í skýrslur prestanna hjer um
hil 1200 manns. Nú hefur eptir það verið fólkstala í Reykjavik á hverju ári, áður
voru þar húsvitjanir að eins, og með því móti hefur líklega fundist eitthvað af því
fólki, sem áður vantaði í bænum. En þeir sem áður fjellu burtu úr prestaskýrsl-
unum annarsstaðar á landinu hafa að líkindum fallið burtu síðan, eða þá aðrir í
þeirra stað. Sú tala hefur líkast til lialdist óbreytt, eða því sem næst. Þegar fólk-
ið verður talið næst á öllu landinu, mun það koma í ljós, að ýmsir finnist, sem
prestarnir ekki finna þegar þeir húsvitja, og er það að líkindum helst í kaupstöðun-
um, þar sem margt er um manninn. Hve margt það fólk muni vera, er ekki unt
að segja með vissu. Það var eins og áður er sagt 1200 manns 1901, en víð fólks-
talið í Reykjavík, sem fer fram árlega finnst væntanlega lleira en presturinn kom
tölu á áður; það gæti verið eitthvað á milli 2—400 manns og þá væru mannfjölda-
skýrslur presta oflágar um 800 til 1000 manns nú. Fólkstalan í árslokin 1906 ætti
þá að vera einhversstaðar á milli 81,500 og 82,500 manns.
Eins og venja hefur verið, hefur mannfjöldinn í hverju prófastsdæmi verið
tekinn úr mannfjöldaskýrslum prestanna (shr. Taíla I). Vestmannaeyjar hafa verið
teknar út úr Rangárvallaprófastsdæmi, og Reykjavík út úr Kjalarnessprófastsdæmi.
í 15 af þessum umdæmum hefur fjölgað um.................................. 1547 m.
en í 7 af þeim hefur fækkað um......................................... 220 —
Fjölgunin er alls ..................................................... 1327 m.
Fæddir fleiri en dánir voru ........................................ 1154 —
Munurinn, sem líklega stafar af innflutningi er
173 m.