Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 01.12.1912, Síða 16
14
inga yíir koslnaðinn við bæjabyggingar mun ekki vera að fá. Þegar landssjóður
hefur látið byggja upp eitthvert af kotunum sínum úr eyði, hefur hann ekki sjaldan
lagt til 500 kr., sem mun vera borgun á efnivið, járni og flutningi á því. Meðan
hæir fengust til leigu i Reykjavík, voru þeir leigðir á 30—40 kr., nú mundi sú leiga
vera 48—60 kr., þeir bæir voru vanalegast rúmlitlir með einu eða tveimur hálf-
þilum, og ekki gjört ráð fyrir neinni verulegri geymslu inn í þeim. Þeir voru minni
en flestir bæirnir, sem hjer eru taldir með 1 þili. Eftir húsaleigunni áttu þessir
bæir að hafa kostað 5—800 kr. hver. Það er óliugsandi, að nokkur bær, þó ekki
sje nema með einu þili, — þillaus bær er naumast til — kosti minna en 500 kr„ og
Iiið sanna verð mun vera 700 kr. eða því sem næst. Þegar verð einföldustu bygg-
ingarinnar er fengið, verður best giskað á verð hinna með þvi, að virða hvert þil
og bæta því við fyrstu virðinguna. Mcð timburstofu er átt við tvo útveggi úr timbri
fyrir utan það, að stoían er öll þiljuð innan. Bæir með timburstofu eru bygðir
svo mjög úr timbri, að þar þarf sjerstaka áætlun. Ef hvert þil er virt á 400 kr„
scm með timburverði, flutningskostnaði og smiði naumast verður nógu hátt, þá
koslar bær með 1 þili 700 kr„ bær með 2 þilum 1100 kr„ bær með 3 þilum 1500
kr„ bær með 4 þilum 1900 kr„ bær með 5 þilum 2300 kr„ og bær með timbur-
stofu mun ekki kosta minna en 3000 kr.
Torfbæirnir á landinu (utan kaupstaðanna íimm) ættu þá að kosta það,
sem hjer segir:
1. 1847 bæir með 1 þili kr. 1.292 þús. kr.
2. 1709 — — 2 þilum — 1.879 — —
3. 876 — — 3 — — 1.314 — —
4. 326 — — 4 — — 619 — —
5. 191 — — 5 — — 442 — —
6. 373 — — timburstofu — 1.116 — —
alls 5322 Ef þessi áætlun er rjett eru sveitabæirnir kr. 6.662 þús. kr. helmingurinn af verði allra jarða
á landinu.
í landsfjórðungunum er löluverður munur á því, hvernig bæir eru bygðir,
eða hve margir smábæir og velbygðir bæir eru þar, alt reiknað hlutfallslega í
hverjum fjórðungi.
Suðurland Vcsturland Norðurland Austurland
Bæir með 1 þili 32.2°/o 49.0°/o 26.3% 31.2 %
— — 2 þilum ...' 33.2— 30.2— 32.5— 33.1 —
— — 3 þilum 18.1— 12.2— 21.0— 9.6—
— — 4 þilurn ... 8.3 — 3.0— 7.5 — 4.6—
— — 5 þilum eða timburstofu 8.2— 5.6— 12.7— 21.5—
100.0°/« 100.0% 100.0% 100.0%
Sveitirnar á Veslurlandi eru satnkvæmt þessu lang lakast bj'gðar, þar er
annar hver bær með einu þili, en 5.6 bæir af hundraði eru vel lij’stir eða mjög vel
hýstir. Bæir með 2 þilum eru tiltölulega jafn margir í hverjum Qórðungi sem er.
Bæir með 1 þili eru fæstir í Norðurlandi, bæir með 3 þilum eru tiltölulega flestir
þar, með 4 þilurn næst flestir 7.5°/o, og bæir með 5 þilum eða timburstofu 12.7°/o.
Á Suðurlandi er einna jafnast bygt til sveita, bæir með 1 þili eru þriðjungur af öllum
bæjum, með 2 þilum annar þriðjungar, og með meiri byggingu síðasti þriðjungurinn.