Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 01.12.1912, Blaðsíða 21
19
uð ára kristni hafði látið þálifandi kynslóð eftir sig í húsagerð. Dómkirkjan í Reykja-
vík og kirkjurnar í Vestmannaeyjum og á Bessastöðum höfðu verið bygðar af kon-
ungsfje. Timburkirkjur voru þá 107, en torfkirkjur 187. Þegar kirkjunum var
flokkað eftir landsfjórðungum voru þær bygðar þannig í hverjum þeirra fyrir sig:
Stein- Timbur- Torf-
kirkjur. kirkjur. kirkjur.
Á Suðurlandi 4 45 38
- Vesturlandi ... 17 64
- Norðurlandi 1 28 61
- Austurlandi 17 24
5 107 187
Austur-Skaftafellssýsla og Norður-Þingej'jarsýsla eru taldar með Austurlandi.
Hafa kirkjur verið best bygðar á Suðurlandi, þar næst á Austurlandi, þá á Norður-
landi, og lakast á Vesturlandi. Alls voru kirkjur á landinu árið 1853 299. Það
eru alt of margar kirkjur fyrir 59000 manns, eins og þá voru á Iandinu.
Árið 1910 voru kirkjur auðvitað ekki taldar sjerstaklega, en sóknafjöldinn
segir lil hve margar þær voru. Þrjár sóknir klofnuðu í tvent milli sýslna, og eru
dregnar frá. 3 sóknir hafa 2 kirkjur, scm verða alls 277. Að 17 kirkjum eiga
færri býli en 10 kirkjusókn, og að 93 kirkjum eiga 10—20 býli kirkjusókn, svo
ekki er að furða þó einhverntíma verði messufall á þeim stöðum. Það hlýtur að
koma af slrjálbygð, ófærum vötnum eða sjó og vegleysum, þegar svo fátt fólk
verður að halda uppi kirkju. Gamall vani styður að því að halda ástandinu við
þar sem t. d. ár hafa verið brúaðar, eða vegir lagðir þar sem áður var ófæra.
Mannfæðin, sem heldur sumum kirkjunum við, er ástæðan til þess, að þær
eru í löku standi og lítilfjörlegar.
Af þessum 277 kirkjum voru bygðar úr steini eða steinsteypu 1912:
A. Á Suðurlandi: 1. 'Landakirkja á Vestmannaeyjum úr steini.
2. Hvalsnesskirkja úr steini.
3. Njarðvikurkirkja úr steini.
4. Garðakirkja á Álftanesi úr steini.
5. *Bessastaðakirkja á Álftanesi úr steini.
6. ‘Dómldrkjan í Reykjavík úr steini.
7. 'Viðeyjarkirkja úr steini.
8. Saurbæjarkirkja á Kjalarnesi úr steinsteypu.
B. Á Vesturlandi: 1. Ingjaldshólskirkja í Snæfellsnessýslu úr steinsteypu.
2. Eyrakirkja í Patreksfirði úr steinsteypu.
3. Þingeyrarkirkja í Dýrafirði úr steinstej'pu.
4. Bíldudalskirkja úr steinsteypu.
5. Vatnsfjarðarkirkja úr steinsteypu.
6. Kollafjarðarnesskirkju úr steinsteypu.
C. Á Norðurlandi: 1. Þingeyrakirkja úr steini.
2. ‘Dómkirkjan á Hólum úr steini.
3. Lundarbrekkukirkja úr steini.
4. Þverárkirkja í Laxárdgl úr steini.
5. Reykjahlíðarkirkja úr steini.
D. Á Austurlandi: 1. Hákonarstaðakirkja úr steini.
2. Búðareyrarkirkja í Reyðarfirði úr steinsteypu.
3. Bjarnanesskirkja í Auslur-Skaftafellskirkju úr steinsteypu.