Lögmannablaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 14

Lögmannablaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 14
14 ÞANN 19. nóvember sl. stóð félags-deild LMFÍ fyrir villibráðarnám- skeiði og fékk meistarakokkinn Úlfar Finnbjörnsson til að kenna. Þátttak- endur voru upplýstir um leyndarmálin við eldun fasana, gæsalifrarmousse, Groose (skoska rjúpu), reyktan lunda, reykta hreindýrarúllu, heitreyktan svart- fugl, grafna gæs ásamt hugmyndum um meðlæti og sósur. Myndirnar tala sínu máli en með góðfúslegu leyfi kokksins fylgja með uppskriftir af góm- sætum forrétti, salati og villisveppasósu sem passar með öllum steikum. 4 / 2 0 0 3 Villibráð Dögg Pálsdóttir að veiða akurhænu úr pottinum. Gott meðlæti með villibráð skiptir miklu máli og því voru útbúnar sósur og salöt. Hér sjást Ólafur Haralds- son og Aðalsteinn E. Jónasson önnum kafnir við sósugerð. Það er stundum sagt að góðir kokkar séu göldróttir. Á þessari mynd er eins og Úlfar sé að fara með galdraþulu yfir pottunum en víst er að þetta var svolítið magnað námskeið! Jónína Jónasdóttir hrærir í dýrlegri villisveppasósu á meðan Ragnar H. Hall punktar hjá sér samviskusamlega. FORRÉTTUR: Reyktur lundi með mangó og furuhnetum Bringur af 4 reyktum lundum – skornar í litla teninga 1 mangó – skrælt, steinlaus og skorið í teninga 2 msk. furuhnetur Sósa: 2 msk. Ostru-sojasósa 2 msk. tómatsósa 2 msk. sætt sinnep 1 msk. ferskt engifer 1/2 ferskur chilli pipar 2 hvítlauksgeirar

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.